Morgunblaðið - 10.08.2000, Síða 48

Morgunblaðið - 10.08.2000, Síða 48
£8> FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 2000 MINNINGAR MORGUNB LAÐIÐ + Friðrik Vigfús- son fæddist í Reykjavík 4. júlí 1913. Hann lést á Landakot sspítala 1. ágúst síðastliðinn og fór útför hans fram frá Fossvogskirkju 9. ágúst. Mér barst sú harm- fregn þriðjudaginn 1. -ágúst sl. að góður vinur minn til margra ára, Friðrik Vigfússon, hefði árla dags kvatt þetta jarðlíf. Á unglingsárum mínum kynntist ég Friðriki, eða Fidda eins og hann var ávallt nefndur af nánustu vinum. Það var einmitt í gegnum starf KFUM í Reykjavík sem vináttubönd okkar tengdust, þar áttum við marg- ar góðar stundir ásamt öðrum vin- um. Fiddi tók virkan þátt í starfi þess félags, allt til þess er hann veiktist. Nokkurra vikna gamall var hann skírður af séra Friðriki Friðrikssyni, stofnanda KFUM og KFUK á fs- /^fcndi og heitir eftir honum. Fiddi var einn af sautján ungum mönnum sem árið 1945 stofnuðu Gideonfélagið á íslandi. En sá fé- lagsskapur hefur það að meginverk- efni sínu að gefa Nýja testamentið öllum tíu ára skólabörnum auk þess sem Nýja testamentið er við hvert rúm á sjúkrahúsum landsins. Þar að auki hafa öll heimili eldri borgara fengið Nýja testamentið með stóru letri til afnota. Fiddi hafði brennandi áhuga á því að Guðsorð væri á þeim stöðum þar auðvelt væri fyrir hvem og einn að nálgast það til lestrar. Hann átti þá trúarreynslu og sannfæringu að enginn maður verður samur eftir að hann hefir lesið Guðs heilaga orð með fullri vitund og opnum huga, því að slíkur lestur verður hverjum ein- staklingi vegvísir á lífsleiðinni og til eilífðar blessunar. Fiddi átti glaða skaphöfn. Hann hafði næmt auga fyrir hinu spaugi- lega í lífinu og var fundvís á hið græskulausa gaman. Þegar hann var að segja frá ýmsu skemmtilegu sem hann hafði upplifað sagði hann þann- ig frá, að hver sem á hlýddi varð glaður í geði enda leið öllum ávallt vel í nærveru hans. jg Friðrik var ráðinn forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófasts- dæma árið 1976. Hann lét af for- stjórastarfinu þegar hann varð sjö- tugur. Eftir það sinnti hann starfi í Fossvogskirkju í nokkur ár, þar til hann lét endanlega af störfum. Hann sinnti þessu ábyrgðarmikla og við- kvæma starfi af stakri samviskusemi og eðlislægri skyldurækni. Á þeim tíma sinnti ég formannsstarfi stjórn- ar kirkjugarðanna, og var því sam- starf mitt við Fidda mjög náið. Öll stjómunarstörf hjá slíkri stofnun geta oft verið vandmeðfarin og við- kvæm. Verkefni þarf að leysa hverju sinni með kærleika og hlýju. Öll þau störf sem Fiddi sinnti vora unnin rafið heiðríkju hugans og meðfæddri sámviskusemi sem var einn af mörg- um eðliskostum hans. Fiddi var vel metinn af vinum og öllum þeim sem hann átti samskipti við á lífsgöngunni. Fiddi eignaðist á unga aldri persónulega trú á hinn krossfesta og upprisna frelsara Jes- úm Krist. Sú trú mót- aði persónu hans, þannig að öll framkoma hans við fólk var mótuð af hlýju og virðingu. Eg þakka Guði fyrir góðan vin og sam- starfsmann. Eg bið Guð að styrkja og blessa eftirlifandi eig- inkonu hans, Þor- björgu, og dætur þeirra, Guðlaugu og Maríu, böm þeirra og aðra ást- vini. Ég lýk þessum fátæklegu orðum mínum með tveimur erindum úr sálmi séra Friðriks Friðrikssonar: Ver hjá mér, Herra, dagur óðum dvín, Nú