Morgunblaðið - 18.10.2000, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Bankaráð Búnaðarbankans samþykkir sameiningarviðræður við Landsbankann
Fulltrúar
bankanna hitt-
ust í gærkvöld
Vilja stofna
embætti
umboðs-
manns
aldraðra
í ÞINGSÁLYKTUNARTILLÖGU
sem sjö þingmenn Sjálfstæðis-
flokks hafa lagt fram á Alþingi er
lagt til að ríkisstjórninni verði fal-
ið að stofna embætti umboðs-
manns aldraðra sem sinni gæslu
hagsmuna og réttinda aldraðra.
Guðmundur Hallvarðsson er
fyrsti flutningsmaður tillögunnar.
I greinargerð hennar segir að mik-
il nauðsyn sé á að stjórnvöld taki
tillit til hagsmuna aldraðra þegar
teknar séu ákvarðanir sem þá
varði, ekki síst þegar hliðsjón er
höfð af því að Islendingar verða
elstir allra þjóða og að hlutfall
aldraðra af heildaríbúafjölda fari
vaxandi.
I greinargerð segir að nauðsyn-
legt sé að stöðugleika sé gætt í
hvívetna hvað varði fjárhagslega
afkomu aldraðra. Þar segir einnig
að það yrði augljóslega léttir íyrir
starfsfólk vist- og hjúkrunarheim-
ila að geta vísað til umboðsmanns
ýmsum deilumálum sem upp komi,
t.d. milli nánustu ættingja um fjár-
mál og eignir. Segja flutnings-
menn jafnframt að löggjafanum
beri að setja lagaramma um starf-
semi sérhæfðrar öldrunarþjónustu
þar sem kveðið verði á um þau
skilyrði sem einkaaðilum og opin-
berum aðilum, sem starfa að þess-
um málum, beri að uppfylla.
---------------
Með 800-1.000 e-
töflur innvortis
Með 80
smokka
innvortis
KARLMAÐUR um þrítugt var
handtekinn af Tollgæslunni á
Keflavíkurflugvelli síðdegis á
sunnudag. Við röntgenmyndatöku
kom í ljós að maðurinn var með
um 800-1000 e-töflur innvortis.
Nákvæmt magn var ekki vitað í
gær þar sem maðurinn hafði ekki
enn skilað öllu efninu af sér.
Maðurinn var lagður inn á
Landspítala - háskólasjúkrahús í
Fossvogi og þess beðið að efnin
gengju niður. Að sögn læknis á
spítalanum var líðan mannsins
með ágætum í gær. Þó er alltaf
nokkur hætta á að smokkarnir
rifni en slíkt getur reynst ban-
vænt.
Maðurinn kom með flugvél frá
Frankfurt síðdegis á sunnudaginn.
Leitað var að fíkniefnum í farangri
hans en ekkert fannst við leitina.
Ástæða þótti til að senda manninn
i röntgenmyndatöku og kom þá í
ljós að maðurinn hafði gleypt 80
smokka sem taldir eru innihalda
um 800-1000 e-töflur.
BANKARÁÐ Búnaðarbanka íslands
hf. samþykkti í gær að hefja viðræður
um mögulega sameiningu bankans og
Landsbanka íslands hf. Var Pálma
Jónssyni, formanni bankaráðsins, og
Þórólfi Gíslasyni varaformanni falið
að leiða viðræðumar fyrir hönd bank-
ans. Fulltrúar bankanna hittust
vegna komandi viðræðna í gærkvöldi.
Bankaráð Landsbankans sam-
þykkti í síðustu viku að ganga til við-
ræðanna og fól Halldóri J. Kristjáns-
syni bankastjóra að leiða þær af hálfu
bankans. í tilkynningu frá bankaráði
Búnaðarbankans segir að á fundinum
hafi jafnframt verið ákveðið að samn-
ingaviðræður verði í höndum banka-
stjómar í samræmi við verkaskipt-
ingu sem ákveðin verði af formanni og
varafoi-manni bankaráðsins. Banka-
ráðið leggi áherslu á að haft verði
samráð við forystu starfsmannafélags
bankans í þeim sameiningarviðræð-
um sem í hönd fara á næstunni.
VALGERÐUR Sverrisdóttir, iðn-
aðar- og viðskiptaráðherra, heim-
sótti í gær álverksmiðju og at-
hafnasvæði Norðuráls á Grundar-
tanga ásamt fulltrúum iðnaðar-
ráðuneytisins og átti fund með
forráðamönnum Norðuráls um
óskir fyrirtækisins um stækkun ál-
verksmiðjunnar í allt að 300 þús-
und tonna framleiðslugetu á ári. Á
mánudag funduðu forsvarsmenn
Norðuráls með Landsvirkjun af
sama tilefni.
Tómas M. Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri tækni- og umhverf-
Sólon R. Sigurðsson, bankastjóri
Búnaðarbankans, sagði eftir fundinn í
gærkvöldi að menn hefðu hist og
rabbað saman en annar fundur hefði
ekki verið ákveðinn. Sagði hann unnið
að málinu áfi'am og kvaðst ekki vilja
greina nánar frá umræðum.
