Morgunblaðið - 20.08.2000, Síða 23

Morgunblaðið - 20.08.2000, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2000 23 Associated Press Þingmenn og aðrir sem héldu uppi vörnum í Hvíta húsinu í Moskvu koma út úr byggingunni 4. október 1993 eft- ir að hafa gefist upp. Sérsveitir hers og innanríkisráðuneytis gerðu árás á húsið fyrr um daginn. gerast. Þessir menn náðu á ör- skömmum tíma að sölsa undir sig allt sem þjóðin hafði sparað og hinar geysilegu auðlindh- landsins. Um 80% þessara auðjöfra eru gyðingar og kannski er það þess vegna sem antisemítismi er svona mikill meðal Rússa, en þjóðernissinnar líkja Rússlandi í dag við Weimarlýðveldið þegar Hitler og félagar voru að sækjaí sigveðrið. Allir peningarnir sem fólk hafði verið að safna í fjörutíu ár urðu að ösku í bankabókum þess á nokkrum nóttum. I dag rétt dregur þetta fólk fram lífið og er eðlilega mjög biturt. Örlög þeirra eru svo tragísk - en þetta er jú land gríðarlegra örlaga. Það er allt annað hvort í ökkla eða eyra.“ Svart/hvít mynd af Rússlandi á Vesturlöndum Rússland snýst þá ekki bara um átök milli lýðræðissinna og komm- únista? „Nei, af og frá. Á Vesturlöndum sér fólk þær deilur sem eiga sér stað í Rússlandi mjög þröngt. Frétta- mennska er líka oft svo einföld og svart/hvít. Ástæðan er auðvitað sú að Vestur- lönd eiga hagsmuna að gæta. Ég hef verið í fréttamennsku í tíu ár í Sovét- ríkjunum íýi-rverandi og hef orðið mikið var við þessa svarí/hvítu mynd og einföldun eða einfeldni. Ég skal gefa þér eitt dæmi. Ég var í Hvíta húsinu í Moskvu í október 1993 þegar Jeltsín sprengdi upp þingið í bókstaflegri merkingu svo húsið stóð í ljósum logum. Ég tók þátt í þessari atburðarás frá upphafi til enda. Hún hófst í septem- ber og endaði 4. október. Þetta byrj- aði allt á því að Jeltsín - sem var til- tölulega edrú á þessum tíma en er einræðissinnuð manngerð sem tekur aldrei tilht til skoðana annarra og heldur sig alltaf hafa á réttu að standa sem sést best á því hvemig hann sparkaði stuðningsmönnum sínum til og frá, ekki bara ráðgjöfum og ýmsum peðum, það er nú frægt hvernig heilu ríkisstjórnirnar fuku á heilu bretti á mánudagsmorgnum á um 5 til 6 vikna fresti - kemur fram í sjónvarpi að kvöldi 21. september 1993 og segir í beinni útsendingu: „Þingið í Rússlandi hefur engin völd hér eftir. Með einu pennastriki er ég búinn að leggja niður rússneska þingið." Eins og alltaf er hér um að ræða hagsmunabaráttu. Þessar að- gerðir voru að sjálfsögðu mikið í hag Vesturlanda, vegna þess að á þeim tíma var Jeltsín búinn að vera við stjórnvölinn í fjögur ár og allan þann tíma hafði verið tekist á um einka- væðingu orkuveranna - sem snerist um olíu, gas og kol. Þessar miklu auðlindir, sem eru til í ómældu magni í fyrrum Sovétríkunum, höfðu verið í ríkiseign. Þarna voru hins vegar hinir örfáu ráðgjafar Jeltsíns búnir að komast yfir þessar auðlind- ir og hagsmunir vestrænu olíufyrir- tækjanna voru geysilega miklir. Enda naut Jeltsín mikilla vinsælda á Vesturlöndum og honum var mikið í mun að þessi einkavinavæðing hans gengi eftir. Þingið vildi fara hægar í sakirnar. Kommúnistarnir voru sterkastir á þingi og þeir voi-u á móti þessari stefnu Jeltsíns. Eftir sjónvarpsávarpið þarna um kvöldið byrjuðu þingmenn að safn- ast saman í þinghúsinu og héldu sínu striki vegna þess að þeir vissu að þetta væri brot á stjórnarskrá og fullkomlega ólýðræðisleg aðgerð af Jeltsíns hálfu. Og vegna þess að hún braut í bága við lýðræðishefðir bjuggust þeir við stuðningi vest- rænna kollega eða löggjafarstofn- anna. En annað kom á daginn. Á Vesturlöndum var strax sett upp svart/hvít mynd af ástandinu. Ánnars vegar var stillt upp „lýðræð- islegum umbótum" Jeltsíns, hinum megin voru „helvítis" kommúnist- arnir.“ Settur út í kuldann vegna fréttaflutnings vSem fyrr segir var ég fréttaritari RÚV og sagði fréttir af atburðunum. Ég var jú á staðnum og valsaði þarna um allt Hvíta húsið með minn blaðamannapassa. En það fór nú svo að einn mætur starfsmaður Ríkis- útvarpsins baðst afsökunar á því að fréttaritari RÚV í Moskvu segði öðruvísi frétir af ástandinu en þessar stöðluðu fréttir frá vestrænu frétt- astofunum sem jafnvel voru ekki með menn á staðnum og síðan var lokað á mig á þeirri stofnun. Ég fékk ekki að senda fleiri fréttir þangað í einhverjar vikur - eða á meðan þetta ástand stóð yfir. Sökin var sú að ég kom með fersk- ar fréttir, úr innsta hring - innan úr þinghúsinu - og sagði frá stemmn- ingunni hjá þingmönnum og þeirra afstöðu í málinu, það er að segja að þeir ætluðu ekki að líða þennan yfir- gang forsetans. Meðal annars ræddi ég þarna við Rúslan Khasbulatov, lögfræðiprófessor og þingforseta, en dregin var upp afar dökk mynd af þeim ágætismanni. Ég lýsti þeirri staðföstu stefnu þeirra að standa til síðasta manns, sem mönnum þótti eflaust engar ýkjur, enda fór það líka þannig að lokum að blóðug átök brutust út þar sem þrjú hundruð manns létust víða um borgina. Þessi átök voru milli sveita Jeltsíns og hluta hersins sem stóð með þing- mönnum, auk mótmælenda meðal al- ALLT ANNAR BILL MUNAR 210.000 A VERÐI OG ÖLLU EF ÞÚ LENDIR í SLYSI Þér er óhætt að bera nýjan Accent saman við bíla af svipaðri stærð. Hann gefur þeim ekkert eftir og er betur búinn ef eitthvað er. Þegar þú lítur á verðið hefur Accent alltaf vinninginn. Ford Focus Vél 1,5 1,4 Hestöfl 102 75 Dyr 5 5 Lengd mm 4200 4150 Breidd mm 1670 1702 Hæð mm 1395 1440 Skottrými 480 350 ABS Já Nei Loftpúðar 2 0 CD Já Nei Álfelgur Já Nei Samlitir stuðarar Já Já Fjarstýrðar samlæsingar Já Já Rafmagn í rúðum Já Já Verð 1.225.000 1.435.000 ÆmÉM ■, Hyundai söludeild, sfml 575 1280 ýf) m Grióthálsi 1, sími 575 1200

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.