Morgunblaðið - 20.08.2000, Page 1
STOFNAÐ 1913
189. TBL. 88. ÁRG.
SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Anatolý og Sophia Leonov, foreldrar eins þeirra 118 sjóliða sem eru um borð í kafbátnum Kúrsk, sem hvflir nú á botni Barentshafs, biðu þess í gær á
flugvellinum í Múrmansk að verða færð til fundar við aðra aðstandendur sjóliða Kúrsk.
Bresk-norsku björgunarsveitarinnar bíður erfítt starf í Barentshafí
Rússar telja nær enga
von um mannbj örg
Múrmansk. AFP, Reuters.
TALSMENN rússneska Norður-
flotans sögðu í gær, laugardag, að
áhöfnin sem hafi verið í fremsta
hluta kjarnorkukafbátsins Kúrsk er
hann sökk í Barentshafið sl. laugar-
dag hafi að öllum líkindum farist
samstundis og að nær engin von
væri til að þeir sem kynnu að hafa lif-
að slysið af séu enn á lífi. „Að öllum
líkindum hefur flætt inn í fremsta
hluta bátsins og áhöfnin sem þar var
látist á fyrstu andartökum slyssins,“
sagði Mikhail Mostak, aðmíráll í
Norðurflotanum í viðtali við RTR-
sjónvarpsstöðina rússnesku. I viðtal-
inu sem sjónvarpað var beint í Rúss-
landi, sagði Mostak að við spreng-
inguna sem hafi orðið í Kúrsk hafi
loftþrýstingur í kafbátnum hækkað
verulega mikið og að litlar líkur séu
þvi á að nokkur hafi lifað slysið af.
Bresk-norska björgunarsveitin,
sem á að aðstoða Rússa við að bjarga
áhöfn kjarnorkukafbátsins Kúrsk
sem liggur laskaður á botni Barents-
hafs, var skammt frá slysstaðnum í
gærdag og bundu menn nokkrar
vonir við að LR5-björgunarkafbátn-
um breska tækist betur upp við að ná
festu á skrokki Kúrsk en björgunar-
hylki Rússa. ígor Dygalo, talsmaður
rússneska Norðurflotans, dró þó úr
væntingum og sagði að erlenda
björgunarsveitin myndi þurfa að
kljást við aðstæður sem væru „meira
en tvísýnar". Sagði hann jafnframt
að ólíklegt væri að bresk-norsku
sveitinni myndi takast betur upp en
rússneskum björgunarsveitum.
Bretar sögðu í gær að hugsanlegt
væri að könnunarleiðangur yrði far-
inn á laugardagskvöld.
Ekkert lífsmark hefur greinst
með 118 manna áhöfn Kúrsk síðan á
mánudag og bíður björgunarmanna
erfitt starf þar sem neyðarlúgur á
skrokki bátsins, einu færu leiðirnar,
virðast vera mikið skemmdar. Áður
hafði verið talið að aftari lúgan væri
fær en á fostudag reyndist svo ekki
vera og olli það miklum vonbrigðum
meðal björgunarmanna. Pá sagði
Mostak við RTR í gær að nánast
óhugsandi væri að sjóliðar væru á lífi
eftir þann tíma sem liðið hefði frá
slysinu.
Ráðamenn gagnrýndir
Örvæntingarfullir aðstandendur
sjóliðanna um borð í Kúrsk veittust
að Ilýa Klebanov, aðstoðarforsætis-
ráðherra Rússlands og yfirmanni
rannsóknamefndar Kúrsk-slyssins, í
flotabænum Severomorsk á föstu-
dag. Er reiði aðstandenda magnaðist
var fréttafólki, sem á staðnum var,
gert að yfirgefa salinn. „Hverjum er
þetta allt að kenna?“ spurði kona á
meðan önnur, eiginkona sjóliða,
sagðist hafa heyrt nægar afsakanir
fyrir aðgerðarleysi embættismanna.
