Morgunblaðið - 20.08.2000, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2000 41
listakona, lést rétt sextug að aldri.
Æðralaus tók Guðrún því, sem
öðrum áfollum, enda hafði hún mikið
að lifa fyrir. Dætumar þrjár, sem
Bríet átti hafa verið henni ómæld lífs-
fylling. Laufey fiðluleikari, sem áður
er getið, en hún á dótturina Guðrúnu,
að sjálfsögðu heitin eftir Guðrúnu
langömmu, Guðrún Theodóra Sig-
urðardóttir sellóleikari, en hún á dæt-
urnar Ester og Önnu Kolfinnu og
synina Szymon Héðin og Jakob, og
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leik-
kona, en hún á dótturina Bríeti Ólínu,
allar eru systumar landsþekktir
listamenn.
Með Guðrúnu er gengin merk
kona og minnist ég hennar með þakk-
lætiogvirðingu.
Einlægar samúðarkveðjur sendi
ég afkomendum Guðrúnar, svo og
öðmm þeim sem syrgja hana.
Bergljót Líndal.
Kær vinkona er nú horfin yfir móð-
una miklu. Elsku Guðrún, okkar
kynni vom kannski ekki löng í áram,
en það era kannski sex ár síðan við
kynntumst fyrst hjá Laufeyju. Kynn-
in þróuðust í góðan vinskap og síðari
ár hittumst við því sem næst á hverj-
um degi. Ég á eftir að sakna þess að
hlusta á þig spila og syngja fallegu
lögin hans Sigfúsar og fleiri. Ég á eft-
ir að sakna þess að sjá þig í Höfða,
þeim yndislega stað en andi þinn mun
svífa þar yfir um ókomin ár. Kæra
vinkona, öll eigum við eftir að sakna
þín, en ég sé þig í anda, þarna uppi,
alsæla, stjórnandi þínum eigin engla-
kór.
Far þú í friði, guð blessi þig.
Guðlaug.
Okkur langar að minnast Guðrún-
ar Pálsdóttur sem lést fostudaginn
11. ágúst sl. á nítugasta og fyrsta
aldursári. Guðrún skipaði ávallt sér-
stakan sess í okkar fjölskyldu. Móðir
hans byrjaði í vist hjá Guðrúnu
skömmu eftir lát eiginmanns hennar,
Héðins Valdimarssonar, og tengdust
þær ævilöngum vináttuböndum sem
aldrei bar skugga á. Guðrún lét sér
alltaf mjög annt um okkur og til
marks um tengslin höfum við bræð-
urnir ávallt kallað hana ömmu í dag-
legu tali.
Guðrún Pálsdóttir var sterkur og
svipmikill persónuleiki. Hún var
kennari að mennt og kenndi söng um
árabil m.a. við Melaskóla og Miðbæj-
arskólann í Reykjavík. Tónlistin vkr
því aldrei langt undan þegar komið
var til hennar í Bólstaðarhlíðina.
Heimilishaldið var með miklum
myndarskap enda Guðrún afar gest-
risin. Minnumst við sérstaklega
margra glæsilegra jólaboða í Bólstað-
arhlíðinni með nánustu ættingjum
hennar. Það era ánægjulegar endur-
minningar sem við búum að. I heim-
sóknum til Guðrúnar kom umræðan
jafnan inn á bókmenntir, tónlist, auk
málefna líðandi stundar. Guðrún var
einkar vel að sér, las mikið og hafði
fjölbreytt áhugasvið. Heimilislífið bar
glöggt vitni um þennan menningar-
áhuga enda listhæfileikinn ríkur í
ættinni. Dóttir Guðrúnar, Bríet Héð-
insdóttir heitin, leikari og leikstjóri,
var miklum hæfileikum gædd, svo og
dætur Bríetar; Laufey, Guðrún
Theodóra og Steinunn Ölína sem
einnig hafa fetað listabrautina.
