Morgunblaðið - 20.08.2000, Side 39

Morgunblaðið - 20.08.2000, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2000 39 þú kenndir þér meins, heldur ein- beittir þér að því að okkur liði alltaf vel. Það er svo sárt að þurfa að kveðja þig með svona stuttum fyrir- vara, en við vitum það, að þar sem þú ert nú, líður þér vel. Allar þessar yndislegu minningar um þig munum við alltaf geyma í hjarta okkar. Við biðjum algóðan Guð að styrkja ömmu á þessum erfiðu tímum. Elsku best afi, þín er sárt saknað af okkur öllum. Haraldur og Sigrún. Elsku afi minn, mig langar að fá að kveðja þig með nokkrum orðum. Það er svo skrýtið að þú skulir vera farinn. Eg á svo góðar minningar um þig sem ég mun aldrei gleyma. Það var svo gaman þegar þú og amma bjugguð á Húsavík. Þá kom ég oft til ykkar á kvöldin og við vorum að spila kana saman. Svo varðstu oft veikur og þið fluttuð til Reykjavíkur til að vera hjá bömunum ykkar. Það var svo gaman að koma til ykkar. En nú er allt svo skrýtið af því þú ert ekki þar. En afi. Takk fyrir allt sem þú gerðir.Elsku afi minn, ég mun sakna þín. Megi guð geyma þig. Farþúífriði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V.Briem.) Þín Gunnhildur. Elsku afi. Nú er þjáningum þínum lokið og við vitum að þér líður miklu betur þar sem þú ert núna. Eins og amma segir þá megum við ekki vera leiðar því þá verður þú líka leiður. Við ætlum frekar að hugsa um allar góðu minningamar. Gönguferðirnar út í fjöru, berjamó, þegai- við spiluð- um ólsen ólsen eða þegar við krakk- arnir horfðum á þig leggja kapal í eldhúsinu í Höfðabrekkunni. Það íyrsta sem við gerðum alltaf þegar við komum til Húsavíkur var að þeysa upp á háaloft og umturna öllu fyrir búðó. Ef það var eitthvað sem fékk okkur niður af loftinu þá var það annaðhvort maturínn hennar ömmu eða til þess að elta þig í sund. Við gætum haldið áfram og skrifað heila ritgerð um allar yndislegu stundirnar sem við áttum með þér en við ætlum bara að segja takk. Við söknum þín og munum alltaf sakna þín því án þín mun alltaf eitthvað vanta. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta, þásælteraðvitaafþví þú laus ert úr veikinda viðjum, þínverölderbjörtáný. (Þórunn Sig.) Þínar Bjarney Sigrún og Berglind Sigríður. Sjósókn og útgerð hafa löngum verið aðalatvinnuvegur Hríseyinga og þar hafa margir komið við sögu, eldri sem yngri. Einn þeirra var Brynjólfur Jóhannesson sem um langan aldur haslaði sér völl á þeim vettvangi og stundaði útgerð fyrir og eftir miðbik 20. aldar. I húsi Brynj- ólfs, sem við hann var kennt og nefnt Brynjólfshús, ólust upp börn hans átta sem snemma urðu þátttakendur við útgerð föður þeirra. Það var því ærið að gera oft hjá konu Brynjólfs, Sigurveigu Sveinbjarnardóttur, þeg- ar við bættist aðkomufólk sem starf- aði við útgerð Brynjólfs og hafði einnig aðsetur í húsi þeirra hjóna. Róðrar hófust að vori og stóðu yfir sumartímann. Á haustin var farið með báta Hríseyinga til Akureyrar og þeim lagt þar uns vertíð hófst næsta vor. Snemma hneigðist hugur Sigtryggs Brynjólfssonar að sjósókn og sjómennsku. Starfaði hann við út- gerð föður síns og varð skipstjóri á báti hans. Sigtryggur aflaði sér rétt- inda sem vélstjóri á vélstjómarnám- skeiði á Akureyri og hlaut skip- stjórnarréttindi á sama stað 1936. Mannekla var tíðum í Hrísey yfir sumartímann og leitaði fólk víða að eftir atvinnu í Hrísey, m.a. við útgerð Brynjólfs. Sumarið 1941 réðst til Brynjólfs í línuvinnu ung, glæsileg stúlka frá Húsavík, vel íþróttum búin, Sigi-ún Pálsdóttir. Hún var þaulvön línuvinnu frá Húsavík eftir að hafa staðið þar við stampinn nokkur sumur, þótti kappsöm og rösk til starfa. Ymsir höfðu rennt hýru auga til þessarar snótar en þarna í eynni fór svo að hinn ungi skipstjóri, Sigtryggur Brynjólfsson, náði ástum hennar. Þau vora gefin saman 3. okt. 1942 og hófu búskap í Hrísey þar sem þau dvöldu til ársins 1948 er þau fluttu til Húsavíkur. Leigðu þar fyrst í Hliðskjálf, í húsi frænda Sigrúnar, Vilhjálms