Morgunblaðið - 20.08.2000, Qupperneq 64

Morgunblaðið - 20.08.2000, Qupperneq 64
VIÐSKIPTAHUGBÚN AÐUR Á HEIMSMÆLIKVARÐA <Q> NÝHERJI S: 569 7700 heim að dyrum www.postur.is | PÓSTURINN MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNl 1,103 REYKJAVtK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040, ÁSKRIfT-AFGRElÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTTJ&MBLJS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTII SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2000 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK. Konan enn ófundin YFIR fimmtíu björgunarsveit- armenn tóku í gær þátt í leit að konu sem hvarf af heimili sínu á fimmtudagskvöld. Enn hefur leitin engan árangur borið. Megináhersla leitarinnar hefur verið á Fossvoginn og nágrenni hans en lögregla tekur við öll- um ábendingum. Að sögn lög- reglunnar eru fimm lögreglu- menn í því verkefni að ganga skipulega í hús í nágrenni heimilis konunnar og kanna hvort konuna sé að finna þar. Auk þess eru allir lögreglu- menn á vakt að svipast um eftir konunni. Þyrla Landhelgisgæslunnar tók einnig þátt í leitinni í gær, líkt og á föstudag, auk þess sem leitað var úr bátum í Fossvog- inum. Konunnar hefur verið leitað frá þvi á fimmtudagskvöld. Á föstudag tóku á miili 70 og 100 manns þátt í leitinni. Aðfara- nótt laugardags var leitað með hundum á leitarsvæðinu. Konan, sem er liðlega átt- ræður alzheimer-sjúklingur, var klædd í ljósbrúnar buxur og jakka með prjónahúfu. Sturla Böðvarsson segir að færa þurfí veginn við Herðubreiðarlindir Nýr varnargarður verð- ur reistur í Kelduhverfí STURLA Böðvarsson samgönguráð- herra sagði í gær að tekin hefði verið ákvörðun um að ekki þyldi bið að reisa vamargarð í Kelduhverfi til að ^ > hemja Jökulsá á Fjöllum. Sturla sagði að ekki væri ljóst und- ir hvaða ráðuneyti þessar fram- kvæmdir heyrðu vegna þess að ann- ars vegar gætu framkvæmdimar snúist um að verja vegi og hins vegar að verja gróið land. Bændur í Keldu- hverfi kröfðust þess fyrr í sumar að gripið yrði til aðgerða enda ijóst að áin hefði hlaðið mikið undir sig og að- eins spuming um tíma hvenær hún leitaði úr farvegi sínum. „Þegar þetta kom upp fól ég vega- málastjóra að láta fara yfir og rann- saka málið því að vegagerðin hefur haft veg og vanda af slíkum fram- kvæmdum, hver sem hefur síðan greitt fyrir þær,“ sagði hann. „Menn á vegum vegamálastjóra og fulltrúar búnaðarsamtaka þama fóru þegar á vettvang og gáfu skýrslu. í framhaldi af því gerði ég grein fyrir þessu í rfk- isstjóminni og því að þama þyrfti þá þegar að hefja aðgerðir. Ég lét vita af því fyrir norðan. Viðræður hafa átt sér stað milli samgönguráðuneytis og landbúnaðarráðuneytis um hvemig eigi að fjármagna þetta en við höfum ekki látið það tefja, heldur hefur Vegagerðin þegar gert ráðstafanir til að hefja þær framkvæmdir sem þama eru nauðsynlegar.“ Sturla kvaðst ekki eiga von á öðru en að fljótlega yrði ráðist í verkið. Hann sagði að svo virtist sem garður- inn, sem hlaðinn var í sumar að írum- kvæði Ferðafélags Akureyrar til að verja Herðubreiðarlindir, hefði stað- ist þá áraun sem nú reið yfir. En samkvæmt þeim upplýsingum sem hann hefði frá vegamálastjóra benti allt til þess að færa þyrfti veginn bæði uppi við Herðubreiðarlindir og einnig niðri við Lindaá þar sem rúta með hópi ferðamanna frá Austurríki fór út í Jökulsá á miðvikudag. „Þetta er verið að skoða og það er náttúrulega óskaplega erfitt að ætla að hlaupa út og suður með vegarslóða eftir því hvemig þessi stóm vatnsföll láta,“ sagði hann. „Það þarf að gæta sín á því að ekki séu lagðir vegir víðar um hálendið en ástæða er til og hafa traustar forsendur þegar breyta á slóðum. í þessu tilviki bendir hins vegar allt til að það verði að gera.