Morgunblaðið - 18.10.2000, Page 46
MORGUNBLAÐIÐ
46 MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2000
jr-11... ...........................
UMRÆÐAN
SUS lýsir frati á
fæðing’arorlof
í stjómmálaályktun
Sambands ungra sjálf-
stæðismanna (SUS)
sem samþykkt var á
málefnaþingi í byijun
þessa mánaðar má lesa
eftirfarandi: Réttur for-
eldra til fæðingarorlofs
á að vera samnings-
atriði atvinnurekenda
fg launþega. Sam-
ykktin markar nokkur
tímamót en hún gengur
í berhögg við stefnu
sem mótuð var með nýj-
um lögum um fæðingar-
og foreldraorlof. Lögin
voru samþykkt sam-
hljóða á Alþingi síðast-
liðið vor og rómuð sem mikið fram-
Jafnrétti
Samþykktin, segir Þór-
unn Sveinbjarnardóttir,
gengur í berhögg við ný
r lög um fæðingarorlof.
faraspor í jafnréttisbaráttu kynjanna.
Með nýgerðri samþykkt sinni hefur
SUS í raun lýst frati á nýju lögin um
fæðingar- og foreldra-
orlof og verður það að
teljast til tíðinda þegar
ungliðahreyfing sem
stærir sig af því að vera
sú fjölmennasta hér á
landi tekur svo afger-
andi afstöðu gegn þeim
grundvallarréttindum
sem jafn réttur beggja
foreldra til töku fæðing-
aroriofs er - í það
minnsta í huga þeirra
sem aðhyllast kven-
frelsi og jafnrétti kynj-
anna.
Karlanefndin
faguaði...
Ég held að öllum þeim sem greiddu
hinum nýju lögum atkvæði í maímán-
uði síðastliðnum hafi verið ljóst að um
tímamótalagasetningu var að ræða.
Margra áratuga barátta fyrir jöfiium
rétti kynjanna til fæðingarorlofs bar
loks árangur og margir urðu til þess
að fagna. Karlanefhd jafnréttisráðs
fagnaði þessum tímamótum og sagði
hin nýju lög vera jafnstórt framfara-
skref í jafnréttismálum og þegar kon-
ur fengu kosningarétt árið 1915.
Karlanefndin, með formann sinn, Ól-
af P. Stephensen, fremstan í flokki,
skoraði einnig á íslenska karlmenn að
nýta sér þau tækifæri sem felast í
nýrri löggjöf og nýta rétt sinn til töku
fæðingarorlofs í þágu eigin fjöl-
skyldutengsla og þágu jafnréttis. Lík-
lega hefur enginn úr karlanefndinni
setið málefnaþing SUS á Akureyri.
.. .en ekki ungir sjálfstæðismenn
Formaður jafnréttisnefndar Sjálf-
stæðisflokksins, Stefanía Óskars-
dóttir varaþingkona, ritaði grein í
þetta blað þar sem m.a. sagði að með
nýjum lögum um fæðingarorlof væri
öllu lagalegu misrétti á milli kynjanna
eytt hér á landi. Má ætla að formaður
jafnréttisnefndar flokksins hafi ritað
þetta í trausti þess að þorri sjálfstæð-
ismanna væri fylgjandi jafnrétti í
reynd. Nú hefur hins vegar komið á
daginn að ungir sjálfstæðismenn telja
rétt foreldra til fæðingarorlofs best
tryggðan í samningum á milli at-
vinnurekenda og launþega. Er nokk-
ur furða þótt maður velti því fyrir sér
hvert Sjálfstæðisflokkurinn stefni í
jafnréttismálum? Ekki síst í ljósi þess
að málefnaþing SUS situr yngsta
kynslóð sjálfstæðismanna, sú sem
væntanlega ætlar sér stóra hluti í
stjómmálum á komandi árum og ára-
tugum.
Höfundur situr á þingi fyrir Sam-
fylkinguna.
Þórunn
Sveinbjamardóttir
Hreinsa þarf upp allt rusl sem fleygt er
á götur borgarinnar. Þaö kostar peninga
sem koma frá þér. Er þeim ekki betur
varið annars staðar?
Göngum vel um borgina okkar og losum
rusl í ruslafötur.