Jafnframt minnumst við heimsókn
til Guðrúnar í Höfða í Mývatnssveit á
sumrin. Umfangsmikil skógrækt við
Höfða í Mývatnssveit ber einstakt
vitni um myndarskap og stórhug
Guðrúnar og Héðins eiginmanns
hennar. Einnig sú höfðinglega
ákvörðun hennar að gefa mestallt
land Höfðans til Skútustaðarhrepps.
Skógi vaxinn höfðinn er einstök nátt-
úraperla en fáir höfðu trú á því á sín-
um tíma að þessi ræktun væri mögu-
leg.
Guðrún kenndi söng til margra ára
og var fjölmenntuð á því sviði.
Kennarinn blundaði ávallt með henni
og þannig lagði hún alltaf áherslu á
gildi traustrar menntunar, tungu-
málaþekkingar og víðsýni við mig.
Hún fylgdist af áhuga með námi mínu
og störfum að því loknu. I heimsókn-
um okkar til hennar á síðustu aldurs-
áram hennar var hún enn þá jafn-
skarpskyggn og -glögg sem áður,
fylgdist vel með þjóðmálaumræðunni
í landinu sem og þróun í alþjóðamál-
um. Á hvora tveggja hafði hún
ígrundaðar skoðanir. Svo vel var hún
að sér í þessum efnum að maður
þurfti að vera vel lesinn til að fylgja
henni eftir í umræðu. Dæmi um
áhuga hennar á tónlist og að takast á
við ný viðfangsefni var að hún hóf gít-
amám á níræðisaldri.
Nú þegar komið er að leiðarlokum
minnumst við Guðrúnar Pálsdóttur
með mikilli hlýju og vottum Lauf-
eyju, Guðrúnu Theodóra og Stein-
unni Ólínu og öðram ættingjum
hennar innilega samúð okkar.
Emil Breki, Hulda og Rúnar.
ÞORHALLUR
BENEDIKTSSON
+ Þórhallur Bene-
diktsson fæddist í
Beinárgerði, Völlum,
5. júlí 1952. Hann
varð bráðkvaddur í
Reykjavík 12. ágúst
síðastliðinn. Foreldr-
ar hans voru Bene-
dikt Sigfússon, f. 18.
ágúst 1920, d. 6. febr-
úar 1997, bóndi í
Beinárgerði, Völlum,
og kona hans Helga
Bjarnadóttir, f. 19.
nóvember 1919 sem
dvelur nú á sjúkra-
húsinu á Egilsstöð-
um. Þórhallur ólst upp í Beinár-
gerði ásamt fimm systkinum sem
eru: Birna Jónina, f. 1940; Sigfús
Guðbergur, f. 1942; Klara, f. 1944;
Jóhannes Óskar, f. 1946 og, Gunn-
ar Smári, f. 1961.
Þórhallur hóf sambúð árið 1979
með Sigríði K. Guðmundsdóttur,
f. 29.desember 1951 og bjuggu
þau á Jaðri, Völlum, og víðar.
Eignuðust þau þijár
dætur; Ingibjörgu
Helgu, f. 26. janúar
1980, hennar sam-
býlismaður er Bjarni
Þór Broddason, f.
2.janúar 1974 og búa
þau í Garðabæ; Sig-
urveig Benedikta, f.
24. september 1983
og Jóna Sigurbjörg,
f. 10. apríl 1986. Syn-
ir Sigríðar eru Þór-
arinn Árnason, f. 27.
desember 1972, býr í
Reykjavík og Guð-
mundur Árnason, f.
12. desember 1973, sambýliskona
hans er Hrafnhildur Heiða Jóns-
dóttir, f. 22. maí 1981, þau búa á
Egilsstöðum.
Þórhallur og Sigríður slitu sam-
búð 1988, sambýliskona Þórhalls
frá 1995 var Elín Björg Valdórs-
dóttir, f. 2. nóvember 1955.
