Morgunblaðið - 18.10.2000, Page 16
16 MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2000
MORGUNB LAÐIÐ
FRÉTTIR
Ljósaviðburður á útilistahátíð í Borgarholtshverfí í Grafarvogi í byrjun nóvember
Samstarfsverkefni
þriggja norrænna
menningarborga
ÐAGANA 3.-6. nóv-
ember verður haldin
útilistahátíð, sem ber
nafnið Ljósin í
norðri. Hátíðin er á
dagskrá Reykjavíkur-
menningarborgar og
er samstarfsverkefni
norrænu menningar-
borganna. Þáttur í
hátíðinni er ljósavið-
burður sem haldinn
verður í Borgarholts-
hverfi í Grafarvogi og
er á vegum norsks
fyrirtækis, Bergen og
Ómegn Boligbygge-
lag (BOB).
Robert Rastad, sem er upplýs-
ingafulltrúi hjá BOB, var hér á
landi um helgina og átti þá m.a.
fundi með fulltrúum Norræna
hússins vegna verkefnisins. Hann
sagði í samtali við Morgunblaðið
að BOB hefði fyrir um tveimur
árum komið að máli við undirbún-
ingsnefnd menningarborgarverk-
efnisins í Bergen og borið það
undir hana hvort ekki væri
spennandi að standa fyrir ljósa-
hátíð í einhverju úthverfa borgar-
innar í tengslum við menningar-
borgarárið.
Kom þá upp úr
dúrnum að Helsinki
var að undirbúa sam-
bærilegt verkefni.
Samráð við íbúana
BOB er svokallað
byggingasamfélag.
Fyrirtækið kaupir
jarðir og byggir á
þeim íbúðarhverfi og
selur síðan íbúðir til
meðlima sinna á
kostnaðarverði. Jafn-
framt sér BOB síðan
um að reka ýmsa
sameiginlega aðstöðu
í byggðakjörnunum,
auk þess sem það stendur fyrir
menningaruppákomum í úthverf-
unum. Er samstarf fyrirtækisins
við menningarborgarnefndina í
Bergen komið til af áhuga fyrir-
tækisins á því að skapa samfé-
lagslega samkennd í úthverfun-
um.
Ljósahátíðin sem íbúum
Reykjavíkur og Helsinki mun gef-
ast kostur á að njóta verður eins
konar smækkuð mynd af þeirri
sem sett verður upp í Bergen
enda eru það Norðmennirnir sem
stýra verkefninu. BOB sendir
bæði tæknimann og hönnuð hing-
að til Reykjavíkur í tengslum við
ljósasýninguna en Reykjavík ríð-
ur einmitt á vaðið, hátíðin verður
haldin hér 4. nóvember, þann
átjánda í Helsinki og þann þrí-
tugasta í Bergen en þar í borg
markar hún upphaf lokaviku
menningarborgarársins.
Rastad segir að sýningin fari
þannig fram að ljósi verði varpað
upp á veggi húsabygginga með
það að markmiði að sýna íbúunum
nýjar hliðar á hverfinu sínu, í
þessu tilfelli íbúum Borgarholts-
hverfis í Grafarvogi.
„Við vildum nota húsin sem
eins konar leiksvið. Það er því
ekki aðeins um það að ræða að
við vörpum ljósi upp á húsveggina
heldur reynum við að tryggja
þátttöku alls hverfisins," segir
Rastad. Þetta geti m.a. gerst með
því að ljósi verði varpað til baka
ofan af þaki húsanna eða svölum
íbúða. Segir hann að ennfremur
verði reynt að tryggja þátttöku
barna og unglinga, búa til
stemmningu og gera úr þessu
hina bestu skemmtan.
„Þema hátíðarinnar á að vera
dulúð, við notumst við ýmis atriði
úr goðafræðinni og tvinnum síðan
Robert Rastad
MHr y&m i§y; Tmsy
1§ • v' •
•í' fc * ! !| f'! 1
ÍtujÍttfÍ A Hí 10 Bl É ji’i: 1®
IH.III BTjlíl H
Gömlu bryggjuhúsin í Bergen.
saman tónlist og ljós. Þannig
tekst okkur vonandi að búa til al-
veg sérstaka stemmningu.“
Birtu hleypt inn í líf fólks
í skammdeginu
„Það skiptir ekki síst máli að
við gerum þetta á þeim árstíma
þegar dimmt er um að litast í
þessum norrænu löndum,“ segir
Rastad. „Þannig er hugmyndin að
gera ljósahátíðina sem áhrifa-
mesta og hleypa birtu og hlýju
inn í líf fólks einmitt þegar það á
helst við, ef svo má að orði kom-
ast.“
Rastad segir ætlunina að
standa fyrir viðburði sem höfði til
allra. Menningin og menningar-
borgarárið eigi ekki aðeins að
vera fyrir menningarelítuna held-
ur einnig venjulegt fólk í úthverf-
unum. Það sé ekki svo flókið mál
að lýsa upp glæstar byggingar
miðborganna með góðum árangri
en hitt sé mun meira spennandi,
að standa fyrir viðburði sem þess-
um í úthverfum stórborganna.
