Morgunblaðið - 10.08.2000, Side 52

Morgunblaðið - 10.08.2000, Side 52
52 FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 2000 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ 4>2 -f3 Take a Look Around Limp Bizkit Falling Away From Me Korn Try Again Aaiiyah Æ, 5 Oops.,.1 did it again Britney Spears 6 Lucky Britney Spears Ennþá Skítamórall V r The one Backstreet boys Make me bad Korn 10 r1 12 ;: M 11gi 14 15 i 16 4 17 •419 Big in Japan Guano Apes Shackles Mary Mary You can do it lce Cube Þær tvær Land & Synir Rock DJ Robbie Williams Dánarfregnir og jarðarfarir Sigur Rós Rock Superstar Cypres Hill Crushed Limp Bizkit Music non stop Kent Ex Girlfriend No Doubt 20 I Disappear Metallica Listinn er óformleg vinsældakönnun og byggist á vali gesta mbl.is. O jr mbl.is TIJPP50 Af áli, gróðurhúsa- lofttegundum og flótta frá Kyoto JAKOB Björnsson fyrrverandi orkumála- stjóri skrifað yfirgrips- mikla grein um ál, vinnslu þess og notkun sem birtist í Morgun- blaðinu 30. júlí sl. Um sama efni fjallar Jóhann Már Maríusson aðstoð- arforstjóri Landsvirkj- unar í Lesbók Morgun- blaðsins 5. ágúst sl. Þessir mætu menn kom- ast að þeirri niðurstöðu, að framleiðsla áls á ís- landi auki velferð jarð- arbúa. Enn fremur að Kyoto-bókunin sé óskynsamleg leið til að takmarka hættulegar breytingar á loftslagi jarðar af mannavöldum. Þær forsendur sem Jakob og Jó- hann Már gefa sér virðast helst vera þær að: 1) álnotkun á hvern jarðarbúa fari ört vaxandi; 2) ál sem framleitt er með vatnsorku (og kjarnorku) dragi úr losun gróður- húsalofttegunda (GHL) ; 3) það sé til mikið af hagkvæmri vatnsorku á Islandi sem ekki er nýtt nú og; 4) Kyoto-bókunin sé gölluð þar sem þróunarríki taki ekki á sig neinar skuldbindingar. Vissulega má taka undir ýmis- legt í röksemdafærslu þeirra Ja- kobs og Jóhanns Más, en það eru fleiri hliðar á málinu sem gagnlegt er að skoða. Finnast umhverfis- vænni efni en ál? Ekki er sjálfgefið að álnotkun haldi áfram að vaxa þó hún hafi vaxið mikið sl. áratugi. Á1 er ekki verðmætt í sjálfu sér heldur þau lífsgæði sem felast í nýtingu þess. Ymis efni sem hafa verið mikilvæg- ur þáttur í að viðhalda lífsgæðum á einu tímabili hafa skipt minna eða engu máli á öðrum tíma. Tækni- framfarir eru hraðar og kynnt hafa verið trefjaefni sem eru bæði sterk- ari og léttari en ál og kunna að leysa þann málm af hólmi við fram- leiðslu samgöngutækja. Þó ál hafi ýmsa kosti fram yfir mörg önnur efni, veldur framleiðsla þess og notkun mengun sem rýrir gæði um- hverfisins. Það er eftirsóknarvert að hvetja til tækniframfara sem kunna að leiða fram heppilega stað- gengla fyrir ál. Með því að verð- leggja ál rétt, þ.e. að tekið sé tillit til umhverfiskostnaðar við fram- leiðslu þess, aukast líkurnar á því að umhverfisvænni staðgenglar leysi það af hólmi. Með því að und- anþiggja álframleiðslu frá skuld- bindingum Kyoto-bókunar er í raun verið að niðurgreiða ál og það kann að tefja að fram komi umhverfis- vænni staðgenglar. Á1 sem framleitt er með vatns- orku dregur ekki úr losun GHL. Það má færa góð rök fyrir því að ál sé heppilegra til notkunar á ýmsum sviðum en t.d. járn og aðrir þyngri málmar. En við þurfum að gera betur. Finna þarf enn hagkvæmari staðgengla, eða framleiðsluferli fyrir ál, sem valda lítilli eða engri losun gróðurhúsa- lofttegunda. Með því að veita áli fram- leiddu með vatns- orku undanþágu frá ákvæðum Kyoto- bókunarinnar, eins og íslensk stjórnvöld sækjast eftir, dregur úr þrýstingi á ál- framleiðendur að finna heppilegri staðgengla eða betri framleiðsluferli. Hverju er fórnað við orkufram- leiðslu? Rétt er að mikið er til af vatnsföllum á íslandi sem ekki hafa verið nýtt og nýta má til orku- framleiðslu. Gætum hins vegar að því að orkuframleiðsla skapar ekki velferð heldur þau lífsgæði sem notkun orkunnar veitir. Land og gæði þess má nýta með fjölmörgum hætti. I sumum tilfellum kann að vera skynsamlegt að nýta það sem orkulindir. Það kann hins vegar að vera jafn hagkvæmt að nýta land sem uppsprettu annarra lífsgæða, s.s. til útivistar og náttúruupplifun- ar. Eftirspurn eftir slíkum gæðum virðist fara ört vaxandi, ekki síður en eftirspurn eftir áli. Hingað til hafa ekki verið framkvæmdar rannsóknir hér á landi til að meta verðmæti þessara gæða til fjár. M.