* Rússneska sjónvarpsstöðin RTR
sagði í gær að hugsanlegt væri að
Vladimír Pútín Rússlandsforseti,
sem sætt hefur mikilli gagnrýni
vegna afskiptaleysis af málefnum
Kúrsk, myndi halda til Severomorsk
síðdegis á laugardag.
Rússneska dagblaðið Komsom-
olskaya Pravda birti á föstudag
áhafnarlista Kúrsk sem keyptur
hafði verið af „nokkrum háttsettum
aðilum" innan rússneska flotans á
18.000 rúblur.
ÞUIMGT UM
ALDRAD HJARTA
Moskva er borg
andstæðnanna
22
30
MIKILVÆGT AÐ
HAFA GOTTAUGA
FYRIR FOLKI
OG UMHVERFI
Inúítafjölskylda
Vilhjálms Stefánssonar
Og múftakonu hon«
■Mlk 6ð< I kvwðltk* Oanum InútHk. nyrttu IsMnomgabmO I haanl. t( im aS
orOI konwK. SM PMuon hMUMMk Ol að htfð* t W««gnlr Hrna f«M * «»nv
•klutum VUgtmw og PanmgaNOk og onðgum aflumwnu ptlrrs. / •
Gíslatakan á
Jolo-eyjum
Skærulið-
ar leg’gja
fram nýjar
kröfur
Tagbak. Reutcrs, AFP.
SAMNINGAMENN sem leitast við
að fá 28 erlenda gísla, sem eru í haldi
skæruliðasveita á Filippseyjum,
leysta úr haldi, urðu frá að hverfa í
gær eftir að gíslatökumenn höfnuðu
því að sleppa gíslunum öllum í einu
lagi. Sagði Rajab Azzarouq, samn-
ingamaður.Líbýustjómar, sem beitt
hefur sér í málinu, að Abu Sayyaf
skæruliðasveitirnar hafi lagt fram
nýjar kröfur á síðustu stundu.
„Við verðum að hefja samningavið-
ræður að nýju,“ sagði Azzarouq við
fréttamenn þar sem hann var stadd-
ur í herbúðum nærri svæði því sem
er í höndum skæruliða, á suðurhluta
Jolo-eyju. Sagði hann að skæruliðar
væru tilbúnir að leysa gíslana úr
haldi í nokkrum lotum en Joseph
Estrada, forseti Filippseyja, hefur
hafnað slíkum skilmálum. I gær var
ekki Ijóst hvort samningaviðræður
hefðu hafist að nýju.
Skæruliðasveitirnar halda 12 er-
lendum ferðamönnum, sex Frökkum,
tveimur Þjóðverjum, tveimur Finn-
um og tveimur Suður-Afríkubúum.
Lewinsky-málið
Dómari
biðst af-
sökunar
Washington. Reuters.
DÓMARI við bandarískan
áfrýjunarrétt viðurkenndi í
gær að fregnimar um að nýr
kviðdómur hafi verið skipaður
til að fara yfir gögn í málinu
gegn Bill Clinton Bandaríkja-
forseta hafi verið frá honum
komnar. I yfirlýsingu sinni bið-
ur Richard Cudahy dómari
„alla sem að málinu koma“ fyr-
irgefningar og að hann hafi
óvart sagt frá því að kviðdóm-
urinn hefði verið skipaður í við-
tali um störf hins sérskipaða
saksóknara í málinu, Richards
Rays, en Cudahy er einn
þriggja dómara sem hefur eft-
irlit með störfum Rays og
starfsmanna hans.
Fregnaðist af skipan kvið-
dómsins aðeins nokkrum
klukkustundum áður en A1
Gore, varaforseti og frambjóð-
andi Demókrataflokksins í
komandi forsetakosningum,
hélt framboðsræðu sína og
veittust demókratar harkalega
að andstæðingum sínum í
stjórnmálum fyrir að hafa lagt
á ráðin um tímasetninguna.
MORGUNBLAÐHJ 20. ÁGÚST 2000