dimman vex, ó, komdu nú til mín. Og þegar enga hjálp er hér að fá, Þú þjálparlausra líknin, vert mér hjá. Ó, birztu mér, er bresta augun mín, Og bentu mér í gegnum húm til þín, Þá ljómar dagur, líða myrkrin frá. í lífi’ og dauða, Jesús, vert mér hjá. (Friðrik Friðriksson.) Helgi Eliasson. Við sem höfum fengið að njóta þess að lifa vel og lengi í „eldri deild- inni“ verðum að sætta okkur við að þeir týna nú ört tölunni, vinirnir góðu og kæra, sem við höfum fengið að njóta og vera samferða „langt fram á horfinni öld“. Úr þeim hópi er nú síðast genginn á Guðs síns fund, hinn eftirminnilegi og fágaði sjentil- maður, Friðrik Vigfússon. Við vor- um báðir svo lánsamir að eignast eig- inkonur af bestu gerð frá Þórs- götunni, hann nr. 4 en ég nr. 9. Á fjögur vora þrjár systur, en á níu tvær. Vinátta góð var milli þessara stúlkna allt frá æskudögum. Það var lifandi, virk kristin trú og hin ljúfa sönglist, sem fyrst og fremst tengdi þær saman. Um langt árabil sungu þær saman, ásamt Guðfinnu (Finnu), söngfugli í nágrannagötu, á fundum og samkomum í kristilegum félögum ungra kvenna og manna. í þeim ótal- mörgu, innihaldsríku söngvum skil- aði textinn sér einnig svo vel, þannig að við sem nutum og hlustuðum, lærðum og uppbyggðumst af boð- skap þeim, sem þessi ljóð og lög inni- héldu. Þetta allt syngur enn innra með mér og blessar mig. Ekki vildi ég skifta á þessum gæðum og popp- öskri því, sem nú er ríkjandi með öll- um þeim skramskælingum, sem oft- ast fylgja. Vonandi rennur þó senn af þeim fjölmörgu, sem þann stíl hafa tileinkað sér. Eflaust mundi flýta fyrir því, ef ríkissjónvarpið endur- flytti Bach-tónleikana, sem við nut- um þar fyrir nokkram nóttum og dögum, en þeir upphófust á unaðs- tónunum „Jesus meine freude“ - Jesús gleði mín og fögnuður. Já, Þórsgötu-söngfuglarnir leiddu leiðir okkar Friðriks ótal sinnum saman, einnig á heimilum okkar á afmælis- dögum, þar sem við - í góðra vina hóp - nutum fjölmargra samvera- stunda, sem glampar nú á í minning- unni, sem eðalsteina í perlubandi. Nú á þessum tímamótum, sem hinn trúi, kristni vinur hefur verið „leidd- ur lystigarð Drottins í...“ sbr. erfiljóð Hallgríms Péturssonar um auga- steininn og dótturina ungu, Stein- unni, þá finn ég löngun til að minnast hér og tjá þakkir fyrir samfylgdina góðu og ljúfu, einnig á vegum Gídeon í meira en hálfa öld, þar sem við vor- um meðal 17 séra Friðriks-drengja, er stofnuðu þau mikilvægu samtök til útbreiðslu Ritningarinnar vegna hvatningar Vestur-íslendingsins Kristins Guðnasonar og Oláfs kristniboða Ólafssonar. Þar var, nú hinn látni vinur, frá upphafi í for- ystu, ásamt fóstbróðurnum, Þorkeli G. Sigurbjörnssyni. Þeir vora vel samstiga og unnu vissulega mjög gott verk, sem vert er nú að minnast og þakka. Fyrir tilverknað Gídeon- íta, allt frá 1945, mun heilög Ritning nú vera til á flestum íslenskum heim- ilum, svo og á dvalarheimilum aldr- aðra, í fangelsum, sjúkrahúsum, hót; elum og gistiheimilum og víðar. I öllum þessum bókum er fólginn hinn dýrasti fjársjóður, sem vert er að „grafa eftir“ með reglubundnum lestri þessarar sígildu bókar, en þar er m.a. að finna þessi orð um tilgang þessarar Bókar bókanna: „En þetta er ritað til þess að þér skuluð trúa að Jesús sé Kristur, Guðssonurinn, og til þess að þér, með því að trúa, öðlist lífíð í hans nafni.