Morgunblaðið - 20.08.2000, Page 8
8 SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Verðum að hefja hvalveiðar að nýju.
Ámi Mathiesen sjávar-
útvegsráðherra segir
forsætisráðherra ckki
vera að lýsa yfir neinu
sem sé að bresta á.
Enn snýst leikurinn bara um að skiptast á að fara í tunnuna til að sýna sig og sjá aðra.
Fækkað hefur í geitungastofnum
MINNA hefur borið á geitungum í
ár en fyrri sumur. Erling Ólafsson
skordýrafræðingur segir ástæðuna
vera óhagstæð veðurskilyrði í byrj-
un júní en þá hafi fjölmörg bú eyði-
lagst.
Erling segir hitastig og veður í
júní ráða því hver stofnstærð geit-
unganna verður. Á vorin er aðeins
ein drottning í hverju búi. Ef hún
lendir í ógöngum og drepst er eng-
inn til að halda við búinu. „í ár
fannst mikið af slíkum búum,“ seg-
ir Erling.
Erling segir sveiflur í geitunga-
stofninum eðlilegar. Sérstakt sé þó
að nú virðist vera niðursveifla hjá
öllum þremur tegundum geitunga
sem finna má hér á landi, þ.e. trjá-
geitungum, holugeitungum og
húsageitungum. „Oft er því þannig
farið að ein þeirra blómstrar þegar
hinar eru í lægð,“segir Erling.
Á haustin þegar líður að því að
geitungar bregði búi gerast þeir
gjarnan árásargjamari. „Þeir eru
árásargjarnir við búin síðla sumars,
á þeim tíma sem verið er að fram-
leiða nýjar drottningar," segir Er-
ling. Hann segir þá grimma á þeim
tíma þar sem þeir þurfi að veija þá
nýju framleiðslu sem tryggja á
framtíð tegundarinnar. Nokkru síð-
ar kemur lausung á búskapinn,
segir Erling, og þernurnar, sem
eru vinnudýrin, fara á flakk. „Þá
fara þær að þvælast um og leita
gjaman inn í hús í leit að sætind-
um“. Það em því þemurnar sem
streyma inn í híbýli mannanna og
valda usla. Gerist það yfirleitt um
mánaðamótin ágúst- september.
Erling segir þó stefna í rólegra
haust en verið hefur vegna smæðar
stofnsins.
LOTUS NOTES
lionnun og forritun.
(Application Dewlopnu'nt)
Innt ö kuskilyrdi:
Þeir sem hyggja á petta nám þiu fa að hafa stnflentspröf, liliðstæða
menntnn og/eða starféeynslu ásamt góðri enskukunitáttu.
Einnig þurfa peir að hafa nokkrá reynslu af forrimn.
Markinið
Að nemendur gett að námskeiðl loknu hannað og sett upp Notes lausnlr
með Domino Designer (R5)
Inniltold
A námskeiðinu. sem er 128 klst., vei’ður m. a. tekið fyiir:
form (forms) og svæði (flehls)
Sjonarhorn (views) og möppur (folders)
/Wgeröir (actions) og fjölvar (agents)
Formúlur (Notes formula language)
Aðgangsstjómun (access control)
Lokáverkefni
Hfll Nýi tölvu- &
W viöskiptaskólinn
-------------------------------
Hdtehraunl 2 - 220 HafnarfWI - Slml: 555 49S0 - Fax: S65 4981
HllðasmSra 9-200 Kópavogl - Slml: S44 4S00 - Fax: Sf* 4601
TöivupóstJong: «to«entv.te - Halmaalða: www.ntvte
Nánari iipplýsiiigar og fnnritnn
í simum 5554980 og 5444500
Ráðstefna um landafundi
Netverjar - vík-
ingar nútímans?
Rafn Rafnsson
VÍNLAND fyrir
stafni er yfirskrift
ráðstefnu sem
haldin verður 30. ágúst og
1. september nk. í Þjóð-
menningarhúsinu. Landa-
fundanefnd styður ráð-
stefnuna sem Stofnun
Sigurðar Nordals stendur
fyrir.
Á ráðstefnunni verður
haldinn fjöldi fyrirlestra
um hinar ýmsu hliðar um
miðlun þekkingar á landa-
fundum, vesturferðum og
landnámi íslendinga.
Einn fyrirlesara er Rafn
Rafnsson sem er verkefn-
isstjóri í gerð margmiðl-
unarefnis OZ.COM um
landafundina á Netinu.
En hvað skyldi Rafn fjalla
um í fyrirlestri sínum sem
verður 1. september?
„Ég ætla að fjalla um gerð efn-
is um fund Vínlands, þar sem við
notuðum Netið. Þegar við sem
fengum þetta verkefni hjá
0Z.C0M, settumst niður kom
okkur saman um að markmiðið
væri að ná til sem flestra og töld-
um að það yrði best gert með því
að setja efnið inn á Netið.
Við skiptum efninu í tvo hluta,
annars vegar 1000-hlutann, þeg-
ar Leifur heppni fann Vínland, og
hins vegar 2000-hlutann, þar sem
við leyfum fólki að uppgötva hinn
„nýja heim“, sem er Netið. Okk-
ur finnst að Netið sé ekkert ann-
að en nýr heimur sem fólk þarf að
kanna, eins og Hillary Clinton
talaði um á einum stað: „Vafrarn-
ir eru víkingaskip víkinga nútím-
ans.“
- Hvað frétta „víkingar nútím-
ans“ inni á ykkar svæði á Netinu!
