Morgunblaðið - 20.08.2000, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2000 49
BRÉF TIL BLAÐSINS
Meira um drauma
Atli Hraunfjörð skrifar:
í GREIN sem birtist í Morgunbl. 10
ágúst sl. fjallaði ég lauslega um
kenningar dr. Helga Pjeturss um
drauma. Ég tel rétt að skýra það ít-
arlegar en þar kom fram.
Eftir áratuga langar athuganir á
eigin draumum og athugunum ann-
arra vísindamanna sem á þeim tíma
birtu rannsóknir sínar, auk rita um
draumreynslu manna víða um heim,
birti hann niðurstöðu rannsókna
sinna í ritinu Nýall árið 1922. „Eðli
drauma er mjer nú kunnugt orðið.
Mjer er það alveg ljóst, að jeg skipti
um meðvitund, þegar jeg vakna. I
svefni fæ ég þátt í lífi einhvers ann-
ars,“ segir hann og einnig „draumur-
inn er líf en ekki endurminning um
líf, eða hugsun um líf.“ Og síðar.
„Það sem ein augu sjá, getur komið
fram, eigi einungis í þeim heilanum
sem augun fylgja, heldur einnig í
öðrum.“ Dr. Helgi benti á drauma-
frásagnir einstaklinga sem fengu
staðfestingu á að það sem þá
dreymdi, var í rauninni að gerast á
meðan draumurinn átti sér stað og
að sjálfsögðu tók það jafnlangan
tíma og draumurinn varði. Það er að
segja, að draumur eins var vökulíf
annars og var í sumum tilfellum að
gerast í nágrenni við draumgjafann.
Nú, ef vökulíf eins verður að draumi
hjá nágrannanum hvað þá um alla
aðra drauma? Sumir draumar eru
mjög skýrir, þannig t.d. að dreyma-
ndanum finnst að hann eigi margar
og merkar minningar, um hluti eða
staði sem ber fyrir augu í draumn-
um, atriði sem jafnvel ekki er að
finna hér á jörðu. Dr. Helgi segir frá
draumi þar sem hann kemur niður á
hafnarbakka og sér stórt og tignar-
legt seglskip sem hann kannast við
og á þaðan margar og góðar minn-
ingar. í raunveruleikanum hafði
hann aldrei séð svona skip né verið
þar um borð og gat þar af leiðandi
ekki átt minningar þaðan. Dr. Helgi
dró þá ályktun að draumurinn eigi
sér upptök utan jarðar og þannig sé
það með flesta drauma. Draumur
eins, er ávallt vökulíf annars og oft-
ast við íbúa annarra hnatta í geimn-
um. Sem rök fyrir draumakenning-
unni, tók hann til dæmi sem hver og
einn getur athugað á eigin spýtur.
Mann dreymir hest og á um hann
minningar og ber til hans hlýjar til-
finningar. í vöku hefur maðurinn
aldrei átt hest og ekki nálgast þá vilj-
andi á sinni ævi. Þegar hesturinn í
draumnum er borinn saman við þá
hesta sem hann getur skoðað í ná-
grenninu, sér hann, að athöfnin að
horfa á hest og dreyma hest, er
næstum sama tilfinning, þar með að
skynja lit kyn og form. Að hugsa um
hest, eða rifja upp sýnina um hest, er
ekki það sama og sjá hest. Bestu og
markverðustu draumarnir eru skýr-
ir og þeim fylgir alltaf tilfinning, góð
eða slæm samkvæmt efni draumsins.
Dr. Helgi fann það einnig út, að
hverjum draumi fylgir mögnun, sem
aðeins kemur til við samband
draumgjafa og draumþega og veldur
því að alla verður að dreyma, annars
er voðinn vís. Flestir draumar eru
ruglingslegir og sundurleitir og aðr-
ir draumar eru hreinasta martröð.
Þó er þetta allt raunveruleiki. Dag-
legt líf fólks er ekki alltaf dans á rós-
um, það lendir í ýmsu misjöfnu og
veldur einnig öðrum misjöfnu og
þannig er um veröld alla. Draum-
gjafaskiptin eru svo ör að heildar-
mynd draumsins er ein della og
magnleysið um morguninn í sam-
ræmi við það, í stað fullkomins
draums og mikillar mögnunar eða
hleðslu og vellíðanar. Draumar geta
endurspeglað líf einstaklingsins, en
það er samt ekki hans eigið líf sem
hann dreymir, heldur líf annars.
Kemur þar til lögmál sem dr. Helgi
kallar stillilögmál. Lögmál sem hef-
ur áhrif á manninn og lífríkið og síð-
ast en ekki síst á drauma og hvað
mann dreymir, en meira um það síð-
ar.
ATLIHRAUNFJÖRÐ
Marargrund 5,
210 Garðabæ.
OKKAR LANDSFRÆGU MATAR- OG KAFFIHLAÐBORÐ
KAFFI
laugardags- og
sunnudagskvöld
ta sunnudaga
kl. 14 -17
Sktðaskáíinn
í Hveradöíum
Sími. 567 2020
Trönuhrauni 6, Hafnarfiröi
Sími 565 1660
Staðfesta þwf
pantanit
jyrir 2i• ágúst.
1
Innritun
er hafin!
Ný námskeið byrja 28. ágúst
NÝTT-NÝTT:
1. ^ á
vnovgnana
■mVíVUNLElÐAÐ
B VR.1 A D AGlNNj
FUNDIR
VIGTUN
MÆLING
MATARÆÐI
jsb - góður staðurfyrir koriu
IBliliiI
FRA TOPPI TIL TAARI
Námskeið sem hefur veitt ótalmörgum
konum frábæran árangur.
Þetta kerfi er eingöngu ætlað konum,
sem berjast við aukakílóin.
Uppbyggilegt, lokað námskeið. Fimm tímar
í viku, níu vikur í senn. Góður matarkúr
sem fýlgt er eftir daglega með andlegum
stuðningi, einkaviðtölum og fyrirlestrum um
mataræði og hollar lífsvenjur. Heilsufundir
þar sem farið er yfir forðun, klæðnað, hvemig
á að bera líkamann og efla sjálfstraustið.
FRA TOPPI TIL TAAR n
- framhald
Námskeið fyrir þær sem vilja
halda áfram í aðhaldi.
Fijálsir tímar, 9 vikur.
Fundir lx í viku í 9 vikur.
Námskeið fyrir eldri borgara...
Grundvallaratiiði upplýsmgatækni
Windou's styrikerfid
Word rit\4nnsla
Notkuu Intornotsins
Námskeiðlð hefst 5. septembev.
og Kkiu' 6. oktobet. Kennt verðui A
l>i Iðjtuioguin og flinnittuioguin
frákl.9«0 0112.-00
Nánari upplvsingar og innritun
t siniuni S55 4980 og 544 4500
... 60 ára og eldri
Nýi tölvu
viðskiptaskólinn
Hólshrauni 2 - 220 Hafnarfirði - Slmi: 555 4980 - Fax: 555 4981
Hllðasmára 9- 200 Kópavogi - Sfmi: 544 4500 - Fax: 544 4501
Tölvupóstfang: skoii@ntv.is - Heimasföa: www.ntv.is