Morgunblaðið - 18.10.2000, Side 37
36 MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2000
V
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Arvakur hf., Reykjavík.
Framkvœmdastjóri: Hallgrímur B. Geirsson.
Ritstjórar: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
SAMKOMULAG I
SHARM EL-SHEIKH
ÞAÐ dregur enginn í efa að sam-
komulag það er náðist á fundi
þeirra Ehud Baraks, forsætis-
ráðherra Israels, og Yasser Arafats,
leiðtoga Palestínumanna, í Sharm el-
Sheikh í Egyptalandi í gær er brot-
hætt. Það sést kannski best á því að
þrátt fyrir samkomulagið héldu átök
áfram á Vesturbakkanum og Gaza
eftir að tilkynnt hafði verið um það.
Það breytir hins vegar ekki mikil-
vægi samkomulagsins. Eftir þriggja
vikna stigmagnandi ofbeldi virtist
sem sá árangur er náðst hefur í við-
ræðum síðustu sjö ár væri að verða að
engu. Umheiminn hryllti við að sjá
palestínsk börn drepin af ísraelskum
hermönnum. Palestínumenn hefndu
sín með hrottalegum morðum á
þremur ísraelskum hermönnum síð-
astliðinn fimmtudag og harkaleg við-
brögð og gagnárásir Israela gerðu
vonir margra að engu.
í stað þess að endanlegt samkomu-
lag í Palestínudeilunni væri í augsýn,
líkt og talið var í sumar, skipti nú
mestu að fá leiðtoga Israels og Pal-
estínumanna til að ræða saman og
slíðra sverðin.
Það virðist hafa tekist með sameig-
inlegu átaki þeirra Bill Clintons
Bandaríkjaforseta, Kofi Annans,
framkvæmdastjóra SÞ, Abdullah
Jórdaníukonungs og Hosni Mubar-
aks, forseta Egyptalands.
ísraelar fallast á að draga herlið til
baka frá sjálfstjórnarsvæðum Palest-
ínumanna á Vesturbakkanum og
Gaza og opna þau að nýju, þar með
talinn flugvöllinn í Gaza. Alþjóðleg
nefnd mun kanna orsakir átaka síð-
ustu vikna og Bandaríkjastjórn mun
reyna að koma friðarumleitunum af
stað á nýjan leik. Þá hefur verið haft
eftir ísraelskum embættismönnum að
leynilegt samkomulag hafi verið gert
um fyrirkomulag öryggismála.
Samkomulag sem þetta er hins
vegar einskis virði sé því ekki fram-
fylgt. Því reynir nú á leiðtogana á
næstu dögum að sýna í verki að þeim
er alvara.
Báðir eiga þeir við ramman reip að
draga heima fyrir. Barak hefur boðað
myndun þjóðstjórnar sem Ariel Shar-
on, hinn herskái leiðtogi Likud,
myndi eiga aðild að. Arafat þarf að
takast á við öfl á borð við Hamas er
hafa lítinn áhuga á friðsamlegri sam-
búð við ísraela.
Slík lausn verður hins vegar að
finnast líkt og ísraelski rithöfundur-
inn Amos Oz bendir á í grein í Morg-
unblaðinu í gær: „Þessu mun ljúka.
Því mun ljúka með málamiðlun og tvö
ríki verða lausnin. Hvorki gyðingar
né Palestínumenn munu fara nokk-
urn skapaðan hlut. Þeir geta ekki
búið saman eins og sameinuð og ham-
ingjusöm fjölskylda vegna þess að
þeir eru ekki sameinaðir, þeir eru
ekki hamingjusamir og varla hægt að
segja að þeir séu fjölskylda. Eina
lausnin er að draga einhvers staðar
markalínu í samræmi við búsetu-
mynstur þjóðanna og gerast ná-
grannar. Ekki bræður og systur, að-
eins siðaðir grannar.
Þetta mun gerast og jafnvel fyrr en
flestir geta ímyndað sér á þessum
hræðilegu tímum. Þegar það gerist
munu hinir látnu úr röðum beggja
stara á okkur án aflást og spyrja
hvers vegna, hver var ástæðan?"
UPPBOÐ A RASUMI BANDARIKJUNUM
BANDARIKJAMENN hafa nú
fylgt í fótspor nokkurra Evrópu-
ríkja og ákveðið að efna til uppboðs á
fjarskiptarásum eða rafsegulbylgjum.