“ (Jóh. 20:31.) Þetta líf þráum við Gídeon-félagar og biðj- um að allir landsmenn okkar eignist hlutdeild í. Að þessu vinna Gídeon- menn og konur með kyrrlátum hætti. Á Kristnishátíð á Þingvöllum í sumar vora þeir einnig að verki með því að dreifa Ritningunni til þeirra, sem þiggja vildu. Og þeir vora all- margir. Aðrir munu verða til að minnast betur en ég kann og get, hins mæta Friðriks, sonar Vigfúsar, klæðskera hinna vandlátu, sem lengi rak verk- stæði og verslun í Austurstræti, en þar starfaði sonurinn einnig um langt árabil, og kona mín, Inga (d. ’93), einnig um skeið. Handan göt- unnar, í Landsbankanum, starfaði á sama tímabili bróðirinn, Haukur Vigfússon, forstöðumaður verð- bréfadeildarinnar. Ég fann að ég varð að tjá mig nú og hér um hinn gengna vin og bróð- ur, til að þakka samfylgdina og til að biðja blessunar og styrks Þórsgötu- stúlkunni kæra, Þorbjörgu (Obbu) og dætram þeirra hjóna, Guðlaugu og Maríu, svo og afkomendum þeirra og venslafólki öllu. „Friður Guðs, sem er æðri öllum skilningi, mun varðveita hjörtu yðar og hugsanir yðar í samfélaginu við Krist Jesú.“ (Fil. 4:7.) Hermann Þorsteinsson. Afi var okkur alltaf góður. Hann var í kinnum rjóður. Hann góðlega hlær, hann var okkur alltaf nær, þeg- ar við voram viti okkar fjær. Ljósið hans skært, það lýsti okkur veg. Hvert sem við áttum að halda. Listfengur var hann, svo mikill. Að við gátum ei, táranna bundist lengur. A heimili hans var aldrei slæmur fengur. Afi var góður drengur. Rósa Grímsdóttir. Ég á aðeins eitt líf. Það er mér mjög dýrmætt. Ég reyni að lifa því ogégvandamig. Samt veikist ég, verð fyrir vonbrigðum og særist, að lokum slokknar á líkama mínum, hann deyr og verður að moldu. Ég á aðeins eitt líf, en það gerir ekkert til, ég sætti mig við það. Því líf mitt er í Jesú og það varir að eilífu. (Sigurbjörn Þorkelsson.) Friðrik Vigfússon, eða Fiddi eins og hann var gjarnan kallaður af vin- um og sínum nánustu, hefur verið hluti af minni tilvera allt frá upphafi hennar. Faðir minn, Þorkell G. Sigur- björnsson og Friðrik hafa verið óvenju nánir vinir allt frá því þeir voru í sunnudagaskólaaldri eða í yfir áttatíu ár. Þau óvenju sterku vináttubönd sem bundu þá pabba, Fidda og Egil Th. Sandholt saman hafa verið mér mikið umhugsunarefni, lærdómur og fyrirmynd. I vinavali mínu hafði ég þá fóstbræður ávallt til fyrirmyndar. Og þó ég hafi alla tíð verið lánsamur með vini var samanburðurinn líklega ekki sanngjarn, svo einstök var vin- átta þeirra Egils, Fidda og pabba. Stundum reyndi ég meira að segja að troða mér í hópinn og leyfðu þeir mér að halda að ég væri einn af þeim. Lýsir það þeim vel hve vel þeir tóku mér alla tíð þótt yfir fimmtíu ár væra á milli okkar. Vináttan þessi, fóstbræðralag þessara manna, kom sér því vel og var kannski engin tilvilj un því að við stofnun Gídeonfélagsins á íslandi ár- ið 1945 vora þeir ásamt kæram fé- laga þeirra og bróður, Árna Sigur- jónssyni, valdir tO að mynda fyrstu stjórn félagsins. Þar fóra hugsjóna- menn sem kallaðir vora til að koma hugsjón sinni í ákveðinn og mikil- vægan farveg sem hefur orðið Is- lendingum til ómælanlegrar bless- unar. Hugsjónin var útbreiðsla Guðs orðs sem fylgt var eftir með hljóðri en samstilltri bæn íyrir málefninu. Beðið var þess að Orðið það mætti verða lifandi og sjálfsögð staðreynd í lífi landsmanna. Að Hann sem varð hold og bjó