Morgunblaðið - 18.10.2000, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 18.10.2000, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2000 23 VIÐSKIPTI Fundur greiningardeildar Kaupþings um þróun og horfur í verslun og þjónustu Fækkun verslana og aukin hagræðing GREININGARDEILD Kaupþings hélt í gær fund um þróun og horfur í verslun og þjónustu. Frummælend- ur voru Jón Asgeir Jóhannesson, for- stjóri Baugs, Sigmundur Ófeigsson, framkvæmdastjóri Matbæjar, sem er hlutafélag um það sem áður kall- aðist matvöruverslanir KEA, Gunn- ar Hilmarsson, kaupmaður í GK, og Bogi Þór Siguroddsson, forstjóri Húsasmiðjunnar. Jón Ásgeir ræddi um hvert stefnir í íslenskri verslun og sagði hann að umhverflð hafi breyst mikið á síð- ustu árum. Fyrirtækin hafi verið að stækka en þrátt fyrir það hafi eign- arhald dreifst því áður hafi verslanir aðallega verið fjölskyldufyrirtæki. Hann sagði að nú væru í raun fimm til sex stórir aðilar á þessum mark- aði, og að hagræðing hafi aukist, vöruverð lækkað og taldi hann einnig að þess sæjust merki að minna væri nú keypt erlendis en áður hafi verið. Aukin hagræðing framundan Eftir 4 ár sagðist hann sjá fyrir sér að á markaðnum yrðu þrír til fjórir aðilar og að með því muni nást stór- aukin hagræðing og lágt vöruverð. Einn mikilvægasti þátturinn í því að ná árangri sagði hann vera að hafa hagkvæmt skipulag varðandi aðföng og tók sem dæmi að Baugur notaði sama fjölda vörubíla og fyrir þremur árum þrátt fyrir aukin umsvif. Þá flytji Baugur mikið inn sjálfur til að ná niður milliliðakostnaði. Jón As- geir sagðist telja að sú einfalda upp- bygging sem sé í fyrirtækinu sé nokkuð sem geti nýst í aukinni sókn á erlenda markaði, en hann sagðist STJÓRN kauphallarinnar í Ósló samþykkti í gær samning um aðild kauphallarinnar að NOREX-sam- starfinu. Samningurinn, sem þarf endanlegt samþykki kauphallar- ráðsins í Ósló, er lokahnykkurinn í samningaviðræðum Norðmanna um að verða fullgildur aðili að sam- starfi norrænu kauphallanna. Þeg- ar Norðmenn taka sameiginlega viðskiptakerfið í notkun eftir rúmt ár verður jafn auðvelt fyrir íslenska fjárfesta að kaupa hluti í norskum félögum og það verður innan fárra daga að kaupa dönsk og sænsk verðbréf. I tilkynningu frá kaup- höllinni í Ósló kemur fram að þátt- takan í NOREX komi í veg fyrir að kauphöllin einangrist í harðri sam- keppni við alþjóðlega verðbréfa- markaði sem fari sífellt stækkandi. Með þátttökunni verði kauphöllin hluti af sterkum svæðisbundnum markaði. Stjórn kauphallarinnar telur að með samstarfinu fái norsk verðbréf meiri athygli sem muni skila sér í meiri seljanleika og betri verðmyndun bréfanna. Verðbréfaþing Islands fagnar telja að fyrirtækið yrði fljótlega búið að ná þeirri stærð hér á landi sem hagkvæmt væri og þá muni frekar borga sig að auka umsvifin erlendis en hér á landi. Þá sagði Jón Ásgeir að vöxtur net- verslunar yrði minni en áður hafi verið gert ráð fyrir, en áætlanir hafi reiknað með því að 10-15% allrar verslunar yrðu á Netinu á næsta ári. Hann sagði þó að Netið yrði miki]- vægt fyrir verslun, meðal annars til markaðssetningar. Ólíkir neytendur á landsbyggð- inni og höfuðborgarsvæðinu