ö.o við gerum okkur ekki ljóst hverju er verið að fórna þegar stór og smá landsvæði eru lögð undir orkumannvirki. Raunveruleg hag- kvæmni orkuframleiðslu hér á landi kann því að vera talsvert minni til lengri tíma litið en fram hefur komið í hagkvæmnirannsókn- um hingað til. Hér eftir er nauðsyn- legt að leiðrétta þetta og hagfræðin býr yfir aðferðum til þess. Kyoto-bókunin fyrsta skrefið í rétta átt Kyotobókunin er tæknilega séð e.t.v. ekki besta leiðin til að ná þeim markmiðum að takmarka og draga úr losun GHL sem valda hættuleg- um breytingum á loftslagi jarðar. í alþjóðlegum samningaviðræðunum um þetta mál, sem staðið hafa í rúm 10 ár, hafa komið fram fjölmargar hugmyndir sem tæknÚega séð kunna að vera vænni til árangurs en sú leið sem þjóðir heims komu sér saman um í Kyoto 1997. T.d var því haldið fram að best væri að deila losunarheimildum fremur á atvinnugreinar en einstök ríki, þar sem fyrirtæki starfa um allan heim og vörurnar sem þau famleiða fara einnig yfir mörg landamæri. En því miður er það ekki framkvæmanlegt m.a. vegna þess að ekki er fyrir hendi neinn aðili sem gæti fylgt slíkri ákvörðun eftir. í alþjóðasam- starfi eru það einstök ríki sem koma að samningaborðinu og þegar samningar eru afstaðnir er það á ábyrgð fullvalda ríkja að staðfesta þá og fylgja þeim eftir. Atvinnu- greinarnar hafa ekki sömu stöðu þar sem þær falla undir fjölmörg Kyoto Kyoto-bókunin leysir ekki þann vanda sem felst í óheftri og vax- andi losun GHL, segir Tryggvi Felixson. Það samkomulag er einungis fyrsta skrefíð af mörg- um sem eru nauðsynleg til að takmarka hættu- legar breytingar á loftslagijarðar. ríki. Það varð því að ráði að úthluta losunarheimildum á einstök ríki, en tryggja ákveðinn sveigjanleika í framkvæmd, t.d. með því að leyfa viðskipti með losunarheimildir. Ekki má gleyma því að við úthlutun á losunarheimildun var að ein- hverju leyti tekið tillit til aðstæðna einstakra ríkja eins og t.d. íslands, sem fékk heimild til að auka losun um 10 prósent á samningstímabil- inu 2008-12. Spurning um hver ber ábyrgð á þeim vanda sem mannkynið stend- ur frammi fyrir vegna gróðurhúsa- áhrifanna, hefur verið mikið rædd á fundum aðildarríkja rammasamn- ings Sameinuðu þjóðanna um lofts- lagsbreytingar. M.a. hefur komið fram að sum ríki telja að eina sann- gjarna leiðin sé sú, að deila losun- arheimildum jafnt milli jarðarbúa. Um tveir þriðju hlutar losunar GHL af mannvöldum eru í iðnríkj- unum, en þar býr aðeins lítill hluti mannkyns. Ef þessi regla, sem í fljótu bragði virðist afar sanngjörn, hefði orðið fyrir valinu, þá hefðu þær losunarheimildir sem íslend- ingar fengju, orðið a.m.k. helmingi minni en raun varð á í Kyoto. Kyoto-bókunin leysir ekki þann vanda sem felst í óheftri og vaxandi losun GHL. Það samkomulag er einungis fyrsta skrefið af mörgum sem eru nauðsynleg til að takmarka hættulegar breytingar á loftslagi jarðar. Það varð að samkomulagi að hinar ríkari þjóðir heims skyldu axla byrðarnar í þessum fyrsta áfanga. Það er afar alvarlegt ef eitt eða fleiri ríki (af 38 iðnríkjum) skorast undan því að vera með, jafnvel þó færa megi rök fyrir að samkomulagið kunni að takmarka svigrúm þeirra til auðlindanýtingar þegar til skamms tíma er litið. ís- land er eitt auðugasta ríki heims: Auðlegð og hagsæld fylgir ábyrgð. Þá ábyrgð ber okkur að axla í þessu máli eins og öðrum. Við skulum ekki flýja frá þeirri ábyrgð sem okkur var ætlað að axla í Kyoto. HSfundur er hagfræðingur og starfar sem framkvæmda- sljóri Landvemdar. Tryggvi Felixson 0 YOGASTOÐIN HEILSUBOT Síðumúla 15, sími 588 5711. Námskeið í HA THA-yoga. Kennsla byrjar fimmtudaginn 10. ágúst Kennt verður mánud., fimmtud. og laugard. Sértími jyrir barnshafandi konur. A YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT Síðumúla 15, sími 588 5711. Stretchbuxur kr. 2.900 Konubuxur frá kr. 1.690 Dragtir, kjólar, blússur og pils. Ódýr náttfatnaður. Nýbýlavegi 12, sími 5544433

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.