Clinton Bandaríkjaforseti hefur sent
frá sér sérstaka yfirlýsingu um málið
og það er talið til marks um mikilvægi
þess í augum Bandaríkjastjórnar að
sagt er að forsetinn hafi haft persónu-
leg afskipti af þeirri stefnumörkun
sem nú hefur verið kynnt.
í frásögn bandaríska stórblaðsins
New York Times af þessari ákvörðun
segir, að fjarskiptarásir séu orðnar
helzta verðmæti nýja hagkerfisins,
jafnmikilvæg verðmæti og olía og kol
voru á tímum iðnbyltingarinnar.
Þetta er mikið sagt en ekki ofsagt.
Bandaríkjamenn stefna að því, að
haustið 2002 fari fram mjög umfangs-
mikið uppboð á leyfum til þess að reka
hina svokölluðu þriðju kynslóð far-
síma. Er gert ráð fyrir að tekjur ríkis-
sjóðs Bandaríkjanna af þessu uppboði
verði gífurlegar.
Ljóst er af fréttum- af þessari
ákvörðun Clintons og stjórnar hans
að aðstæður eru töluvert ólíkar í
Bandaríkjunum frá því sem er í
Evrópu. Og af þeim sökum eru að-
gerðir Bandaríkjastjórnar á þessu
sviði yfírgripsmeiri en jafnframt
flóknari. Raunar hafa útvarpsrásir og
sjónvarpsrásir verið boðnar upp í
Bandaríkjunum í langan tíma eins og
raunar í Bretlandi allt frá því snemma
á valdaferli Thatcher. Þau uppboð
hafa hins vegar verið með mismun-
andi hætti og tekið mið af staðbundn-
um aðstæðum. Bandaríkjamenn hafa
áhyggjur af því, að þeir séu að verða
eftirbátar Evrópuþjóða í þessum efn-
um og telja það hættulegt vegna þess,
að hin nýja fjarskiptatækni sé undir-
staða framfara á næstu árum og ára-
tugum.
Sú ákvörðun Bandaríkjastjórnar að
fylgja í kjölfar Evrópuþjóðanna að
þessu leyti að vandlega íhuguðu máli
er enn ein staðfesting á því, að þær
þjóðir, sem hafa ákveðið að fara þessa
leið, hafa valið rétt.
í skýrslu Auðlindanefndar er lagt
til að sama leið verði farin hér við út-
hlutun á rafsegulbylgjum. Ákvörðun
Bandaríkjastjórnar styrkir málstað
þeirra sem barizt hafa fyrir því, að
þetta fyrirkomulag verði tekið upp
hér.
Tvær meginröksemdir eru fyrir því
að fara þessa leið. Önnur er sú, að
þarna er um mikil verðmæti að ræða
eins og fram kemur í skýrslu Clintons.
Hin að það er nánast ómögulegt að út-
hluta þessum verðmætum á annan
veg með sanngjörnum hætti. Hvernig
ætti það að gerast? Með pólitískum
ákvörðunum? Auðvitað sjá menn,
þegar vel er að gáð, að önnur leið er
einfaldlega ekki fær.
Reuters
Leiðtogarnir á fundinum í Sharm el-Sheikh í Egyptalandi á mánudag. Frá vinstri: Kofí Annan, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Ehud Barak, forsætisráðherra Israels, Bill Clinton Bandaríkjaforseti,
Yasser Arafat, leiðtogi Palestínumanna, Hosni Mubarak Egyptalandsforseti og Abdullah Jórdaníukonung-
ur. Einnig var á fundinum Javier Solana, talsmaður Evrópusambandsins í utanríkis-og varnarmálum.
Otryggt hlé og
traustið horfíð
Talið er að hvorki Barak né Arafat sé lík-
legur til að geta staðið við samkomulagið í
Sharm el-Sheikh, segir í grein Kristjáns
Jónssonar. Staða þeirra á heimavígstöðv-
um sé einfaldlega of veik og harðlínumenn
muni taka af þeim ráðin.
LEIÐTOGAR ísraela og
Palestínumanna, þeir
Ehud Barak og Yasser
Arafat, létu loks undan
miklum þrýstingi Bandaríkjamanna
og fleiri þjóðarleiðtoga í strandbæn-
um Sharm el-Sheikh á mánudag.
Barak og Arafat hétu því að beita
sér fýrir aðgerðum til að stöðva of-
beldið á svæðum Palestínumanna.
