Morgunblaðið - 20.08.2000, Síða 14
14 SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Meiri pen-
ingar - f leiri
vandamál
NÝR sjónvarpssamningur ensku úrvalsdeildarliðanna er í höfn og
sá samningur var veitirenn meiri peningum inn í keppnina en áð-
ur og þótti ýmsum nóg. Þrátt fyrir það er sjálfsmynd ensku knatt-
spyrnunnar ekki sem best verður á kosið þessa stundina og í gær
var frumsýning; enski boltinn fer að rúllar að nýju eftir sumar-
leyfið.
^Jnglendingar hafa alltaf talið að
Eftir
Sigurð Elvar
Þórólfsson
efsta deild þar í landi sé sú
besta í heimi og sú skoðun breyttist
ekki með stofnun úrvalsdeildarinnar,
Premier League, og sjónvarps-
samningurinn við SKY sjónvarps-
stöðina og fjölmiðlakónginn Robert
Murdoch. Þá fórpeningavélin fór af
stað. Bosman-dóm-
urinn gerði enskum
félögum kleift að fá
til sín snjalla leik-
menn fyrir lítið og
borguðu þess í stað himinhá laun til
leikmanna og enska knattspyman
sneri við blaðinu eftir mörg mögur
og vond ár í kjölfar harmleiksins á
Heysel-leikvanginum árið 1985.
Uppskriftin hefur gengið vel til
þessa og náði hámarki með sigri
Manchester United í meistaradeild
Evrópu árið 1999 en nú örlar á vissri
taugaveiklun í Englandi þar sem
margir af bestu knattspyrnumönn-
um heimsins kjósa að leika í löndum í
Suður-Evrópu í stað Englands. A
sama tíma er mikill skortur á hæfi-
leikaríkum innfæddum knattspyrn-
umönnum. Úrslitakeppni EM í sum-
ar var mikið áfall fyrir enska
knattspyrnu og leikmenn liðsins
brugðust inni á vellinum meðan
enskir stuðningsmenn héldu lög-
regluyfirvöldum við efnið, hvar sem
þeir komu. Nú hefur Tony Blair for-
Kvenna-
landsliöið
það 17.
besta
ÍSLENSKA landsliðið í
kvennaknattspyrnu er í 17.
sæti á styrkleikalista sem
gefínn var út í lok júlí. List-
inn er annar tveggja óopin-
berra styrkieikalista
Alþjóðaknattspyrnusam-
bandsins og er staða liða
fundin út með útreikningum
á úrslitum landsleikja. fs-
land færðist upp úr 21. sæti
eftir naumt tap við Italíu
fyrr í sumar þar sem ítölsku
stúlkumar em í áttunda
sæti.
fsland leikur gegn tíkr-
aínu á þriðjudag í afar mik-
ilvægum ieik um þriðja sæt-
ið íþriðja riðli Evrópu-
mótsins. tíkraína er í 18.
sæti styrkleikalistans og
samkvæmt því ætti leikur-
inn á þriðjudag að vera
mjög jafn. Liðið sem hafnar
í' þriðja sæti riðilsins leikur
við England um aukasæti í
úrslitakeppni Evrópumóts-
ins. England er í 15. sæti
listans og því er alls ekki
fráleitt að ísland gæti strítt
ensku stúlkunum næðu þær
að komast í þann leik.
Þýskaland, sem sigraði
fsland 6:0 á fimmtudag, er í
5. sæti listans á meðan Nor-
egur vermir toppsætið.
Bandaríkin eru f öðru sæti,
Kína í því þriðja og Brasilfa
í því fjórða.
sætisráðherra blásið í herlúðra og
ríkisstjórn landsins hefur úthlutað
enskum knattspyrnufélögum tæpum
7 milljörðum króna í verkefni sem
skapa á framtíðarstjörnur Englend-
inga. ímynd Englendinga veldur
Blair áhyggjum og markmið hans er
að heimurinn muni eftir sigrum Eng-
lendinga á knattpymuvellinum og að
afrek enskra áhangenda hverfí því í
skuggann. Annað vandamál sem
kom upp á yfírborðið í sumar er að
þrátt fyrir að ensk knattspymufélög
fái tæpa 140 milljarða króna á næstu
þremur árum fyrir nýgerðan sjón-
varpssamning þá hafa stór nöfn horf-
ið af braut og dýmstu knattspymu-
menn heimsins leika ekki í Englandi.
Það kom aldrei til tals að Lois Figo
frá Portúgal færi til Englands fyrir
tæpa 5 milljarða og á sama tíma
hurfu stjömur á borð við Emmanuel
Petit og Marc Overmars til Spánar.
Stærstu nöfnin í knattspyrnuheimin-
um vilja leika í Suður-Evrópu.
