Morgunblaðið - 20.08.2000, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2000 43
MINNINGAR
færði henni dótturina Ingu Lísu.
Trú Þorbjargar var sterk. Hún
trúði á það góða í mannfólkinu og
varð aldrei íyrir vonbrigðum með þá
trú. Vonin og vissan um að ástvina og
allra biði einungis það sem þeir
þráðu. Hún hafði lag á að leiða fólk
áfram veginn til þroska og sýndi vin-
um sínum skilyrðislausan kærleik.
Hún var gefandi þroskuð sál sem
leiddi mig áfram veginn til skilnings á
lífinu og fyrir það verð ég henni að ei-
lífu þakklát.
Það var gott að vera samferða
kærri vinkonu en skelfing einmana-
legt að vera skilin eftir, en Þorbjörg
trúði á framhald lífs á öðru tilveru-
stigi og var alla tíð óhrædd við dauð-
ann og sýndi það allt til enda. Með því
hefur hún gefið mér hugrekki til að
sætta mig við stundarskilnað.
Þorbjörg var gift Þórami Gíslasyni
síðustu árin og var samlíf þeirra ynd-
islega fallegt og gefandi báðum. Hon-
um, Ingu Lísu og fjölskyldunni allri
færi ég þakkir fyrir fallegar sam-
verustundir og bið þeim blessunar.
Sigrún Sigurðardóttir.
Vertu sæl vina mín. Nú er guð
búinn að taka þig í faðm sinn og gefa
þér hvfldina og verður vel tekið á
móti þér, það efa ég ekki. Þú varst
svo einlæglega trúföst honum og
kærleikanum.
Eg vann 14 ár með þér á skrifstofu
lögreglustjóra og voru það góð ár, en
mér ávallt minnisstæð: Það geislaði
af þér glaðværðin og létta lundin þín
var einstök sem aldrei brást.
Þú varst einstaklega hugrökk í
baráttu þinni. Lífslöngun þín og von-
in um bata. Trúin á guð og hans mátt
hjálpaði þér. Þú áttir góðan eigin-
mann sem var þér góður styrkur í
veikindum þínum. Hann á nú um svo
sárt að binda.
Einkadóttir þín Inga Lísa missir
sína elskulegu móður, þið voruð
ávallt svo góðar vinkonur. Gleðilegt
var að þú gast verið við brúðkaup
hennar í sumar og fæðingu dóttur
hennar, þíns eina bamabarns sem
var þinn ljósgeisli.
Tilvera okkar hér á jörðu er oft
hverful. I fávisku minni spyr ég; því
fékk Þorbjörg ekki að njóta lengur,
yndislega hússins sem var heimili
þeirra sem þau gerðu upp sem nýtt.
Draumahúsið sem hún elskaði, garð-
inn og fallegu blómin. En við fáum
engu ráðið, líf okkar er víst ekki eftir
pöntun.
Innilegustu samúðarkveðjur frá
okkur Margréti til ykkar Þórarins og
Ingu Lísu. Guð gefi ykkur sfyrk í
sorg ykkar og söknuði.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt
(V. Briem.)
Þín
Pálína (Palla).
Sl. þriðjudag barst mér sú sorgar-
frétt að heiman þangað sem ég er
stödd erlendis að vinkona mín Þor-
björg Jónsdóttir hefði látist sl. laug-
ardag. Ég fylltist söknuði er mér var
hugsað til ótal ánægjulegra samvem-
stunda á heimili hennar, spjalli yfir
tebolla við stofu- eða eldhúsborðið og
á síðustu tímum við sjúkrabeð henn-
ar.
Alltaf mætti gestum heimilisins
glaðværð og hlýja Þorbjargar og ekki
gleymist gestrisni Þórarins manns
hennar og Ingu Lísu einkadótturinn-
ar að ógleymdri litlu fallegu Sunnevu,
augasteins ömmu síðustu mánuðina.
