Morgunblaðið - 18.10.2000, Qupperneq 65
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2000 6.5
_______FÓLK í FRÉTTUM__
Björninn unninn hjá
David Gray
ERLENDAR
oooooo
Davíð Logi Sigurðsson fjallar
um plötuna White Ladder sem
vakið hefur eftirtekt á snjöll-
um lagasmið, David Gray.
★★★★☆
ÞAÐ má víst þakka frændum okkar
írum að þessi snilldarplata Davids
Grays hlaut á endanum þá athygli
sem hún átti skilið í Bretlandi. Það
eru nefnilega liðin hátt í tvö ár síðan
White Ladder kom fyrst út en það er
fyrst núna í ár sem hún skýst í hæstu
hæðir vinsældalistanna, eftir að Irar
tóku hana upp á sína arma, spiluðu
lögin af henni í útvarpi og ollu því
þannig að breskir útvarpsmenn féllu
loksins kylliflatir.
Eg verð að játa að ég kunni engin
deili á David Gray þegar ég heimsótti
Irland í sumar. Þegar ég fór þaðan
eftir tíu daga heimsókn var nafn hans
hins vegar greypt mér í minni enda
var varla hægt að kveikja á útvarps-
tæki án þess að heyra smellinn Bab-
ylon óma um öldur Ijósvakans. Nú
mun lagið hafa tekið að heyrist einnig
hér á íslandi og er það vel.
Gray mun hafa verið að burðast við
að slá í gegn í Bretlandi allt frá árinu
1992 þegar hann gerði fyrst samning
við útgáfufyrirtækið EMI. Plötum
hans þremur vai- jafnan hampað af
poppskríbentum og öðrum lista-
mönnum sem til Grays þekktu en ein-
hverra hluta vegna náðu þær aldrei
að gera það gott. Gray gafst síðan
upp á öllu saman 1997, þegar samn-
ingur hans við EMI rann út, ákvað að
láta kylfu ráða kasti og gera næstu
plötu heima í stofu hjá sér,
algerlega á eigin forsend-
um en ekki í slagtogi við
hinn hverfula tónlistar-
bransa.
Afraksturinn varð
White Ladder, sem Gray
gaf sjálfur út. Hann hafði
ákveðið að listin skyldi
vera algerlega á hans eig-
in forsendum, sölutölur
skiptu ekki lengur máli og
hann gerði sér í besta falli
von um að selja eins og
fimm þúsund eintök eða
svo. White Ladder spurð-
ist hins vegar einkar vel út
og hefur nú selst í milljón-
um eintaka. Nafn Grays er
ekki lengur vel geymt
leyndarmál heldur er hans
næstu plötu beðið með eft-
irvæntingu.
En hvað er svona
merkilegt við White
Ladderl Jú, platan er
fersk og skemmtileg, lög-
in eru hvert öðru betra og
söngrödd Grays nýtur sín til fulln-
ustu. Kassagítarinn er fyrirferðar-
mikill á plötunni og raunar er Gray
talsvert í trúbador-gímum. Öðrum
hljóðfæium er hins vegar beitt af út-
sjónarsemi og fylla lögin, þannig að
hvert einasta lag nýtur sín til fulln-
ustu. Hvergi er hljóði ofaukið, hvergi
er verið að beita einhverjum „effekt-
um“ þar sem þeirra er ekki þörf.
Minnir tónlistin m.a. á bestu verk
Vans Morrisons, sem Gray hefur í
hávegum, Hothouse Flowers og aðra
viðlíka listamenn, sem gera laga-
smíðunum hátt undir höfði en beita
ekki tækninni til að mála yfir glufurn-
ar í sjálfri andagiftinni.
Þegar hefm’ verið minnst á lagið
Babylon sem er einkar grípandi og
skemmtilegt enda það lag sem náð
hefur mestum vinsældum af plöt-
unni. Fyrsta lagið, „Please Forgive
Me“, er einnig útvarpsvænt og naut
víst dágóðra vinsælda á dansgólfun-
um í sumar í þar til gerðri útgáfu
Pauls Hartnolls (Orbital). Titillagið
„White Ladder“ grípur líka vel,
kannski vegna þeirrar hráu áferðar
sem er á laginu, sem og rólegt lag,
Nightblindness“. Loks ber að geta
gamla Soft Cell-lagsins „Say hello
wave goodbye", sem Gray fer snilld-
arlega með á þessari plötu.
Það er hins vegar heildarmyndin
sem skiptir máli. Lögin á plötunni
eru alls tíu og þar er hvergi veikan
hlekk að finna, öll standa þau fyrir
sínu og njóta sín vel þegar skrúfað er
upp í tækinu. Gray er einfaldlega svo
snjall lagasmiður og útsetjari að full-
yrða má að hann sé kominn til að vera
og þurfi aldrei aftur að hafa áhyggjur
af því að ná ekki eyrum fjöldans nú
þegar björninn er loksins unninn.
Ert þu buin að skra þig?
Virkjum kraft kvenna
Ráðstefna fyrir konur á
Grand hótel á morgun 19. október
kl. 13-17.
Skráning á mbl.is eða
í síma 510 6252
HASKÚLINN | RIVKJAVlK
MVKJAVIR Ul
Deloítte &
NÝSKÖPUNARSJÖÐUR ÍSLANDSBANKI TOUCÍIB^
NU ENN KROFTUGRA
OG FLJÓTVIRKARA
Vid kynnum Age Management Retextur Booster
Þú finnur strax muninn
Húð þín geisiar
Nú veistu að eftir 7 daga
veróur húó þín áberandi yngri
KYNNING
í dag, miðvikud. 18. okt.. í Kringiunni,
á morgun. fimmtud. 19. okt.. á Laugaveg:
10% kynningaraísláttur
- æSw’ og fallegur kaupauki
Vertu velkomin
Kringlunni. sími 533 4533
Laugavegi 23. simi 511 4533
HVA0 EF ÞU GÆTIR SÉÐINN Í HUGA M0R0INGJA
...VITAÐ UYNOARMAL HANS
...HVAÐ £F ÞÖ GÆTiR EKKISLOPPIÐ
FRUMSYND 20 0KTÓBER
strik
MÍNHINIH SDtnNUllUft UÍINNUU UOUNUM VNUHIIN IU AHA ÍUIS IKKIUIU HAIIUIIIKVAMHA
HV-.KOI MilU