Morgunblaðið - 18.10.2000, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUÐAGUR 18. OKTÓBER 2000 41
UMRÆÐAN
Fræðslubæklingar
Hj artaver ndar
HÓPRANNSÓKN-
IR Hjartavemdar frá
síðustu árum hafa
glögglega sýnt fram á
hverjir séu sterkustu
áhættuþættir íyrir
kransæðasjúkdómum á
Islandi. Einstaklingur
með einn eða fleiri shka
áhættuþætti hefur
meiri líkur á því að fá
kransæðasjúkdóm en
einstaklingur með eng-
an slíkan þátt nema
bragðist sé við. Þessir
þættii- era eftirfarandi:
• Reykingar
• Blóðfitutraflanir
• Hár blóðþrýstingur
• Sykursýíd
• Offita
• Ónóg líkamshreyfing
• Erfðaþættir (flestir enn óþekktir)
Hóprannsóknir Hjartavemdai’
sem enn era í fullum gangi stefna að
því að leita að fleiri enn óþekktum
áhættuþáttum og jafnframt að kort-
leggja breytingar á tíðni kransæða-
sjúkdóma á íslandi og fylgjast með
breytingum á þekktum áhættuþátt-
um.
Hjartavernd hefur lagt á það
áherslu að koma niðurstöðum rann-
sókna sinna til almennings með mörg-
um hætti, meðal annars með útgáfu
fræðslubæklinga um alla helstu
áhættuþættina fyrir sig. Á þessu ári
hafa þannig komið út tveir veglegir
bæklingar skiifaðir af séríróðu fólki á
vegum Hjartaverndar. Fyrri bækl-
ingurinn fjallar um Reykingar -
dauðans alvara. I þeim bæklingi er
undirstrikuð áhætta samfara reyk-
ingum út frá íslenskri reynslu, þ.e.a.s.
út frá þeim stóra hópi Islendinga,
u.þ.b. 20 þúsund sem
tekið hefur þátt í hóp-
rannsókn Hjartavemd-
ar. Þar kemur m.a.
fram:
• Reykingar marg-
falda áhættuna á að
fá kransæðasjúkdóm,
þannig nær sjöfald-
ast áhættan meðal
kvenna sem reykja
meira en einn pakka
ádag.
• Þriðja hvert dauðs-
fall í aldurshópi 35-69
ára á íslandi má
rekja tfl reykinga.
• Fjöratíu ára ein-
staklingur sem heldur áfram að
reykja styttir ævflíkur sínar um nær
átta ár en góðu fi’éttimar era þær að
með því að hætta, jafnvel eftir margra
ára reykingar, er unnt að koma í veg
fyrir þetta að stærstum hluta.
Seinni bæklingui’inn fjallar um kól-
esteról - þekkir þú þitt kólesteról ...
er ástæða til að lækka það? í þessum
bæklingi er því lýst á myndrænan
hátt hvernig kólesteról í blóði gegnir
lykilhlutverki í myndun æðakölkunar.
Kólesterólgildi hvers einstaklings
ákvai’ðast að hálfu leyti af erfðaþátt-
um sem stjóma fituefnaskiptunum og
að hálfu leyti af mataræði. í bækl-
ingnum er bent á hvernig unnt er að
borða af hjartans lyst, aðeins með því
að hugsa örlítið um mataræðið. Bent
er á að meðalgildi kólesteróls í íslend-
ingum sé enn þá veralega of hátt
þrátt fyrir að það hafi lækkað um-
talsvert á síðasta áratug með breyttu
mataræði.
í bæklingnum er einnig skýrt hvað
séu æskileg gildi á kólesteróli í blóði
einstaklinga og hvenær sé sérstak-
Sjúkdómar
Við viljum hvetja sem
flesta, segir Gunnar
Sigurðsson, að kynna
sér bæklingana sem fást
á skrifstofu Hjarta-
verndar
lega ástæða tfl að mæla það. Á síðustu
áram hafa komið til góð lyf til að
lækka kólesteról þegar mataræði eitt
sér nægir ekki, t.d. vegna sterkra
erfðaþátta.
