Morgunblaðið - 20.08.2000, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2000 27
sem les sjálfshjálparbækur því eng-
inn vill hana. Þetta er allt voða rugl-
ingslegt."
Er von á þriðju bókinni um
Bridget?
„Ekki í augnablikinu. Það getur
vel verið að ég fái þörf til að rasa að-
eins meira út í gervi Bridgetar en
það er ekkert ákveðið sem stendur.
Eg vil aldrei segja aldrei og við verð-
um bara að sjá til.“
Þar sem við Islendingar erum
einkar góð í ensku hefur bókin helst
verið lesin á frummálinu og erfitt
hefur verið að þýða orðasambönd
eins og “singletons“, „smug-marr-
ieds“ og „emotional fuckwittage"
(wittage er borið fram á frönsku eins
og fromage) en hvernig skilgreinir
þú þessi orð?
„,,Smug-married“ er sjálfumglatt
fólk sem er voðalega ánægt með að
hafa fundið sinn maka og gengur
upp að einyrkjum, „singletons“ og
spyr um ástarlíf viðkomandi. Svona
fólk furðar sig á því hvað eftir annað
af hverju maður sé ekki ennþá giftur
og þar fram eftir götunum og maður
vill helst spyrja þau: „Hvernig geng-
ur hjónabandið? Stundið þið ennþá
kynlíf?" Þetta er fólk sem skilur
ekki að maður spyr ekkert svona
persónulegra spuminga í fjölskyldu-
boðum og að okkur einyrkjum finnst
þær óþægilegar og pirrandi.
„Fuckwittage" er orð yfir ömurlega
hegðan karlmannsins þegar hann
fær ekki nákvæmlega það sem hann
vill á þeirri stundu sem hann vill.
Dæmi um „fuckwittage“ er karlmað-
ur sem hefur átt kærustu í 13 ár en
hættir svo með henni því hún vill
flytja inn með honum og það er of
mikil skuldbinding eða karlmaður
sem sefur hjá konu og hringir svo
aldrei aftur. Nú eða karlmaður sem
fer á stefnumót og sefur hjá konu í
heillangan tíma, hefur svo engan
tíma fyrir kærustu EN vill samt
halda áfram að sofa hjá henni. Þetta
er bara orð yfir bjánalega og frekju-
lega hegðan karlmanns sem konur
hafa sætt sig við allt of lengi.“
Metsala um allan heim
Nú hefur nýja bókin verið á topp
tíu sölulista í Bretlandi í 11 vikur og
sú fyrsta selst vel út um allan heim,
virka bresku brandararnir alls stað-
ar?
„ Já, ég held það. Það sem um ræð-
ir í bókinni eru vandamál sem konur
allra landa glíma við og held ég að
hún sé frekar alþjóðleg lesning.
Eins og til dæmis í Japan þar sem
allar konur eru þvengmjóar og
kunna bara að borða fisk, þar hefur
bókin selst í milljónum eintaka. Það
er gífurlegt gap á milli þess hvernig
konum finnst að þær eigi að vera og
hvernig þær eru í raun og veru, og
konur um allan heim kannast við
þessar tilfinningar sem Bridget er
að glíma við.“
Bridget les óttalega mikið af
sjálfshjálparbókum eins og „Það
sem karlmenn vilja“, „Hvernig karl-
menn hugsa og tilfinningar þeirra",
„Hvernig á að leita og finna hina
réttu ást“, „Hvemig á að finna réttu
ástina án þess að leita“, „Hvernig á
að elska ástina sem þú leitaðir ekki
að“o.s.frv. Eru þessar bækur til?
„Sumar eru til, en augljóslega bjó
ég aðrar til. Það er alveg ótrúlegt
hvað fólk les mikið af þessu, eins og í
Bandaríkjunum var hver einasta
bók á einhverjum topp tíu sölulista
sjálfshjálparbók. Fólk vill fá reglur
og leiðsögn í gegnum lífið.“
Allar pæjur lesa Cosmopolitan og
Vogue, gerir þú það líka?
„Já. Eg fletti oft í gegnum þessi
blöð en staldra stutt við því annars
verð ég bara þunglynd því ég er ekki
eins sæt og gellumar í blöðunum. Að
vísu var ég að skoða einhverja mynd
í Vogue um daginn og hugsaði með
mér: „Huh, vildi að ég liti svona út,
og þá var þetta mynd af mér og ég
var ýkt sæt þannig að hugmyndirn-
ar sem við höfum um toppfyrirsæt-
urnar eru kannski ekki á rökum
reistar.“
Áfengi og kynlíf
Nú drekkur Bridget frekar mikið
og er alltafað röfla um kærastaleysi
ogoflítið kynlíf. Hvað hefur þú verið
gagnrýnd sem mest fyrir? Er fólkið í
AA eitthvað að pikka íþig?
„Nei, ég hef allavega ekki verið
gagnrýnd fyrir að skrifa of mikið um
áfengi eða kynlíf því allir gera sér
grein fyrir að þetta eru bara brand-
arar og fæstir drekka eins mikið og
Bridget nema kannski harðnaðir
alkóhólistar. I fortíðinni hafa konur
verið með svo einföld hlutverk, hór-
an, eiginkonan eða morðóða glæfra-
kvendið en í raunveruleikanum haga
konur sér mjög svo svipað karl-
mönnum, þær fara líka á barinn og
verða fullar og djamma fram á nótt.