En endanlegur friður er varla í
augsýn. Trúnaðurinn sem var far-
inn að myndast milli deiluaðila síð-
ustu sjö árin er horfinn, væntingar
brostnar. Nú eru það herskárri öfl
sem móta stefnuna og hafna niður-
stöðunni á mánudag. „Hið nýja afl
sem leyst hefur verið úr læðingi í
Palestínu og arabaheiminum var
ekki tekið með í reikninginn í um-
ræðunum í Sharm el-Sheikh,“ segir
Hanan Ashrawi, palestínskur þing-
maður sem talin hefur verið hófsöm.
íbúar sjálfsstjórnarsvæðanna eru
örvæntingarfullir. Kjör þeirra hafa
ekkert batnað þrátt fyrir friðarum-
leitanimar síðustu árin, þeir eru
einnig margir búnir að missa trú á
stjóm Arafats vegna mannréttinda-
brota hennar og mikillar spillingar í
röðum ráðherranna. Mannfallið að
undanfömu, flugskeytaárásirnar og
auðmýkingin sem fylgir banni Isra-
ela við umferð milli sjálfsstjómar-
svæðanna hjálpast að við auka á
heiftina.
Hinum megin víglínunnar er svo
komið að meirihluti ísraela er nú
orðinn vantrúaður á friðarferlið.
„Það er aldrei hægt að treysta ar-
öbum,“ sagði ungur
Israeli í sjónvarps-
viðtali. Sjónvarpsmynd-
ir af æstum múg sem
misþyrmdi og tók af lífi
tvo ísraelska hermenn
sem höfðu villst inn á
svæði Palestínumanna í Ramallah
eru eins og greyptar í vitund fólks í
Israel.
En hver var niðurstaðan á mánu-
dag? Barak og Arafat urðu m.a.
sammála um að þegar í stað yrði
komið á vopnahléi og ísraelskt her-
lið dregið tÚ baka til sömu stöðva og
það var á áður en átökin hófust fyrir
rúmum tveim vikum. Bandaríkja-
menn munu verða í forsvari fyrir
nefnd sem kanna á tildrög óeirð-
anna en munu ráðfæra sig við Kofi
Annan, framkvæmdastjóra SÞ.
Hafnar verða aftur tilraunir til að
semja um endanlegan frið og munu
Bandaríkjamenn í því skyni hafa
Israelar hafa
ekki lengur
trú á frióar-
viðleitninni
samráð við fulltrúa ísraela og Pal-
estínumanna næstu tvær vikumar.
Ekki var minnst á eina af mikilvæg-
ustu kröfum ísraela, að stjóm Pal-
estínu hefði hemil á eða afvopnaði
svonefndar Tanzim-sveitir Fatah-
hreyfingarinnar, hinna gömlu sam-
taka Arafats. Israelar benda á að
liðsmenn sveitanna hafi róið undir
átökum og beitt skotvopnum gegn
ísraelskum hermönnum sem hafi
varið sig. En þegar skotið sé inn í
mannþröng, sem byssumennimir
noti sem skjöld, sé óhjákvæmilegt
að óbreyttir borgarar falli.
Við fyrstu sýn virðist sem Arafat
hafi ekki tekist vel upp. Ljóst er að
hann fékk ekki í gegn kröfuna um
alþjóðlega rannsókn á aðdraganda
átakanna. Israelar segjast hafa
slæma reynslu af hlutlægni alþjóð-
legra nefnda og stofnana er fjalli um
deilurnar og þeir neituðu að fallast á
rannsókn nema Bandaríkin væm
þar í forsæti.
Reyndu að draga
úr væntingum
Báðir reyndu leiðtogarnir tveir að
draga úr væntingum um árangur af
fundinum áður en hann hófst og
ljóst er að mikil andstaða var við
þátttöku í honum meðal palestínsks
almennings. Líklegt er að öfgahóp-
ar reyni að grafa undan honum með
tilræðum og öðram aðgerðum. Það
sem skiptir enn meira máli, ekki var
nóg með að Hamas og fleiri heit-
trúarsamtök legðist gegn fundinum
heldur vora sumir af nánustu sam-
--------- starfsmönnum Arafats
einnig andvígir viðræð-
um núna.