Sigmundur ræddi um sérstöðu landsbyggðarverslunar og sagði að mörgu leyti ólíkt að stunda verslun- arrekstur á landsbyggðinni en á höf- uðborgarsvæðinu. Fyrir utan þá staðreynd að markaðurinn er minni og fjarlægð frá birgjum meiri, sagði hann að neytendur á landsbyggðinni gerðu á ýmsan hátt ólíkar kröfur til verslunar en neytendur höfuðborg- arsvæðisins. Matarvenjur séu ólíkar, fólk eigi almennt frystikistur á landsbyggðinni og vilji eiga þar í heila skrokka, en pasta seljist aftur á móti lítið miðað við það sem gerist á höfuðborgarsvæðinu. Neytendur séu einnig kröfuharðari og stafi það lík- þessari niðurstöðu sem beðið hefur verið eftir síðan Norðmenn skrif- uðu undir viljayfirlýsingu um aðild í nóvember 1999. „Áðdragandinn að fullri aðild kauphallarinnar í Ósló hefur verið langur en nú er málið í höfn. Norðmenn eru með frekar nýtt, mjög öflugt viðskiptakerfi á sínum markaði og þess vegna munu þeir ekki tengjast SAXESS-kerfinu fyrr en að ári liðnu. NOREX-mark- aðurinn er nú um 80% af norrænum hlutabréfamarkaði. í Ijósi þessara tíðinda vonum við að Finnar taki við sér og gangi til liðs við NOREX,“ segir Finnur Sveinbjörnsson, fram- kvæmdastjóri Verðbréfaþings ís- lands í fréttatilkynningu. -------------- Leiðrétt tafla SÍÐASTLIÐINN laugardag birtist tafla með umfjöllun um sameiningu banka, svipuð þeirri sem hér fylgir. I henni voru rangar tölur og er hún því birt aftur leiðrétt. Beðist er velvirð- ingar á þessum mistökum. lega af nálægðinni og þeirri hefð að í versluninni á staðnum eigi allt að fást. Hann sagðist telja að vægi Reykjavíkursvæðisins ætti enn eftir að aukast og að til að geta rekið verslanir á landsbyggðinni þurfi menn einnig að reka verslanir í Reykjavík. Netið sagði hann vænt- anlega verða landsbyggðinni mikil- vægara en nú er og að íbúar minnstu samfélaganna muni jafnvel í framtíð- inni stunda alla sína verslun í gegn- um Netið. Gunnar Hilmarsson ræddi um út- flutningsmöguleika sérvöru og lýsti reynslu GK af markaðssókn erlend- is. Sagði hann fataframleiðslu fyrir- tækisins nú vera selda í yfir 100 verslunum á Norðurlöndum. í fram- tíðinni muni fyrirtækið sækja inn á evrópska markaðinn en þar séu enn meiri kröfur gerðar en á Norður- löndum og því sé nauðsynlegt að hafa góða reynslu áður en sótt sé þangað. Gunnar sagði að sókn á erlenda markaði sé býsna erfið, þar séu mikl- ar kröfur gerðar og erfitt að keppa þar við þá bestu. Bogi Þór Siguroddason fjallaði um hvort verslunar- og þjónustufyrir- tæki séu góð fjárfesting og sagðist hann telja að það væru tvímælalaust vaxtarmöguleikar i verslun. Þá sagði Bogi Þór að Húsasmiðjan reyndi að fylgjast vel með því sem gerist eriendis, sérstaklega í Banda- ríkjunum, og sagði hann fyrirtækið læra mikið af því. En reynsla fyrir- tækisins af því að veita afar ólíkum kúnnum þjónustu, þ.e. allt frá ein- staklingum upp í stóra verktaka, geti einnig verið verðmæt erlendis og að þá þekkingu sé hugsanlegt að flytja út með einhverjum hætti. KEA selur stóran hlut í Efna- verksmiðj- unni Sjöfn SAMKVÆMT heimildum Morgunblaðsins hefur Baldur Guðnason, sem verið hefur framkvæmdastjóri hjá Sam- skipum í Þýskalandi, keypt stóran