Morgunblaðið - 20.08.2000, Side 30
30 SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MIKIL VÆGT AÐ HAFA
GOTT A UGA FYRIR
FÓLKIOG UMHVERFI
VIÐSKIPnXIVINNULÍF
ÁSUNNUDEGI
► Andrea Brabin er fædd x Reykjavík árið 1968 og ólst þar upp til
sextán ára aldurs. Þá flutti hún til New York og hóf þar fyrirsætu-
störf. Eftir það bjó hún og starfaði í helstu stórborgum heims eða
til ársins 1997 þegar hún fluttist til íslands. Ári síðar stofnaði hún
ásamt Jóni Þór Hannessyni, eiganda Saga Film, fyrirtækið Casting
ehf. sem sérhæfir sig í að finna fólk til að koma fram í auglýsing-
um og kvikmyndum auk þess sem fyrirtækið stendur að námskeið-
um sem tengjast starfseminni. Andrea á eitt barn, Evu Lenu Brab-
in Ágústsdóttur, og er í sambúð með Hrannari Péturssyni,
upplýsingafulltrúa ISAL.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Oft koma margir til álita í sama hlutverkið og þá fer fólkið gjarnan í
prufutökur þar sem það fær að spreyta sig fyrir framan tökuvél.
Eftir Hildi Einorsdóttir
að eru töluverðar annir á
skrifstofu Casting ehf.
þegar blaðamann ber að
garði snemma morguns.
Síminn hringir stöðugt og fólk er að
koma í prufumyndatöku því verið er
að leita að fólki í erlenda kvikmynd
sem á að taka hér á landi á næstunni.
Ljósmyndimar verða síðan sendar
utan þar sem ákvörðun verður tekin
um framhaldið.
Casting ehf. hefur frá upphafi sér-
hæft sig í því að fínna fólk sem hefur
áhuga á að koma fram í sjónvarps-
auglýsingum og kvikmyndunum,
innlendum sem erlendum. Að sögn
Andreu Brabin, framkvæmdastjóra
fyrirtækisins, hefur þessi starfsemi
sífellt verið að vinda upp á sig. „Nú
er svo komið að meirihlutinn af því
fólki sem við sjáum í íslenskum
sjónvarpsauglýsingum er á skrá hjá
okkur. Hér hafa því í raun allir sem
hafa áhuga á þessum störfum tæki-
færi til að spreyta sig.
Þróunin hefur þó verið sú að við
erum einnig komin með fyrirsætur á
skrá hjá okkur því auglýsingastof-
umar hafa í síauknum mæli verið að
leita til okkur í sambandi við gerð
auglýsinga í blöðum og tímaritum.
Fyrisætumar em ekki margar enn
sem komið er en þeim fer fjölgandi."
Hjá okkur hafa allir tækifæri
til að spreyta sig
Andrea er spurð að því hvernig
starfið gangi fyrir sig.
„Þeir sem sjá um að finna hæfi-
leikafólk í auglýsingu eða kvikmynd
þurfa að byrja á því að kynna sér
handritið að verkinu en þar er að
finna lýsingar á persónum og um-
hverfi. Við reynum að átta okkur á
hvað það er sem leikstjórinn vill fá
fram og síðan hefst leitin. Við emm
með fjölda fólks á skrá hjá okkur og
byrjum að leita þar eða við auglýsum
eftir fólki eða gemm starfsmenn
okkar út af örkinni til að leita að nýj-
um andlitum.
Oft koma margir til álita í sama
hlutverkið og þá fer fólkið gjarnan í
pmfutökur þar sem það fær að
spreyta sig fyrir framan tökuvél.
Starfsfólk hjá okkur sér um þessar
upptökur og sá sem stjómar þeim
kallast á ensku casting director eða
pmfuleikstjóri, en þaðan er nafnið á
fyrirtækinu komið. Leikstjórinn
skoðar upptökumar og ef mikið er í
húfi prófar hann fólkið sjálfur og
tekur síðan ákvörðun um hver fær
hlutverkið.“
Hvað þarf pmfuleikstjóri eða sá
sem er að leita að hæfaleikafólki í
auglýsingu eða kvikmynd að hafa til
bmnns að bera?
