Morgunblaðið - 18.10.2000, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2000 29
LISTIR
Stormur og Ormur á
barnadeild Hringsins
EINLEIKURINN Stormur og
Ormur verður sýndur í dag, miðviku-
dag, á barnadeild Hringsins. Leik-
ritið fjallar um mann sem hittir ána-
maðk sem vill vera vinur hans.
Manninum líst auðvitað ekkert á
það. Þó maður sé einmana leggur
maður ekki lið sitt við hvern sem er
... eða hvað? Á endanum tekst þó
góð vinátta með þeim Stormi og
Ormi, þeir félagar taka sér ýmislegt
fyrir hendur og eru ekki alltaf á eitt
sáttir.
„Þetta er verk um samskipti og át-
ök í hversdagslífinu. I samræðum
manns og ánamaðks gefst nýstárleg
og brosleg sýn á hversdagsleg atvik.
Umgjörð verksins er einfóld og hug-
vitsamleg enda er í sviðsetningunni
lögð áhersla á einfaldleika sem gefur
áhorfandanum sem mest svigrúm til
þátttöku með sínu eigin hugmynda-
flugi,“ segir í kynningu.
Morgunblaðið/Jim Smart
Ormur og Stormur verða góðir vinir.
Þorgeir Tryggvason, Silja Björk Huldudóttir og Einar Þór Einarsson.
Aukasýn-
ing á Bíbí
og blakan
AUKASÝNING á óperuþykkninu
Bíbí og blakan verður í Kaffileik-
húsinu á morgun, fimmtudag, kl.
21, en leikhúsgestum gefst kostur
á að borða í Kaffileikhúsinu fyrir
sýningu og hefst borðhald um kl.
19.30.
Bíbí og blakan fjallar um unga
stúlku sem getur ekki gert upp hug
sinn gagnvart tveimur mönnum,
leyndardómsfullum útlendingi og
harðskeyttum leynilögreglumanni
sem grunar keppinaut sinn um að
vera ekki af þessum heimi. Mestu
skiptir þó að verkið skopstælir og
skrumskælir allar helstu óperu-
hefðir.
----------------
Sýningu
lýkur
SÝNINGU á verkum hollenska
listamannsins Douwe Jan Bakker í
i8, Ingólfsstræti 8, lýkur nk. sunnu-
dag, 22. október. Sýningin nú í i8
samanstendur af þessum ljósmynd-
um sem eru í formi litskyggna og
eldri verkum sem fengin hafa verið
að láni frá íslenskum vinum hans,
Nýlistasafninu og Listasafni ís-
lands. Auk þess gefur að líta ýmis
minningarbrot úr ævi hans, bréf og
ljósmyndir.
Gallerí i8 er opið fimmtudaga til
sunnudaga kl. 14-18.
Nýjar bækur
• Hratt og bítandi er eftir Jóhönnu
Sveinsdóttur (1991-1995).
í þessari bók um ævintýri matar-
gerðarlistarinnar eru menningar-
sögulegir þankar um mat og mat-
reiðslu, pistlar um næringarfræði,
ljúfar veigar og margt fleira. Fjöl-
breytilegar uppskriftir að gómsæt-
um réttum kóróna verkið ásamt ljós-
myndum Áslaugar Snorradóttur.
Höfundur segir í bókinni: „Spek-
ingar ýmissa landa hafa þrátt fyrir
margháttaðan ágreining sameinast
um eina kenningu, að vísu nokkuð
sveigjanlega: að matargerð þjóð-
anna sé áreiðanlegasta vitnið um
menningu þeirra."
Helstu verk Jóhönnu Sveirsdótt-
ur eru matreiðslubókin Matur er
mannsins megin (1982), Islenskir
elskhugar (1983), Á besta aldri
(1987), Ijóðabækurnar Guð og
mamma hans (1994) og Spegill undir
fjögur augu (1996) og Til vonar og
vara, þríleikur fyrir Kaffileikhús
Hlaðvarpans (1994).
Utgefandi er bókaútgáfan Orms-
tunga. Hratt og bítandi er286 bls. í
stóru broti ogprentuð í Prentsmið-
junni Odda. Verð: 7.490 kr.
Góðan dag!
Origins kynnir
„Have a Nice Day“
Fullhlaðið rakakrem
Sólvarnarstuðull SPF 15
Ekkert skiptir húð þína máli þegar örvandi kraftur úr musteristré, lakkrís sem
endurlífgar Ijómann, birkikraftur og nærandi soyabaunir styrkja hana með
öllu sem hún þarfnast til að horfast í augu við daginn.
Kröftug blanda Origins af UV vörunum, meðal annars náttúrunnar títan
dioxíð, berst við geislana. E vítamín vemdar gegn umhverfinu. Húðin lítur vel
út frá sólarupprás til sólarlags.
Lyktaðu einu sinni og ilmurinn af greipávexti lætur þér líða eins og þú getir
sigrað heiminn.
ORIGIN5
wt. í .7 OZ./50g '
o, r i *| Origins ráðgjafi verður í Lyf & Vl R. hPlKa heilsu- Melhaga á morgun l7i 011 it-iuu fimmtudag og í Lyf & heilsu, Kringlunni föstudag. Kringlunni, Melhaga
ERT Þ Ú KONA Á BESTA ALDRI?
Kannast þú við einhver eftirfarandi einkenna ?
Svitakóf - Nætursvita - Einbeitingarskort - Leiða - Þróttleysi - Þurrk í leggöngum
Ef þú kannast við einn eða fleiri ofangreindra kvilla þá getur
Menopace öfluga vítamín- og steinefnablandan e.t.v. hjálpað þér
Ef þú kaupir 90 daga skammf færðu
30 daga pakkningu með .
--***- í kaupb*11
..
SonKt
• minrmltilstoo
vnvJQne* ^rajjlR
VITABIOTICS
Þpr sepi náttúran
og vismdm vinna saman
aðeins í lyfjaverslunum