Við viljum hvetja sem flesta að
kynna sér þessa bæklinga sem fást á
skrifstofu Hjartavemdar í Lágmúla
9, 108 Reykjavík, sími 535-1800.
Einnig er bent á frekara fræðsluefni á
heimasíðu Hjartavemdar,
www.hjarta.is
Þrátt fyrir að tíðni kransæðasjúk-
dóma á íslandi hafi lækkað veralega á
síðasta áratug era þessir sjúkdómai'
enn þá algengasta dánarorsök á ís-
landi og fjölmargir falla íyrir þeim í
blóma lífsins. Því er forvamar- og
rannsóknarstarf Hjartavemdar
áfram mikilvægt í baráttunni við
hjarta- og æðasjúkdóma. Slíkt starf
kostar vissulega mikið fé og Hjarta-
vemd leitar því enn til landsmanna
um stuðning við þetta starf með þátt-
töku í happdrætti Hjartaverndar sem
dregið verður úr laugardaginn 21.
október næstkomandi.
Höfundur er prófessor og formaður
stjórnar Hjarúiverndar
Gunnar Sigurðsson
Sama halarófan
w
pi
h
birtist í sjónvarpinu
VERKAMAÐUR.
Launþegi. Getur það
verið að lífskjör okkar
séu ekki lengur tengd
kjarabaráttu verka-
lýðshreyfingarinnar?
Að allt aðrh’ þættir ráði
nú okkar daglega lífi og
lífskjörum en áður var?
Getur það verið að þær
baráttuaðferðir sem
bættu lífskjör fólks og
Kf fólks í upphafi tutt-
ugustu aldarinnar og
fram eftir öldinni verki
ekki lengur? Þetta eru
áleitnar spurningar í
dag. Einmitt í „góðær-
inu“. Þegar milljarðatugir bætast við
þjóðartekjurnar árlega.
Við skulum taka örlítið dæmi. Árin
1952 og 1955 vora allsherjarverkfoll
sem stór hluti verkalýðshreyfingar-
innar háði af allmikilli hörku. Við
sem eram það gömul að muna þessa
atburði og tókum þátt í þeim munum
tvennt. Andrúmsloftið við fram-
kvæmd verkfallanna en þá komu til
dæmis vissir einstaklingar úr for-
ystu verkalýðshreyfingnar sér upp
„þjóðsögu" sem dugði þeim ævilangt
á hverju sem gekk og svo viðbrögð
launþegafjölskyldnanna. Á mörgum
heimilum verkamanna, ef ekki öll-
um, var sest niður við eldhúsborðið
og sú staðreynd rædd að komið væri
verkfall sem gæti staðið lengi og í
verkfalli er ekkert kaup. Og flestir
drógu saman neysluna. Þá var þetta
hægt að vissu marki. Þá var fiskur
ódýr og mjólkin og kartöflurnar og
þá voru mörg dæmi um „samhjálp"
vina og vandamanna. Fólk missti yf-
h’leitt ekki eignir sínar í verkföllun-
um en skuldaði kannski fyrir mat hjá
kaupmanninum á hominu og margir
áttu smávegis sparifé. Þó að þessar
staðreyndir séu tíund-
aðar hér er ekki verið
aðdraga upp róman-
tíska mynd. Það er
engin rómantík í 5 eða
6 vikna verkfalli. Og þó
að sú skoðun sé ekki
studd sagnfræðilegum
rannsóknummá halda
því fram að í þessum
verkföllum hafi tvennt
gerst. Síðustu bita-
stæðu „félagsmála-
pakkarnir“ komu í vasa
launþega - atvinnu-
leysistryggingar og líf-
eyrissjóðir en á þessum
tíma voru verkfóll
raunveraleg pressa á atvinnurek-
endui’ og ríkisvaldið.
Og þetta var í síðasta skiptið sem
Launþegar
Hvað þolir fjölskyldan
langt verkfall? spyr
Hrafn Sæmundsson.
