Morgunblaðið - 20.08.2000, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 20.08.2000, Blaðsíða 44
44 SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR MINNINGAR Bíllinn - ónýtur eftir veltu Laxamýri - Bíll valt út af veginum neðan við Hrísateig í Reykjahverfí seinni hluta fímmtudags og er talinn gjörónýtur. Þrír Spánverjar, sem voru á nýj- um bílaleigubíl, lentu yfir á öfugum vegarhelmingi og skipti engum tog- um að bíllinn valt út af og langt út í móa. Mildi er talin að enginn skuli hafa —Masast og var mönnunum ekið til Húsvíkur þar sem þeir fengu annan bíl og gátu haldið ferð sinni áfram. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Málþing um Island sem heilsulind Náttúrulækningafélag íslands efnir til málþings undir fyrirsögn- inni: „Island sem heilsulind" að Hótel Loftleiðum, Þingsal 1, miðvikudaginn 23. ágúst og hefst kl. 20. Ingibjörg Pálmadóttir, heil- brigðisráðherra, flytur ávarp við upphaf þingsins. Inngangsorð flytur Árni Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Heilsustofnunar NLFÍ. Auk þess verða flutt stutt erindi og að lokum verða umræð- ur og fyrirspurnir. Eftirtaldir flytja stutt erindi: Hrefna Kristmannsdóttir, deildarstjóri jarðefnafræðideildar Orkustofnunar, Anna G. Sverris- dóttir, rekstrarstjóri Bláa lónsins, Sigmar B. Hauksson, verkefnis- stjóri hjá Reykjavíkurborg, Jón- ína Benediktsdóttir, Planet Pulse og Erna Hauksdóttir, fram- kvæmdastjóri Samtaka ferða- þjónustunnar. Auk frummælenda taka þátt í umræðunum: Davíð Samúelsson, forstöðumaður Upplýsingamið- stöðvar Suðurlands, og Guðmund- ur Björnsson, yfírlæknir HNLFI. s LUNDUR |p***=Uí F A S T E SÍMI 533 1616 SUDURl-ANDSBRAUT 10, 2.HÆH, F/OFAN »1 IGNASALA FAX 533 1617 ■ÚMASTOFU FRIÐFINNS, 108 REYKIAVÍK Bræðraborgarstígur - 4ra herb. Vorum að fá ca 90 fm íbúð á 2. hæð í góðu húsi. Suðursvalir. íbúðin er laus strax. Verð 10,5 m. (2270). Fífulind - 4ra herbergja Vorum að fá glæsilega ca 105 fm endaíbúð á 2. hæð. Stórar ca 15 fm suðursvalir. Mjög vandaðar innréttingar og gólfefni. Verð 14,6 m. (2271) Upplýsingar veita í dag, sunnudag, Ellert, gsm 899 4745 og Erlendur, gsm 897 6565. SIGURÐUR RÓS- BERG TRA USTASON + Sigurður Rós- berg Traustason fæddist á Hörgshóli í Vesturhópi, V- Hún. 9. desember 1957. Hann lést í Los Angeles 8. júlí síðastliðinn. For- eldrar hans voru Sigríður Hansina Sigfúsdóttir, hús- freyja, f. 21. ágúst 1915, d. 29. ágúst. 1999 og Trausti Sig- urjónsson, bóndi, f. 1. maí 1912. Sigurð- ur Rósberg ólst upp á Hörgshóli yngstur átta syst- kina. Þau eru: Björn Trausta- son, f. 29. maf 1938; Þorkell Traustason, f. 10. júlí 1939; Agn- ar Traustason, f. 22. mars 1941; Þráinn Traustason, f. 9. apríl 1942; Guðbjörg Stella Trausta- Sigurður Rósberg eða Beggi eins og hann var alltaf kallaður meðal fjölskyldu og vina var yngsta blómið í barnagarði þeirra Trausta og Lillu á Hörgshóli og það eina sem nú hef- ur sofnað svefninum langa. Hann ann jarðargróðri allt frá barnæsku þar sem honum var Ijóst að lífsafkoma fjölskyldunnar var háð gróðri jarðar, grassprettu og veður- fari. Þegar hann á unglingsaldri kynntist