hluta í Efnaverksmiðj; unni Sjöfn hf. á Akureyri. í framhaldi kaupanna mun Bald- ur taka við starfi framkvæmda- stjóra hjá Sjöfn. Sjöfn er dótturfélag Kaupfé- lags Eyfirðinga svf., KEA, og hóf fyrirtækið starfsemi árið 1932 með sápugerð. í dag fram- leiðir það margs konar hrein- lætisvörur, framleiðir og flytur inn málningu, framleiðir gólf- efni auk þess sem það rekur verslanir undir nafninu Litaríki á nokkrum stöðum á landinu. deCODE lækk- ar enn DECODE Genetics, móðurfyrirtæki Islenskrar erfðagreiningar, hélt áfram að lækka á hlutabréfamarkaði í gær. í fyrradag lækkaði gengi þess um 6,55% og fór niður fyrir 20 í fyrsta sinn frá útboði. I gær lækkaði það um 5,73% þegar það fór úr 19,625 niður í 18,5 dali á hlut. Saman- lögð lækkun þessa tvo daga er því 11,90%. Verð félagsins á Nasdaq- markaðnum í gær fór hæst í 20,375 en lægst í 17,75. Miðað við lokagengi í gær var markaðsvirði félagsins 822 milljónir Bandaríkjadala eða 70 milljarðar ís- lenskra króna. Bankarnir í samanburði Helstu tölur úr sex mánaða §[, ($\ ~~ flui. uppgjorum Danxanna Landsbanki- Búnaðarbanki ^ lull íslandsbanki - FBA Hlutafé 9.888.179.000 Gengi 17.10.00 4,85 Markaðsvirði 48.939.370.900 47.957.668.150 Heildareignir 344.925.751.000 269.370.289.000 Heildarútlán 250.292.792.000 199.739.513.000 Eigið fé 19.010.230.000 16.810.542.000 Vikjandi lán 8.232.026.000 4.779.924.000 Samtals 27.242.256.000 21.590.466.000 Hreinar vaxtatekjur 4.839.422.000 3.549.276.000 % af heildarútlánum 1,93% 1,78% Á ársgrundvelli 3,90% 3,59% Vaxtamunur na 2,70% Hreinar rekstrartekjur 7.427.303.000 6.101.597.000 % af heildareignum 2,15% 2,27% Önnur rekstrargjöld 5.530.988.000 3.358.173.000 % af hreinum rekstrartekjum 74.47% 55,04% Gengishagnaður/ -tap* -63.974.000 -181.898.000 % af hreinum rekstrartekjum -0,86% -2,98% % af hagnaði fyrir skatt -5,74% -17,58% Hagnaður fyrir skatt* 1.115.107.000 1.034.689.000 % af heildareignum (p.a.) 0,65% 0,77% % af eigin fé (p.a.) 12,08% 12,69% % af markaðsvirði 2,3% 2,2% Hagnaður eftir skatt* 842.018.000 749.789.000 Eiginfjárhlutfall 5,51% 6,24% CAD hlutfall na 9,40% Arðsemi eigin fjár f.sk.pa 12,08% 12,69% Arðsemi eigin fjár e.sk.pa 9,05% 9,12% Markaðsvirði/Heildareignir 14,26% 17,82% Afskriftarreikningar Framlaq á árinu 781.208.000 544.766.000 % af heildarútlánum 0,31% 0,27% Afskriftarreikn. samtals 5.011.000.000 4.288.000.000 Heildarútlán 250.292.792.000 199.739.513.000 Hlutfall af heildarútlánum 2,00% 2,15% Fjöldi útibúa 88 31 í Reykjavík 34 20 önnur 54 11 Fjöldi starfsmanna 1.805 1.093 Hagn./starfsmann f. skatt 466.492 685.992 *Ath. að Íslandsbanki-FBA gjaldfærði sérstaklega allt tap af markaðsskuldabréfum hvort sem þau voru (fjárfestinga- eða veltubók undir lið sem heitir matsverðbreyting á markaðsskuldabréfum. N orex-kauphallarsamstarfíð Norðmenn sam- þykkja aðild Movinord veggjakerfið býður fjölda möguleika í lausnum og litum. Stóraukin notkun fýrirtækja á færanlegum, endurnýtanlegum veggjum staðfestir hagkvæmnina. Verkver býður einnig fjölda lausna í kerfisloftum, steinullar- eða gipsplötuloft og ál- og stálloft. r K E R F I S V E G G I R 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.