Jarðgöng úr botni
Isafjarðar í Skálmar-
dal og Fjarðartiorns-
dal, sitt hvoru megin
Klettsháls
Steingrimsfjaróar-
■ heiði JW J
JDynjandis-
heiSi
Hólmavík]
Amkötlu-
dalur—/
Þverun Gufufjarðar,
Djúpafjarðar og
Þorskafjarðar
- Jarðgöng undir Eyrarfjall
milli Mjóafjarðar
og Isafjarðar
Samgöngubætur á Vestfjörðum
Könnun gerð
á hagkvæmni
jarðganga
GUÐJÓN A. Kristjánsson, þing-
maður Frjálslynda flokksins, vill
láta kanna hagkvæmni þess að
samgöngur verði bættar á Vest-
fjörðum. Hefur hann lagt fram
tillögu þess efnis á Alþingi eins
og greint hefur verið frá í Morg-
unblaðinu. í meginefni tillögunn-
ar segir: „Alþingi ályktar að fela
samgönguráðherra að láta kanna
hagkvæmni þess að gera jarð-
göng úr botni ísafjarðar, innst í
Isafjarðardjúpi, undir Kolla-
fjarðarheiði. Að sunnanverðu, á
Barðaströnd, yrðu þau tveggja
arma og kæmu annars vegar út í
Skálmardal, sem gengur inn úr
Skálmarfirði, og hins vegar í
Fjarðarhornsdal, innst í Kolla-
firði. Einnig verði könnuð hag-
kvæmni þess að gera jarðgöng
undir Eyrarfjall, sem gengju úr
Mjóafrrði í ísafjarðardjúpi yfir í
ísafjarðarbotn, og þvera Þorska-
fjörð, Djúpafjörð og Gufufjörð á
Barðaströnd." Sjá má tillögur
Guðjóns á meðfylgjandi korti.
Er í greinargerð tillögunnar
lagt til að borin verði saman hag-
kvæmni þess að bæta samgöngur
innan svæðisins með framkvæmd
ofangreindra tillagna annars
vegar og með því að fylgja nú-
verandi vegáætlun hins vegar, en
þar er ekki gert ráð fyrir jarð-
göngum á þessum slóðum.
Bilainnflytjandi sýknaður
BÍLAINNFLYTJANDI sem sak-
aður var um að hafa gefið upp
rangt kaupverð á 27 bifreiðum, að-
allega fólksbílum af gerðinni
Mercedes Benz, var á föstudag
sýknaður í héraðsdómi Reykjavík-
ur.
Maðurinn var ákærður fyrir að
hafa við tollafgreiðslu hjá sýslu-
manninum í Hafnarfirði og hjá Toll-
stjóranum í Reykjavík notað ranga
vörureikninga og kaupsamninga á
notuðum bifreiðum sem hann keypti
í Þýskalandi frá 1. nóvember 1995
til 1. júní 1996. Hann var sakaður
um að hafa gefið upp lægra kaup-
verð en hann hafði í raun greitt fyr-
ir bifreiðamar og þannig komið sér
hjá að greiða stóran hluta af að-
flutningsgjöldum bifreiðanna. Hinn
ákærði neitaði öllum sakargiftum.
Lögreglumenn sendir
til Þýskalands
Rannsókn lögreglunnar var viða-
mikil en tveir lögreglumenn voru
m.a. sendir til Þýskalands til gagna-
öflunar og yfirheyrslna. Forræði
rannsóknarinnar var í höndum
þýskra tollayfirvalda og þýskir
rannsóknarmenn önnuðust yfir-
heyrslumar en íslensku lögreglu-
mennirnir voru viðstaddir og gátu
komið að spurningum.
I dómsgögnum kemur íram að
tveir reikningar hafa verið til fyrir
hver bifreiðakaup. f bókhaldi þeirra
aðila í Þýskalandi sem seldu hinum
ákærða bifreiðamar er kaupverð
gefið upp hærra en það sem hinn
ákærði gaf upp á íslandi og var á
reikningum sem hann framvísaði
hér. Héraðsdómur gerir ýmsar at-
hugasemdir við rannsókn málsins
og kemst að þeirri niðurstöðu að
ákæmvaldið hafi ekki sýnt fram á
með nægilega afgerandi hætti að
hinn ákærði hafi gefið upp rangt
kaupverð á bifreiðunum eða fram-
vísað röngum kaupsamningum.
