Morgunblaðið - 20.08.2000, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2000 37
FRETTIR
Orri Vésteinsson með kirkjurústirnar í baksýn.
Timburkirkja
og rfkmann-
legur skáli
Inni í uppgreftinum af skálanum.
AÐ HOFSSTÖÐUM í Mývatnssveit
hefur staðið yfir fornleifauppgröftur
síðustu sumur. Þetta er þó ekki í
fyrsta sinn sem þar er grafið en
fyrsti uppgröfturinn fór þar fram
árið 1908. Þá var það Daninn Daniel
Bruun sem stjórnaði uppgreftri og
setti fram kenningar um helgihald á
Víkingaöld í kjölfarið. Síðan þá hafa
hugmyndir manna, kenningar og að-
ferðir í fornleifafræði tekið miklum
breytingum og menn hafa ekki verið
á eitt sáttir um kenningar Bruun.
Síðastliðin sumur hefur alþjóðlegur
hópur grafið að Hofsstöðum og
fundið fjölmargar byggingar, s.s. 40
metra langan skála og timburkirkju
frá miðöldum. Morgunblaðið hitti
Orra Vésteinsson, einn af umsjónar-
mönnum verkefnisins, og spjallaði
við hann um uppgröftinn og það sem
hann hefur leitt í ljós.
Mikil áhrif
„Uppgröftur hófst hér árið 1908
en þá stjórnaði uppgreftri hér Daní-
el Bruun og einnig kom að verkefn-
inu Finnur Jónsson handritafræð-
ingur. Hann hafði þá skoðað
lýsingar á hofum í gömlum hand-
ritum og Bruun er sá fyrsti til að
gera kerfisbunda rannsókn hvar
kunni að hafa verið hof, út frá hand-
ritum og örnefnum. Til að gera
langa sögu stutta afskrifa þeir alla
staðina nema hér á Hofsstöðum og
hefja hér uppgröft. Það var í raun
fyrsti vísindalegi uppgröfturinn hér
á landi,“ sagði Orri. Hann segir að
Bruun hafi grafið upp þennan sama
skála og þeir grafi upp núna. „Hann
setti fram þá kenningu að þetta væri
hof og fremst í því var grjóthleðsla
sem hann taldi vera goðastúku.
Kenningar Bruun höfðu mikil áhrif
og fóru inn í allar kennslubækur í
fornleifafræði og sagnfræði sem
dæmigerð hof frá Víkingaöld.
Næstu áratugi á eftir var mikið
grafið hér á íslandi og kom þá í ljós
að hofið hér á Hofsstöðum var lítt
frábrugðið íbúðarhúsum sem fund-
ust í öðrum uppgröftum. Það sem
meira er, Bruun og félagar fundu af-
ar lítið af gripum sem tengdust
helgihaldi,“ sagði Orri.
Nýjar kenningar
Upp úr þessu segir Orri að borið
hafi á vaxandi gagnrýni á kenningar
Bruun. Annar Dani að nafni Olaf
Olsen setur fram þá kenningu upp
úr 1960 að engin sérstök hof hafi
verið til, heldur fremur hofbæir.
Ríkir bændur með stóra skála hafi
þá haldið blótveislur á sínum bæj-
um. Það styður þá kenningu að trúin
I.F.IÐRRTT
Röng síða
Vegna mistaka við vinnslu blaðsins í
gær birtust rangar upplýsingar á
peningamarkaðssíðu blaðsins. Birtar
voru vikugamlar upplýsingar. Á síð-
unni hér til vinstri getur að líta rétt-
ar upplýsingar. Morgunblaðið biðst
velvirðingar á þessum mistökum.
Séð yfir fornleifauppgröftinn á Hofsstöðum.
hafi þá verið meira tengd pólítík en
einskæru helgihaldi. Olsen kom svo
að Hofsstöðum og gróf hér árið
1965. Sannfærðist hann þá um kenn-
ingar sínar og segir Orri þær njóta
almennrar hylli enn þann dag í dag.
Það var síðan haustið 1991 sem
Adolf Friðriksson og Oiri Vésteins-
son skoðuðu hugsanlega hofstaði og
staðnæmdust hér við Hofsstaði í
Mývatnssveit sem Bruun hafði gert
forðum. Árið eftir grófu þeir skurð
þvert yfir skálann til rannsóknar og
til þess að timsetja hann. „Skálinn
er frá 10. eða 11. öld því að við fund-
um gjóskulög eftir gos bæði 1104 og
1158 og ljóst er að þá var töluverður
tími síðan að byggt var,“ sagði Orri.
Uppgröftur hófst síðan af fullum
krafti sumarið 1995.