Frakkinn Zinade Zidane er efstur á
óskalista allra stóm félagsliðanna en
ensk félög eiga varla möguleika í
baráttunni um hann þrátt fyrir þau
bjóði himinhá laun; kannski of há?
Endurskoðunarfyrirtækið Del-
oitte og Touche hefur skilað árlegri
skýrslu um rekstur enskra félaga og
niðurstaðan var sú að launagreiðslur
til leikmanna em of stór hluti af
rekstrarkostnaði félaganna. Um 60%
af tekjum félagana fara beint í launa-
greiðslur og því verður lítið eftir til
að gera vel við aðra hluti í rekstri fé-
laganna. Með þessu áframhaldi verð-
ur þróunin sú að þeir stærstu verða
stærri og litlu félögin verða smærri
og sum munu hverfa. Sé tekið meðal-
tal af liðum í tveimur efstu deildun-
um í ensku knattspyrnunni em
tekjur úrvalsdeildarliðanna um
fimmfalt hærri en liðanna í 1. deild-
inni. I stuttu máli: Meiri munur á fé-
lögunum, færri stjömur, færri hæfi-
leikaríkir ungh- knattspyrnumenn og
lélegri knattspyrna; kannski?
Reuters
Roy Keane og félagi hans hjá Manchester United, David Beck-
ham, eru á meðal tekjuhæstu knattspymumanna heims. Mörg-
um líst illa á þá þróun sem er að eiga sér stað í ensku knatt-
spyrnunni þar sem launin hækka stöðugt og dæmi era um að
60% tekna félaga fari í launagreiðslur. Hærri laun hafa hins
vegar ekki alltaf orðið til þess að knattspyman hafi batnað.
Beláný til Breiðabliks
GRÓTTA/KR hefur leigt hornamanninn Zoltán Beláný til 1. deild-
ar liðs Breiðabliks i handknattleik. Er leigusamningurinn til eins
árs. Bæði liðin unnu sér sæti í 1. deild karla á sl. vori.
Beláný hefur verið í herbúðum Gróttu/KR undanfarin tvö ár, en í
ljósi breyttra aðstæðna hjá félaginu, en það hefur m.a. fengið til
liðs við sig hornamanninn Davíð Ólafsson frá Val, þá varð það að
samkomuiagi að Beláný verði leigður til Breiðabliks.
Beláný lék með IBV um nokkurra ára skeið áður en hann gekk í
raðir Gróttu/KR.
Alexei Triífan tók við þjálfun Blikana í vor og ætlar hann jafn-
framt, að leika með liðinu.
Silja og
Einar lík-
legust til
afreka
N ORÐURLAND AMÓT
unglinga 20 ára og yngri
verður haldið hér á landi
26.-27. ágúst. Mótið verð-
ur haldið á Skallagríms-
velli í Borgarnesi og er
það í fyrsta sinn sem al-
þjóðlegt frjálsíþróttamót
er haldið utan höfuðborg-
arsvæðisins. Mótið er liða-
keppni milli Svíþjóðar,
Finnlands, Noregs og
sameiginlegs liðs Dan-
merkur og Islands. Að
auki er mótið Norður-
Iandameistaramót í ein-
staklingsgreinum.
Um 300 erlendir kepp-
endur koma til landsins til
þátttöku og til viðbótar
keppa 24 Islendingar. í
fyrra var mótið haldið í
Finnlandi og náði Einar
Karl Hjartarson öðru sæti
í hástökki og Silja tílfars-
dóttir krækti í brons í 200
og 400 metra hlaupum. I
ár verða einnig mestar
vonir bundnar. við að þau
nái góðum árangri.
Egill Eiðsson landsliðs-
þjálfari unglinga valdi
eftirtalið frjálsíþróttafólk
íliðið:
Silja tílfarsdóttir.Eva
Rós Stefánsdóttir, Anna
Margrét Ólafsdóttir, Ylfa
Jónsdóttir, Iris Jónsdótt-
ir, Sigrún Fjeldsted,
Björgvin Víkingsson,
Daði Rúnar Jónsson, Ingi
Sturla Þórisson, Óttar
Jónsson, Jónas H. Hall-
grímsson og Vigfús Dan
Sigurðsson öll úr FH.
Guðný Eyþórsdóttir,
Hafdís Ösk Pétursdóttir,
Gígja Gunnlaugsdóttir,
Stefán Ágúst Hafsteins-
son og Einar Karl Hjart-
arson ÍR, Þórunn Erlings-
sdóttir og Sigurður Arnar
Björnsson, UMSS, Rósa
Jónsdóttir, Fjölni, Ásdís
Hjálmsdóttir og ívar Örn
Indriðason Ármanni,
Borghildur Valgeirsdótt-
ir, HSK, Aðalheiður M.
Vigfúsdóttir, Breiðabliki.