með oss, frelsarinn Jesús Kristur, fengi að leiða og blessa ung- menni þessarar þjóðar, ferðalanga, hótelgesti, sjúka, fanga, aldraða, sjó- menn, þá sem sinna heilbrigðisþjón- ustu, já landsmenn alla. Hafa þeir félagar alla tíð verið í fylkingarbrjósti og farið fyrir annars myndarlegum hugsjónaher manna og kvenna. Enda vart hægt að hugsa sér heilsteyptari og sannari fyrir- myndir, slík hefur trúfesti þeirra, elja og eldur fyrir málefninu verið um áratuga skeið. Það er meðal annars vegna for- ystu þeirra og fyrirmyndar að nú ættu flestir Islendingar á aldrinum 10-58 ára að hafa fengið Nýja testa- mentið að gjöf frá Gídeonfélaginu. Ekki fyrirferðamikil gjöf en þeim mun innihaldsríkari. Gjöf sem fjallar um lífið sjálft. Gjöf sem Gídeonfélag- ar hafa afhent persónulega heilum árgangi íslendinga í skólum landsins í um fimmtíu ár. Þessi staðreynd hlýtur að teljast stór hluti af kristni- sögu þjóðarinnar sl. fimmtíu ár. Þótt þeirri staðreynd sé reyndar hvergi getið í nýútkomnu Jjögurra binda stórriti um kristni á Islandi frá árinu 1000-2000, gefnu út af Alþingi, sem hlýtur að rýra gildi þess annars viða- mikla og ágæta rits. Sjálfsagt er þar um yfirsjón og leið mistök að ræða sem hljóta að verða leiðrétt á þar til gerðum vettvangi en það er nú önnur saga sem að sjálfsögðu verður ekki farið frekar út í hér. Þegar pabba tókst loks að fá sig lausan sem formaður Gídeonfélags- ins eftir tuttugu ára setu sem slíkur, en reglur félagsins kveða á um að kjörnir stjórnarmenn sitji ekki leng- ur en þijú ár í hverju embætti, var það að sjálfsögðu Friðrik sem tók við formenskunni enda hafði hann verið ritari félagsins og hægri hönd pabba allt frá fyrstu tíð. Friðrik varð svo fyrsti forseti Landssambands Gíd- eonfélaga á íslandi eftir stofnun þess árið 1965. Það einstaka bræðralag, sem einkenndi þessa heiðursmenn og aðra samferðarmenn þeirra, smitaði út frá sér og hefur verið einkennandi fyrir Gídeonfélagið á íslandi alla tíð, félagsmönnum öllum til ómetanlegr- ar blessunar og uppörvunar og sér- lega mikilvægrar samstöðu. Sannar- lega verið gott nesti það og ekki sjálfgefið í félagsstarfi. ísland var þriðja landið þar sem Gídeonfélag var stofnað. Nú starfar félagið í 173 löndum og byggist á þátttöku innlendra manna og kvenna í hverju landi. Tvívegis sóttu þeir bræður, Sigur- björnsson og Vigfússon, alþjóðamót Gídeonsamtakanna og gengu snemma undir nöfnunum „Sig and Vig“ sem festust fljótlega við þá fóst- bræður. Hann Fiddi var séntilmaður af gamla skólanum. Einstaklega hátt- vís og prúður maður sem kunni sig í hvívetna. Hann fór hvergi leynt með Birting afmælis- og minningargreina MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjóm blaðsins í ^Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, '•'Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinamar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar era beðnir að hafa skfmamöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. FRIÐRIK VIGFÚSSON ást sína á sinni ágætu eftirlifandi eig- inkonu, henni Obbu sinni, og bar hag dætra sinna, barnabarna og fjöl- skyldna þeirra fyrir brjósti. Kom það m.a fram í einlægum bænum hans en þeir Sig and Vig ásamt fleiri liðsmönnum Gídeonfélagsins komu saman til bænahalds á hverjum mið- vikudagsmorgni kl. 08:00 svo áratug- um skipti. Beðið var fyrir líðandi