Morgunblaðið - 10.08.2000, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 2000 53
Forseti fer í hring
5
■
LANDSSIMINN hf.
hefur á undanfömum
árum staðið fyrir upp-
byggingu á öflugu ljós-
leiðarakerfi á Islandi.
Um 35.000 heimili geta
nú tengst breiðbandinu
(sem er einskonar sam-
heiti yfir ljósleiðara-
væðinguna), eða rétt
um 40%, auk þess sem
ljósleiðarar eru bein-
tengdir við fjölda fyrir-
tækja og stofnana.
Síminn hefur með upp-
byggingu ljósleiðarans
gengið út frá þeirri for-
sendu að í náinni fram-
tíð verði þörf á miklu
öflugri gagnaflutningskerfum en við
nú höfum. Reynslan af tölvubylting-
unni, Netinu og fjölrása sjónvarpi
styðja þetta. Hin nýju flutningskerfi
eins og breiðband Símans munu á
næstu árum gera fólki kleift að taka
risaskref fram á við, í takt við hina
hröðu þróun á sviði upplýsinga-
tækninnar.
Árásir Helga
Ekki er lengra síðan en í árslok
1997 að nokkrir þingmenn héldu því
fram í utandagskrárumræðum að
ljósleiðarinn væri tækni gærdagsins
og fjárfesting í honum því glapræði
enda myndu þráðlausar lausnir og
gervihnattasambönd leysa allan
vanda.
I sama streng tók meðal annarra
Helgi Hjörvar, forseti borgarstjórn-
ar, við annað tækifæri. Orð Helga
þar að lútandi birtust m.a. í tveimur
Morgunblaðsgreinum í fyrrasumar
sem hétu: „Ríkissjónvarpið Breið-
band“ og „Davíðs vídeó“ og birtust
6. og 10. júlí. Megininntak greinanna
var að ráðast á uppbyggingu Símans
á breiðbandinu, sem Helgi kallaði
milljarðafjárfestingu sem aldrei
myndi borga sig og talar Helgi um
sóun á almannafé. í síðari grein
sinni eftir svar frá Símanum ræðst
Helgi á hugmyndir Símans um þá
þjónustu sem mögulegt verður að
veita á komandi árum með breið-
bandinu til að auka fjölbreytni á
þessu sviði afþreyingar, þ. á m. sjón-
varps. Helgi kallar áformin um
þessa þjónustu sem á ensku heitir
„pay-per-view“ Davíðs videó.
Athygli skal vakin á því að sami
Helgi Hjörvar, forseti borgarstjórn-
ar, er varaformaður stjórnai- hjá
fyrirtækinu Línu.Neti, sem er í
meirihlutaeigu Reykjavíkurborgar
og hefur nú uppi mikil áform um
lagningu ljósleiðaranets til fyrir-
tækja, stofnana og heimila. Eins og
menn muna ætlaði Lína.Net í upp-
hafi að hasla sér völl á gagnaflutn-
ingsmarkaði með lögnum í holræsi
og netflutningi um rafmagnslínur,
en nú eru kynnt áform fyrirtækisins
um að standa að allsherjar breið-
bandsuppbyggingu til allra heimila.
Ekki kemur fram hvort Lína.Net
ætlar að einbeita sér að þeim hluta
höfuðborgarheimila sem Síminn er
ekki búinn að leggja breiðband til,
sem er um helííiingur, eoa nvort
Lína ætli sér að leggja sinn ljósleið-
ara við hlið þess sem Síminn leggur.
Af kynningu frá Línu.Neti verður
ekki annað ráðið en að áherslur fyr-
irtækisins séu að breytast og verið
sé að grafa fyrri hugmyndir um
lagnir í holræsum og gagnaflutning
um rafmagnslínur. Samkvæmt nýj-
ustu fréttum hefur Reykjavíkurborg
nú samið við Línu.Net um ljósleið-
aravæðingu skólanna án útboðs með
þeirri röksemd að Landssíminn og
aðrir geti ekki veitt þá þjónustu sem
um er beðið. Petta er óvenju frum-
legur undansláttur til að leyna spill-
ingu, enda má af honum ráða að hið
tiltölulega unga fyrirtæki, Lína.Net,
hafi fundið upp Ijósleiðarann eða því
sem næst. Forsetinn og varaformað-
ur stjórnar Línu.Nets, Helgi Hjör-
var, hefur sannarlega farið í stóran
hring á skömmum tíma.
