Morgunblaðið - 20.08.2000, Síða 48
>48 SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Grettir
Hundalíf
1
t
l
|
j
í
Smáfólk
Dríföu þig Magga.. Það eru engin vötn Segðu hattinum mínum
Förum að veiða! héma, herra minn.. það.. Hann verður mjög
vonsvikinn..
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Stór hluti
landsmanna
grautartrúar
Frá Sigurpáli Oskarssyni:
PRÓFESSOR Pétur Pétursson
skrifaði athyglisverða grein í Morg-
unblaðið 20. júlí síðastliðinn, þar sem
hann leggur tii, að það fjölmiðlafólk,
sem skemmdi hátíðina á Þingvöllum
fyrir þjóðinni með vanþekkingu sinni
og fordómum, ætti að biðja hana op-
inberlega afsökunar. Og er ég hon-
um fyllilega sammála.
Eftir synodus á Norðurlandi fyrir
fáeinum árum var ég að hlusta á um-
ræðuþátt í Ríkisútvarpinu, þar sem
meðal annars var rætt um nýaf-
staðna synodus og furðaði mig stór-
lega á þeiná umræðu, því að ég fékk
ekki heila brú í það, sem sagt var og
undraði mig sérdeilis á þeim rang-
hugmyndum, sem þar komu fram
hjá meirihlutanum. Á þessu hlaut að
vera einhver skýring. Við blaðalest-
ur kom líka ýmislegt í ljós. Yfirleitt
greindi Morgunblaðið rétt frá og
hlutlaust frá gangi mála en önnur
voru mjög svo ónákvæm í framsetn-
ingu og ýmislegt þannig orðað, að
auðvelt var að draga rangar ályktan-
ir. Það sem gerði mér sérlega gramt
í geði, var, að norðlenskt blað skyldi
vera framarlega í flokki þeirra, sem
leyfðu sér að viðhafa froðusnakk. Ég
hafði talið mér trú um, að slík lág-
kúra viðgengist aðeins sunnan heiða.
Presta-félagsfundur var haldinn á
undan synodus eins og oftast á sér
stað, þar sem launamál stéttarinnar
voru rædd ásamt öðrum innanfé-
lagsmálum. í fyrrgreindum útvarps-
þætti kom það álit fram í spurnar-
formi, hvort prestar hefðu ekkert
annað að gera en að væla um launa-
kjör, er þeir kæmu saman. Þama
grautuðu viðkomandi saman stéttar-
félagsfundi og ráðstefnuþingi, sem
er tvennt ólíkt. Ekki var hægt að
kenna blaðamönnum um þessa
grautarhugsun, þar kom til annar-
legur skoðunarferill. Venjulegu
hugsandi fólki fínnst eðlilegt, að
stéttarfélag gæti hagsmuna félags-
manna sinna, enda hafði starfsmað-
ur á biskupsstofu orð á því, að líkleg-
ast væri ráð að hafa
prestafélagsfundinn á öðrum tíma og
meinti þá, að óæskileg hugsana-
brengl næðu sér þá síður á strik.
Eftir þetta gat ég ekki varist
þeirri hugsun, að margt væri til í
þeirri skoðun, sem fram hefur kom-
ið, að stór hluti eða ofstór hluti
landsmanna væri grautartrúar, þar
sem grautað væri saman kristinni
trú, guðspeki, andatrú, yoga, nýguð-
fræði, innhverfri hugsun, íslenskri
draugatrú og heilun og hefði þar af
leiðandi óljósa og þokukennda hug-
mynd um, hvað kristin trú er sam-
kvæmt hugspjöllunum.
Snemmsumars eða síðla vors opn-
aði ég fyrir Ríkisútvarpið að morg-
unlagi í bflnum og heyrði þá í manni í
miðju viðtali, sem eftir orðræðunni
að dæma var ritstjóri. Eins og ég
skildi mál hans hafði hann ekki hug-
mynd um hvað hugtakið synd merkti
samkvæmt kristnum skilningi.
Synd er allt, sem er gagnstætt
heilögum vílja Guðs. Upprunasyndin
er hin meðfædda tilhneiging til að
gera hið illa, tilhneiging, sem allt
mannlegt hold er að kljást við og
fram kemur í þessum orðum Páls
postula: Hið góða, sem ég vil, gjöri
ég ekki, en hið vonda, sem ég vil
ekki, það gjöri ég. (Róm.7:19). Og
einnig þetta: Allir hafa syndgað og
skortir Guðs dýrð, (Róm. 3.23). Á op-
inberum vettvangi verða menn að
kunna skfl á því, sem þeir halda fram
og fullyrða en flumbrist ekki áfram í
vanþekkingu sinni eins og fram kem-
ur í áðumefndri grein og virðast að
því búnu hlakka yfir skeðum skaða.
Það er svo annað mál, hvort menn
viðurkenna kristna trú eða ekki.
Trúfrelsi er á Islandi. Hver og einn
getur aðhyllst þá trú, sem honum lík-
ar innan landsins laga. Það er aftur á
móti mín fullvissa og sannfæring, að
kristin trú hafi alltaf og alls staðar
vinninginn og sú eina, sem hefur
hjálpræðið og bjargi í himininn inn.
Ymsir trúa öðru og geri ég ráð fyrir,
að þeir telji sína trú rétta, annars
væri þeir ekki þeirrar trúar, - þótt
ég persónulega teldi þá betur setta,
tryðu þeir á Guð og Jesú Krist.
Menn geta haft sína trú út af fyrir
sig en tjái menn sig opinberlega
verður að byggja á réttum forsend-
um, svo að ekki sé klifað á fölskum
klisjum jafnvel þótt búið sé að benda
á og gefa réttar tölulegar upplýsing-
ar, - með slíku er vanþekkingunni
haldið við og ber vott um það hugar-
far, sem innifyrir býr.
Nú er mál að linni, því að enn
stendur til boða endurmenntunar-
námskeið dr. Péturs rektors í Skál-
holti, sem er tilbúinn að upplýsa fólk
um guðlega forsjá og málefni, svo að
menn hætti að ráfa um í villu og
svima. Sé því boði hafnað og aftur
höggvið í sama knérunn, þá er illvilj-
inn einn í fyrirrúmi.
SIGURPÁLL ÓSKARSSON,
Starengi 18, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
■<
HLiGSKOT
^ ) /
Brúðkaupsmyndatökur
Nethyl 2, sími 587 8044
Kristján Sigurðsson, ijósmyndari