Morgunblaðið - 18.10.2000, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 18.10.2000, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2000 25 Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. FÁLEGA hefur verið tekið í tillögu Radikale venstre-flokksins um að gefa Júníhreyfingunni og Þjóðar- hreyfingu gegn Evrópusambandinu kost á að bjóða fram til danska þjóð- þingsins í næstu kosningum án þess að safna til þess undirskriftum eins og nýir flokkar verða að jafnaði að gera. Ástæða tilboðsins er, að sögn Elisabeth Amold, flokksformanns Radikale, að auðvelda hreyfingunum að komast á þing og hafa þar með áhrif á stefnu stjómvalda í Evrópu- málum. Radikale var einn þeirra flokka sem studdu aðiid að evrópska mynt- samstarfinu og gengur vafalaust fleira til en góðvildin ein. Flokkamir sem vom fylgjandi aðild gagnrýndu Júníhreyflnguna og Þjóðarhreyfing- una mjög fyrir ábyrgðarleysi en hvor- ug hreyfingin á sæti á þingi. Fulltrúar Júníhreyfingarinnar sitja hins vegar á Evrópuþinginu. „Nei-hreyfingarnar taka aldrei neina pólitíska ábyrgð. Meðlimirnir fljúga aftur til Brassel, lifa í vellystingum á háum launum og gagnrýna danska stjómmálamenn," segir Amold í sam- tali við Politiken. Júníhreyfingin var stofnuð til að vinna gegn aðild Danmerkur að Maastricht-sáttmálanum árið 1992 og beitti sér ennfremur mjög gegn aðild- inni að myntsamstarfinu nú. Stuðn- ingsmenn hreyfingarinnar koma hins vegar úr öllum dönsku stjórnmála- flokkunum og eiga það eitt sameigin- legt að vera í andstöðu við of náið Evrópusamstarf, þótt ekki séu þeir mótfallnir Evrópusambandinu sem slíku. Vegna þessa hefur hreyfingin og aðrir stjómmálamenn, t.d. jafnað- armenn og Sósíalíski vinstriflokkur- inn, tekið dræmt í hugmynd Amolds. Segir Jens-Peter Bonde, formaður hreyfingarinnar, að hún myndi ein- faldlega klofna ef hún ætti að taka af- stöðu til annarra mála en þeirra er varði ESB. Reuters Bretadrottning heimsækir páfa ELÍSABET Bretadrottning ræddi í gær við Jdhannes II Pál páfa í fyrstu heimsókn sinni til Páfagarðs í 20 ár. Spenna hefur verið í sam- skiptum kaþólsku kirkjunnar við aðrar kirkjur vegna umdeilds skjals sem gefið var út í Páfagarði í september, en þar var fullyrt að mótmælendakirkjur og enska bisk- upakirkjan væru ekki „sannar kirkjur". Bretadrottning og páfi lögðu þó áherslu á það sem samein- ar kirkjurnar á fundi þeirra í gær og sögðu bæði að stefna bæri að einingu meðal kristinna manna í heiminum. Venja er að páfi og þjóðhöfðingj- ar sem sækja hann heim flytji ræð- ur eftir fundi þeirra en í þetta sinn létu páfi og Bretadrottning nægja að skiptast á umslögum sem inni- héldu yfirlýsingar þeirra. Mun það meðal annars hafa verið gert til að þreyta ekki páfa. Vilja Júní- hreyfinguna í framboð ÞÍN FRlSTUND - OKKAR FAG VINTERSPORT Blldshöfða • 110 Reykjavlk • slmi 510 8020 • www.intersport.is NORTHBROOK ANDREA Stílhreint vesti með vösum að framan. Fæst einnig grátt og svart. St. S-XL. Kr. 2.850,- 3.890,- Dömudeildin í IIMTERSPORT er sneisafull af flottum sport- fatnaði fyrir konur á öllum aldri. Komdu í INTERSPORT ef þú vilt vera sportleg. NORTHBROOK NORTHBROOK CASEY Sportlegar vindbuxur með netafóðri og rennilás á skálmum. Góðir vasar. Fást í fleiri litum. St. XS-XL kr. 4.440,- Vindbuxur 4.440 Nýtt kortatímabil N-LINE Hlý og þægileg rúllukragapeysa úr 100% bómull. Einnig til rauð. St. XS-L, Kr. 3.890,- ímyndarvanda AI Gore, forsetafram- bjóðandi demókrata, þarf að ávinna sér traust kjósenda á ný, eftir að uppvíst varð um ónákvæmni í málflutningi hans í kappræðum. BANDARÍSKIR stjórnmálaskýr- endur hafa undanfarna daga velt því mikið fyrir sér hvaða mynd AI Gore myndi reyna að gefa af sér í síðustu sjónvarpskappræðunum við George Bush, sem fram áttu að fara í St. Louis í nótt að íslenskum tíma. „[Verður það] hinn yfirlætisfulli valdamaður sem tapaði stigum á því að reyna að vinna of mörg í fyrstu viðureigninni, hinn ofurtillitssami frambjóðandi sem tapaði stigum á því að reyna ekki að vinna nógu mörg í öðrum kappræðunum, eða einhvers konar sambland þar á milli?