Dæmt var fyrir hvert tilvik fyrir sig
og þvi byggðist niðurstaða hérað-
sdóms á mismunandi forsendum.
Tveir reikningar
Hér er niðurstaða dómsins varð-
andi innflutning á Mercedes Benz
bifreið en mörg áþekk dæmi er að
finna í dómnum:
„Við tollafgreiðslu bifreiðarinnar
xx-xxx framvísaði ákærði kaup-
samningi, dagsettum 26.7. 1996, í
Hamborg þar sem kaupverð bifreið-
arinnar er sagt 14.800 DM. Seljandi
sagður Unterberger Dental GMBH
og kaupandi Þýskir bílar ehf. Samn-
ingurinn er undirritaður af seljanda
og kaupanda báðum. Þá hggur
einnig fyrir reikningur dagsettur
sama dag í Hamborg. Reikningur-
inn er á bréfhaus GTG og er stílað-
ur á Þýska bíla ehf. Reikningurinn
er að fjárhæð 26.000 DM. Akærði
bar fyrir lögreglu og fyrir dómi að
hann hefði keypt bifreiðina af Willi
R. Wozny og greitt fyrir hana
14.800 DM. Hefði hann séð um alla
skjalagerð vegna kaupanna.
í skýrslu sem tekin var af Thom-
as Kirchhoff í Hamborg 30.3. 1999,
framkvæmdastjóra GTG, kvað hann
Willi R. Wozny, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra GTG, hafa selt um-
rædda bifreið Þýskum bílum ehf. á
26.000 DM. Kannaðist hann ekki við
kaupsamning lægra verðs og kvað
hann ekki gerðan af sér.
í málinu liggur fyrir reikningur
Þýskra bíla ehf. á X, dagsettur 12.8.
1996. Er kaupverð tilgreint í reikn-
ingnum sem 662.744 krónur og hef-
ur hann staðfest það með yfirlýs-
ingu sem frammi liggur í málinu.
Niðurstaða:
Kaupsamningur sá sem ákærði
framvísaði við tollafgreiðslu bifreið-
arinnar er undirritaður af kaupanda
og seljanda. Ákærði bar að hann
hefði keypt bifreiðina af Willi R-
Wozny á 14.800 DM og hefði hann
séð um gerð allra skjala. Willi R-
Wozny, sem var um tíma fram-
kvæmdastjóri bílasölunnar GTG í
Hamborg, hefur ekki verið yfir-
heyrður um þessi viðskipti. Sam-
kvæmt því sem hér hefur verið rak-
ið er ósannað að ákærði hafi
framvísað röngum gögnum við inn-
flutning bifreiðarinnar svo sem hon-
um er gefið að sök í ákærulið þess-
um. Ber því að sýkna hann af þeim
sakargiftum."
Bílainnflytjandinn neitaði ávallt
sakargiftum og var sýknaður af öll-
um ákæruatriðum og ríkissjóði gert
að greiða málsvarnarlaun verjanda
hans, samtals 470.000 krónur.
Umferðarátak á landsbyggðinm
LÖGREGLUSTJÓRAR á Vestur-
landi, Vestfjörðum, Norðurlandi,
Austurlandi og Suðurlandi munu
standa fyrir umferðarátaki föstu-
daginn 20. október nk. Aukið lið
lögreglu verður við eftirlit þennan
dag. Lögreglan mun auk þess ræða
við ökumenn og fá sjónarmið þeirra
fram.
í fréttatilkynningu frá lögreglu-
stjórunum segir að lögreglan líti
ekki svo á að lögregla og ökumenn
séu í andstæðum fylkingum, heldur
í sama liði með það að markmiði að
tryggja öryggi allra vegfaranda.
í fréttatilkynningunni segir að
lögreglan vonist eftir því að al-
menningur taki þátt í þessu um-
ferðarátaki, þannig að það skili sér í
enn einum slysalausum degi á
landsbyggðinni. Það sé enda
tilgangur umferðarlöggæslu og
átaks af þessu tagi að fólk taki þátt
og fari eftir þeim umferðarreglum
sem eru í gildi. Sigurður Gunnars-
son, sýslumaður í Vík í Mýrdal, seg-
ir að umferðarátakið sé í framhaldi
af slysalausum degi í Reykjavík og
umferðarátaki á Reykjanesbraut.
Dómsmálaráðherra og ríkislög-
reglustjóri hafi hvatt til þess að lög-
reglustjórar á landsbyggðinni héldu
svipuð umferðarátök.