Eitt af því sem emb-
ættismenn Israela og
ýmsir fréttaskýrendur
velta nú fyrir sér er
hvort Arafat vilji í reynd koma á
friði áður en fundur Arababanda-
lagsins hefst í Kaíró á laugardag. Ef
hann hefur frá upphafi eða á síðari
stigum átakanna ákveðið að reyna
að nota píslarvætti óbreyttra borg-
ara, unglinga og barna til að fá
stuðning múslimaþjóða er það hon-
um til framdráttar að enn verði bar-
ist á sjálfsstjórnarsvæðunum á
laugardag. Hversu kaldranalegt og
ógeðfellt sem Vesturlandabúum
kann að þykja það era sjónvarps-
myndir af látnum og slösuðum mót-
mælendum mikilvægt innlegg í bar-
áttu Palestínumanna fyrir kröfum
sínum um fullt sjálfstæði og óskert
yfirráð yfir Austur-Jerúsalem. Pal-
estínumenn vita flestir að þeir munu
ekki sigra ísraelsher í styrjöld.
Vonir þeirra byggjast á almenn-
ingsálitinu, viðbrögðum umheims-
ins, hneykslun áhorfenda sem sjá
hermenn berjast gegn vopnlausu
fólki og unglingum sem gjarnan era
í fararbroddi þegar ráðist er á vígi
Israela.
„Þú ert ekki í CNN núna,“ hreytti
Shlomo Ben-Ami, utanríkisráð-
herra Israels, út úr sér þegar einn
af talsmönnum Palestínumanna í
Sharm el-Sheikh, Saeb Erekat,
réðst með óbótaskömmum á ísraela
íyrir að reyna að koma þjóð sinni á
kné með vopnavaldi.
Nú er það styrkur leiðtoganna
tveggja, Arafats og Baraks, á
heimavelli sem allt snýst um og
margir efast um að þeir hafi burði til
að fylgja ákvæðunum eftir.
Veik staða Arafats
Arafat hefur verið hart gagn-
rýndur fyrir að taka ekki af skarið
og beita sér fyrir því að ofbeldisfull-
um mótmælum gegn Israelum verði
hætt og Ijóst er að hann er orðinn
hræddur við að taka áhættu. Hann
óttast að missa taumana úr hendi
sér. Á fundi sem haldinn var í Camp
David í Bandaríkjunum í sumar
hafnaði hann tilboði Baraks sem
teygði sig lengra í átt að sjónarmið-
um Palestínumanna en nokkur ísra-
elskur leiðtogi hafði áður gert. Ara-
fat bar því við að hann hefði ekki
umboð til að sætta sig við málamiðl-
un um Jerúsalem og gæti heldur
ekki sætt sig við að ákvörðun um
stöðu borgarinnar yrði frestað.
Jerúsalem og hinir helgu staðir
múslima í Gömlu borginni væru mál
allra múslima, sagði hann.
Aðrir benda á að hlutskipti
þriggja til fjögurra milljóna palest-
ínskra flóttamanna sem bjuggu á
svæðum, er áfram verða undir
stjóm Israela, hafi ekki enn verið
rætt að neinu ráði. Þótt samkomu-
lag náist um aðra hluti sé vandi
flóttafólksins, sem margt býr í Jórd-
aníu og Líbanon, enn óleystur og
enginn viti hvemig bæta skuli því
skaðann undanfama fimm áratugi.
Er Arafat kom heim státaði hann
af því að hafa ekki slakað til og í
fjölmiðlum Palestínustjómar var
farið að hvetja til jihad, heilags
stríðs, gegn Israelum um Jerúsal-
em. Slík áköll era svo ofnotuð í
heimi islams að áhrifin era ekki allt-
af mikil. En ísraelar töldu samt að
Arafat og menn hans sýndu ábyrgð-
arleysi með því að nota slagorð af
þessu tagi meðan friðarferlið var í
biðstöðu.
Og fyrir Barak skiptu þau máli; í
hvert sinn sem Sharon og aðrir and-
stæðingar allra tilslakana í viðræð-
um við Arafat tjáðu sig fundu þeir
nóg af skotfæram í áróðri Palestínu-
manna til að rökstyðja þá skoðun
sína að arabar vildu í raun og vera
stríð en ekki frið, hvað sem ákvæði
FRA CAMP DAVID TIL SHARM EL-SHEIKH
11. júlí:
_______Bill Clinton efnir til leiðtogafundar með Ehud Barak og Yasser
Arafat í Camp David í Bandaríkjunum. Leiðtogar ísraela og Palestínumanna
hefja í fyrsta sinn samningaviðræður um erfiðustu deilumál þeirra með það
að markmiði að ná endanlegu friðarsamkomulagi.
