Morgunblaðið - 20.08.2000, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 20.08.2000, Blaðsíða 40
40 SUNNUDAGUR 20. ÁGIJST 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ t Ástkær eiginkona mín, JÓNÍNA KRISTJÁNSDÓTTIR, Klængshóli í Skíðadal, sem andaðist þriðjudaginn 15. ágúst sl., verður jarðsungin frá Dalvíkurkirkju miðviku- daginn 23. ágúst kl. 13.30. Jarðsett verður í Vallakirkjugarði. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Hermann Aðalsteinsson. t Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa, langafa og bróður, SIGURGEIRS ÓLAFSSONAR VÍDÓ, Boðaslóð 26, Vestmannaeyjum. Sérstakar þakkir sendum við Sjálfstæðis- félögunum í Vestmanneyjum og Hafnarstjóm fyrir hlýhug og aðstoð, Reykjalundi og Sjúkrahúsi Vestmannaeyja þakkir fyrir frábæra umönnun í veikindum hans. Guð blessi ykkur. Fyrir hönd aðstandenda, Erla Eiríksdóttir. t Þökkum sýndan hlýhug og virðingu við and- lát og útför móður okkar, ÖNNU ÞORBJARGAR KRISTJÁNSDÓTTUR, Skúlagötu 20. Jón B. Stefánsson, Guðrún Sveinsdóttir, Kristján Stefánsson, Steinunn Margrét Lárusdóttir, Þorgrímur Stefánsson, Greta Sigurjónsdóttir, Páll Stefánsson, Ingibjörg Haraldsdóttir, Anna Ósvaldsdóttir, bamaböm og barnabarnabörn. t Hugheilar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför elskulegs föður okkar, sonar, bróður og mágs, HAFÞÓRS TORFASONAR, Hólabraut 7, Keflavik. Samúð ykkar veitir okkur öllum styrk. Guð geymi ykkur. Fyrir hönd aðstandenda, Torfi Agnars Jónsson, Jósebína Gunnlaugsdóttir. rfisdrykkjur í Veislusalnum Sóltúni 3, Akógeshúsinu, fyrir allt ab300 manns. Ol EINNIC LÉTTUR IIADECISMATUR ÍRTIJ A EF MEOKAFFI OG TERTIJ A EFTIR - SAMA VERD . S*oiii ffíst ° netinu, Glœsilegar veitingar frá Veislunni Austurströnd 12 • I70 Sehjomomes • Sími: 561 2031 * Fax: 561 2008 VEISLAN VEITINGAELDHUS www.veislan.is . _ ------------Og Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar. Vesturhlíð 2 Fossvogi Sími 551 1266 www.utfor.is Við Útfararstofu kirkjugarð- anna starfa nú 14 manns með áratuga reynslu við útfaraþjónustu. Stærsta útfararþjónusta landsins Prestur Kistulagning Kirkja Legstaður Kistur og krossar Sálmaskrá Val á tónlistafólki með þjónustu allan ^ V sólarhringinn. Kistuskreytingar Dánarvottorð Erfidrykkja UTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA EHF. GUÐRUN PÁLSDÓTTIR + Guðrún Pálína Pálsdóttir söng- kennari fæddist á 01- afsfirði 15. nóvember 1909. Hún lézt á heimili sínu, Löngu- hlíð 3 í Reykjavík, 11. ágúst sfðastliðinn. Foreldrar hennar voru Páll Bergsson útgerðarmaður á Ól- afsfírði og í Hrísey, f. 11. febr. 1871, og kona hans Svanhild- ur Jörundsdóttir, f. 22. ágúst 1877. Systkini Guðrúnar: Svavar, f. 6.4.1898, d. 8.6.1920; Eva, f. 11.9.1899, d. 14.7.1941; Hreinn, f. 6.6.1901, d. 28.12.1976; Pálína, f. 11.12.1902, d. 1905; Gest- ur, f. 24.9.1904, d. 27.3.1969; Bjami, f. 27.7.1906, d. 17.2.1967; sveinbarn, f. 1908, d. s. ár; Gunnar, f. 28.12.1911, d. 13.11.1976; Jör- undur, f. 20.12.1913, d. 6.9.1993; Margrét, f. 3.8.1915, d. 19.9.1960; Fréttin um lát Rúnu frænku kom ekki á óvart - og þó - kemur dauðinn ekki alltaf að óvörum? 