Pálmi Jónsson sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að farið yrði í
þessar viðræður á jafnréttisgrund-
velli á næstu dögum. „Við förum í
þessar viðræður með það að mark-
issviðs Norðuráls, sagði við Morg-
unblaðið að heimsókn ráðherrans
og fylgdarliðs hans hefði verið
ánægjulegt. Fundurinn á eftir
hefði jafnframt verið gagnlegur og
ákveðið hefði verið að báðir aðilar
ynnu áfram að málinu og hittust
aftur eftir mánuð.
Friðrik Sophusson, forstjóri
Landsvirkjunar, sagði við Morgun-
blaðið sl. laugardag, að fyrirtækið
þyrfti að fá að vita hvort og hvern-
ig væri hægt væri að áfangaskipta
byggingu álversins. Það auðveld-
aði svör vegna óska fyrirtækisins
miði að leiða málin til lykta með já-
kvæðri niðurstöðu. Stærðarmunur
bankanna verður auðvitað metinn í
skiptitölum milli bankanna og er eitt
af því sem ræða verður í þessum
samningaviðræðum," sagði hann.
Bankaráðið fundaði fyrst um málið
á mánudag en þeim fundi var síðan
frestað og lauk í gær. Pálmi segir að
vegna seinkunar í flugi hafi heim-
koma eins bankaráðsmanns erlendis
frá tafist og eins hafi menn verið
um orkuþörf. Tómas segir að
hugsanleg áfangaskipting fram-
kvæmdanna hafi verið til umræðu
á fundinum með Landsvirkjun.
„Okkur líst ekki nógu vel á þær
hugmyndir því við viljum stækka
verksmiðjuna í einu lagi,“ sagði
Tómas.
Hugmyndir Norðuráls ganga út
á að 240 þúsund tonna verksmiðja
verði tilbúin árið 2004 og eftir það
verði með nýjustu tækni hægt að
hagræða nægilega til að auka
framleiðsluna upp í 300 þúsund
tonn á ári.
ákveðnir í að ræða málin í þaula áður
en ákvörðun væri tekin. Pálmi bætti
því við að bankaráðið hafi samþykkt
samhljóða að fara út í viðræðumar.
Einn hafi þó setið hjá við afgreiðsluna
og látið bóka efasemdir sínar. Fékkst
ekki gefið upp hver það var.
Á hluthafafundi Búnaðarbankans,
sem haldinn var á mánudag, var sam-
þykkt að auka hlutafé í bankanum um
250 milljónir kr. með útgáfu nýrra
hlutabréfa. Hlutafé í bankanum eykst
þar með úr 4,1 milljarði ki-. í 4,35
milljarða. Verður hlutafjáraukningin
notuð til að fjármagna stofnun dóttur-
fyrirtækisins Bunadarbanki Intema-
tional S.A. í Luxemborg. Einkaaðilar
eiga ríflega fjórðung hlutafjár í bank-
anum á móti ríkinu. Þai' af er Kaup-
þing stærsti einstaki eignaraðilinn.
Aðspurður sagðist Pálmi ekki hafa
orðið vai' við óánægju fulltrúa ann-
arra hluthafa en ríkisins með fram-
vindu mála.
Eldur í báti
á Akranesi
SLÖKKVILIÐIÐ á Akranesi var
kvatt að skipasmíðastöðinni Þorgeii'
& Ellert hf. á Akranesi í gærkvöldi en
þá logaði eldur í lúkar á báti sem verið
er að setja á perustefni inni í stöðinni.
Fljótt gekk að slökkva eldinn en tals-
verðar skemmdir urðu á stýrishúsi
bátsins. Talið er að neisti frá logsuðu
hafi komist í tréverk í lúkarnum.
Að sögn Þorgeirs Jósefssonar
framkvæmdastjóra urðu menn, sem
vom að koma úr vinnu á Grundar-
tanga laust fyrir klukkan 21, varir við
að reyk lagði frá skipasmíðastöðinni.
Þorgeir sagði að unnið hefði verið við
suðu á bátnum um klukkan 16 og síð-
asti starfsmaðurinn fór úr húsinu um
hálftíma síðar. Hefði eldurinn senni-
lega verið að krauma frá þeim tíma.
Eldurinn var ekki mjög mikill en tals-
verðar skemmdir urðu af hita og sóti.
Norðurál fundar með iðnaðarráðherra og Landsvirkjun
Líst illa á hugmyndir
um áfangaskiptingu
Itlöróiiiúl' tiltiití ^
•3 efouíu
ísland með í umsókn
um EM 2008/C3
f VERINU í dag er sagt frá tillögum Hafrannsóknastofn-
unar um veiðibann á innfjarðarækju norðanlands, breyt-
ingum hjá útgerðarfélaginu Þorbimi-Fiskanesi og fjallað
um stefnumörkun FAO um öryggismál fiskimanna.
Dúfa búin að semja við
Breiðablik og Gimli / C1
Með Morgun-
blaðinu í dag
fylgir blað frá
Raf- & tölvutón-
listarhátíðinni á
íslandi. Út-
gefandi er Art
2000.
1 ► Teiknimyndasögur
• ► Myndir
• ► Þrautir
2 ► Brandarar
J ► Sögur
• ► Pennavinir