Ekki einn dag.
verkafólk á íslandi hafði frelsi til að
„svelta“ eftir eigin ákvörðun og gat
komið óbugað og með reisn út úr að-
gerðum verkalýðshreyfingarinnar.
Hvað breyttist á seinni hluta tutt-
ugustu aldarinnar sem gerði verk-
föllin - nauðvörn verkafólks - kraft-
laus og tilgangslaus? Tökum dæmi
um hugsanlegt allsherjarverkfall í
dag. Fjölskylda, hjón með þrjú börn,
tvö í framhaldsskóla og eitt í grann-
skóla tekur af eldúsborðinu og setur
leirtauið í uppþvottavélina og sest
svo niður og leggur spilin á borðið!
Allir tæma vasa sína á borðið og það
myndast hrúgur. Fimm farsímar, tíu
greiðslukort, reikningar fyrir af-
borgunum af tveim bílum, húsnæðis-
lánin, farseðlar fyinr sólarlandaferð-
ir, afborganir af snjósleðanum og
fellihýsinu. Auk þess óborgaðir nýj-
ustu reikningar fyrir rafmagn og
síma. Þegar hér er komið er heimil-
istölvan sótt og farið að reikna. Hvað
þolir fjölskyldan langt verkfall. Það
kemur í ljós að ekki er ein fyrirvinna
á heimilinu - allir vinna og vinna
mikið. Hjónin vinna meira en fulla
vinnu. Eldri börnin vinna með skól-
anum. Það yngsta ber út blöð. Þetta
er ekki tilbúið dæmi en auðvitað er
staða fólks misjöfn. Hvað þolir
þessi fjölskylda langt verkfall?
Ekki einn dag! Endar ná ekki saman
með fullri keyrslu allra fjölskyldum-
eðlima. Eftir „góðærin" setja stjórn-
völd svo upp ráðgjafarstofnun til að
glíma við „skuldir heimilanna".
En verkalýðshreyfingin leggur
enn í hann. Sama halarófan birtist í
sónvarpinu fyrir hverja samninga-
lotu á leið í Karphúsið, brosandi en
berjandi þó lóminn! Alltaf eins. Allt-
af sömu orðin. Alltaf sama niður-
staða.
Það er staðreynd að lífskjör
flestra launþega era betri nú en fyrir
hálfri öld. Fimm manna fjölskylda
sem öll er að vinna hefur helmingi
eða margfalt meiri tekjm’ nú en hlið-
stæð fjölskylda árin 1952 og 1955.
Hvað hefur þá gerst? Hefur orðið
einhver þróun í verkalýðshreyfing-
unni? Það eru margar áleitnar
spumingar. Og kannski era síðustu
forvöð að verkalýðshreyfingin reyni
að stilla kompásinn? Og ofan á allt
annað er hluti verkalýðshreyfingar-
innar að springa innbyrðis og berst á
banaspjót.
Höfundur er fv. atvinnumálnfulltníi.
Hrafn Sæmundsson
Einkavinavæð-
ing og valda- *
brölt stjórnar-
flokkanna
ÁFORM ríkisstjórn-
arinnar um sölu á
Landsbanka og Búnað-
arbanka bera öll merki
einkavinavæðingar og
valdabrölts stjórnar-
flokkanna. Sameining
bankanna í einn risa-
banka stuðlar að enn
frekari fákeppni á fjár-
málamarkaði og eykur
á valda- og eignasam-
þjöppun í bankakerf-
inu. Hagræðingin í
bankakerfinu frá 1990
hefur ekki leitt til
minni vaxtamunar eða
lækkunar á þjónustu-
gjöldum. Hagræðingin
hefur fyrst og fremst komið fram í
fækkun á starfsfólki, en frá 1990 hef-
ur fækkað um nálægt 700 manns í
hefðbundnum bankastörfum. Ná-
Ríkisbankar
Hagræðingin í banka-
kerfinu sl. 10 ár, segir
Jóhanna Sigurðardótt-
ir, hefur ekki leitt til
minni vaxtamunar eða
lækkunar á þjónustu-
gjöldum.
lægt 80% þessara starfsmanna era
konur.