„Við fengum Friðrik Erlings-
son til að skrifa stuttar smásögur
sem gerast í kringum árið 1000.
Krakkarnir sem koma síðan inn á
svæðið hópa sig tveir og tveir
saman og leysa þrautir úr sögun-
um í sameiningu en við sína tölvu.
Þegar þau hafa leyst þrautirnar
fá þau viðkomandi teiknimynda-
sögu í heild. Hver saga byggist á
ákveðnu þema, eins og t.d. sigl-
ingum. Þegar búið er að horfa á
teiknimyndasöguna er hægt að fá
ítarefni úr þessu þema. Það sem
þetta gerir, auk þess að fræða og
skemmta, er að stuðla að sam-
skiptum þeirra sem taka þátt í
þessum leikjum á Netinu.“
- Hvers vegna var ráðist í
þetta verkefni?
„Okkar fannst þetta vera til-
valið innlegg 0Z.C0M í allt það
sem verið er að gera á hinum fjöl-
breytilega vettvangi um landa-
fundina."
-Hvernig tækni notið þið við
þetta verkefni?
„Við byggjum þetta náttúrlega
á hinni hefðbundnu nettækni en
því til viðbótar notum við nýja
samskiptatækni sem við höfum
verið að þróa með Ericsson."
- Hvað fleira skyldi vera á
þessari ráðstefnu?
„Fyrsta daginn
fjallar Gísli Sigurðs-
son um: „Sögur og
minjar“ og Sigurjón
Jóhannsson talar um
„Sýningarhönnun“.
Þess má geta að í
Þjóðmenningarhúsi
stendur nú yfir sýn-
ingin: Landnám og
Vínlandsferðir, sem þeir félagar
sáu um. Helga Arnalds mun á
fyrsta degi ráðstefnunnar sýna
brúðuleikhússýninguna „Leifur
the Lucky one“. Einnig flytja er-
indi þennan dag Anna H. Yates:
„Vínland for the Layman" og
Keneva Kunz sem nefnir sinn
► Rafn Rafnsson fæddist í
Reykjavík 1964 og ólst þar upp.
Hann lærði kvikmyndagerð í
London og starfaði í sjö ár hjá
Saga Film við kvikmyndagerð.
Siðan fór hann til Danmerkur og
stofnaði ásamt fleirum netfyrir-
tæki sem siðan var keypt af Icon
Media Lab. Eftir það kom Rafn
til starfa hjá OZ. COM í Reykja-
vík þar sem hann starfar nú.
Kona Rafns er Sif Sigurðardóttir
hjúkrunarfræðingur og eiga þau
eina stúlku, Onnu Birnu Rafns-
dóttur.
fyrirlestur: „Haft er fyrir satt:
Miðlun fróðleiks um framandi
lendur." Þá flytur Örnólfur
Thorsson erindi sem hann kallar:
„Sagnamatur“. Jónas Krist-
jánsson flytur erindið „Hver er
þekkingin sem miðla skal“ og
kanadíski rithöfundurinn Johan
Clark: „Writing Between the
Lines“.
Á föstudeginum 1. september
flytur Gunnar Karlsson erindið
„Landafundaþekking". Jóhanna
Karlsdóttir kynnir nýtt námsefni
fyrir 10 til 12 ára börn: „Leifur
Eiríksson“. Elisabeth Ward talar
um víkingasýningu í Smithsoni-
ansafninu. Carin Orrling fer með
víkingum um víða veröld. Judith
Jesch talar um víkingafræði á
Bretlandi. Þá flytur Hjörleifur
Stefánsson fyrirlesturinn: „Ekk-
ert verður endurskapað" og Joel
Berglund talar um miðlun þekk-
ingar um norræna búsetu á
Grænlandi. Rögnvaldur Guð-
mundsson talar um kosti menn-
ingarferðaþjónstu. Inga Huld
Hákonardóttir talar um Guðríði
Þorbjarnardóttur. Sýning verður
í Norræna húsinu á hluta af kvik-
mynd Kára Schram um landa-
fundina.
John Tucker talar um Beckh-
fyrirlestra við Viktoríuháskóla
og Daisy Neijmann um kanadísk-
íslensk fræði. Haraldur Bessason
ætlar að fjalla um Vilhjálm
Stefánsson og Böðvar Guð-
mundsson um Ameríkubréf Vest-
urfara. Jón Egill Berg-
þórsson segir frá nýrri
sjónvarpsmynd um
Stephan G. Stephans-
son. Guðmundur Ing-
ólfsson um ljósmyndir
sem hann hefur tekið í
í slendingabyggðum
vestanhafs. Sigrid
Johnson talar um ís-
lenska bókasafnið í Winnipeg,
Valgeir Þorvaldsson um hlutverk
Vesturfarasetursins, Guðjón
Arngrímsson um sjónvarpsmynd
sem hann gerði um uppruna Dav-
ids Árnason og David talar um
hvernig vesturfarar hafi skapað
sér sjálfsmynd."
Okkur finnst
Netið ekkert
annað en nýr
heimur sem
fólk þarf að
kanna