Spjallstundimai’ um sameiginleg
hugðarefni okkar vildu oft dragast á
langinn en alltaf, jafnvel á síðustu og
erfiðustu tímunum, var hún sami
gleðigjafinn og kvaddi jafnan með
þessum orðum „Góða komdu oftar
við þegar þú átt leið um“ og þetta
vom einnig kveðjuorð hennar þegar.
ég kom til hennar í síðasta sinn tæp-
um hálfum mánuði áður en hún lést.
Sumir spekingar álíta að innri
maðurinn ákveði endalok jarðneska
lífsins. Kannski hefur Þorbjörg lokið
ætlunarverki sínu á þessu tilveru-
sviði. Það er huggunarríkt fyrir
harmi slegna vandamenn og vini að
hún hefur vafalaust verið kvödd til
annarra góðra starfa Guðs um víðan
geim.
Það er eitt mesta lífslán hvers
manns að eiga góða samferðamenn
þó svo að oft séu þeir ekki metnir sem
skyldi fyrr en þeir em látnir. En
söknuður eftirlifenda verður alltaf
sár þegar þeir kveðja en eftir lifa góð-
ar minningar.
Leiðir okkar Þorbjargar lágu fyrst
saman í Sam-Frímúrarareglunni fyr-
ir tuttugu og níu ámm og síðan í fleiri
andlega uppbyggjandi félögum. Hún
var ákaflega leitandi kona og gerði
sér fulla grein fyrir að með tilvera
sinni hér á jörðinni ætti hún að þrosk-
ast andlega. Það er erfitt að dæma
hvemig til tekst í þeirri viðleitni
hvers og eins en ég er sannfærð um
að hún hefur haft árangur síns erfiðis
því að aðdáunarvert var hvað hún
hélt sálarró og jafnvægi fram á síð-
asta dag.
Þorbjörg hafði til að bera einn
þann þýðingarmesta eiginleika sem
hægt er að óska sér, það er góðvildin.
Með því að geisla frá sér góðvild og
kærleika til meðbræðranna finnum
við okkur sjálf og erum sterkir hlekk-
ir í bræðralagi alls mannkyns. Og að
lokinni lífsgöngu okkar eigum við
ekkert nema það góða sem við höfum
gefið. f Ijósi alls þessa mun Þorbjörg
eiga góða heimvon.
Ég bið Guð hinn almáttuga og al-
staðar nálæga að hugga og styrkja
eftirlifandi aðstendendur og vini
Þorbjargai- og blessa hana á nýjum
leiðum.
Guðrún I. Jónsdóttir.
bæði í Barmahlíðinni og eins þegar
við bjuggum í litlu kjallaraíbúðinni í
Nökkvavoginum. Við áttum margt
skyldfólk úti á landi og það var
einhvemveginn sjálfgefið að þegar
það kom í bæinn, komu flestir til okk-
ar.
Það var oft glatt á hjalla og sjálf-
sagt skemmdi ekki fyrir að mamma
var höfðingi heim að sækja.
Mamma og pabbi vora mjög sam-
rýnd og náin. í raun og vem gerðu
þau nánast alla hluti saman. Mamma
fór tvisvar í skurðaðgerð þar sem
skipt var um mjaðmarlið og pabbi var
ekki í rónni fyrr en hún var komin
heim aftur.
Bamabömin gáfu foreldmm mín-
um mikla gleði og þau sakna þeirra
sárt nú.
Eftir að pabbi dó fyrir sjö áram fór
mömmu smátt og smátt aftur í
hreyfigetu þar til svo var komið að
hún gat ekki lengur gengið stigana í
Barmahlíðinni. Hún keypti sér íbúð á
jarðhæð við Laugamesveg, en hún
bjó ekld lengi í henni. Þegar hún gat
ekki lengur séð um sig sjálf fékk hún
loks pláss á Hjúkmnarheimilinu Eir,
þar sem henni líkaði mjög vel að vera.
Það var gott að koma þangað til
hennar og finna hvað henni leið vel
þar.