Hagsmunir fjármagnseigenda
Þeirri spurningu þarf að svara
hvað fækkun viðskiptabankanna úr
sjö í þrjá á sl. 10 árum hefur skilað
neytendum. Vaxtamunur inn- og út-
lána hefur aukist og þjónustugjöld
hækkað, ekki síst til fólks sem er í
greiðsluvanda í bankakerfinu. Með
einkavinavæðingunni í bankakerfinu
hefur markmiðið fyrst og fremst
verið sett á arð til eigenda, en ekki
lægri vexti eða þjónustugjöld til
neytenda.
Uppnám á fjármálamarkaði
Engin stefnumótun hefur verið
gerð af hálfu ríkisstjórnarinnar um
æskilega þróun á fjármálamarkaði.
Ekkert mat hefur heldur verið lagt á
samkeppnisaðstæður á fjármála-
markaði fyrir innláns-
stofnanir og hvaða þró-
un er æskilegust til að
sporna gegn valdasanK- j
þjöppun og fákeppni.
Hvað þá að ríkisstjóm-
in hafi áhyggjur af því
hvaða áhrif áform
hennar hafa á starfsör-
yggi bankastarfs-
manna. Enda eru
áform ríkisstjórnarinn-
ar nú handahófskennd
og fálmkennd. Þau
hafa bæði sett fjár-
málamarkaðinn í upp-
nám og skapað örygg-
isleysi og ótta hjá
starfsfólki bankakerf-
isins. Ekkert liggur heldur fyrir um
áhrifin af fyrirhugaðri sölu á þenslu,
sem geta verið afar óæskileg ef fjár- ,.
festar fjármagna kaupin með lán-
töku.
Framsóknarflokkurinn
Ástæða er til að ætla að viðskipta-
ráðherra vilji í þessu máli setja al-
mannahagsmuni í fyrirrúm. Ihald-
inu hafi aftur á móti tekist eina
ferðina enn að knýja samstarfsflokk-
inn til þjónkunar við kolkrabbann og
örfáa sterka fjármagnseigendur og
valdablokkir sem sölsað hafa undir
sig í skjóli fákeppni og einokunar
hverja starfsgreinina á fætur ann-
airi. Dæmi: Olíu- og tryggingafélög-
in, flutningafyrirtæki, stórverslun-
arkeðjur, fjölmiðlar og nú síðast
banka- og fjármálamarkaðurinn.
Það eru sérhagsmunir þessara aðila
sem era í fyrirrúmi hjá ríkisstjórn-
inni en ekki almannahagsmunir.
Full ástæða er til að huga að því
hvort ekki væri eðlilegra að fara var-
lega í sakirnar og meta áhrif sölunn-
ar út frá ígrundaðri stefnumótun um
framtíðarþróun á fjármálamarkaði,
sem tryggði að spornað væri gegn
valdasamþjöppun og fákeppni. E.t.v.
yrði niðurstaðan þá að halda a.m.k.
öðram bankanum í meirihlutaeign
þjóðarinnar.
Höfundur er þingmaður.
www.mbl.is
Lynghagi — sérhæð
Vorum að fá í sölu fallega sérhæð með stórum bílskúr á þess-
um eftirsótta stað í vesturborginni. íbúðin er 3 svefnherb., gott |
hol og rúmgóðar stofur. Parket á öllu. Tvennar svalir. íbúð og
húsið nýstandsett. Laus fljótlega.
Kópavogur — 3ja herb.
Góð 3ja herb. íbúð á 2. hæð í fjórbýli v/Kársnesbraut. Sérinng.
Leiksvæði við baklóð. Hagstæð byggsjóðslán. Æskileg skipti á |
íbúð á jarðhæð.
Eignahöllin, Hverfisgötu 76, Reykjavík,
sími 552 4111, fax 552 3111.