Ungmennalandsmót á hverju ári
SÚ tilraun að halda Ungmennalandsmót UMFÍ um verslunar-
mannahelgina tókst vonum framar. Framkvæmdin var í hönd-
um Héraðssambandsins Hrafna-Flóka og mótið var haldið í
bæjunum þremur á svæði þess, Tálknafirði, Patreksfirði og
Bíldudal. Hátt í eitt þúsund börn og unglingar á aldrinum 11-16
ára tóku þátt í átta íþróttagreinum og enn fleiri foreldrar og
forráðamenn fylgdu þeim. Útkoman var vel heppnuð íþrótta-
útihátíð, þar sem boðið var upp á ýmiss konar afþreyingu og
skemmtanir fyrir gesti á öllum aldri.
Eftir
Víði
Sigurðsson
Heimamenn fyrir vestan lögðu
mikinn metnað og mikla
vinnu í að leysa gestgjafahlutverk
sitt sem best af
hendi og eiga hrós
skilið fyrir sitt
framlag, bæði und-
irbúning og fram-
kvæmd, og ekki síst viðmót í garð
gestanna sem komu úr öllum
landshlutum. Að sjálfsögðu eru
alltaf einhverjir hnökrar á fram-
kvæmd stórra viðburða en ekki
voru þeir til að gera veður út af;
frekar fyrir mótshaldara til að
læra af. Það sem mestu máli skipti
var að keppendur og forráðamenn
þeirra áttu ánægjulega verslunar-
mannahelgi með heilbrigðum for-
merkjum og þar með var tilgangin-
um náð.
Ekki var annað að sjá en að ung-
mennin skemmtu sér konunglega á
mótinu; í keppni að deginum, á
tónleikum og öðrum skemmtunum
á kvöldin og við ýmsa aðra afþrey-
ingu inni á milli. I þeim hópi sem
ég var með fyrir vestan voru allir
ánægðir, bæði yngri sem eldri, og
sama stemmning virtist ráða ríkj-
um allt í kringum okkur. Sumir
þátttakendur létu sig ekki muna
um að keppa í körfubolta eða sundi
á Tálknafirði og mæta síðan í fót-
boltaleik á Patreksfirði eða í frjáls-
íþróttakeppni á Bíldudal strax á
eftir. Þátttaka foreldra var meiri
en áður hefur þekkst á ungmenna-
landsmótum, án efa vegna þess að
einmitt þessi helgi varð fyrir val-
inu, og mótshaldarar voru sérstak-
lega ánægðir með góða þátttöku í
elsta flokknum, 15-16 ára.
Hápunktur helgarinnar var
stangarstökkskeppnin þar sem
Vala Flosadóttir, „dóttir Bíldu-
dals“, var mætt til leiks í sinni
heimabyggð ásamt þremur erlend-
um gestum. Sennilega hefur sjald-
an eða aldrei verið meiri umferð
yfir Hálfdán, fjallveginn milli
Bíldudals og Tálknafjarðar, en
þetta laugardagssíðdegi, fyrir og
eftir keppnina. Nokkur þúsund
áhorfendur, fleiri en byggja bæina
þrjá samanlagt, hvöttu stúlkurnar
svo undir tók í fjöllunum og mér er
til efs að alþjóðleg keppni í stang-
arstökki hafi áður verið haldin við
slíkar aðstæður. Það var mögnuð
sjón að sjá stúlkurnar svífa yfir
rána með hrikaleg vestfirsk fjöllin
í bakgrunni. Vala sigraði að sjálf-
sögðu á heimavelli, stökk 4 metra
og felldi 4,20 naumlega, og gaf síð-
an eiginhandaráritanir í gríð og
erg.
Ungmennalandsmótin hafa ver-
ið haldin á þriggja ára fresti til
þessa og við mótsslitin í Tálknaf-
irði var tilkynnt að næsta mót yrði
á Snæfellsnesi, í umsjón HSH, eft-
ir tvö ár. En með reynslu þessa
móts að baki er það ekki nóg.
Svona mót á að sjálfsögðu að fara
fram árlega - þessi valkostur þarf
að vera til staðar fyrir unglinga og
forráðamenn þeirra um hverja
verslunarmannahelgi héðan í frá.
Þetta er kjörið tækifæri fyrir ung-
mennafélagshreyfínguna til að ná
betri fótfestu í nútímanum. Hún
var gífurlega sterkt afl í þjóðfélag-
inu frá stofnun og fram eftir liðinni
öld en undan henni hefur fjarað
smám saman með breyttum tímum
og hún nær ekki lengur til nema
takmarkaðs hluta íslenskra ung-
menna. Mótshald sem þetta um
hverja verslunarmannahelgi getur
gjörbreytt ímynd og vægi hreyf-
ingarinnar. Hún hefur nú mögu-
leika á að sýna styrk og frumkvæði
með því að halda næsta ungmenn-
alandsmót í ágústbyrjun 2001 og
festa sér þessa helgi til frambúðar.