Morgunblaðið - 18.10.2000, Page 26
26 MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Uppnám í efnahags- og fjármálalífi Filippseyja vegna spillingarásakana á hendur forsetanum
AUSTURSTRÆTI 17,4. 101 REYKJAVtK • SLMl 56 20 400 • FU 562 6SM
Útnefnd 1 alþjdOasnrntiíkm
EXCELLIíNCE IN TRAVEL NETWORK
fyrir frábœrar ferðir
FERÐASKRIFSTOFAN
PRIMAy
HEIMSKLÚBBUR INGÓLFS
Óeirðir í Zimbabwe
YFIRVÖLD í Zimbabwe beittu í
gær hersveitum til að kveða niður
tveggja daga öeirðir í úthverfum
Harare, höfuðborgar landsins.
fbúar borgarinnar höfðu þá komið
upp vegartálum, grýtt lög-
reglumenn og kveikt í strætis-
vögnum til að mótmæla stefnu
Roberts Mugabes forseta og hækk-
andi verðlagi á mat og fleiri nauð-
sypjum.
Gríðarlegt atvinnuleysi er í land-
inu og efnahagurinn mjög slæmur.
Skólabörn í einu úthverfa Har-
are dansa hér t kringum hjólbarða
eftir að hafa kveikt í honum.
Hart lagt að
Estrada að
segja af sér
Manila. AP, AFP, Reuters.
STJÓRNARANDSTAÐAN á
Filippseyjum ætlar að leggja fram í
dag tillögu á þingi um að Joseph
Estrada, forseti landsins, verði
sviptur embætti fyrir að hafa þegið
mútur frá ólöglegum veðmálafyrir-
tækjum. Alþjóðabankinn sagði í gær,
að þetta mál gæti haft mjög alvarleg-
ar afleiðingar fyrir efnahagslífið í
landinu og Corazon Aquino, fyrrver-
andi forseti Filippseyja, skoraði á
Estrada að segja af sér nú þegar.
Talsmaður stjórnarandstöðunnar
sagði í gær, að vissulega yrði á bratt-
ann að sækja fyrir hana í þinginu en
tillagan hefði ekki síst þann tilgang
að sýna fram á spillingu forsetans.
Hugsanlegt er, að tillagan verði til
umfjöllunar i þinginu í nokkra mán-
uði.
Varað við
spillingu
Vinay Bhargava, talsmaður Al-
þjóðabankans í Suðaustur-Asíu,
sagði í gær, að mútuhneykslið væri
mjög alvarlegt mál og gæti haft
slæm áhrif á efnahagslífið. Sagði
hann, að á Filippseyjum væri lýð-
ræðislegt stjómkerfi og réttarkerfi,
sem ætti að geta skorið úr þessu máli
á skömmum tíma enda þyldi það
enga bið. Minnti hann á, að Alþjóða-
bankinn væri sífellt að vara aðildar-
ríki sín við „efnahagslegum og fé-
lagslegum afleiðingum spillingar".
Þetta mál hefur nú þegar sett fjár-
málamarkaðinn á Filippseyjum á
annan endann. Gengi pesósins hefur
sjaldan verið lægra og verðfall hefur
orðið á hlutabréfum. Seðlabankinn
hefur bmgðist við með því að hækka
vexti og óttast er, að það verði til að
kæfa þann litla hagvöxt, sem í land-
inu er.
Gloria Arroyo, varaforseti Filipps-
eyja, skipaði sér í gær í flokk með
stjórnarandstöðunni gegn Estrada
en hún sagði af sér sem velferðar-
ráðherra þegar ásakanir komu fram
um, að Estrada hefði þegið hundrað
milljóna ísl. kr. í mútur. Hún heldur
hins vegar embætti varaforseta og
tæki við forsetaembættinu yrði
Estrada frá að hverfa.
Corazon Aquino, fyrrverandi for-
seti, sem leiddi byltinguna gegn ein-
ræðisherranum Ferdinand Marcos,
sagði í gær, að Estrada ætti að gera
þjóðinni þann greiða að segja af sér,
að minnsta kosti meðan verið væri að
kanna ásakanirnar gegn honum. Þá
hefur Jaime Sin kardináli ítrekað þá
yfirlýsingu sína, að Estrada verði að
fara frá.
Joseph Estrada er fyrrverandi
kvikmyndaleikari en eftir að hann
var kjörinn forseti 1998 hefur hver
uppákoman rekið aðra. Estrada hef-
ur viðurkennt, að hann hafi á ámm
áður verið mikill drykkjumaður og
fjárhættuspilari en segist nú vera
hættur hvorutveggja. Fyrr á árinu
rak hann þó starfsmannastjóra sinn
en hann hafði þá skýrt frá því, að
Estrada héldi reglulega fylliríssam-
komur að næturlagi með vinum sín-
um þar sem þeir skipuðu málum rík-
isins. Þá hefur yfirmaður filippíska
verðbréfaþingsins sagt frá því, að
Estrada hafi reynt að fá hann til að
sýkna vin hans af allri sök en hann er
flæktur í mesta innherjahneyksli í
landinu fyrr og síðar. Estrada þykir
líka hafa sýnt getuleysi sitt í þeim
átökum, sem verið hafa vegna skæra-
liðahemaðar múslíma í landinu.