Útför Þórhalls fór fram frá Eg-
ilsstaðakirkju 19. ágúst.
arbrag og heimili þeirra á Sjafnar-
götu 14 hér í borg var sérstætt og
glæsilegt. Það var haustið 1950, að ég
sá Guðrúnu fyrst, þegar ég kom fyrst
á heimili hennar með Bríeti, en við
höfðum kynnst þetta sama haust,
Guðrún þá nýorðin ekkja, Héðinn
hafði látist snögglega skömmu áður.
Mér hefur alltaf fundist miður að
hafa aldrei kynnst Héðni, ekld einu
sinni séð hann, en þeim mun betur
kynntist ég Guðrúnu, enda varð ég
heimagangur á heimili þeirra upp frá
þessu. Guðrún var mér góður vinur
og var lærdómsríkt að kynnast lífs-
reynslu hennar og lífsviðhorfi. Hún
var snemma sjálfstæð í hugsun og
fylgdi hugsjónum sínum eftir með því
að bijótast til mennta, sem heldur
var fátítt meðal kvenna á þessum ár-
um.
Það sýnir hversu sjálfstæð hún
var, að hún hélt áfram kennslustörf-
um eftir að hún giftist, hef ég heyrt að
það hafi vakið furðu margra, ekíri síst
þar sem Héðinn var vel efnum búinn.
Hún vildi nýta hæfileika sína og þá
menntun, sem hún hafði aflað sér.
Hún mun þó hafa látið af störfum ut-
an heimilis eftir að Bríet fæddist.
Nafnið Bríet er komið frá tengda-
móður hennar, hinni miklu kvenrétt-
indakonu Bríeti Bjamhéðinsdóttur,
en afar kært var með þeim tengda-
mæðgum og dáði Guðrún hana og
Bríet mat hina gáfuðu og listhneigðu
tengdadóttur sína. Veit ég, að það var
afdráttarlaus ki-afa Guðrúnar að
einkadóttir hennar hlyti nafn föður-
ömmu sinnar.
Geta má nærri hvílíkur gleðigjafi
dóttirin Bríet var foreldram sínum,
slíkt efnisbam sem hún var.
Við æskuvinkonur Bríetar voram
meira og minna heimagangar á heim-
ili þeirra mæðgna og nutum ómældr-
ar gestrisni. Veitingar vora ávallt
miklar og góðar og naut „frostings-
terta“ Guðrúnar mikilla vinsælda,
enda höfðum við ekki fyrr fengið ann-
að eins hnossgæti og var tertan góða
nánast einkennisréttur á Sjafnargötu
14.
Það var eitt árið að við vinkonur
Bríetar, sex að tölu, hugðumst fara í
páskaferð í sumarbústað í nágrenni
Reykjavíkur. Þegar til kom reyndist
ófært. Útilegan var þá flutt að Sjafn-
argötu 14, í tumherbergi, sem kallað
var svo, en það hafði verið vinnustofa
og bókaherbergi Héðins. Þar sváfum
við í svefnpokum, borðuðum nestið í
andrúmslofti þrangnu bókum og
menningu og hefur þetta verið okkur
ógleymanleg „ferð“. Þetta er eitt
dæmi af mörgum, þar sem við nutum
vinsemdar og skilnings Guðrúnar.
Guðrún átti sér unaðsreit að Höfða
við Mývatn. Þjóðin þekkir þennan
stað ekki síst eftir að Guðrún gaf
henni „Höfðann“ sjálfan. Þar undi
Guðrún sér flest sumur, og þeir era
ófáir, sem hafa notið gestrisni Guð-
rúnar og unaðssemda náttúrannar
þar. Þar ræktuðu þau Héðinn tré,
sem era orðin allnokkur skógur, þai-
er ríkt fuglalíf, sem gerir svæðið að
einstakri náttúraperlu.
Bríet, dóttir Guðrúnar, eignaðist
dótturina Laufeyju ung að áram með
fyrri manni sínum, Sigurði Emi
Steingrímssyni.