HAHmraLeiðtoaafundinum lýkur án samkomulags eftir 15 daga. Deilur um
yfirráð yfir Jerúsalem og framtíð palestínskra flóttamanna eru helstu ásteyt-
ingarsteinarnir. Palestínumenn vilja að Austur-Jerúsalem verði höfuðborg
fyrirhugaðs ríkis þeirra. ísraelar hernámu borgarhlutann í sex daga stríðinu
1967 og segja að Jerúsalem sé óskiptanleg höfuðborg (sraels.
|^jJ2U^Arafat fer í ferð til fjölmargra ríkja til að afla sér stuðnings við stefnu
sína. Arabaríki styðja þá afstöðu hans að hafna tilslökunum í deilunni um
Jerúsalem en mörg vestræn ríki hvetja hann til að lýsa ekki yfir stofnun
sjálfstæðs ríkis 13. september þegar friðarviðræðunum átti að Ijúka.
^E2SHSci'nton tekst ekki leysa deiluna í viðræðum við Arafat
og Barak i New York á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna í tilefni af
árþúsundamótunum.
^^^^^2223 Þing Palestínumanna ákveður að fresta því að lýsa yfir
stofnun sjálfstæðs Palestínuríkis til að hægt verði að reyna til þrautar
að ná friðarsamningi. Þingið á að ræða málið aftur 15. nóvember.
aö ná varanlegum friðarsamningi rennur út
án þess að samkomulag sé í sjónmáli.
EEEDSSSSSaAriei Sharon, leiðtogi ísraelskra hægrimanna, fer á helga
staði gyðinga og múslima í Jerúsalem. Ferðin verður til þess að átök
blossa upp milli palestínskra mótmælenda og ísraelskra öryggissveita.
Tugir manna særast.
Palestinumenn berjast við ísraelskar öryggissveitir sem
skjóta á þá gúmmíhúðuðum byssukúlum við al-Aqsa moskuna i Gömlu
borginni í Jerúsalem. Nokkrir Palestínumenn bíða bana.
EESEEÍEBÁtt* blossa upp á Gaza-svæðinu og Vesturbakkanum.
PE3ESE3ísraeiskir arabar og gyðingar berjast í bæjum í norðurhluta
israels.
4. október:
____________[Arafat og Barak ræða við Madeleine Albright, utanríkisráð-
herra Bandarikjanna, í París. Arafat neitar að undirrita samning um að
binda enda á átökin þar sem ekki náðist samkomulag um að hefja alþjóð-
lega rannsókn á tildrögum þeirra.
BESgjSaAraM ræðir við Hosni Mubarak, forseta Egyptalands, og
Albright í Sharm el-Sheikh í Egyptalandi. Barak sér ekki ástæðu til að
fara á fundinn vegna afstöðu Arafats í viðræðunum í París.
örvooisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkir ályktun þar sem
Israelar eru gagnrýndir fyrir að beita of mikilli hörku í átökunum við
Palestínumenn. Bandaríkin sitja hjá. Barak setur Palestínumönnum úrslita-
kosti og segir að bindi þeir ekki enda á átökin líti ísraelsstjórn svo á
að friðarviðræðunum sé lokið. Skæruliðahreyfingin Hizbollah í Líbanon
tekur þrjá ísraelska hermenn til fanga í árás yfir landamærin að ísrael.
9. október:
___________|Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, fer til
Miðausturlanda til að reyna að afstýra því að friðarumleitanirnar renni
algjörlega út i sandinn vegna átakanna.
BXmgismel^ar herþyrlur skjóta flugskeytum á nokkur skotmörk í
tveimur palestínskum borgum eftir að æstur múgur Palestínumanna myrðir
tvo ísraelska hermenn í palestínskri lögreglustöð.
|EESS33Aratat °9 Barak sitja leiðtogafund með Clinton, Mubarak og
Abdullah Jórdaníukonungi til að reyna að binda enda á átökin.
nŒEESEBLBÍðtogeifundinum lýkur með því að Arafat og Barak sam-
þykkja að binda enda á blóðsúthellingarnar, hefja rannsókn á tildrögum
átakanna og kanna leiðir til að hefja friðarviðræðurnar að nýju. Átökin
hafa kostað rúmlega 100 manns lífið.
friðarsamninga segðu til um.
Síðustu daga hefur Arafat hvatt
til einingar allra Palestínumanna og
undanskilur þá ekki Hamas. Barak
hefur fyi-ir sitt leyti reynt að fá
harðlínumanninn Áriel Sharon og
hægriflokk hans, Likud, til að
mynda með sér þjóðstjórn. Það
myndi verða „koss dauðans" fyrir
friðarviðleitnina, segir áðumefndur
Saeb Erekat.