Gylliboð Línu.Nets
Síminn fagnar því að fá sam-
keppni við að auka gæði gagnaflutn-
inga á íslandi. Sú samkeppni mun
líkast til hraða enn
frekar uppbygging-
unni. Ekki má gleyma
því í allri umræðunni
um tækni að það er þó
þjónustan sem mun
skipta viðskiptavininn
mestu máli þegar fram
líða stundir, hvort
heldur um er að ræða
sj ónvarpsþj ónustu,
Netið eða gagnaflutn-
ing. Því er rétt að
benda neytendum á að
í nýlegri opnuauglýs-
ingu frá Línu.Neti er
mjög frjálslega farið
með staðreyndir varð-
andi samspil tækni og
þjónustu. í auglýsingaopnunni í
blöðum má sjá eftirfarandi setning-
ar: „100 Mbita flutningsgeta á hvert
heimili", „Samningurinn [við Erics-
Gagnaflutningar
Þrátt fyrir upphrópanir
forseta borgarstjórnar
fyrir ári, segir Friðrik
Friðriksson, hefur fyr-
irtækið sem hann er í
forsvari fyrir nú ákveðið
að veðja á ljósleiðarann
sem framtíðarlausn
í gagnaflutningi.
son] mun hafa í för með sér bylting-
arkenndar nýjungar í þjónustu . . .
með möguleika á stafrænu og gagn-
virku sjónvarpi, video-on-demand
og pay-per-view, háhraða Interneti.
. .“, „Með „Fiber to the home“ . . .
velur þú það sjónvarpsefni sem þú
vilt horfa á... kaupir þér kvikmynd-
ir beint í gegnum ljósleiðarakerfið
o.s.frv.“. Greinarhöfundur fullyrðir
reyndar að sambærileg auglýsing
frá Símanum hefði samstundis verið
kærð til samkeppnisyfirvalda þar
sem hún væri stórlega ónákvæm og
lofaði þjónustu sem ekki er til og er
ekki á leiðinni að verða til. Það hlýt-
ur að vera á mörkunum að hægt sé
að auglýsa framtíðarsýn á þann
máta að skilja megi að varan sé til
reiðu. Svo er ekki. Það er ekki rúm
til að ræða álitaefnin í smáatriðum
en þó má segja að ekkert liggi fyrir
um það hvenær hægt verður að veita
umrædda þjónustu hérlendis og
stórum spurningum um höfundar-
réttarmál á efni er ósvarað. Hvenær
verður nauðsynlegur myndtölvu-
búnaður á viðráðanlegu verði fyrir
almenning og hvenær verða hús-
kerfin á heimilum af þeim gæðum að
þau beri nýja þjónustu, svo ekki sé
talað um að þau flytji 100 megabita?
Það er í sjálfu sér vandalaust að
gera afmarkaðar tilraunir á þessu
sviði á fáum heimilum en fullyrða
má að heimurinn sem Lína.Net boð-
ar er ekki alveg hinum megin við
hornið. Þótt tæknin leyfi það er eng-
in trygging fyrir þjónustuframboði.
Ljósleiðarinn sigrar
Að lokum þetta: Þrátt fyrir upp-
hrópanir Helga Hjörvar, forseta
borgarstjórnar, fyrir ári hefur fyrir-
tækið sem hann er í forsvari fyrir nú
ákveðið að veðja á ljósleiðarann sem
framtíðarlausn í gagnaflutningi.
Ekki er annað hægt en að óska
Línu-mönnum til hamingju með
framsýnina. Ljósleiðarinn hefur
borið sigurorð í þessari umræðu og
Síminn mun hér eftir sem hingað til
gegna forystuhlutverki við að
tryggja Islendingum öflugusta kerf-
ið á sviði gagnaflutnings.
Höfundur er hagfræðingur
og forstöðumaður breiðbands-
þjónustu Landssímans.
Min.-Fös. 09.00-17:00
Vilhjálmur Bjamason
Sölumaour
Haraldur R. Bjamason
Sölumabur
Sigfríö M. Bjamadóttir
Rltari
Sigurður öm Sigurbarson
Vií>sk.fr. & lögg.fasteignasli
FASTEIGNASALA
• heilsbugar um þintt hag
Suburlandsbrant 50 o 108 Reykjavík o Síml: 533 4300 o Fax: 568 4094
Atvinnuhúsnæði óskast
Erum að leita að 500-1000 fm rými fyrir traustan aðila
annað hvort til kaups eða langtímaleigu. Húsnæðið þarf
að vera staðsett í Kópavogi.
Uppiýsingar gefur Þórarinn í síma 898 1437
Grjóthalsi 1
Sími 575 1230
ujiuuj.bilQlQnd.is
Friðrik
Friðriksson
A UTIMALWINGU
Verð á lítra
Hörpusilki, miðað við 10 lítra dós og hvíta Iiti
HARPA MÁLNINGARVERSLUN
BÆJARUND 6, KÓPAVOGI.
oiml
HARPA MÁLNINGARVERSLUN,
SKEIFUNNI 4, REYKJAVÍK.
Sími 568 7878
HARPA MÁLNINGARVERSLUN,
STÓRHÖFÐA 44, REYKJAVÍK.
Sími 567 4400
HARPA MÁLNINGARVERSLUN
DROPANUM, KEFLAVÍK.
Sími 421 4790