Bríet fór síðar til náms í Austurríki
og tók Guðrún þá dótturdóttur sína
að sér. Nokkram áram síðar hætti
hún föstu starfi utan heimilis.
Guðrún var skemmtileg kona,
hafði „húmor“ í besta lagi og var gef-
andi að vera í hennar félagsskap.
Hún gat verið strangur uppalandi,
þegar það átti við og sjálfsagt hafa
unglingsár Bríetar og okkar vin-
kvenna hennar oft á tíðum verið
henni áhyggjuefni, en tiltæki okkar
voru ýmiss konar eins og unglinga er
háttur, þótt annars eðlis væra, en nú
er. Þótt lífið hafi verið henni gjöfult á
mai-ga lund, fór hún ekki varhluta af
andstreymi þess. Ung að áram veikt-
ist hún af berklum og dvaldist lang-
dvölum erlendis af þeim sökum, fjarri
eiginmanni og dóttur og má nærri
geta hversu þungbært það hefur ver-
ið. Oll systkini sín hefur hún misst,
mörg þeirra fyrir aldur fram, og það
var ekki síst erfið reynsla þegar hún
missti systur sína Margréti langt fyr-
ir aldur fram, sem jafnframt var
hennar besta vinkona. Mann sinn
missti hún tæplega fertug að aldri.
Þyngst var þó höggið þegar Bríet
dóttir hennar, hin gáfaða og dáða
Elsku pabbi.
Ég sendi þér kæra kveðju,
núkominerlífsinsnótt.
Þig umveQi blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þásælteraðvitaafþví
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um huga minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem íifir
oglýsirumókomnatíð.
(Þórunn Sig.)
Hinsta kveðja,
Helga, Benedikta
og Jóna.
HEIÐA BJÖRK
VIÐARSDÓTTIR ,
+ Heiða Björk Við-
arsdóttir fæddist
í Reykjavík 19. júní
1980. Hún andaðist á
Landspitalanum við
Hringbraut 10. ágúst
síðastliðinn og fór
útför licnnar fram
frá Fella- og Hóla-
kirkju 17. ágúst.
I tvö ár átti ég heima
á sama stað og Heiða.
Við voram mjög góðar
vinkonur, næstum eins-
og systur. Ég man eftir
því þegar hún sýndi mér balletskóna
sína sem héngu uppá vegg, en ég
man ekki eftir því hvort hún var í
ballet. Hún var alltaf heiðarleg og
sveik aldrei loforð, trúði alltaf því
sem ég sagði og var aldrei reið útí
mig. Þegar ég fór frá Heiðu hélt ég
að ég myndi aldrei hitta hana aftur,
en svo í fyrra hitti ég hana. Þegar ég
og mamma sáum svo mynd af henni í
sjónvarpinu trúðum við ekki hvað
hafði gerst, ég grét og grét. Mér
finnst svo skrítið af hverju Guð leyfir
ekki fólki að halda áfram að lifa til
gamals aldurs, því þá lærir það og
veit meira um lífið. Ég trúi á himna-
ríki og ég veit að hún Heiða er þar og
líður vel. Ég votta fjölakyldu hennar
ogvinum dýpstu samúð.
Ásrún Birgisdóttir.
Elsku Heiða mín. Það er svo sárt
að missa þig, elsku vinkona, þú varst
alltaf svo hress og kát og komst mér
alltaf í gott skap. Það var svo gott að
hitta þig á Þjóðhátíðinni þegar þú
komst upp í tjald til okkar og við töl-
uðum um að hafa meira samband eft-
ir Þjóðhátíð og þú minntist á að þú
værir svo hamingjusöm og þegar þú
sást litlu dóttur mína sagðist þú ætla
eignast lítið barn einhvem tíma en
ekki alveg strax, það væri nægur
tími. Hveijum hefði dottið í hug að
þetta væri í síðasta skipti sem ég
fékk að hitta þig ? Þegar ég frétti af
þessu hræðilega slysi hugsaði ég
strax til þín en nei það gat ekki verið
þú hafðir komið heim til mín þremur
tímum áður, því miður var ég ekki
heima, en svo daginn eftir fékk ég að
vita að þú hafðir verið með og þann
10. ágúst fékk ég símtal sem ég fæ
aldrei gleymt.
