Morgunblaðið - 20.08.2000, Side 2
2 SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Yfírfæranlegt tap Landsbankans að fullu nýtt 1999
Greiðir fullan
tekjuskatt í ár
SKATTALEGT tap, sem yfírfær-
anlegt er milli ára, nýtti Lands-
banki íslands að fullu á síðasta
rekstrarári og því greiðir bankinn
í fyrsta sinn fullan tekjuskatt á
rekstrarárinu 2000. Halldór Jón
Kristjánsson, bankastjóri Lands-
bankans, segir að þessar breyttu
aðstæður séu aðalskýringin á lak-
ari afkomu bankans á fyrstu sex
mánuðum ársins en á sama tíma í
fyrra. Hann bendir þó á að afkoma
af reglulegri starfsemi sé nánast
óbreytt þrátt fyrir að markaðs-
skuldabréfaeign bankans hafi
þróast með mjög öndverðum hætti
á fyrri helmingi ársins.
Hagnaður Landsbankans fyrir
skatta fyrstu sex mánuði ársins
var 681 milljón kr., borið saman
við 738 milljónir á sama tíma í
fyrra. Þegar tillit hefur verið tekið
til tekju- og eignarskatta nam
hagnaður bankans á tímabilinu um
503 milljónum króna.
Rekstrargjöld Landsbankans
námu alls ríflega 3,2 milljörðum
kr. á fyrri helmingi ársins og
hækkuðu um 10,5%, en heildar-
eignir bankans jukust um 20% á
sama tíma. Laun og launatengd
gjöld jukust um 4,7%. Stöðugildi í
bankanuum og dótturfyrirtækjum
hans í lok júní sl. voru 924 og hafði
fækkað um 21 á einu ári.
„Eftir rekstrarerfiðleika Lands-
bankans og almenna erfiðleika í
efnahagslífinu á árunum 1991 til
1993 átti Landsbankinn í reikning-
um sínum verulegt skattalegt tap.
Það tap hefur verið yfirfært í sam-
ræmi við lög og nýttist bankanum
að fullu á síðasta ári. Því er yfir-
standandi rekstrarár hið fyrsta
þar sem við greiðum fullan tekju-
skatt,“ segir Halldór og bendir á
að fjölmörg stórfyrirtæki séu í
sömu sporum og Landsbankinn í
þessum efnum.
„Það er að sjálfsögðu fullkom-
lega eðlilegt að Landsbankinn
greiði tekjuskatt eins og önnur
fyrirtæki, en um leið er brýnt að
allir átti sig á þessum breyttu for-
sendum í rekstrinum,“ segir Hall-
dór enn fremur. Hann bætir því
við, að markaðsaðilar hafi verið vel
upplýstir um þessi mál og því hafi
markaðurinn almennt tekið tíðind-
um af rekstri bankans vel.
Morgunblaðið/Sverrir
Menningin tekur á
sig ýmsar myndir
ÞAÐ er kunnara en frá þurfi að
segja að menningin tekur á sig ýms-
ar myndir í hinu daglega amstri,
hvort sem er menning í hefðbund-
inni merkingu orðsins eða af öðrum
toga. Umferðarmenning hefur til að
mynda verið mjög í umræðunni síð-
ustu misserin hér á landi og árekstri
slíkrar menningar og þeirrar hefð-
bundnu hefur lögregluþjónninn á
mótorhjólinu eflaust verið að velta
fyrir sér í Laugardalnum á föstu-
dagskvöld. Einhverjum ökumannin-
um hafði nefnilega Iegið svo mikið á
að komast í Laugardalshöll að sjá
frumsýningu Baldurs - menninguna
- að hann skeytti ekki um að leggja
löglega í stæði og lagði þar með sitt
af mörkum til umferðarmenningar
landsmanna.
íslenski skálinn hefur notið mikilla vinsælda á heimssýningunni og má hér sjá röð þeirra gesta sem bíða eftir að komast inn í skálann teygja sig frá vinstri til hægri eftir myndinni endilangri.
Island ein besta
flugleiðin hjá GO
BRESKA lágfargjaldaflugfélagið
GO hefur flutt hartnær 18.000
farþega til og frá íslandi það sem
af er sumri, sem er talsvert meiri
fjöldi en forsvarsmenn félagsins
höfðu þorað að vona. „Þetta hefur
verið ein besta flugleið félagsins í
sumar og áhugi Breta á að koma
til íslands hefur verið mun meiri
en búist var við. Þetta hefur kom-
ið mönnum í opna skjöldu," segir
Jón Hákon Magnússon, talsmað-
ur GO á íslandi.