REyKJAVlK
U ES H r ISPAKIFÖTIN
i Borgarstjórinn í Reykjavík
Hreinsunardeild Gatnamálastjóra
GÖTUR ERU EKKI
RUSLAFÖTUR
Fjárfestum í
beinum
HINN 20. október er
alþjóðlegi beinvemdar-
dagurinn. Tilgangur-
inn með honum er að
minna almenning á
mikilvægi lifnaðar-
hátta sem stuðla að
beinvernd. Slagorð al-
þjóðabeinverndardags-
ins er að þessu sinni
„invest in your bones“
eða „fjárfestum í bein-
um“. Aætla má að á ís-
landi brotni árlega
a.m.k. þúsund einstakl-
ingar af völdum bein-
þynningar, þ.e. við lít-
inn eða engan áverka.
Beinbrot em mjög dýr fyrir éin-
staklinginn og þjóðfélagið, að ekki sé
talað um þjáningarnar sem þau
valda. Bein era lifandi vefur sem er í
stöðugri endurnýjun lífið á enda.
Staðreyndin er hins vegar sú að á
fyrsta þriðjungi ævinnar er upp-
bygging meiri en niðurbrot en eftir
það breytast hlutföllin og sé ekkert
að gert verður niðurbrotið mun
meira en uppbyggingin á síðari hluta
ævinnar. Utkoman verður þá hinn
þögli sjúkdómur beinþynning. Því
fyrr sem einstaklingur byrjar að
fjárfesta í beinum sínum, því betra.
Fjárfesting í beinum felst í hollu
mataræði sem er ríkt af kalki og D-
vítamíni, reglulegri hreyfingu, því að
forðast reykingar og neyta áfengis í
hófi.
Hjúkranarfræðingar á bæklunar-
deild vinna mikið með fólki sem hef-
ur beinþynningu. Eðli sjúkdómsins
vegna era eldri konur þar í talsverð-
um meirihluta. Þessar konur era oft
lágvaxnar, smábeinóttar og orðnar
hoknar í baki. Forsagan er yfirleitt
sú að þær urðu fyrir því að detta og
þrátt fyrir að fallið væri alls ekki al-
varlegt brotnaði það
bein sem þyngsta
höggið fékk, oftast
mjaðmarbein. Sumar
þessara kvenna hafa
jafnvel oft brotnað og
era orðnar svo hrædd-
ar um að detta og
brotna að þær hreyfa
sig varla út úr húsi. Þá
era þær jafnframt
komnar inn í vítahring
vegna þess að minni
hreyfing leiðir af sér
meiri beinþynningu.
Um leið og einstakling-
ur byggir upp vöðva
byggir hann upp bein.
Mjaðmarbrot krefst skurðaðgerð-
ar þar sem settur er nagli í beinið til
að það grói rétt saman og í sumum
tilfellum þarf að setja gervilið í
Beinvernd
Því fyrr, segir Eyrún
Ólafsdóttir, sem ein-
staklingur byrjar að
fjárfesta í beinum sín-
um, því betra.
mjöðmina. Strax daginn eftir upp-
skurðinn er einstaklingurinn drifinn
á fætur og hefst þar með endurhæf-
ingin. Mjaðmarbrot leiðir af sér
mikla skerðingu á getu einstaklings-
ins til sjálfshjálpar. Til þess að ein-
staklingurinn komist heim þurfa
margir aðilar að koma að máli, s.s.
félagsráðgjafar, hjúkranarfræðing-
ar, iðjuþjálfar, læknar, sjúkraliðar
og sjúkraþjálfarar. Stundum þarf
einstaklingurinn að dvelja á stofnun í
mjög langan tíma áður en hann
kemst til síns heima. Aldraðir ein-
staklingar sem hafa búið heima þrátt
fyrir mjög takmarkaða getu til þess
geta jafnvel þurft að breyta um bú-
setu eftir áfall sem þetta.
Fjárfesting í beinum er góð fjár-
festing. Ég hvet alla til að huga að
beinabankanum sínum og hvað þeir
geta gert til þess að eiga þar sem
mest innlegg ævina á enda. Því fyn-
sem byrjað er að fjárfesta í beinum,
því betra.
Höfundur er hjúkrunarfrædingur og
er í stjóm Beinvemdar.
Eyrún Ólafsdóttir
Hvaleytarbiaul 18-20 220 Hafiuul|Siðui. Siml: S6S-S0SS / Fax. S6S-S036
SÝNING:
Fræsarar, járnsmíðavélar,
Rennibekkir, Blikksmíðavélar,
Sagir, CNC vélar, a.FL.. O.fl..
□ pið hús.
Miðvikud.- Föstud. Ki_. 10-19.
Laugard. Kl. 10-18.
SUNNUO. Kl_. 10-17.
***26 ára traust samstarf við íslenskan iðnað.*** I