Einangrun úr torfi
Þetta er viðamikið verkefni og að
því kemur fjöldi sérfræðinga, nem-
enda í fornleifafræði víðs vegar að
úr heiminum, auk leiðbeinenda. Orri
segir að á þessum árum hafi margt
komið í Ijós. „Þrátt fyrir að ekki allt
standist sem Bruun gerði eru t.d.
teikningarnar sem hann gerði af
staðnum mjög nákvæmar. Það er
ljóst að þessi skáli sem hér stóð var
afar stór eða um 40 metrar. Það er
eiginlega tvennt sem kemur á óvart
hér. í fyrsta lagi virðast elstu húsin
hafa verið timburhús, fundist hafa
hér stoðarholur fyrir timbur. f öðru
lagi eru torfveggir fremur þunnir og
ræfilslegir og virðist sem torfið hafi
fyrst og fremst nýst til einangrunar
á milli timburveggja.
Eins og oft í fornleifarannsóknum
eru sorphaugar mikilvæg rannsókn-
arauðlind því þar má oft finna dæmi
um fæðuval og skepnuhald forfeðra
okkar. Við höfum fundið hér heil-
mikið af dýrabeinum og erum að
endurgera hugmyndir um efnahag
þessa fólks. Hér virðist fólk hafa
haldið hinn venjubundna búpening,
þ.e. nautgripi og sauðfé en einnig
svín og geitur. Eftir því sem árin
líða virðist geitunum og svínunum
fækka en fé og nautpeningi fjölgar,
sem er þá kannski í samræmi við
eyðingu skóga,“ sagði Orri. En fólk-
ið virðist einnig hafa veitt sér tölu-
vert til matar því Orri segir að í
öskuhaugnum hafi fundist töluvert
af rjúpnabeinum, beinum af sjófugl-
um, silungsbein og svo einnig þorsk-
og ýsubein.
Það sem einnig hefur vakið at-
hygli fornleifafræðinganna er að
þarna finnast mörg byggingastig og
virðist fólkið alltaf hafa verið að
breyta húsunum, s.s færa til dyr og
glugga eða breyta íbúðarhúsum í
hlöður. „Hér hefur allt verið mjög
stórt í sniðum, það er alveg ljóst.
Samhliða þessum uppgreftri höfum
við einnig grafið í Sveigakoti við
Grænavatn og þar er allt minna í
sniðum. Hægt verður því að bera
saman mismunandi aðbúnað fólks.“
Heillegar beinagrindur
Á Hofsstöðum hefur einnig verið
staðið að uppgreftri kirkju sem þar
stóð fyrr á öldum. Orri segir margt
merkilegt koma þar í ljós. „Þetta
hefur verið lítil timburkirkja frá 12.
öld. Við sjáum engin ummerki um
hlaðna torfveggi þannig að hún virð-
ist hafa verið öll úr timbri en ekki er
vitað um aðrar timburkirkju frá
þessum tíma. I kirkjugarðinum höf-
um við grafið upp nokkrar grafir og
fundið beinagrindur í mjög góðu
ásigkomulagi. Þær eiga eftir að nýt-
ast vel í rannsóknum á sjúkdómum
fólks á þessum tíma,“ sagði Orri.
Orri segir að stefnt sé að því að
ganga svo frá að uppgreftri loknum
að hægt verði að sýna almenningi
svæðið. Hann segir þó að enn séu
nokkur ár í að það verði að veru-
leika.
Grjóthólsi 1
Sími 575 1230
uuujuu.bilaland.is
2 fyrir 1 til
Benidorm
6. september
frá kr. 18.800
Nú bjóðum við einstakt tækifæri á síðustu sætunum í sól-
ina þann 6. september til vinsælasta áfangastaðar við Mið-
jarðarhafið, Benidorm. Þú bókar 2 sæti en borgar bara 1
og kemst í viku í sólina á verði sem hefúr aldrei sést fyrr.
Að auki getur þú valið um fjölda gististaða hjá Heims-
ferðum á góðu verði og að sjálfsögðu nýtur þú þjón-
ustu fararstjóra Heimsferða allan tímann.
Verð kr.
18.800
Verð p.mann, m.v. 37.600/2 - 18.800.-
Flugvallarskattar kr. 2.490.-, ekki innifaldir.
Ferðir til og frá flugvclli kr. 1.600.-
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17, 2. hæð sími 595 1000, www.heimsferdir.is
Ert þú með smá appelsínuhúð
eða kannski bara mikla?
Er húð þín sIöpp eftir meqrun
eða meðqönqu?
Ef eitthvað af þessu á
við þig þá er
SILHOUETTE
ALLTAF LAUSNIN!
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Switzerland
...ferskir vindar í umhirðu húðar