„Það sem gildir í þessu starfi er að
hafa gott auga fyrir fólki og um-
hverfi. Pmfuleikstjóri þarf að geta
áttað sig á hvað leikstjórinn vill fá
fram og sjá fyrir sér hvernig hann
hugsar sér verkið. Hann þarf því að
átta sig á leikmyndinni, búningum
og jafnvel hvemig klippingu mynd-
arinnar verður háttað. Þannig getur
hann betur gert sér grein fyrir
hvaða persónugerð hæfir hlutverk-
inu.“
Á fyrirtækið til helminga við
Jón Þór í Saga Film
Til að þjálfa tilfinningu sína fyrir
þessum hlutum segist Andrea horfa
töluvert á kvikmyndir auk þess sem
hún sleppir því ekki að horfa á
auglýsingatíma sjónvarpsstöðv-
anna. „Við fáum líka sent til okkar
úrval erlendra sjónvarpsauglýsinga
mánaðarlega sem við horfum á.“
Hvernig kom það til að þú fórst út
í þetta starf?
„Upprunalega kom hugmyndin að
fyrirtækinu frá starfsmanni Saga
Film sem bar hana undir Jón Þór
Hannesson, eiganda fyrirtæksins.
Jón Þór kallaði mig á sinn fund og
spurði hvort ég hefði áhuga á að tak-
ast á við þetta verkefni. Ég hafði
starfað fyrir nokkur erlend fyrirtæki
sem lausamaður við að finna fólk í
innlendar og erlendar auglýsingar.
Þar að auki hafði ég sjálf farið í
gegnum fleiri þúsund pmfutökur í
gegnum árin vegna stai-fa minna við
auglýsingar í sjónvarpi og þekkti því
vel til verka.
Eitt af mínum fyrstu verkefnum á
þessu sviði var að finna sjómenn,
sem höfðu Iífreynsluna svo að segja
skráða í andlitið. Ég sat á Kaffivagn-
inum í nokkra daga til að leita að
þessum andlitum og tók myndir sem
leikstjórinn fékk að velja úr. En
þetta starf krefst líka töluverðrar
þolinmæði.
Á þessum tíma var ég nýbúin að
eignast dóttur mína og hugsaði fyrst
og fremst um hana. Svo langaði mig
að mennta mig meira. Ég sé þó ekki
eftir að hafa tekið þá ákvörðun að
stofna fyrirtækið sem ég á til helm-
inga við Jón Þór. Það hefur verið
einstaklega skemmtilegt að byggja
upp fyrirtækið og ég hef öðlast
ómetanlega reynslu á þessu sviði.“
Sá um val á aukaleikurum í
kvikmyndina 101 Reykjavík
Andrea segir að verkefnin sem
hefur rekið á fjörur hennar síðan
fyrirtækið tók til starfa hafi verið af-
ar fjölbreytileg.
„Stærsta verkefni okkar hingað til
var val á öllum aukaleikurum í kvik-
myndina 101 Reykjavík. Það var
mjög gaman að takast á við þá áskor-
un. Leikstjórinn Baltasar Kormákur
sýndi í raun mikið hugrekki og fram-
sýni að taka þá áhættu að fela ný-
stofnuðu fyrirtæki að sjá um þennan
þátt.
Á auglýsingasviðinu höfum við
starfað með bæði innlendum og er-
lendum fyrirtækjum og þar hafa
verkefnin verið ótrúlega fjölbreyti-
leg.
Auglýsingagerð fyrir sjónvarp
hér innanlands hefur fai'ið mjög
fram á síðari árum. Islenskir leik-
stjórar eru á heimsmælikvarða og i
margir eru að gera það gott erlendis. I
Meira er lagt í handritsgerð en áður I
og mjög faglega er staðið að kvik-
myndatökunni. Enda hefur orðið
töluverð aukning á því að erlend fyr-
irtæki láti íslendinga gera fyrir sig
auglýsingamyndir.
Erlend auglýsingafyrirtæki hafa
leitað til okkar milliliðalaust í aukn-
um mæli í leit að ákveðnum mann-
gerðum í sjónvarpsauglýsingar. Það
skiptir þessa aðila ekki máli hvaðan
fólkið er heldur að það hafi rétta út-
litið. Það munaði til dæmis ekki
nema hársbreidd að Pétur Einars-
son leikari fengi hlutverk í Skoda-
auglýsingu sem tekin var upp í Prag
og hefði verið spennandi verkefni.