Góði Guð, takk fyrir þann tíma
sem ég fékk að þekkja Heiðu, ég gæfi
mikið til þess að fá að hitta hana aft-
ur og segja henni allt sem ég átti eftir
að segjahenni.
Nú kveð ég þig, elsku vinkona,
minning þín lifir í hjarta mínu. Megi
Guð geyma þig og vemda um alla ei-
lífð. Þín verður sárt saknað.
Vil ég einnig votta fjölskyldu og
vinum mína dýpstu samúð, Guð veri
með ykkur á þessum sorgartímum.
Kær kveðja,
Elva Björk.
Elsku Heiða, Þrátt fyrir þennan
stutta tíma sem ég þekkti þig þá
varstu mér mjög kær vinkona. Ég er
svo þakklát fyrir að hafa kynnst þér.
Þegar mér leið illa varstu til staðar
og þú komst mér alltaf í gott skap og
fékkst mig til að gleyma vandamál-
unum. Þótt ótrúlegt sé
finnst mér eins og okk-
ur væri ætlað að kynn-
ast, því við náðum svo
rosalega vel saman. En
þegar við kynntumst
var ég rosalega döpur
en þú vildir samt vera
vinkona mín. Þú fékkst
mig til að horfa á lífið í
nýju ljósi og sýndir mér
hversu mikilvægt lífið
er. Ég man daginn áður
en þú lentir í slysinu*-
hringdir þú í mig og
mér leið eitthvað illa en
þú sagðist ekki geta hitt mig vegna
þess að þú varst að fara til Eyja og þá
hringdir þú í Ranný og Jóa og baðst
þau að tala við mig. Ég hugsaði þá
með mér hvað ég væri heppin að eiga
svona góða vinkonu. Þú gerðir allt til
þess að hjálpa mér en mér finnst að
ég hafi aldrei fengið tækifæri til þess
að endurgjalda þér. Þú varst svo lífs-
glöð, svo ánægð með lífíð og tilver-
una og allt var að ganga í haginn hjá
þér. Mér finnst mjög leiðinlegt að ég
gat ekki eytt eins miklum tíma með
þér og ég vildi, því við voram bara
rétt að byija lífið saman sem vinkon-
ur. En nú ert þú farin. Ég veit að þú < ,
ert farin til betri staðar, og ég veit að
við eigum eftir að hittast á ný. En ,
mér finnst það svo ósanngjarnt því ,
ég vildi að þú værir hjá mér núna. Þú
varst orðin ein af bestu vinkonum
mínum og ég veit að þér fannst það í
líka um mig. Ég á eklri það mikið af 1
vinkonum að ég hafi efni á að missa
eina svona góða. En ég mun aldrei :
gleyma þér, Heiða mín, þú munt allt-
af eiga stað í hjarta mínu.
Við vottum fjölskyldu Heiðu inni- 1
legustu samúð.
Rut Sigtryggsdóttir og * •
Stefán Örn Stefánsson.
OSWALDS
sími 551 3485
ÞJÓNUSTA ALLAN
SÓLARHRINGINN j
UUl.Mi!,! II ill • 101 REYKJAVIK |
LÍKKISTUVINM ’STOTA
EYVINDAR ÁRNASONAR
UTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga
er andlát verður
Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við
útf ararþ j ónus tu.
Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni.
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri,
sími 896 8242
Svcrrir
Olsen
útfararstjóri.
Baldur
Frederiksen
útfararstjóri,
sími 895 9199
Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi.
Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn.
www.utfararstofa.ehf.is
V
1 j
|’
f
1
/V