Ef Gísli var ekki með mér þegar ég
kom, spurði hún alltaf hvar hann
væri og hvað hann væri að gera. Það
var augljóst að bamabömin vom öll
ofarlega í huga hennar.
Ég á eftir að sakna þeiira stunda
þegar ég kom við í Barmahlíðinni
bara til að spjalla við mömmu. Það
var alltaf svo gott að koma til hennar.
Maður þurfti ekki að eiga neitt sér-
stakt erindi; það var bara svo gott að
vera hjá henni.
IÞegar pabbi veiktist fóra þau ekki
í neinar grafgötur með það að þau
sóttu styrk sinn í trúna á Guð. Þau
báðu iðulega saman á kvöldin. Það
var mér mjög dýrmætt að fá að biðja
með henni eftir að hún veiktist. Ég
veit að mamma trúði orðunum í
Jóh.11.25: „Ég er upprisan oglífið.
Sá sem trúir á mig, mun lifa þótt
hann deyi.“ Það gerir söknuðinn létt-
bærari. Elsku mamma mín, ég veit að
Ivið eigum eftir að hittast aftur í dýrð
Guðs, en þangað til mun minning þín
lifa í huga mér.
Agnes S. Eiríksdóttir.
KLARA
JÓNASDÓTTIR
+ Klara Jónasdótt-
ir fæddist í
Reykjavík 18. febr-
úar 1918. Hún lést á
Landspítalanum f
Fossvogi 10. ágúst
síðastliðinn og fór
útför hennar fram
frá Háteigskirkju 17.
ágúst.
Með örfáum orðum
vil ég fá að kveðja
hana Klöm. Allt frá
okkar fyrstu kynnum,
sem urðu til þegar
mamma mín hóf sam-
búð með Ragnari syni hennar, og
til kveðjustundar var hún kona sem
ávallt var glæsileg og vel til höfð,
hvort sem stefnan var tekin í
sunnudagskvöldmat suður í fjörð-
inn eða morgungöngu á Cocoa
Beach. Virðuleg, smekkvís og
„ammý“ em þau orð sem fyrir mér
lýsa henni best. Ég er þakklát fyrir
að hafa kynnst jafnmerkilegri
manneskju og hún var.
Hvfl í friði, kæra Klara.
Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt,
sem dropi breytir veig heillar skálar.
Þel getur snúizt við atorð eitt,
aðgát skal höfð í nærveru sálar.
(Einar Ben.)
Berglind Hafliðadóttir.
Elsku Klara, mig langar til þess
að kveðja þig með nokkrum fátæk-
legum orðum.
Ég minnist þín fyrst í kjallaran-
um á Hringbrautinni, þá var ég lítil
hnáta, heimagangur hjá þér. Þú
áttir heima í kjallaranum og ég á
hæðinni. Það var alltaf gaman að
banka upp á hjá þér, líta í heimsókn
og spjalla við þig eins og fullorðna
fólkið gerði. Mér fannst ég svo stór
og fullorðin þegar ég heimsótti þig.
í þér hef ég alltaf átt góðan
bandamann. Ef ég varð fyrir ein-
hverju óréttlæti varst þú komin
mér til hjálpar. Þannig var það svo
alla tíð, þú stóðst alltaf
með mér og ég hef á
tilfinningunni að þú
munir alltaf gera það,
hvar sem þú ert. f þér
átti ég traustan vin
sem trúði á mig og
einhvem veginn
fannst mér að þú
mundir alltaf verða
þáttur í tilveru minni.
Núna ertu farin yfir
móðuna miklu en þú
hefur skilið eftir
handa mér eitt af því
mikilvægasta sem
nokkur getur átt,
trúna á sjálfa mig.
Elsku Raggi, Vigdís og Ragnar
Valdimar, megi guð vera með ykk-
ur á þessum erfiðu tímum.
Guðrún Björg Egilsdóttir.
