Morgunblaðið - 04.11.2000, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Sjókvíaeldi, sisona
ÚRSKURÐUR
Sivjar Friðleifsdóttur
umhverfisráðherra
um að fyrirhugað sjó-
kvíaeldi á laxi í Mjóa-
firði þurfi ekki að fara
í umhverfismat orkar
tvímælis, svo að ekki
sé dýpra í árinni tek-
ið. Ráðherrann heldur
því fram að úrskurð-
urinn hafi ekki for-
dæmisgildi gagnvart
afgreiðslu annarra
umsókna um sjókvía-
eldi við strendur Is-
lands. Eg leyfi mér að
efast um að það gangi
eftir. Siv Friðleifs-
dóttir hefur markað þá stefnu í
embætti umhverfisráðherra að
náttúran skuli ekki njóta vafans
þegar deilt er um áhrif fram-
kvæmda á umhverfið. Furðu sæt-
ir að æðsti maður umhverfismála
hér á landi skuli ekki bera hags-
muni náttúrunnar fyrir brjósti
ellegar fylgja anda þeirra al-
þjóðasamninga á sviði náttúru;
verndar sem við erum aðilar að. I
nágrannalöndunum eru ráðherrar
umhverfismála oft umdeildir
vegna þess að þeir eru einarðir
málsvarar umhverfisverndar,
stundum þvert á stefnu ríkis-
stjórnarinnar sem þeir sitja í. Því
er ekki að heilsa hér á landi.
Ófullnægjandi laga-
umhverfí
Ný lög um mat á umhverfis-
áhrifum framkvæmda, sem sett
voru á Alþingi síðastliðið vor,
færðu margt til betri vegar í um-
hverfismatsferlinu. Lögin eru þó
ekki fullkomin frekar
en önnur mannanna
verk og strax orðið
Ijóst að ýmislegt
þarfnast lagfæringa
við. Samkvæmt lögun-
um er þauleldi fiska
tilkjmningaskylt til
Skipulagsstofnunar.
Það þýðir að í hverju
tilviki beri Skipulags-
stofnun að leita ráð-
gjafar og meta hvort
framkvæmdin eigi að
fara í umhverfismat.
Eins og kunnugt er
kvað Skipulagsstofn-
un sjókvíaeldi í Mjóa-
firði ekki þurfa að
fara í mat og ráðherrann staðfesti
þann úrskurð.
Aðaláhyggjuefni þeirra sem
kærðu úrskurð Skipulagsstofnunar
til ráðherra er að sjókvíaeldi á
norskum laxi við íslandsstrendur
stofni íslenska laxinum í hættu
vegna erfðamengunar og smitsjúk-
dóma. Nýju umhverfismatslögin
taka ekki á spurningunni um
erfðablöndun og eru því í raun
ófullnægjandi tæki í mati á áhrif-
um sjókvíaeldis á umhverfið. í
grein sérfræðinga Veiðimálastofn-
unar í Veiðimanninum frá því í
júní í sumar er sérstaklega varað
við ófyrirsjáanlegum afleiðingum
erfðablöndunar laxastofna og
mælst til þess að farið sé með gát í
sjókvíaeldi við strendur Islands.
Byggja fyrst -
teikna svo
Á sama tíma og umhverfisráð-
herra hleypir sjókvíaeldinu í gegn
í Mjóafirði hvetur landbúnaðar-
Umhverfi
✓
I nágrannalöndum okk-
ar eru ráðherrar um-
hverfismála oft um-
deildir vegna þess,
segir Þórunn Svein-
bjarnarddttir, að þeir
eru einarðir málsvarar
umhverfisverndar.
Því er ekki að heilsa
hér á landi.
ráðherra sömu ríkisstjórnar til
varúðar og setur á fót vinnuhóp
sem fara á ofan í saumana á
möguleikum sjókvíaeldis hér við
land.
Hefði ekki verið nær að leyfa
vinnuhópi landbúnaðarráðherra
að starfa og skila niðurstöðum áð-
ur en lengra var haldið í þessu
máli? Nei, ríkisstjórn Islands ætl-
ar að byggja fyrst og teikna svo.
Enn og aftur á að ana út í eldis-
ævintýr án heildarstefnumörkun-
ar í atvinnugreininni ellegar
kortlagningar á því hvar sé best
að stunda sjókvíaeldi hér við
land.
Slíkt ber hvorki faglegum
vinnubrögðum, framsýni né póli-
tísku hugrekki vott.
Höfundur situr í umhverfís-
nefnd Alþingis.
Þórunn
Sveinbjarnardóttir
LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2000 6J,
Amerískir
hvíldarstólar
Amerisku heilsudýnurnar
Handboltinn á Netinu
ROSNER
Kvensíðbuxur
þrjár skálmalengdir
mikið úrval
Suðurlandsbraut 50, simi 533 0100,
(bláu húsin við Fákafen).
Opið virka daga 10-18, laugard. 10-16.
0mbKis
Laugardagar til lukku í ACO
Sony hljómtækjasamstæða
Laugardagstilboð ACO Opið frá ki. 11:00-16:00
Hljómtækjasamstæða
Magnari 2x60W RMS
Útvarp með FM/AM RDS klukku
geislaspilari fyrír 3 diska
Tvöfalt segulband auto-reverse
Tónjafnari með minnum
2 Way hátalarar
Fjarstýring
MP3 spilarí/hljóðupptaka
32 Mb minni
stækkanlegt í 64 Mb
tónjafnari
hugbúnaður á geisladiski
heyrnartól
rafhlöður
taska
SONY
24.900 kr.
D-Link
17.900 kr.
Vertu vandláturá vörumerkin
ACO er opið á laugardögum í allan vetur og
mun alltaf hafa á boðstólum eina eða fleiri
vörutegundir á sérstöku laugardagstilboði.
300
hugsaðu I skapaðu I upplifðu
Skaftahlffi 24 • Sfmi 630 1800 • Fax 530 1801 • www.aco.ls
MHC-BX3
DMP-100