Hundruð milljónir
kr. í mútur?
Ekkert þessara mála þykir þó al-
varlegra en spillingarásakanimar en
þær komu fram hjá fyrrverandi vini
Estrada, héraðsstjóranum Luis
Singson. Hann heldur því fram, að
hann hafi sjálfur safnað saman og
greitt Estrada um 730 millj. ísl. kr. í
mútur fyrir að láta ólöglega veð-
málastarfsemi afskiptalausa. Þá hafi
forsetinn einnig fengið nærri 240
millj. kr. af tóbakssköttum héraðs-
ins.
Algengt er, að ólöglegu veðmála-
fyrirtækin beri fé á filippíska stjórn-
Andstæðingar Estrada með mynd af honum í líki guðfoðurins í samnefndri kvikmynd um mafíuna í Banda-
rikjunum. Stuðningsmenn forsetans hafa líka látið í sér heyra á götum úti.
Luis Singson
héraðsstjóri.
málamenn en
þetta er í fyrsta
sinn, ef satt er, að
mútufé sé skipu-
lega safnað fyrir
forsetann. Sing-
son segist hafa
ákveðið að skýra
frá þessu þegar
annar vinur for-
setans, Charlie
Ang, kunnur fjár-
hættuspilari, veitti pólitískum and-
stæðingi Singson einkaleyfi á lögleg-
um veðmálum í héraðinu.
Singson kom fyrir þingið í gær og
þar ítrekaði hann ásakanir sínar.
Sagði hann, að Estrada hefði kallað
hann á sinn fund fyrir nokkram dög-
um og beðið hann að þegja. „Hann
sagði, að það væri hægt að kippa
þessu í liðinn,“ sagði Singson.
Nokkrir þingmenn stjómarmeiri-
hlutans sögðu, að Singson væri ekki
mjög trúverðugur. Upplýstu þeir, að
spilavíti í Las Vegas í Bandaríkjun-
um hefði höfðað mál á hendur honum
vegna skulda en Singson sagði, að
það mál hefði verið látið niður falla.
Aðrir bentu á, að opinber rannsókn
færi fram á embættisfærslu hans þar
sem hann væri granaður um að hafa
misfarið með opinbert fé og enn-
fremur hefði maður í hans þjónustu
verið sakaður um smygl.
ODYRARA EN STUTTFERÐ I EVROPU!
MISSTIRÐU AF SUÐUR-AFRIKU? -
MISSTIRÐU AF RÍO MEÐ HEIMSKLÚBBNUM Á
BESTU KJÖRUM?
Misstu ekki af “Nýjasta smellnum2 bestu
feröalönd ASÍU í einni ferð: Vika í Malasíu á
topphótelum- Kuala Lumpur og Penang +vika
í Tliailandi- Chiang Mai og Rai+ Bangkok —
algjör draumaferð m.fararstj. 19 dagar-
1. brottf. 12.ÍIÓV. Fá sœti 21. jan og 13. maí
12. nóv. - UPPSÉLT.
3 Toppar
Verðfrá 139.900
Pöntunarsími: 56 20 400
Færeyingar
fái að leita til
SÞ og NATO
Þórshöfn. Morgunblaðið.
ENGINN vafi leikur á því að Fær-
eyingar falla undir skilgreining-
una þjóð og hafa því rétt til að leita
sjálfir til Sameinuðu þjóðanna og
Atlantshafsbandalagsins án af-
skipta dönsku stjórnarinnar, að
mati íslensks sérfræðings í þjóða-
rétti, Guðmundar Alfreðssonar.
Þetta kemur fram í greinargerð
sem Guðmundur hefúr sent fær-
eysku landstjóminni. Hpgni
Hoydal, sem fer með sjálfstæðis-
málin í landstjóminni, hafði leitað
til Guðmundar og óskað eftir áliti
hans á því hvort Færeyingar féllu
undir skilgreininguna þjóð.
Niels Helveg Petersen, utanrík-
isráðherra Danmerkur, hafði þá
komið í veg fyrir að færeyska
landstjómin sendi Sameinuðu
þjóðunum fyrirspum um hvaða
skilyrði þyrfti að uppfylla til að
samtökin gætu haft milligöngu í
deilum tveggja þjóða. Petersen
sagði að Færeyingar gætu ekki
leitað til Sameinuðu þjóðanna án
afskipta dönsku stjómarinnar. Ut-
anríkisráðherrann kom einnig í
veg fyrir að Anfinn Kallsberg, lög-
maður Færeyja, gæti rætt við
framkvæmdastjóra Atlantshafs-
bandalagsins um þá kosti sem
sjálfstæðum Færeyjum stæði til
boða varðandi aðild eða tengsl við
bandalagið.
Guðmundur Alfreðsson segir
meðal annars í greinargerð sinni
að danska stjómin hafi í raun við-
urkennt að Færeyingar séu þjóð,
sem njóti sjálfsákvörðunarréttar,
með því að hefja viðræður við þá
um skilmála sjálfstæðis Færeyja.
Þá bendir hann á ýmis sérkenni
Færeyinga, sem hafi sína eigin
þjóðarvitund, sögu, menningu og
tungu.
msm