Þrjár fyrirsætur á okkar vegum
voru valdar til að leika í auglýsingu
fyrir þýsku verslunarkeðjuna Kar-
stadt.
Okkar hlutverk að finna
ný og ný andlit
Það kemur fram í máli Andreu að
það er eftirsóknarvert að koma fram
í erlendum sjónvarpsauglýsingum
því launin eru góð. „Fyrir utan hvað
þetta er stórskemmtileg reynsla,"
segirhún.
Hvernig hefur tekist að finna fólk í
þau fjölbreytilegu hlutverk sem eru í
boði?
„í upphafi var það mjög erfitt
vegna þess að fólkið þekkti ekki fyr-
irtækið okkar en nú er það mun auð-
veldara og fólk kemur hingað af
sjálfsdáðum auk þess sem við
auglýsum reglulega eftir fólki,
stundum í ákveðin verkefni en í öðr-
um tilvikum vantar okkur fleira fólk
á skrá hjá okkur. Því það er okkar
hlutverk að vera alltaf með ný og ný
andlit. Við förum líka á mannamót til
að leita að fólki eins og á skemmtanir
hjá eldri borgurum, í Kringluna eða í
miðbæinn.
Sem dæmi um það hvað okkur
gengur vel að fá fólk til starfa má
segja frá því að í fyrra fengum við
það verkefni að finna karl og konu á
sextugsaldri til að sitja nakin fyrir
framan sjónvarp uppi á jökli. Við
héldum að það yrði mjög erfitt að
finna fólk sem vildi gefa sig í þetta.
En við fengum 8-10 manns af hvoru
kyni sem voru til í slaginn.
Leiksijórinn verður að geta
treyst því að þú vitir hvað þú
ert að bjóða
Andrea segir að starfsfólk á skrif-
stofu eins og Casting þurfi að þekkja
vel fólkið sem það er með á skrá
þannig að það geti mælt með því.
„Leikstjórinn verður að geta treyst
því að þú vitir hvað þú ert að bjóða
upp á. Éyrir utan að hafa rétta útlitið
þarf fólkið að vera tilbúið til að taka
að sér verkefnið. Það þarf líka að
vera stundvíst og samviskusamt.
Það getur því tekið nokkrar vikur að
finna rétta fólkið. Þetta á einkum við
um kvikmyndirnar en fæstir átta sig
á hvað þetta starf getur verið tíma-
frekt.“
Hér áður fyrr var mjög áberandi
að þeir sem komu fram í auglýsing-
um væru annaðhvort þekktir leikar-
ar eða fyrirsætur - er þetta ekki að
breytast?
„Jú, það hefur verið tilhneiging til
þess bæði hér og erlendis að nota
óþekkt andlit í auglýsingar. Skýr-
ingin er sú að viðskiptavinurinn fer
fram á það að hafa sitt eigið auð-
kenni sem önnur fyrirtæki hafa ekki
sem er aðalleikarinn í auglýsingunni
og leikstjórinn vill gjarnan að sá sem
er í aðalhlutverkinu sé hans upp-
götvun.
Stendur fyrir auglýsinga- og
kvikmyndanámskeiðum
Andrea segir að það sé ótrúlegt
hvað leynist hér mikið af hæfileika-
ríku fólki á þessu sviði, hvort sem
það eru leikarar, fyrirsætur eða fólk
utan af götunni. „Þú veist aldrei
hvað kemur inn á borð til þín, þess
vegna er eins gott að vera við öllu
búinn,“ segir hún.
Til þess að búa fólk undir þessi
störf hefur Casting ehf. gengist fyrir
auglýsinga- og kvikmyndanámskeið-
um sem hafa verið vel sótt. Þar er
meðal annars kennt hvernig best er
að koma fram fyrir framan tökuvélar
og hvernig texti er lesinn, lærður og
brotinn til mergjar. Starfsfólk Cast-
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Andrea Brabin, framkvæmdastjóri Casting ehf.
i