Þannig að ég hef ekki verið mikið
gagnrýnd fyrir drykkjuna og kynlíf-
ið en ég hef oftar en ekki verið gagn-
rýnd fyrir að vera ekki nógu mikill
feministi. Mér finnst það rosalega
sorglegt að hlusta á gallharða femin-
ista gagnrýna bókina því mér finnst
það svo mikill styrkur að geta hlegið
að veikleikum sínum. Ef konur geta
ekki höndlað kómíska kvenhetju og
hlegið að henni erum við nú ekki
komnar langt í jafnréttisbaráttunni.
Bókin var ekki skrifuð sem félags-
fræðirannsókn, hún var skrifuð sem
grínsaga og sú staðreynd að svona
gífulegur fjöldi hefur keypt hana og
sýnt svona sterk viðbrögð er áhuga-
verðast við þetta allt saman.
Kannski það pirri feministana að
fólk taki mark á samræðum stelpn-
anna í bókinni þegar meginmálið er
náttúrlega bara sá ruglingur sem
það er að vera kona í dag. Við þurf-
um að velta fyrir okkur nokkrum
hlutverkum og kunnum varla á neitt
þeirra og eitt af þeim hlutverkum er
feministi og margar konur skilja
ekki hvað það þýðir að vera femin-
isti. Við þurfum að blanda saman
jafnréttisbaráttunni og sjálfstæðis-
baráttunni en við viljum líka starfs-
frama og ofan á þetta bætist það, að
vilja elska og vera elskaðar. Þetta er
erfitt.“
Ritstíll þinn er með þeim
skemmtilegri í dag og allar skamm-
stafanir í byrjun hvers dags, af
hverju skrifar þú aldrei ég, um mig,
frá mér, til mín?
(Hún fer að hlæja yfir bjánalegri
spumingu).
„Þegar ég byrjaði að skrifa pistl-
ana í The Independent fékk ég bara
ákveðinn fjölda orða. Mér fannst ég
svo fyndin þegar ég byrjaði á Bridg-
et að ég fór alltaf yfir orðakvótann
þannig að ég þurfti að skera út
nokkur orð sem maður segir hvort
sem er allt of oft eins og; ég, mjög,
gott, og greininn (the).“
Er þessi bók aðeins fyrirkonur?
„I fyrstu voru það aðeins konur
sem keyptu hana en nú eru konur
farnar að kaupa hana fyrir kærast-
ana sína og eiginmenn til að segja
þeim í eitt skipti fyrir öll hvernig
þeim líður. Eg fékk nýlega bréf frá
75 ára gömlum manni sem sagðist
hafa reynt allt sitt líf að skilja konur
og eftir lestur bókarinnar hafi hann
loksins gert það. Eg held að mjög
margir finni sjálfa sig í bókinni, það
geta allir tengst tilfinningunni að
manneskjan vil hliðina á þér geti allt
aðeins betur en þú.“
Hver er sá frægasti sem þú hefur
hitt?
„Eg hitti einu sinni Díönu prins-
essu, heilsaði henni með handabandi
og allt (mjög stolt). En sá sem ég vil
mest hitta af öllum frægum er Nel-
son Mandela."
Afhverju?
„Því hann er frábær." (Góð
ástæða).
Þá er það lokaspurningin, hefur
Bridget Jones breytt lífí þínu á ein-
hvem hátt?
„Já, ég bjó í pínkulítilli íbúð í
London og skrifaði fjórar greinar á
viku og verslaði aðeins á útsölum.
Núna ferðast ég um heiminn og
kynni bækumar mínar, fólk er byrj-
að að svara símtölum frá mér og ég
hef engar áhyggjur af reikningunum.
Það að eiga peninga skiptir ekki svo
miklu máli en það að þurfa ekki að
hafa áhyggjur af reikningum gefur
manni innri ró sem skiptir öllu máli.
Svo á ég líka litla íbúð í Los Angeles
þar sem ég bý núna þannig að
Bridget hefur nú breytt þó nokkru
fyrir mig, en öllu til hins betra.“
Lokalokaspurningin, áttu kær-
asta og börn? (Spumingin sem
Bridget hatar mest af öllu þannig að
blaðakona er svolítið stressuð og
þorði ekki að spyrja fyrr en í lokin.)
„Ég reyki ekki, drekk ekki og er
hrein mey!“ (Þá er það komið á
hreint.)
Fyrir þá sem þyrstir í frekari
upplýsingar um Bridget og kvik-
myndina vil ég benda á vefsíðuna
http:/Avww.spring.net/karenr/
mdbro/bjd.html
13:00- 17:00
Veitingastaðir og Kringlubíó
verða með opið lengur.
Vife höfum aukiö þjónustuna við
viöskiptavini okkar og ætlum aö
hafa opið í vetur ó sunnudögum.
Komdu þegar þér hentar.