Morgunblaðið - 18.10.2000, Side 8
8 MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fundur ráðherra með sérfrœðingum um innflutning á fósturvísum úr norskum kn -
Tllraunakýr "
koma tíl greina, segir landbúnaðarráðherra - merkileg samanburðarrannsókn. Baksíða
Uss, þetta er bara bévuð gála, Búkolla mín, hún er farin að sýna honum tútturnar.
Nýtt félag stofnað í Skagafírði
Verkalýðsfélögin Aldan
og Fram sameinast
Á AÐALFUNDUM Verkakvennafé-
lagsins Öldunnar og Verkalýðsfé-
lagsins Fram í síðustu viku var sam-
þykkt að sameina þessi tvö
verkalýðsfélög og stofna nýtt.
F orsagan er sú að á síðasta ári var
samþykkt að gera skoðanakönnun
meðal félagsmanna félaganna um
sameiningu. Niðurstaðan varð sú að
85% félagsmanna töldu að það ætti
að sameina félögin. í kjölfarið var
skipað í sameiningarnefnd sem vann
tillögur að lögum og reglugerðum
ásamt öðru því sem þessu ferli fylgir
og rekur samþykkt aðalfundanna
endahnútinn á þetta sameiningar-
ferli.
Stjórnir félaganna héldu sameig-
inlegan fund hinn 16. október þar
sem að farið var yfir vinnu samein-
ingarnefndar og þar var samþykkt
að halda stofnfund hinn 2. desember
nk.
Ennfremur var ákveðið að hvort
félag skyldi skipa tvo úr sínum röð-
um til að stilla upp til stjómar en á
stofnfundi verður kosin ný stjóm.
Fræðsluþing fyrir almenning
Uppeldi á kristn-
um grunni
IDAG klukkan 17
verður haldið
fræðsluþing á vegum
Biblíuskólans við Holta-
veg og Miðbæjarstarfs
KFUM/K, þingið er haldið
í húsakynnum KFUM/K
við Holtaveg. Séra Jóna
Hrönn Bolladóttir hefur
haft umsjón með undir-
búningi þingsins.
„Markmiðið með þessu
fræðsluþingi er að bjóða
foreldrum og öðrum sem
starfa við uppeldi barna
upp á fræðslu um uppeldi
byggt á kristnum gmnni.“
-Hvað verður á dag-
skrá þingsins?
„Fræðsluþingið hefst
með fyrirlestri sem heitir
„Geta foreldrar alið börn
upp til að lifa sem
sm
kristnir einstaklingar 1
okkar samfélagi?" Það era hjónin
Elín Einarsdóttir námsráðgjafi
og Guðmundur Ingi Leifsson
skólastjóri sem ætla að takast á
við þessa spurningu. Þau ætla að
skoða uppeldisaðstæður barna og
koma einnig inn á trúarþroska
þeirra í fyrirlestri sínum. Ragn-
heiður Ýr Grétarsdóttir sjúkra-
þjálfari mun tala um mál- og
hreyfiþroska barna og hvernig
hægt er að örva hvort tveggja. Þá
verður fluttur fyrirlestur um
trúarþroska barna, það er Guðný
Hallgrímsdóttir, prestur fatl-
aðra, sem glímir við spurningarn-
ar; hvernig biðjum við með barn-
inu, hvenær biðjum við með
barninu og hvað biðjum við með
barninu? Einnig ætlar hún að
velta upp spurningunni: Hvernig
get ég kennt barninu mínu að
trúa ef ég trúi ekki sjálf? Ég mun
flytja þarna fyrirlestur um einelti
á börnum og ætla þar að fara yfir
grandvallarspurningar um ein-
elti; hvað er einelti, hverjir verða
fyrir einelti og hver era einkenni
eineltis? Það sem ég ætla að
leggja mesta áherslu á er hvernig
kristin trú getur uppörvað og
huggað þá sem verða fyrir einelti.
Síðasti fyrirlesturinn fjallar um
aga skólabarna, það er Karl Sæv-
ar Benediktsson sérkennari sem
flytur hann. Hann fæst m.a. við
spurningarnar: Til hvers er ag-
inn, hvernig verður agi til og
hvernig erfist aginn?“
- Verður þú mikið vör við ein-
elti í þínu starfí sem Miðbæjar-
prestur?