Jón segir að um fjórðungur far-
þega á þessari leið sé Islendingar
sem bóki sig frá Islandi. „Það kom
forsvarsmönnum félagsins á óvart
hversu fljótt Islendingar skiluðu
sér. I upphafi var ekki gert ráð
fyrir mörgum flugfarþegum héð-
an enda aðaláherslan lögð á að
flytja Breta hingað," segir Jón.
Hann segir að um 66 % íslenskra
viðskiptavina félagsins hafi bókað
farmiða sína á Netinu.
Ekki ráðgert að fljúga
til Islands í vetur
Félagið, sem er dótturfyrirtæki
British airways, hefur flogið til ís-
lands fjórum sinnum í viku frá því
í lok maí en mun hætta fluginu í
lok september. „Það var mjög
mikill áhugi á að halda áfram flugi
hingað í vetur en af því verður
ekki og er meginástæðan sú að fé-
lagið á ekki nægan flugflota. A
veturna er aðallega flogið til Sviss
og Austurríkis með breska skíða-
menn og svo verður í vetur,“ segir
Jón.
Hann segir að enn hafi ekki
verið tekin ákvörðun um hvort fé-
lagið fljúgi hingað á næsta ári en
áhuginn sé fyrir hendi. ,Ákvörð-
un verður að öllum líkindum tekin
í lok þessa mánaðar,“ segir Jón.
Jón segir að megnið af breskum
farþegum félagsins á þessari leið
sé fólk sem ella hefði ekki keypt
sér far til Islands. „Meginuppi-
staðan er fólk sem annars hefði
ekki komið hingað. Félagið ákvað
að hefja flug til íslands þar sem
þeir höfðu heyrt af því að margir
Bretar hefðu áhuga á því að koma
hingað en flugfargjaldið væri of
hátt og viðbrögðin komu þeim
ánægjulega á óvart,“ segir Jón.
Hann segir meirihluta breskra
farþega vera ungt fók sem komi
til íslands um helgar til þess að
kynnast næturlífinu en einnig sé
mikið um að eldra fólk komi hing-
að til þess að skoða land og þjóð.
„Það sem kemur á óvart er hversu
lengi þetta eldra fólk dvelur hér.
Eldra fólk sem er að skjótast með
félaginu til annarra áfangastaða í
Evrópu dvelur yfírleitt mun
skemur," segir Jón.
Skótau farþega rannsakað
Jón segir að engin marktæk
könnun hafi verið gerð á samsetn-
ingu flugfarþega til Islands. Hann
segir hins vegar að starfsmenn
flugfélagsins hafi skoðað skóbún-
að farþega í þessu skyni. „Þeir
segja að skórnir sem farþegar
gangi í séu allt frá því að vera
strigaskór, sem tilheyra ungu
fólki, upp í að vera gönguskór en
einnig sé greinilegt á skótaui
sumra að þar séu á ferðinni menn
í viðskiptaerindum,“ segir Jón.
Hann segir að á öðrum flugleiðum
félagsins sé um þriðjungur far-
þega fólk í viðskiptaerindum en
það eigi ekki við hér.
Næstvinsælasti skálinn
á heimssýningunni
íslenski skálinn á EXPO 2000 hefur not-
ið töluvert meiri vinsælda en búist var
við og sýna nýjustu kannanir fram á að
hann sé næstvinsælasti skálinn á svæð-
inu og fylgi þar fast á hæla þess þýska.
„AÐ MINU mati hefur þetta allt
gengið upp,“ segir Sigríður Sigurð-
ardóttir, framkvæmdastjóri ís-
lenska skálans á heimssýningunni
EXPO 2000, sem fram fer í Hannov-
er í Þýskalandi þessa dagana. Sam-
kvæmt tímaritinu Expo Journal,
sem dreift var meðal þátttakenda í
gær, hafa 2,107 milljónir manna nú
þegar heimsótt fslenska skálann. Sá
þýski, sem trónir á toppnum, hefur
fengið 2,342 milljónir heimsókna og
því Ijóst að ekki ber mikið á milli.