Guð- mundssonar. Síðar festu þau kaup á hluta hússins Hornbjarg í félagi við Pál Sigurjónsson og Karólínu Sigur- geirsdóttur, foreldra Sigrúnar. Arið 1960 byggðu þau Sigtryggur og Sigrún húsið Höfðabrekku 20 þar sem þau dvöldu til ársins 1998 er þau fluttu frá Húsavík til Kópavogs þar sem þau settust að á Kópavogsbraut 1 b. Á Húsavík starfaði Sigtryggur um árabil við sjósókn, mörg ár við út- gerð þeirra bræðra Stefáns og Þórs Péturssona. Var Sigtryggur stýri- maður á einum báti þeiiTa bræðra og tvö sumur skipstjóri á síld fyrir Norðurlandi á bátnum Stefáni Þór. Einnig vann Sigtryggur um skeið sem landmaður hjá þeim bræðram á vetrarvertíð í Sandgerði. Reyndist Sigtryggur þar farsæll í starfi. Á Húsavík gerði Sigtryggur ásamt fleiri út vélbátinn Maí sem fórst í róðri úti fyrir Tjömesi árið 1959. Árið 1964 gerðist Sigtryggur starfsmaður hjá Mjólkursamlagi Kaupfélags Þingeyinga á Húsavík og vann þar til ársins 1988. Þeir sem þar unnu með Sigtryggi minnast hans sem góðs félaga og trausts samstarfsmanns. Reyndist drjúgur verkmaður þótt ekki væri hann áhlaupamaður. Á þessum vinnustað var oft glatt á hjalla, ekki síst þegar pólitísk deilumál vora uppi. Lá Sig- tryggur ekki á skoðunum sínum. Stundum sló í brýnu með mönnum en rokið úr þeim næsta dag. Kom Sigtryggur stundum með skemmti- legar athugasemdir er honum þótti menn fara offari. En léttleikinn sat þó tíðast í fyrirrúmi og þar lét Sig- tryggur sitt ekki eftir liggja. Á síðari áram sínum útbjó Sig- tryggur sér aðstöðu á lofti húss síns, Höfðabrekku 20, þar sem hann setti upp net fyrir sjómenn. Það starf stundaði Sigtryggur á kvöldin og um helgar. Hann vandaði verk sitt vel, vildi ekki láta segja að þar væri kast- að til höndum. Sigtryggur var iðju- samur maður meðan heilsa leyfði. Hann var félagslyndur að eðlisfari, heimakær, rólyndur jafnan, óáleit- inn en fastur fyrir ef því var að skipta. Þau hjón spiluð bridds um árabil þótt Sigrún tæki meiri þátt í keppni. Á heimili þeirra komu oft vinir og kunningjar til að slá í slag. Hin síðari ár stundaði Sigtryggur göngu um Húsavík og nágrenni. Leið hans lá þá að jafnaði fyrst niður að höfn. Við sjóinn var hugur hans löngum bund- inn allt frá æskudögum. Hann þurfti að fylgjast með fiskiríinu og spjalla við karlana. Þá var hann og daglegur gestur árum saman í sundlaug Húsa- víkur. Þau hjón fóra nokkrum sinnum til útlanda á seinni áram ásamt dóttur sinni og tengdasyni eða í samfloti við góða vini. Þar sem Sigrún starfaði mjög að félagsmálum á Húsavík um árabil kom það oft í hlut Sigtryggs að létta þar undir með konu sinni með því að gegna störfum fyrir heimilið. Slíkt taldi hann ekki eftir sér enda lipurmenni. Áður fyrr gegndi Sigrún oft starfi heimilisföðurins er Sig- tryggur var fjarri heimilinu vegna dvalar á vetrarvertíð. Slíkt var tíðum hlutskipti sjómannskonunnar. Síðustu ár sín barðist Sigtryggur við sjúkdóm sem smám saman lam- aði þrek hans. Kvartaði ekki. Hann var ekki þekktur að því að vfla eða vola um dagana, tók því sem að höndum bar með æðraleysi. Sigtryggur var tryggur vinum sín- um. Þess nutum við systkinin og móðir okkar síðustu árin sem hún lifði. Góður vinur skal kvaddur við leið- arlok og samúð vottuð Sigrúnu frænku minni, börnum þeirra hjóna svo og barnabörnum sem nú sjá á bak umhyggjusömum og góðum afa. Sigurjón Jóhannesson, Húsavík. Tryggvi okkar er horfinn á braut, kveðjustundin runnin upp. Allt frá því að við sem lítil börn kynntumst Tryggva, eiginmanni Sigrúnar föðursystur okkar, hefur hann verið okkur afar kær. Höfða- brekka 20 á Húsavík var okkur systkinunum á 14 sem annað heimili og enn í dag era fjölskyldurnar á 14 og 20 sem ein fjölskylda. Tryggvi fór hljóðlega um meðal samferðafólksins en var þó sem skín- andi perla í mannhafinu. Þær vora ófáar gönguferðirnar hans um hafn- arsvæðið á Húsavík þar sem hann tók þátt í lífinu sem þá var „fyrir neðan Bakkann“. í Sunnuhlíð naut hann útsýnisins út á sjóinn og þar áttu þau Sigrún góðan tíma saman, þar sem