„Já, einelti er alltof algengur
og sár veruleiki í okkar samfé-
lagi. Á vegum Miðbæjarstarfsins
starfar félag sem heitir Gleym
mér ei, sem er sjálfsstyrkingarfé-
lag fyrir unglinga. Ég hef talað
mikið við unglingana í þessu fé-
lagi og í því sambandi hef ég átt-
að mig á hvað svona stöðug og
neikvæð skilaboð geta brotið
sjálfsmynd manneskjunnar nið-
ur. Því fór ég að skoða Biblíuna
með það að markmiði að finna þar
boðskap sem getur styrkt sjálfs-
mynd þeirra sem orðið hafa fyrir
einelti." ________
- Er margvíslegur
boðskapur í Biblíunni
sem hughreystir sér-
staklega þá sem sótt er
að?
„Já, strax á fyrstu
síðum Biblíunnar er
talað um að maðurinn
sé skapaður í Guðs mynd og þess
vegna séu manneskjur dýrmætar
og ómetanlegar. Þetta þýðir á
vissan hátt að ef maður er lagður
í einelti þá er Kristur lagður í ein-
elti á sama tíma.“
- Er eitthvnð í orðum Jesú
Krists sem beinlínis vísar til
Jóna Hrönn Bolladóttir
► Jóna Hrönn Bolladóttir fædd-
ist í Hrísey 1964. Hún lauk stúd-
entsprófi frá Menntaskólanum á
Akureyri 1985 og guðfræðiprófi
1990. Hún vígðist sem prestur til
Vestmannaeyja en er nú Miðbæj-
arprestur í Reykjavík. Hún er
gift Bjarna Karlssyni, sóknar-
presti í Laugarneskirkju, og eiga
þau þrjú börn.
Við skírnina
er lögð sú
ábyrgð á fjöl-
skylduna að
ala barnið upp
i kristinni trú
huggunar þeirra sem orðið hafa
fyrir einelti í samfélagi sínu?
„Kristur er Guð nálægðarinnar
og hann var tilbúinn að brjóta
reglur samfélagsins til þess að
veita manneskju stuðning. Hann
var líka tilbúinn að standa gegn
hópnum til þess að styðja við ein-
staklinginn. I Nýja testamentinu
er mjög athyglisvert hvað Krist-
ur tekur sér oft þá stöðu að
standa við hlið ofsóttra gegn
reglum samfélagsins og hinna fé-
lagslega sterku. Sjálfri finnst
mér að píslarsaga Krists sé ein-
hver þekktasta eineltissaga sem
til er. Þar kemur fram bæði and-
legt og líkamlegt ofbeldi og í
þeirri frásögn er hópurinn þving-
aður til samstöðu gegn einum.
Þar gerist það sem algengt er í
einelti að fólk hættir að hugsa,
verður kvíðið og fylgir hópnum
gegn sannfæringu sinni. Sterk-
asta myndin og sú sem vekur
mesta athygli er frásögnin af því
þegar kvöl Krists er mest; þá bið-
ur hann fyrir óvini sínum. Ég
ætla í erindi mínu að tala um mik-
ilvægi fyrirgefningarinnar en
minna fólk á hversu þýðingar-
mikið er að fá tíma til að græða
sárin, fá uppörvun og eignast svo
fyrirgefningu í hjarta sínu.“
- Er rétt affólki, sjálfsvirðing-
arinnar vegna, að fyrirgefa mis-
kunnarlausar mótgerðir, svo sem
ofbeldi á börnum?
„Það sem Kristur gerði er
ógjörlegt fyrir venjulegar mann-
eskjur. Lokapunktur á sorgai'-
ferli þarf að vera sálarfriður. Til
að skapa hann verður fólk að fá
að vera í umhyggjusömu um-
hverfi og kærleiksríku, þar sem
það getur fengið ráð-
rúm til þess að fá að
vinna úr neikvæðum
tilfinningum. Þegar lít-
ið barn er lagt í faðm
okkar er okkur falið
vandasamt hlutverk;
að annast það af um-
““111 hyggju og kærleika.
Við skírnina er sú ábyrgð lögð á
fjölskylduna að ala barnið upp í
kristinni trú. Þetta fræðsluþing
er viðleitni Biblíuskólans og Mið-
bæjarstarfsins til þess að styðja
við mikilvægt hlutverk foreldra
og annarra þeirra sem annast
börn.“