Herskáustu öfl beggja deiluaðila
gætu þannig fengið ráðherraemb-
ætti og bundið skjótan enda á allar
friðaramleitanir. Slíka martröð
þora ráðmenn Vesturveldanna varla
að hugsa um og sama er að segja um
menn eins Hosni Mubarak Egypta-
landsforseta sem óttast að allt fari í
bál og brand í Miðausturlöndum ef
svo illa takist til.
Israelar sýr.a vandkvæðum Pal-
estínuleiðtogans ekki mikinn skiln-
ing. „Ef Arafat gat ekki
samið um frið í Camp
David vegna pólitískra
aðstæðna átti hann að
segja það og þá hefðu
friðaráætlanir tekið mið
af því,“ segir ísraelskur
embættismaður í samtali við Morg-
unblaðið.
Gerði stjórn Clintons
mistök í Camp David?
Clinton Bandaríkjaforseti lætur
af störfum í janúar og hafði hugsað
sér að tryggja sér góð eftirmæli
með því að koma á varanlegum friði
milli Palestínumanna og Israela. í
grein í The New York Times í vik-
unni er sagt frá því að margir álíti
nú að forsetinn og menn hans hafi
gengið of hart fram er efnt var til
viðræðnanna í sumar. Arafat hafi
alls ekki verið reiðubúinn og þurft
meiri tíma.
Enn er eftir
að finna lausn
á vanda
flóttamanna
Aðrir segja að ákveðinn grund-
vallarmisskilningur hafi spillt fyrir.
Friðarviðleitnin á valdaskeiði
Clintons hefur aukið skilning milli
valdastéttarinnar í röðum Israela
og Palestínumanna en ekki milli
þjóðanna sem slíkra, hafði The New
York Times eftir bandarískum emb-
ættismanni.
Blaðið segir að Clinton og Barak
hafi viljað allt eða ekkert og þessi
stefna hafi ef til vill skemmt fyrir
friðaramleitunum. Barak vildi
styrkja stöðu sína innanlands með
því að tryggja endanlegan frið.
Stjóm hans hefur nú misst meiri-
hluta sinn á þinginu, Knesset, sem
kemur saman eftir rúma viku. Með
því að beita sér fyrir tilslökunum
gagnvart Palestínumönnum, viður-
kenna m.a. rétt þeirra til Austur-
Jerúsalem, hefur hann glatað stuðn-
ingi nokkurra mikilvægra stjórn-
málamanna heima fyrir
án þess að vinna friðinn.
Sjálfur er hann kosinn
beinni kosningu en ljóst
að án meirihlutastuðn-
ings á þingi getur hann
sig hvergi hrært. í könn-
unum segja 70% aðspurðra Israela
að hann hafi staðið sig illa sem for-
sætisráðherra.
En hvað bíður þjóðanna ef hrak-
spárnar rætast? Madeleine Al-
bright, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, er ekki í vafa í grein sem
hún birti á mánudag.
„Síðastliðna viku höfum við getað
skyggnst inn í framtíð án sameigin-
legrar sýnar, framtíð gatnanna þar
sem hvarvetna era deyjandi börn og
hermenn era myrtir, grjót flýgur
um loftið, þyrlur sveima yfir og hat-
ur er í loftinu," sagði Álbright og
hvatti til þess að aftur yrði byrjað að
vinnauð traustum friði.
✓
22% Islendinga eru með einkenni vélindabakflæðis
Brýnt að fólk reyni að
halda einkennum niðri
Mikill fjöldi íslendinga
þjáist af svokölluðu vél-
indabakflæði sem veld-
ur gjarnan miklum
óþægindum og getur
jafnvel leitt til alvar-
legra sjúkdóma. I gær
var hrundið af stað
átaki að frumkvæði Fé-
lags sérfræðinga í melt-
ingarsjúkdómum til að
auka vitneskju og efla
forvarnir.
TALIÐ er að um 22% Is-
lendinga séu með ein-
kenni svokallaðs vélinda-
bakflæðis, sem lýsir sér
fyrst og fremst með brjóstsviða og
nábít, en sérstakt átak hefur verið
sett af stað að framkvæði Félags
sérfræðinga í meltingarsjúkdómum
til að auka almenna vitneskju um
þennan kvilla og þar af leiðandi efla
forvarnir gegn honum. Átak þetta
er fyrsta viðfangsefni þverfaglegs
verkefnis sem kallast Vitundar-
vakning, og miðar að því að hefja
skipulegar forvamir gegn sjúkdóm-
um í meltingarvegi.