90 ár er hár aldur, en fáum er það gefið, að vera svo vel á sig komin, geta fylgst af lif- andi áhuga með umhverfinu og öllu sem er að gerast í þjóðfélaginu, eins og Rúna gerði. Allt okkar líf var Rúna eitt af stóru akkerunum í okkar fjölskyldu - alltaf fylgdist hún af brennandi áhuga með öllu sem við vorum að taka okkur fyr- ir hendur. Og þetta gilti fyrir öll systkinabömin, sem er geysistór hópur í dag. Föðurfjölskylda okkar er stór - systkinin voru þrettán, uppalin á stóru heimili í byrjun aldarinnar þar sem verslun, útgerð og búskapur var stundaður og allir höfðu sitt hlut- verk. A þessum tíma virtist dags- verkum kvenna aldrei lokið. Þegar komið var heim frá útiverkum hvíldu karlar sig en konur drógu skó af bræðrum og mönnum heimilisins og tóku til við innistörfin. Mikið var unn- ið í fiski, í bleytu og kulda. Og þegar senda átti unga fólkið til mennta þá voru það eingöngu synimir sem fóru, það var ekki sjálfsagt að konur gengju menntaveginn en seinna kost- aði Rúna sína menntun sjálf. Þetta var sá jarðvegur sem mótaði Rúnu og konur af hennar kynslóð. Og er nú hún að kveðja, síðust af systkinunum þrettán. Það er eins og að loka stórri bók - og geta aldrei opnað hana aftur. Rúna fylgdist vel með gangi mála fram á síðustu stundu og gaman var að ræða við hana um þau. Hún hafði lifandi áhuga og ákveðnar skoðanir á fjölmörgum málefnum, erlendum sem innlendum og ekki síst mikinn áhuga á ölium nýjum bókum sem út komu. Þessar bækur las hún margar og var gaman að ræða um þær við hana. Rúna hefur alltaf átt stóran þátt í lífi okkar systkinanna á Akur- eyri. Það fylgdi hverri sumarkomu að hún kæmi norður með fjölskyldu sína á leið austur í Höfða í Mývatnssveit þar sem hún dvaldi með sínu fólki á sumrin I mörgu var að snúast við undirbúning sumardvalarinnar og mikið þurfti að kaupa inn. Oft fengum við systkinin að fara með austur í Höfða og eigum við þaðan margar ljúfar minningar. Seinna fórum við með fjölskyldur okkar í Höfða og enn var safnað í sarp góðra minninga. Móttökur alltaf jaln hlýlegar og um- hyggjusemin í fyrirrúmi fyrir okkar fólki. I ferðum okkar til Reykjavíkur vorum við alltaf velkomin í Bólstaðar- hlíðina - til lengri eða skemmri dval- ar. Aldrei bar nokkum skugga á sam- skipti okkar norðanki’akkana við Rúnu frænku og munum við alltaf minnast og sakna hennar hlýlegu og notalegu nærveru. Rúna var okkur ómetanlegur stuðningur þegar erfiðleikar voru í okkar fjölskyldu við lát foreldra okk- ar og bróður. Þá studdi hún okkur og huggaði, þótt hún ætti líka oft um sárt að binda. Það hefur ekki verið auðvelt að sjá á eftir eiginmanni, einkadóttur og systkinum sínum einu af öðru. Fyrir utan að fylgjast með Bergur, f. 13.9.1917, d.14.11.1991; Svavar, f. 23.9.1919, d. 14.2.1978. Guðrún Pálsdóttir giftist 15. sept. 1934 Héðni Valdimarssyni alþingismanni, fram- kvæmdastjóra Olíu- verzlunar íslands og formanni verka- mannafélagsins Dags- brúnar, f. 26.5.1892, d.12.9.1948. Barn þeirra: Bríet, f. 14.10.1935, d. 26.10.1996. Fyrri maður Bríetar: Sigurður Öm Steingrímsson, f. 14.11.1932. þau slitu samvistir. Böm þeirra: 1) Laufey, f. 10.5.1955, maki Þor- steinn frá Hamri, f. 15.3.1938, bam þeirra: Guðrún, f. 2.3.1994. 