“ Sturla sagði að hins vegar yrði að fara sér hægt í að taka slíkar ákvarð- anir því að ætti að leggja veg i hvert skipti sem einhver spræna léti á sér kræla yrði lítið annað gert. Morgunblaðið/Sverrir Reykjavík- urmaraþon HLAÚPARAR í Reykjavíkur- maraþoni voru ræstir á hádegi í gær. Um 2800 voru skráðir í hlaupið sem er heldur meira en undanfarin ár að sögn Ágústs Þorsteinssonar, starfsmanns Reykjavíkurmaraþons. Sólin skein á hlauparana í gær og borgin skartaði sínu fegursta. Um 200 voru skráðir í hið eig- inlega maraþonhlaup, en flestir hlupu styttri vegalengdir, allt frá þriggja til 21 km langar leiðir. Einnig var boðið upp á 10 km hnuskautahlaup. Á myndinni má sjá þátttakendur í þriggja km skemmtiskokki leggja af stað en þeir voru mcirihluti hlaupara. Skotvís, félag skotveiðmanna óskar eftir að fá auknar skotveiðiheimildir Vill veiðileyfí á hrossagauk SIGMAR B. Hauksson, formaður Skotvíss, félags skotvciðimanna, vill að leyfðar verði veiðar á hrossa- gauk. Stofninn sé gríðarstdr og þoli veiðar vel. „Líf hrossagauks er ekk- ert mikilvægara eða verðmætara en t.d. ijúpu, eða iambsins þess 'M EEE p vegna,“ segir Sigmar. Stjórnvöld hafi stytt veiðitíma og sett ýmsar hömlur á skotveiðimenn. Þetta hafi þeir látið yfir sig ganga en vildu gjarnan fá einhveija viðbót. Afar fátt mæli gegn því að hefja veiðar á hrossagauk. Helst séu það tilfinningarök sem hann segir að sjálfsögðu fullgild. Erfiður veiðifugl Hrossagaukurinn mun vera af- burðaerfiður veiðifugl og því skemmtileg bráð. Sigmar segir hrossagaukinn vera vinsælan í Brctlandi og Belgíu og bragðast af- ar vel. Það sé þó ekki víst að íslend- ingar taki vel í þessa hugmynd. „Ég held að hinn háværi hluti al- mennings sé mjög mót fallinn þessu,“ segir Sigmar. „Ég undrast það ekki enda er engin hefð fyrir veiðum á þessum fugli.“ Ef fdlk kynni sér málið megi þó búast við að afstaða þess breytist enda séu engin vísindaleg rök gegn veiðum á Morgunblaðið/Guðmundur Páll Ólafsson Formaður félags skotveiði- manna vill að veiðar á hrossa- gauk verði leyfðar. hrossagauk. Sigmar segir að þar sem veiðar á hrossagauk eru Ieyfð- ar fari menn ekki á „hrossagauks- veiðar" heldur skjóti þeir fuglinn þegar færi gefst. Hann býst við að slíkt myndi einnig gilda hér á landi. Hann bend- ir á að hrossagauksveiðar voru leyfðar hér á landi til 1913 en reyndar lítið stundaðar. Helst hafi breskir laxveiðimenn skotið fuglinn og Islendingar sem voru menntaðir í útlöndum. „Jónas Jonassen land- læknir í Reykjavík og Einar Bene- diktsson skáld veiddu þessa fugla,“ segir Sigmar. Ekki vistfræðileg rök gegn veiðum Arnór Þórir Sigfússon, fugla- fræðingur hjá Náttúrfræðistofnun Islands, segir að fyrir nokkrum ár- um hafi stofnunin verið spurð að því hvort hrossagauksstofninn þyldi veiðar. Hann segir að niður- staðan hafi verið sú að stofninn þyldi eflaust veiðar. „Ástæðan fyrir því að við skjótum ekki vaðfugla og mófúgla er tilfinningalegs eðlis, ekki vistfræðileg. Þetta er mjög stór stofn, hrossagauksstofninn," segir Amór.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.