Sérfræðingar í meltingarsjúk-
dómum hafa framkvæði að Vitund-
arvakningu, en verkefnið er unnið í
samráði við heimilislækna, skurð-
lækna og hjúkranarfræðinga meðal
annarra. Samvinna er einnig höfð
við Landlæknisembættið og
Krabbameinsfélagið og einnig er
haft samráð við Evrópusamtök
meltingarsérfræðinga.
Framleiðni um 7-10 milljörd-
um lægri á ári vegna kvillans
Við kynningu á verkefninu í gær
sagði Ásgeir Theodórsson sérfræð-
ingur í meltingarsjúkdómum og
formaður stýrihóps verkefnisins að
ný athugun sýndi að um 22% Is-
lendinga væra með einkenni vél-
indabakflæðis, en að almenningur
væri engu að síður afar illa upplýst-
ur um þennan kvilla.
Árni Ragnar Árnason, alþingis-
maður og meðlimur í stýrihópi
verkefnisins, sagði að talið væri að
fjarvistir frá vinnu og minni fram-
leiðni væri veraleg vegna þessa
kvilla. Ætla mætti aðfjöldi þeirra
sem haldinn væri vélindabakflæði
hér væri svipaður og í Svíþjóð og
samkvæmt útreikningum um minni
framleiðni sem afleiðing af þessum
kvilla þar mætti áætla að framleiðni
hér væri um sjö til tíu milljörðum
króna lægri á ári en ella, vegna
kvillans.
Brjóstsviði, nábítur, sársauki
við að kyngja og bijóstverkur
Orsök bakflæðis er sú að loku-
vöðvinn í vélindanu starfar ekki
eðlilega og þannig komast magasýr-
ur upp í vélindað. Þegar magasýrar
flæða ítrekað þessa leið leiðir það til
fyrrgreinds sjúkdóms. Helstu ein-
kenni bakflæðis era brjóstsviði -
brana- eða sviðatilfinning bak við
bringubein, nábítur - þegar súrt
magainnihald leitar upp í kok, erfið-
leikar eða sársauki við að kyngja og
sár brjóstverkur sem jafnvel getur
minnt á hjartaverk.
Hjá sumum sjúklingum með bak-
flæði geta einnig komið fram ein-
kenni asma, barkabólgu, öndunar-
erfiðleikar og hæsi, en í þeim
tilvikum getur jafnvel verið um
samspil tveggja eða fleiri þátta að
ræðaþannig að hætt er við að víta-
hringur myndist. Asmi og hósti get-
ur framkallað bakflæði sem aftur
getur framkallað hósta og jafnvel
asma.
Morgunblaðið/Sverrir
Árni Ragnar Árnason alþingismaður, Matthías Halldórsson aðstoðar-
landlæknir, Ásgeir Theodórs og Ásgeir Böðvarsson, sérfræðingar í
meltingarsjúkdómum, Jón Þorvaldsson kynningarfulltrúi og Trausti
Valdimarsson, sérfræðingur í meltingarsjúkdómum.
Einkenni:
Nábítur, hósti,
hæsi og brjóstsviði
Langvarandi bakflæði getur auk
þess leitt til þess að slímhúðin innan
í vélindanu skemmist og myndast
þá gjarnan bólgur í þekjuvef vél-
indans. Einnig geta myndast sár og
þrengsli í vélindanu vegna örvefs-
myndana.
Langvarandi bakflæði getur
valdið því að nýr þekjuvefur mynd-
ast í vélindanu sem er líkari vefnum
í maga eða þörmum, en álitið er að
þessi vefskipti séu tilraun líkamans
til að verja sig fyrir frekari skaða af
völdum magasýra. Einnig er talið
að langvarandi bólga í vélinda geti
leitt til framubreytinga sem í sum-
um tilfellum era undanfari krabba-
meins.
Um 50.000 manns fá brjóst-
sviða a.m.k. mánaðarlega
Ásgeir Theodórsson sagði að ný-
leg könnun meðal fólks á aldrinum
16 til 80 ára hefði leitt í ljós að um 23
til 24 þúsund manns fyndu fyrir
einkennum brjóstsviða mánaðar-
lega, um 11 til 12 þúsund manns
fyndu fyrir einkennum vikulega,
um 12 til 13 þúsund fyndu fyrir
einkennum tvisvar í viku og að
3.300 til 3.500 manns fyndu fyrir
einkennum brjóstsviða daglega. I
sömu könnun var þekking fólks á
vélindabakflæði kannaður og sagði
Ásgeir að um 43% aðspurðra hefðu
heyrt kvillann nefndan, en að aðeins
18% hefðu vitað hverjar orsakir
hans era.