2) Guð- rún Theodóra, f. 24.12.1959, maki 1: Brendan Casey, bam þeirra: Esther Talia Casey, f. 25.11.1977; maki 2: Szymon Kuran, f. 16.12.1955, börn öllum systkinum sínum og bömum þeirra, var það dóttir hennar Bríet Héðinsdóttir, dætur hennar þrjár sem stóðu Rúnu næst. Laufey, Guð- rún Theódóra og Steinunn Ólína, sem þegar hafa misst móður sína, eiga nú um sárt að binda og vottum við þeim okkar innilegustu samúð. Undir lokin var Rúna orðin þreytt eftir langt og viðburðaríkt líf. Hún hefur nú fengið þá hvfld sem hún þráði, en við hin þökkum fyrir allt sem hún gaf okkur og söknum hennar mikið. Hvfldu í í'riði, elsku Rúna. Guðný, Þórunn, Guðrún og Bergur Bergsböm og fjölskyldur. Rúna frænka er látin í hárri elli. Við sem nutum samvista við hana kveðjum hana með þökkum fyrir allt sem hún hefur kennt okkur. Þær systur, Rúna frænka og móðir mín, önnur ekkja hin sjómannskona, stóðu alla tíð þétt saman og voru svo nánar vinkonur að heimili þeirra blönduðust. Við systkinin ólumst upp við það að eiga tvö heimili, eins og ekkert væri eðlilegra. Er t.d. eina myndin, sem ég hef nokkumtíma séð af sjálfri mér sem komabarni, tekin af mér í fangi Rúnu frænku. Móðir mín fór með Rúnu frænku, ásamt okkur systkinum litlum, á hverju vori norður í Mývatnssveit til sumardvalar. „Vinnukona með þrjú böm,“ glettust þær systumar. Síðar, þegar móðir mín var orðin veik og eldri systkinin komin í sveit, hélt ég áfram að fara norður með Rúnu. I veikindum móður minnar dvaldi ég alltaf hjá Rúnu frænku þau tímabil sem hún lá á sjúkrahúsi eða illa hald- in heima. Þegar móðir mín dó var því ekkert eðlilegra en að við nöfnumar, amma og ég, færum báðar í fóstur til Rúnu. Nema hvað! Þannig var Rúna, hugsaði alltaf fyrst um aðra og virtist alltaf geta bætt á sig. Hún, sem hafði í rauninni aldrei verið fullkomlega hraust. Rúna var á þessum tíma búin að taka að sér dótturdóttur sína, hafði alið hana upp svo til frá fæðingu. Síð- ar kom önnur dótturdóttir og áður, fyrir mitt minni, hafði hún fóstrað ýmis börn um lengri eða skemmri tíma. Það hefur eflaust ekki verið neinn leikur að taka að sér tíu ára gamalt bam. I þá daga var ekkert til sem hét áfallahjálp eða tekið á sorgai-við- brögðum bama eins og nú er gert, það var í besta falli haldið í höndina á bairá sem missti foreldri. Eg vissi ekki alltaf hvað mátti og hvað mátti ekki og æ, við misskildum stundum hvor aðra. Eg dró mig inn í skel, en elskaði hana og virti. Einu trúnaðarsamtali okkar man ég eftir; Rúna frænka spurði hvort ég vildi kalla sig mömmu. Logandi hrædd um að valda henni vonbrigðum svaraði ég að ég vildi bara kalla hana Rúnu frænku eins og áður. Seinna skildi ég að hún var ekki að fara fram á að ég kallaði sig mömmu, hún var einungis þeirra: Súnon Héðinn, f. 28.3.1988, Anna Kolfinna, f. 5.12.1989, Jakob, f. 1.11.1991; maki 3: Lan Shui, f. 7.10.1957. Seinni maður Bríetar: Þorsteinn Þorsteinsson, f. 10.6.1938. Barn þeirra: Steinunn Ólína, f. 2.7.1969. Barn hennar: Bríet Ólína Kristins- dóttir, f. 16.8.1995. Sambýlismaður Stcinunnar: Ágúst Hilmisson, f. 27.1.1969. Guðrún Pálsdóttir tók kennara- próf 1930. Hún stundaði söngnám hjá Sigurði Birkis í fjögur ár, kynnti sér söngkennslu í Kaup- mannahöfn 1933 og í New York 1950, og sótti