spilað var brids og boccia og púttað á nýja púttvellinum við Sunnuhlíð. Hlógum við Tryggvi oft að því að betra væri að eiginkonan tapaði ekki í keppninni, en keppnis- skap gömlu handboltastjörnunnar úr „Gullaldarliði Völsunga“ er ennþá ósvikið þótt komin sé yfir áttrætt. Tryggvi var á allan hátt einstakur maður, velvild og góðsemi einkenndi allt hans líf og öllum leið vel í nálægð hans. Fá orð segja oft meira en lang- ar ræður og ógleymanleg era mörg gullkornin sem hratu af vörum hans, oft sem óvænt innlegg í fjöragar um- ræður. Hamingja hans var fólgin í því að veita öðra fólki gleði og ánægju, mestu hamingjustundirnar í lífi hans vora samverastundir með fjölskyldunni, þar sem hann fylgdist með yngstu fjölskyldumeðlimunum þroskast og dafna. Það er gæfa að fá að vera í nær- vera manns sem er þeim eiginleikum gæddur sem Tryggvi bjó yfir. Sú speki sem oft bjó í orðum hans og það æðraleysi sem einkenndi allt hans fas hafði djúp áhrif á okkur öll. Tryggvi ætlaði að heimsækja Húsavík í sumar og tvisvar var áætl- að að leggja af stað en ýmislegt aftr- aði för. Ferðalagið sem farið var í sumar varð lengra en til Húsavíkur. Kveðjustundin var í faðmi fjölskyld- unnar sem nú á dýrmætar minning- ar um kærleiksríkan eiginmann, föð- ur og afa. Minning hans lifir. Elsku Sigrún (Dattý) og fjölskyld- an öll, innilegar samúðarkveðjur. Anna Karólína, Þorbjörg og Bjarni Páll. Birting afmælis- og minningargreina MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar era beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. + Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar, GUÐNI Þ. GUÐMUNDSSON organisti frá Landlist, Rauðagerði 60, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju þriðjudag- inn 22. ágúst kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Minn- ingarsjóð Bústaðakirkju. Elín Heiðberg Lýðsdóttir, Ólafur Magnús Guðnason, Halldór Örn Guðnason. + Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur, tengdasonur, bróðir og mágur, SIGMUNDUR JÓHANNESSON húsasmíðameistari, sem lést sunnudaginn 13. ágúst, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju þriðjudaginn 22. ágúst kl. 13.30. Rannveig Grétarsdóttir, Björg Sigmundsdóttir, Sara Sigmundsdóttir, Jóhannes Steinþórsson, Grétar Sveinsson, Kolbrún Jóhannesdóttir, Dagný Jóna Jóhannesdóttir, Þórunn Grétarsdóttir, Sveinn Ómar Grétarsson, Guðrún Sigmundsdóttir, Guðbjörg Kristjánsdóttir, Axel Gíslason, Theodoros Kagiannalíus, Sveinn Andri Sveinsson, Linda Reimarsdóttir. + Elskulegur, indæll sonur okkar, bróðir, bama- barn, mágur og ástkær frændi, VILHJÁLMUR VILHJÁLMSSON, er látinn. Útför hans fer fram frá Keflavíkur- kirkju þriðjudaginn 22. ágúst nk. kl. 14.00. Vilhjálmur Ketilsson, Garðar Ketill Vilhjálmsson, Margeir Vilhjálmsson, Svanur Vilhjálmsson, Vala Rún Vilhjátmsdóttir, Ólafur Bjömsson, Ketill Viihjálmsson, Ásgeir Elvar, Brynjar Freyr Sigrún Ólafsdóttir, Kristín Jóna Hilmarsdóttir, Guðmundur K. Steinsson, Hrefna Ólafsdóttir, Valgerður Sigurgísladóttir, ktor Thulin, I Katla Rún. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGTRYGGUR BRYNJÓLFSSON, Kópavogsbraut 1b, Kópavogi, áður til heimilis Höfðabrekku 20, Húsavík, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju mánu- daginn 21. ágúst kl. 13.30. Þeir, sem vilja minnast hins látna, eru vinsamlega beðnir að láta heima- aðhlynningu Krabbameinsfélagsins njóta þess. Sigrún Pálsdóttir, Ásgeir P. Sigtryggsson, Heiða Th. Kristjánsdóttir, Brynjar Sigtryggsson, Anna Margrét Guðmundsdóttir, Sigurveig K. Sigtryggsdóttir, Pétur Steingrímsson, barnabörn og barnbarnabörn. + Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KJARTAN G. NORÐDAHL, hjúkrunarheimilinu Eir, Reykjavík, sem lést laugardaginn 5. ágúst, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju miðvikudaginn 23. ágúst kl. 13.30. Elín Norðdahl, Kjartan Norðdahl, Hrafnhildur G. Norðdahl, Anna K. Norðdahl, Ingvi Ágústsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.