Ásgeir sagði mikilvægt að auka
þekkingu á einkennum bakflæðis
og kynna leiðir til forvarna og með-
ferðar þessa algenga kvilla og sagði
mikilvægt að starfsfólk innan heil-
brigðisgeirans tæki saman höndum
og ynni að forvörnum af þessu tagi,
en slík vinna væri mikilvægur þátt-
ur í nútímalæknisfræði.
Margir fresta því árum saman
að leita meðferðar
Ásgeir Böðvarsson, sérfræðingur
í meltingarsjúkdómum og formaður
fræðsluráðs vegna átaksverkefnis-
ins, sagði að það væri mjög algengt
að þeir sem haldnir væra vélinda-
bakflæði frestuðu því lengi að leita
sér lækninga, jafnvel svo árum eða
áratugum skipti. Hann sagði að
ekki væri vitað hvers vegna fólk
frestaði því svo að leita meðferðar
við bakflæði en að ein af ástæðun-
um væri líklega sú að einkennÍR-
ágerðust hægt og bítandi og stæðu
svo jafnvel í stað þannig að fólk
teldi sig ekki endilega verið haldið
alvarlegum kvilla. Eins sagði hann
að fólk vendist einkennunum smám
saman og teldi þau jafnvel hluta af
eðlilegu lífi, en hann brýndi fyrir
fólkimikilvægi þess að leita leiða til
að halda einkennunum niðri, því þó
að kvillinn væri yfirleitt ekki hættu-
legur gætu langvarandi bólgur leitt
til alvarlegra sjúkdóma á borð við
krabbamein í vélinda.
Ásgeir sagði bakflæði einnig geta
valdlð miklum óþægindum og að
það skerti mjög lífsgæði þeirra sem
illa væra haldnir. Eins sagði hann
bakflæði geta verið orsök ýmissa
einkenna sem fólk gerði sér ekki
grein fyrir að tengdust því, svo sem
hósta og verkja við átök, en hyrfu
hins vegar við meðferð á kvillanum.
Feitt og kryddað, svefn eftir
máltíðir og þröng föt
Við vægu bakflæði nægir oft að
breyta um mataræði eða lífsstíl eða
nota sýrabindandi lyf sem fáanleg
era án lyfseðils. Sé bakflæðið komið
á alvarlegra stig eru gefin lyfseðils-
skyld sýrabindandi lyf, en ef lyfja-
meðferð dugir ekki til að hald»
einkennum í skefjum er hægt að
beita skurðaðgerð sem styrkir loku-
vöðvann í vélindanu.
Þeir sem þjást af vélindabakflæði
geta gert ýmislegt til að halda ein-
kennum þess niðri. Mælt er með því
að forðast mjög stórar máltíðir, því
þegar matur fyllir magann slaknar
lokuvöðvinn í neðri hluta vélindans
tímabundið, auk þess sem máltíðir
örva sýraframleiðslu magans.
Einnig er mælt með því að forðast
vissar fæðutegundir, en feitur og
kryddaður matur getur valdið
auknum einkennum sem og kaffi,
súkkulaði, áfengi, piparmynta og
nikotín. Fólki með vélindabakflæði
er einnig ráðið frá því að leggja sij^
eftir máltíðir og eins er því ráðlagt
að neyta ekki matar tveimur til
þremur klukkustundum fyrir svefn.
Ýmsar venjur og athafnir geta
einnig haft áhrif á einkenni bak-
flæðis. Ef fólk klæðist þröngum föt-
um er því til dæmis hættara við að
finna fyrir einkennum bakflæðis og
eins ef fólk bograr mikið. Einnig er
talið æskilegt að hækka höfðalag
rúms frá miðju baki.
Vitundarvakning um vélindabak-
flæði mun standa yfir í um mánuð
og hafa upplýsingabæklingar um
kvillann verið útbúnir bæði fyrir al-
menning og fagfólk. Eins verður að
finna ítarlegar upplýsingar á vef
Félags sérfræðinga í meltingar-
sjúkdómum, www.fsm.is. Eftir ára-
mót verður viðfangsefni Vitundar-
vakningar ki-abbamein í ristli og
endaþarmi og þá verður sambæri-
legu fræðsluátaki um þá sjúkdóma
hrandið af stað.