stundu, fjölskyldum þeirra, þeim sem óskuðu fyrirbænar eða komu upp í hugann og ekki síst áframhald- andi kristni á Islandi, starfi Gídeon- félagsins að útbreiðslu Guðs heilaga orðs, að menn mættu verða hand- gengnir orðinu í daglegu lífi sínu og því að orðið mætti verða sem flestum til blessunar og eilífrar sáluhjálpar. Trúfesti Fidda, einlægni, heiðar- leiki, uppörvun, eljusemi og fram- koma öll mætti verða okkur sem kynntust honum og eftir stöndum til eftirbreytni. Enda þarf nú að safna liði til að halda áfram þvi mikilvæga starfi sem þeir hófu, Friðrik og fé- lagar, að sjá til þess að hin kristna þjóð Islendinga eignist Guðs heilaga orð eins og það birtist hreint og ómengað á síðum heilagrar ritning- ar. Orðinu sem boðar kærleika Guðs, skilyrðislausa náð og fyrirgefningu. Fiddi og áður nefndir fóstbræður og reyndar allir sautján stofnendur Gídeonfélagsins á Islandi voru einn- ig liðsmenn KFUM og lærisveinar sr. Friðriks Friðrikssonar stofnanda KFUM. Enda gerðu þeir hann síðar að heiðursfélaga Gídeonfélagsins á íslandi og mun sr. Friðrik vera eini maðurinn í heiminum sem gerður hefur verið að heiðursfélaga í Gíd- eonsamtökunum því það mun ekki venja samtakanna að gera menn að sérstökum heiðursfélögum. Fiddi var alla tíð einn af máttar- stólpum KFUM og sóttu þau hjón, hann og Obba, flestar samkomur, fundi og aðrar uppákomur sem KFUM og KFUK stóðu fyrir. Það var reyndar Maríu móður Fidda að þakka að KFUK var stofn- að því það var hún sem kom að máli við sr. Friðrik og spurði hann hvort hann gæti ekki líka stofnað félag fyr- ir stelpur því hún hélt nú að þær þyrftu að heyra Guðs orð boðað rétt eins og strákarnir. Það var því ekki síst vegna áhuga hennar og staðfestu að sr. Friðrik lét til leiðast á sínum tíma að stofna KFUM fyrir stelpur sem hann sagðist nú reyndar ekkert kunna á. Og Fiddi lifði það að taka þátt í hátíðarhöldum vegna 100 ára afmælis KFUM og KFUK árið 1999, þótt aldur og sjúkdómar væru þá nokkuð farin að taka sinn toll af hon- um. Sem framkvæmdastjóra KFUM og KFUK á þeim tíma þótti mér einkar vænt um að geta tekið á móti mínum kæra vini, bæði á æskulýðs- hátíðinni í Perlunni í mars 1999 og síðan á hátíðarsamkomu á afmælis- degi KFUK þann 29. apríl sama ár. Án hans nærvera hefðu hátíðirnar í mínum huga orðið mun fátæklegri. Þvílíkum augum leit ég hann. Hann var þvflíkur hluti af sögunni og mikil- vægur tengill við upphafið. Þegar ég var ungur kallaður til að gerast framkvæmdastjóri Gídeonfé- lagsins á íslandi 1986-1998 var Fiddi einn af áhugasömustu og bjartsýn- ustu stuðningsmönnum þess en þá hafði ekki áður verið launaður starfsmaður við störf hjá félaginu. Ég verð alla tíð þakklátur fyrir allan þann stuðning, vináttu, uppörvun og umhyggju sem Fiddi sýndi mér. Hann reyndist mér sem besti föður- bróðir. Góður Guð blessi þig Obba mín og fjölskylduna þína. Hann blessi okkur jafnframt bjarta minningu um ein- stakan heiðursmann. Minningu sem mun ekki gleymast þeim sem fengu að verða samferða Fidda. Égbiðþiggóði Jesús aðgistahjámérínótt. Gef ég heyri orð þín: „Vinursofðurótt." Til þín er gott að flýja, þú gefúr mér krafta nýja, svohjarta mitt fái tifað, og orð þitt í mér lifað. (Sigurbjöm Þorkelsson.) Einlægar kveðjur og blessunar- óskir á útfarardegi. Sigurbjöm Þorkelsson og fjölskylda.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.