Þetta er ekki hvað síst for-
vitnilegt í ljósi þess að munurinn á
þýska skálanum og þeim fslenska er
áþekkur og munurinn á miðborg
Reykjavíkur og Manhattan hvað
stærð og íburð varðar. Sigríður
segir þó enga eina skýringu að
finna á vinsældum skálans, en kveð-
ur þýska fjölmiðla hafa verið já-
kvæða. „Okkur hefur verið ýtt
áfram af fjölmiðlum á marga vegu,“
segir Sigríður. Viðtöl hafa verið
birt í aðalfréttatíma þýska ríkis-
sjónvarpsins ZDF, netútgáfa Spieg-
el hefur tekið skálann til umfjöllun-
ar og fagtímarit hafa veitt islensku
hönnuninni athygli. Sigríður nefnir
sem dæmi að tímarit sem fjalli um
innanhússhönnun hafi veitt stólum
íslenskra hönnuða athygli og þá
hafí margmiðlunardiskur sem gef-
inn var út í tengslum við skálann
verið kjörinn diskur mánaðarins af
virtu þýsku tölvublaði.
Sigriður segir ánægða sýningar-
gesti þó ekki síður góða auglýsingu
og algengt sé að gestir mæli með
skálanum við vini og ættingja.
„Maður heyrir oft fólk segja aðra
hafa hvatt þá til að heimsækja ís-
lenska skálann. Okkur þykir þó
skemmtilegast að heyra fólk segja
þegar það er búið að skoða: Já, nú
verðum við að fara til íslands," seg-
ir Sigríður og kveður skálann tví-
mælalaust vera góða landkynningu.
Með gerð hans hafi tekist að veita
góða tilfinningu fyrir landi og þjóð
og slíkt geri fólk gjarnan forvitið.
Þátttakendur ánægðir
Minni aðsókn hefur verið að Expo
2000 heldur en búist hafði verið við
þótt aðsóknin að íslenska skálanum
hafi verið margfalt meiri en áætlan-
ir gerðu ráð fyrir. Um þriðjungur
sýningargesta hefur lagt leið sína í
skálann, en vonast hafði verið eftir
að 10% gesta myndu líta þar við.
Að sögn Sigríðar verður hún þó
ekki vör við óánægju meðal ann-
arra þátttakenda og segir hún þá
almennt gefa sýningunni góða ein-
kunn. Það viðhorf sé frekar ríkj-
andi að fyrri væntingar um aðsókn
hafi verið óraunhæfar því ekki væri
rúm fyrir öllu fleiri.
„Þótt það mætti tvisvar sinnum
meiri fjöldi inn á svæðið, myndum
við ekki geta tekið við miklu fleira
fólki inn í skálann okkar. Það er
biðröð hér fyrir utan frá rnorgni til
kvölds alla daga og þegar það eru
komnar svo langar raðir fer fólk að
leita annað.“
Þjóðardagur Islendinga á heims-
sýningunni verður 30. ágúst nk. og
er undirbúningur því í fullum
gangi. „Það eru allir hættir að
sofa,“ segir Sigríður og kveður ljöl-
breytta dagskrá verða í boði.
Hún nefnir sem dæmi karlakór-
inn Heimi, Dansleikhús með Ekka,
Örsögur úr Reykjavík, Sigur Rós,
Futurice og kynningu á íslenska
hestinum meðal þeirra viðburða
sem á dagskrá verða í og við skál-
ann. Sérstök kynning verður á ís-
lenska hestinum fyrir utan skálann,
en auk þess munu fákarnir standa
heiðursvörð við opinbera athöfn
þjóðardagsins.
Þá verður boðið upp á sýningu á
Sjálfstæðu fólki eftir Halldór Lax-
ness í leikhúsi einu í Hannover og
virðist sá viðburður ætla að njóta
umtalsverðra vinsælda. Það er
Þjóðleikhúsið sem setur upp sýn-
inguna og hafði þriðjungur miða
selst í netsölu, en almenn sala á að
hefjast nú á mánudag. Leikritið,
sem er sjö tímar að lengd, er flutt á
íslensku með þýskum texta og segú'
Sigríður vinsældir þess því vekja
bæðj undrun og aðdáun.
„Ég trúi því eiginlega ekki enn
hvað það hefur ríkt mikil jákvæðni í
garð íslenska skálans," segir Sig-
ríður og kveður allar viðtökur hafa
farið fram úr björtustu vonum.