hávöxnum trjám í húsa- dóttir, f. 15. júní 1943; Sigfús Traustason, f. 29. maí 1945; Hörður Traustason, f. 2. janúar 1955. Sigurður Rósberg vann við Mjólkur- stöðina á Hvamms- tanga í nokkur ár, rak blómaverslun- ina Flóru f Reykja- vík um skeið, var búsettur í Los Ang- eles 1986-1994 og dvaldi þar einnig síðustu misserin. Hann var ókvæntur og barnlaus. títför Sigurðar Rósberg fer fram í Fríkirkjunni í Reykjavík, mánudaginn 21. ágúst og hefst athöfnin klukkan 13.30. Jarðsett verður að Breiðabólsstað í Vest- urhópi. görðum Reykjavíkur og skrautblóm- um þeim sem uxu í skjóli þeirra varð hann hugfanginn. Hann dvaldi hjá okkur hjónunum tvo vetur á ungl- ingsaldri og fylgdist af áhuga með vorkomunni í garðinum. Fullur áhuga og áforma safnaði hann af- leggjurum og útvegaði sér trjáplönt- ur til að fara með norður og planta út heima í garðinum á Hörgshóli. Það var stoltur drengur sem sýndi okk- ur, þá um sumarið, afgirtan gróður- Opið hús í dag Fannafold 143, parhús, laust strax Fallegt 114 fm parhús með innb. 26 fm bílskúr sem búið er að innrétta sem aukaherb. og geymslu. Húsið er staðsett á frábaerum útsýnisstað. 3 svefn- herb., stofa og sólskáli. Fallegar innr. og gólfefni. Vigdís og Skarphéðinn taka á móti ykkur í dag milli kl. 15.00 og 18.00. Áhv. 7,0 millj. byggsj. Verð 13,9 millj. Gimli, Þórsgötu 26, sími 552 5099. HÚSNÆÐI FYRIR ARKITEKTA - VERKFRÆÐINGA - TÆKNIFRÆÐINGA Gott skrifstofuhúsnæði í Ármúlahverfi. Tvö rúmgóð fullbúin skrifstofuherbergi með nýjum glæsilegum húsgögnum, ásamt nýjum HP tölvum, prenturum og öðrum tækjabúnaði. Forrit eru m.a. Auto Cad 2000, MegaCard, Mega-CAD V 13.5,3-D, Ópus allt bókhaldsf. H-laun, Office 2000, Corel Draw, Back Office. o.m.fl. Æskilegt að selja húsgögn og tækjabúnað á hóflegu verði. Ýmsir möguleikar. Upplýsingar veitir Dan V.S. Wiium í símum 896 4013 og 533 4040 oig; 4. hæð; íi' iLæilfejjaiiígöttii 2A\ Nánari upplýsingar veita Pálmi Kristins- son og Þorvaldur Þorláksson í síma 545 4600 eða á tölvupósti palmi@smaralind.is Fasteignafélag íslands hf. Smáralind ehf. Hæðasmára 6, 200 Kópavogi Sími: 545-4600 Báðar hæðirnar eru með mikilii lofthæð og birtu og án steyptra innveggja sem býður upp á ýmsa möguleika varðandi skipulag og innréttingar. Á 3. hæð eru ca 250 fm svalir til vesturs sem mögulegt er að nýta í tengslum við leigurýmið. Sérinngangur og lyfta er frá Lækjargötu. Um er að ræða sérlega glæsilegt og vandað húsnæði með einstaka staðsetningu á einum mest áberandi stað í miðborg Reykjavíkur. Stórir útbyggðir gluggar snúa út á Lækjargötu með frábæru útsýni yfir gömlu borgina. Tíl leigu er atvinnuhúsnæði á 3. og 4. hæð í nýbyggingu við Lækjargötu 2A í Reykjavík. Heildarstærð leigurýmis er 422 fm, þ.a. eru 209 fm á 3. hæð og 213 fm á 4. hæð. Húsnæði þetta býður upp á mjög spennandi möguleika og leigist í einum hluta eða tveimur. reit fyrir sunnan bæinn á Hörgshóli, endurnýjaðan með plöntunum að sunnan. Þær færðu nýtt líf í þann gróðurreit sem Guðbjörg amma hans hafði áður ræktað. Síðar kynntist Beggi suðrænum aldingarði Kalifomíustrandar. Þar dvaldi hann í átta ár, lengst af við vinnu