Frágangur
afmælis- og
minningar-
greina
MIKIL áhersla er lögð á, að
handrit séu vel frá gengin, vél-
rituð eða tölvusett. Sé handrit
tölvusett er æskilegt, að diskl-
ingur fylgi útprentuninni. Það
eykur öryggi í textameðferð og
kemur í veg fyrir tvíverknað.
Þá er enn fremur unnt að senda
greinarnar í símbréfi (5691115)
og í tölvupósti (minning@-
mbl.is). Nauðsynlegt er, að
símanúmer höfundar/sendanda
fyigj-
Um hvern látinn einstakling
birtist formáli, ein uppistöðu-
grein af hæfilegri lengd, en aðr-
ar greinar um sama einstakling
takmarkast við eina örk, A-4,
miðað við meðallínubil og hæfi-
lega línulengd, - eða 2.200 slög
(um 25 dálksentimetra í blað-
inu).
Funalind 9 - opið hús
í dag munu Alexander
og Hildur sýna glæsilega
4ra herb. 110 fm íbúð á
3. hæð. Glæsilegar inn-
réttingar og gólfefni.
íbúðin verður sýnd á milli
kl. 14 og 17 í dag sunnu-
dag. V. 14,9 m. 9728
J
St FASTEIGIUAMIÐSTÖÐIiy ttr
^ SKIPHOLTl 5QB - SÍBBí 552 6000 • FAX 552 6005
Magnús Leópoldsson lögg. fasteignasali |
Opið virka daga frá kl. 8-12 og 13-17
SKIPHOLT
Glæsilegt skrifstofuhúsnæði við Skipholt í mjög góðu, nýlegu húsi.
Húsnæðið er rúmir 400 fm að stærð, allt á einni hæð, mjög vel
skipulagt og innréttað. Nýjar tölvulagnir og raflagnir. I húsinu er lyfta.
Svalir. Húsnæðið getur selst i einu lagi, einnig kemur til greina að
selja það í smærri einingum. Húsnæðið er að hluta í góðri leigu og
getur verið það áfram ef það hentar.
Til leigu atvinnuhúsnæði
Neðst við Skúlatún, 2000 fm skrifstofuhúsnæði ó þremur
hæðum, gegnt Samvinnuferðum- Landssýn. 30-40 malbikuð
bílastæði. Fyrsta hæð gæti hentað sem verslunar- eða þjón-
ustuhúsnæði. I sama húsi er til leigu 650 fm kjallari. Góð loft-
hæð. Stór hluti laus nú þegar, allt húsið til afhendingar
l. október. Fróbær staðsetnig.
Austurstæti 16 (Apótekið). 400 fm glæsileg skrifstofu-
hæð með síma og tölvulögnum í fyrsta flokks óstandi. Laust
1. október nk. I sama húsi efsta hæð, rishæð ósamt turni,
u.þ.b. 1 80 fm. Laust nú þegar. I sama húsi 200 fm geymslu-
húsnæði í kjallara.
Suðurhraun - Garðabær. Vandað og fullbúið 3500 fm
iðnaðar og/eða þjónustuhúnæði. Mikil lofthæð, myndarleg
starfsmannaaðstaða og 8000 fm malbikuð lóð. Laust strax.
Kópavogur 230 fm vel staðsett verslunar og/eða þjónustu-
húsnæði. Hentar vel sem verslun, pizzahús, sjoppa og video-
leiga. Stendur sér, 25 malbikuð bílastæði, u.þ.b. 3500 íbúar
í nógrenninu. O.B. bensínstöð ó vegum Olís ó staðnum. Mikl-
ir möguleikar.
Vesturbær. 300 fm geymslu- eða lagerhúsnæði nólægt J.L
húsnæðinu.
Garðatorg, Garðabæ. 500 fm húsnæði. Góð lofthæð,
engar súlur, hentar vel sem skrifstofur, fyrir auglýsingastofu,
arkitekta og verkfræðinga. Næg bílastæði, hagstæð leiga.
Hafðu samband ef þig vantar atvinnuhúsnæði
Eignarhaldsfélagið Kirkjuhvoll ehf.,
símar 562 3585 o" 892 0160.