Morgunblaðið - 18.10.2000, Síða 27
HORPU
TILB
Gæoa inni
Medseðill
Heitreyktur silungur
meö kúskús og kóríanderhunangssósu
Ofhsteiktur teriaki og engiferleginn lambahryggur
meö röstí karfóflum og soösósu
Cappuccinofrauö í súkkulaöiskel
meö kókoskremi
Fyrirtæki og hópar
Kynnið ykkur þjönustuna!
Árshátíðir • Afmæli • Fundir
Ráðstefnur • Tónleikahald
- sniðið að ykkar þörfum.
Nánari upplýsingar í síma 568 0878.
MORGUNB LAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2000 27
ERLENT
Glæsileg
söngskemmtun
og þrírétta kvöldveröur-Verö kr. 4.900
laugardagskvöld 21. okt.
Nánari upplýsingar og borðapantanir í síma 568 0878
Næstu sýningar: 28. okt.- 3. &4. nóv.
fðeinteins
x Pálmi ^ HttlWórSSon
GnnnarSSon SIGGfl og bj'örgvin 3. nóv. Örfá sæti laus!
PÁLMI GUNNARSS0N: 28.okt. SIGGA og BJÖRGVIN 4. nóv.
Leikur Ijúfa tóna
af fingrum fram
fyrir matargesti.
Gestgjafi:
Rósa Ingólfsdóttir.
Café/Restaurant
- á góðri stund
óðýrti
Vönduð íslensk
innimálning á
einstöku tilboðsverði.
Verð á lítra frá
3 9 9 k í'
k Miðað við 10 lítra dósir og ljósa liti.
í verslunum HÖRPU veita reyndir
sérfræðingar þér góða þjónustu og
faglega ráðgjöf við val á hágæða
málningarvörum.
HARPA IWÁLMINGARVERSLUN,
BÆJARLIND 6, KÓPAVOGI.
Sími 544 4411
HARPA IWÁLNINGARVERSLUN,
SKEIFUNNI 4, REYKJAVÍK.
Sími 568 7878
HARPA NIÁLNINGARVERSLUN,
STÓRHÖFÐA 44, REYKJAVÍK.
Sími 567 4400
HARPA MÁLNINGARVERSLUN,
DROPANUM, KEFLAVÍK.
Sími 421 4790
NláUIINBARVERSLANIR
Ríkisstjón
Missouri ferst
í flugslysi
Goldman, Missouri. AP.
MEL Carnahan, ríkisstjóri í Miss-
ouri í Bandaríkjunum, fórst á
mánudagskvöld þegar ílugvél af
gerðinni Cessna 335, sem var að
flytja hann á kosningafund, hrap-
aði til jarðar um 40 km suður af
borginni St. Louis. I flugvélinni
voru sonur Carnahans, Roger, og
ráðgjafi hans, Chris Sifford, en
enginn þeirra komst lifs af. Roger
Carnahan flaug vélinni.
Mel Carnahan, sem var 66 ára
gamall, var í framboði til öldunga-
deildar Bandaríkjaþings fyrir
Demókrataflokkinn í Missouri, en
kosningabaráttan í ríkinu þótti ein
sú tvísýnasta í landinu. Mótfram-
bjóðandi Carnahans, repúblikan-
inn John Ashcroft, hefur ákveðið
að auglýsa ekki frekar í kosninga-
baráttunni, í virðingarskyni við
ríkisstjórann og fjölskyldu hans.
Carnahan var kjörinn á ríkisþing
Missouri 28 ára að aldri og tók átta
árum síðar við stjórn fjármála rík-
isins. Hann var kosinn vararíkis-
stjóri Missouri árið 1988 og hafði
gegnt embætti ríkisstjóra frá 1992.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti, sem
staddur var í Egyptalandi á fundi
leiðtoga Israels og Palestínu,
hringdi í gær í ekkju Carnahans,
Jean, og tjáði henni samúð sina, en
hjónin áttu fjögur börn.
Áformað hafði verið að Carnahan
kæmi fram á kosningafundi með A1
Gore, forsetaframbjóðanda demó-
ki-ata, í Kansas-borg í dag, og í gær
var um tíma útlit fyrir að sjón-
vai’pskappræðum Gores og Georges
W. Bush, forsetaframbjóðanda
repúblikana, yrði frestað vegna
andláts hans, en þær fóru fram í St.
Louis í nótt að íslenskum tíma.
„Hreyflarnir
bókstaflega æptu“
Carnahan var á mánudagskvöld á
leið til fundar i bænum New Madr-
id, sem er í um 200 km fjarlægð frá
slysstaðnum. Chris Sifford mun
hafa hringt í einn af leiðtogum
Demókrataflokksins i Missouri,
Roy Temple, úr farsíma um klukk-
an átta um kvöldið, og tjáð honum
að flugvélin hefði orðið fyrir eld-
ingu og að þeir Carnahan-feðgar
ætluðu að snúa við og reyna að
lenda í St. Louis eða Jefferson-
borg. Ibúi í nágrenni slysstaðarins,
Tom Hunter, segist hafa heyrt vél-
ina fljúga yfir. „Eg hugsaði með
AP
Carnahan skrifar niður athuga-
semdir á kappræðufundi í Kans-
as-borg síðastliðinn sunnudag.
mér hvaða brjálaða manneskja
þetta væri, í þessu slæma veðri,“
sagði Hunter. „Svo heyrðist hljóð
eins og flugvélin væri í djúpri
dýfu, hreyflarnir bókstaflega
æptu.“ Að sögn Hunters heyrðist
þvinæst hávær sprenging og hann
hringdi þá í neyðarlínuna.
Annar demókrati sem var í
framboði til öldungadeildarinnar
fyrir Missouri, Jerry Litton, fórst í
flugslysi árið 1976. Hann var
ásamt fjölskyldu sinni að fljúga
heim á leið, kvöldið sem hann
tryggði sér útnefningu sem fram-
bjóðandi Demókrataflokksins.