í blómaverslunum, en kom svo heim 1994 illa haldinn af þeim sjúk- dómi sem nú hefur lagt hann að velli. Hann sýndi mikið baráttuþrek í veikindum sínum og fylgdist vel með nýungum í lyfjameðferð á þessum áður óþekkta sjúkdómi og lagði mik- ið á sig til að fá þá bestu meðferð sem hann átti völ á. Hvað eftir annað lá hann helsjúkur á Landspítalanum þau fímm ár sem hann var hér heima. Hann sagði í gríni að hann hefði níu líf eins og kötturinn. Þess vegna var svo erfitt að trúa því að nú væri komið að því að alnæmið hefði náð yfirtökunum. Beggi var afskaplega listrænn maður og naut listfengi hans best þegar hann fékkst við að setja saman blómaskreytingar. Hann vann við blómaskreytingar fyrst í Reykjavík þar sem hann rak blómabúð um skeið og síðar í Los Angeles þar sem hann fékkst m.a. við skreytingar fyr- ir ýmis veisluhöld hjá frægu fólki þar vestra. í veikindum sínum fékkst hann við kortagerð sem færði honum smáveg- is í aðra hönd en það var þó mest um vert fyrir hann að hafa eitthvað fyrir stafni sem hann hafði ánægju af. Beggi var í eðli sínu athafnamaður en hafði oft háleitar hugmyndir sem okkur fannst stundum fjarstæðu- kenndar. Sumar þeirra framkvæmdi hann með misjöfnum árangri. Þegar litið er til baka lýsti hann sjálfum sér best þegar hann kom fram í sjón- varpsviðtali eftir jarðskjálftann í Los Angeles 1994, eftir að hafa misst allt sem hann átti. Þá sagði hann eitt- hvað á þessa leið: „Nú er bara að tína saman brotin og byrja upp á nýtt.“ Hann tók örlögum sínum með ein- stöku jafnaðargeði og lét aldrei í ljós biturleika út í nokkurn mann. Beggi var líka afskaplega örlátur ef hann átti eitthvað til að gefa. Þeg- ar vel gekk átti hann það til að senda blómvendi til kunningja í ýmsu til- efni eða til styrktar einhverju mál- efni. Þá sendi hann ekki neina smá- vendi, það voru oftast stórar skreytingar sem hefðu sómt sér í hvaða höll sem væri. Á hinn bóginn var hann afskaplega nægjusamur ef hann hafði lítið fé á milli handanna og tókst að gera sér mikið úr litlu þegar þannig stóð á enda var hann alla tíð reglumaður, bæði á vin og tóbak. Þegar Beggi gerði sér ljóst að bar- áttunni við alnæmið væri lokið lét hann engan bilbug á sér finna þó hann væri á þeirri stundu svo langt í burtu frá fjölskyldu sinni. Hann kvaddi okkur öll í gegnum síma, en öll fundum við fyrir því að lífsneist- inn var ekki slokknaður íyrr en alveg síðustu dægrin. „Kannski hressist ég og kem heim til ykkar“ voru oft síð- ustu kveðjuorðin. Elsku Beggi, nú gengur þú á grænum grundum eilífðarinnar þar sem þú hittir fyrir mömmu þína og ömmu sem elskuðu þig svo heitt en við munum sakna þín. Við viljum þakka Saint, vinkonu Begga í Los Ángeles, fyrir frábæra umönnun og styrk sem hún veitti okkur öllum á sorgarstund. Einnig viljum við þakka starfsfólki deildar 11A á Landsspítalanum í Reykjavík á árunum 1995-99, Ainæmissamtök- unum á íslandi og í LA, og öllum þeim sem greiddu götu hans á erfið- leikatímum. Þorkell og Dóra. Formáli minn- ingargreina ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og böm, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.