“ sagði leiðarahöfundur The Washington Post í gær. Gore hefur lengi legið undir ámæli fyrir að vera fjarlægur og jafnvel „gervilegur" í fasi, og í kosn- ingabaráttunni þykir hann hafa sýnt mörg og nokkuð ólík andlit. Á sum- um kosningafundum hefur hann verið leiftrandi og heillað viðstadda upp úr skónum, á öðrum stundum hefur hann þótt heldur þurr á manninn, og nokkram sinnum hefur hann þótt vera beinlínis leiðinlegur. „Hinn fullkomni Gore“ Framkoma Gores í tvennum fyrstu kappræðunum þykir líka býsna ólík. Margir stjórnmálaskýr- endur hafa lýst þeirri skoðun sinni að fas varaforsetans í fyrstu kapp- ræðunum hafi verið þaulæft og hafi virst honum óeiginlegt. Hann var einnig gagnrýndur fyrir yfirlætis- lega framkomu í garð Bush, frammíköll og hneykslunarstunur. I öðram kappræðunum þótti hann hins vegar einum of tillitssamur og meðvitaður um að vekja ekki sterk neikvæð viðbrögð hjá áhorfendum. Ráðgjafar Gores hafa því síðustu Forsetakosningar OÉbsbIII WBm = daga, ef marka má bandaríska fjöl- miðla, lagt allt kapp á að skapa frambjóðandanum nýja og betri í- mynd fyrir síðustu sjónvarpskapp- ræðurnar. „Hinn fullkomni Gore“ væri skjótur til svara án þess að virðast of kappsamur, með málefnin algerlega á hreinu án þess að hljóma eins og biluð plata, og fær um að koma með baneitraðar at- hugasemdir og skot á andstæðing- inn án þess að ofbjóða áhorfendum. Ónákvæmni eða ósannsögli The New York Times hafði í gær eftir William Daley, sem stjómar kosningabaráttu Gores, að varafor- setinn myndi vera „hann sjálfur" í síðustu kappræðunum, og banda- rískir stjómmálaskýrendur vora á einu máli um að það myndi án efa reynast happadrýgst. Sumir efuðust þó um að Gore vissi sjálfur hvernig hann ætti að „vera hann sjálfur". Allur ferill Gores hefur miðað beint að Hvíta húsinu og nú era að- eins þrjár vikur þangað til í ljós kemur hvort hann nær því takmarki sínu. Eftir síðustu kappræðurnar í gærkvöldi tekur við snarpur enda- sprettur, og úrslitin munu að miklu leyti ráðast af því hvort varaforset- anum tekst að samsama sig ímynd- inni um „hinn fullkomna Gore“. En Gore hefur átt við fleiri vanda- mál að etja en ímyndarkreppuna. Stuðningsmenn Bush hafa dregið trúverðugleika hans í efa, og svo virðist sem áróður þeirra hafi náð til nokkurs hluta kjósenda. I fyrstu sjónvarpskappræðunum nefndi Bush mikla skógarelda í Tex- as sem eftirminnilegan atburð úr embættistíð sinni sem ríkisstjóra. Gore reyndi að sýnast vinsamlegur og hrósaði Bush fyrir viðbrögð hans við eldunum, og bætti við að hann hefði sjálfur skoðað hættusvæðið í fylgd með James Lee Witt, yfir- manni almannavarna alríkisins. Ekki leið á löngu þar til stuðnings- menn Bush komu fram í fjölmiðlum og sökuðu Gore um ósannsögli. Varaforsetinn hefði vissulega heim- sótt hættusvæðin, en ekki í fylgd með Witt, heldur aðstoðarmanni hans. Gore neyddist til að biðjast af- sökunar á þessari „ónákvæmni“og gaf þá skýringu að hann hefði svo oft farið í slíkar vettvangsheimsókn- ir með Witt að sig hefði misminnt. Repúblikanar hafa heldur ekki þreyst á að gagnrýna Gore fyrir dæmisögu sem hann sagði í kapp- ræðunum af fimmtán ára stúlku í Sarasota í Flórída, sem neyddist til að standa í kennslutímum vegna húsnæðisskorts skólans. í ljós kom að stúlkan hafði aðeins þurft að standa í einn dag. Gore sakaði repúblikana á móti um ósanngjarnan rógburð, og vísaði til handskrifaðs bréfs sem faðir stúlkunnar hefði ritað sér. Hann lagði áherslu á að þó stúlkan hefði síðar fengið stól og borð „breytti það ekki þeirri staðreynd að það vora 36 nemendur í skólastofu sem var hönnuð fyrir 24“. Reyndar hefur George W. Bush einnig gerst sekur um að fara með alvarlegar staðreyndavillur í kapp- ræðunum, meðal annars varðandi dauðarefsingar, utanríkismál og jafnvel sína eigin stjómun í Texas, en það hefur þó einhverra hluta vegna ekki vakið nærri því jafn mikla athygli fjölmiðla. Gore berst við
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.