söngkennaranám- skeið í Finnlandi og Svíþjóð 1951. Var kennari við Miðbæjarskólann í Reykjavík 1930-1936, Melaskólann 1950-1966 og stundakennari við Húsmæðraskóla Reykjavíkur 1954-1957. Kenndi einnig lítils háttar við Fóstruskólann og Iðn- skólann. Hún sat í stjóm Olíuverzl- unar íslands 1948-1980; var stofn- andi og fyrsti formaður Söngkenn- arafélagsins og stofnaði einsöngv- arafélagið Elisu. Utför Guðrúnar fer fí-am frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánu- daginn 21. ágúst og hefst athöfnin kl. 15. að bjóða mig velkomna á heimilið. Rúna hafði lofað systur sinni að ann- ast litla bamið eftir hennar dag og það ætlaði hún að gera svikalaust, ganga mér í móður stað. Það var því með nokkru samviskubiti sem ég kvaddi þetta góða heimili nokkrum árum síðar þegar við systkinin flutt- um heim aftur. Rúna var hvetjandi uppalandi, hældi teikningunum mínum á hvert reipi, sagði ekki orð þegar ég vfldi hætta í píanótímum, heldur sat á kvöldin með mér og reyndi að kenna mér á gítar. Um áttrætt fór hún svo sjálf í tíma til að læra betur á þetta ágæta hljóðfæri. A sumrin kenndi hún okkur að skoða og virða náttúr- una og kenndi okkur að fletta upp í blómabókum. Enn í dag þekki ég vel flestar blómategundir sem vaxa í Höfðanum. Þegar ég var búin að lesa allar bamabækur sem fundust á heimilinu dró hún fram danskar bamabækur og sagði að ég gæti vel lesið þær. Það var nú ekki alveg rétt en einhvem veginn gat hún komið mér til að stauta mig fram úr þeim. Mörgum ámm seinna var ég að kvarta yfir lélegri þýskukunnáttu minni, sagði hún „hvaða vitleysa" og lánaði mér bækur og hreinlega skip- aði mér að lesa þær. Hún hafði vetur- inn áður farið í þýskutíma og upp- götvað að hún kunni þó nokkuð í því máli enn, fimmtíu ámm eftir að hún lærði þýsku í Kennaraskólanum. Rúna var gædd afburðagáfum og var góður námsmaður en aldrei, aldrei var þeirri mælistiku beitt í uppeldinu. Aldrei var sagt að fyrst hún hefði get- að eitt og annað þá ættum við að geta það líka. Hún mat okkur á okkar eig- in forsendum - og það er ekki svo h't- ils virði fyrir böm. Samt var hún, skoðanir hennar og lífsmat, afar sterkur áhrifaþáttur í lífi bamsins og er enn. Hún tók alla tíð afstöðu, hafði áhuga á pólitflc fram til síðasta dags og fann sárt til með lítilmagnanum. Það er hollt að alast upp hjá konu með svo ríka réttlætiskennd. Ég mun minnast hennar með þakklæti og geyma boðskap hennar í hjarta mér alla ævi. Svanhildur Jóhanncsdút tir. Látin er í Reykjavík Guðrún Páls- dóttir húsfreyja og kennari í Reykja- vík, sú síðasta úr stórum systkinahóp óvepju glæsilegs atgervisfólks. Þau systkin vom vel menntuð og listfeng, þar fóm m.a. söngvarar, leikari og listmálari. Guðrún var búin góðum tónlistarhæfileikum, hafði fallega söngrödd, lék á píanó og menntaði sig sem tónlistarkennari og starfaði við það, var söngkennari, eins og það var kallað þá, í fjölda ára, lengst af við Melaskóla. Eiginmaður Guðrúnar var Héðinn Valdimarsson, stórbrotinn stjóm- mála- og athafnamaður, sem ég tel að sagan eigi eftir að gera betri skil. Þau áttu dótturina Bríeti. Þessi litla fjöl- skylda hafði orð á sér fyrir menning-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.