Morgunblaðið - 04.11.2000, Qupperneq 66
66 LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2000
A,-----------------------------
SKOÐUN
MORGUNBLAÐIÐ
HVERSVEGNA ÞÚSÖLD?
AÐ undanfömu hafa birzt í Morg-
unblaðinu þrjú lesendabréf um
nýyrðið þúsöld, sem ég undirritaður
ber ábyrgð á. Af bréfunum má ráða,
að bréfritarar hafa ekki áttað sig á,
hvað liggur til grundvallar orðinu, en
frá því skýrði ég í greinargerð um
götunöfn í nýju hverfi í Grafarholti,
sem birtist m. a. í Morgunblaðinu 27.
ágúst 1999.
Þórhallur Hróðmarsson í Hvera-
gerði segir í bréfi 13. september sl.:
„þar sem öld þýðir hundrað ár þýðir
þúsöld, samkvæmt minni málkennd
og mínum stærðfræðiskilningi, þús-
und aldir.“ Bréfritari segir, að orð
þetta hafi margir „apað eftir“, „en um
þverbak keyrði þó þegar fréttastjóri
Ríkissjónvarpsins tók sér þetta orð-
skrípi í munn um síðustu helgi, en
fjölmiðill hans finnst mér öðrum
fremur eiga að standa vörð um ís-
lenska tungu.“
I þætti um íslenzkt mál 21. október
sl. segir umsjónarmaður þáttarins,
Gísli Jónsson, að Pálmi Jónsson á
Sauðárkróki teiji í bréfi, „að orðið
þúsöld = þúsund ár sé ekki rétt hugs-
að og vill kalla fyrirbærið tugöld,
finnst að hitt sé hundrað þúsund ár.“
Gísli kveðst ekki ætla í neina reikn-
ingslist, en minnir á sex orð, sem nú
hafi komið fram um hugtakið, og vís-
ar í fyrrnefnda grein Þórhalls
Hróðmarssonar.
Vegna þeirra, sem kynnu að vilja
fræðast um sögu umræddra orða,
þykir mér rétt að gera fáeinar at-
hugasemdir við frásögn Gísla af orð-
unum:
1) Orðið a ldatugur (misritað í þætt-
inum aldartugur), sem Gísli kveðst
halda, að Þór Jónsson blaðamaður (f.
1964) sé höfundur að, kemur sam-
kvæmt seðlasafni Orðabókar Háskól-
ans fyrir í kvæði Einars Benedikts-
sonar Haugaeldi í Hafbliki 1906 (áður
prentað í Þjóðólfi árið 1900), en síðar
í verkefnavinnu tengdu náminu nýti ég mér gríðarlegt magn
upplýsinga sem er að finna í Gagnasafninu og kaupi greinarnar
í lausasölu þegar mér hentar."
í Gagnasafni Morgunblaðsins er að finna fréttir og greinar Morgunblaðsins
frá árinu 1987 fram á þennan dag. Greinar, fréttir, viðtöl eða umfjöllun
er auðvelt að finna, hvert sem viðfangsefnið er. Gagnasafnið nýtist
öllum sem þurfa að afla heimilda og fróðleiks í starfi, námi og leik.
Áskrift frá 2.000 kr. á mánuði eða lausasala 60 kr. greinin.
• Áskrifendur geta látið sérstakan Vaka vakta
Gagnasafnið og fengið sendan tölvupóst
• Öflug leitarvél frá AUTONOMY
• Með fréttum og greinum fylgja myndir,
kort og gröf
Kynntu þér Gagnasafnið á mbl.is eða hringdu í síma
og fáðu nánari upplýsingar.
569 1122
GAGNASAFN MORGUNBLAÐSINS Á
mbl.is
eru fleiri dæmi um orðið, auk þess
sem það er í Orðabók Menningar-
sjóðs (undir árþúsund).
2) Orðið ávþúsund, sem Gísli ber
Sigurð Eggert Davíðsson kennara á
Akureyri (f. 1946) og fleiri fyrir, kem-
ur samkvæmt seðlasafni Orðabókar
Háskólans fyrir í Aldamótssöng eftir
danska rithöfimdinn W. H. F. Abra-
hamson í þýðingu Finns Magnússon-
ar prófessors í Minnisverðum tíðind-
um, Leirárgörðum 1799-1806. Frá
lokum 19. aldar eru önnur dæmi um
orðið í seðlasafninu, og á þessari öld
er það m.a. í mannkynssögubókum.
Sumir hafa þó ekki kunnað við hið
fastsamsetta árþúsund og hafa notað
í þess stað áraþúsund (t.d. Þorleifur
H. Bjamason).
3) Orðið tugöld, sem Gísli segir, að
nú komi frá Pálma Jónssyni á Sauð-
árkróki, er í heiti sálms Sigurbjarnar
Einarssonar biskups, A mótum tug-
alda, sem fluttur var á kristnihátíð á
liðnu sumri.
í sama íslenzkuþætti Gísla segir
Ámi R. Ámason alþingismaður: ,AHt
síðan Reykjavíkurborg ákvað þessa
misheppnuðu nafngift á nýja hverfið í
Grafarholti hefur þetta orðskrípi (þ.
e. þúsöld) dunið á okkur linnulaust í
fjölmiðlum þar til nú að Mogginn hóf
upp betra tungutak. Mér fannst al-
gjör óþarfi og raunar óþurftarverk að
smíða slíkt orðskrípi og halda fram
sem nýyrði í stað árþúsunds. Eða
hvernig þætti sömu mönnum nýyrðið
hundöld um hundrað ár í stað ald-
ar?“ Þingmanninum er greinilega
heitt í hamsi. En hefði ekki verið ráð,
áður en giipið var til stóryrðanna, að
kynna sér betur, hvaða hugsun liggur
að baki nýyrðinu þúsöld?
Að gefnu þessu tilefni þykir mér
rétt að rifja upp helztu rökin fyrir
nýyrðinu og útskýra sumt nánar en
ég gerði í fyrmefndri greinargerð
minni:
A 17. öld tóku Þjóðverjar að nota
orðið Jahrhundert um ‘hundrað ára
tímabil’ og Danir síðan eftir þeim orð-
ið ái-hundrede. íslendingar völdu
aðra leið og gáfu nafnorðinu öJdþessa
merkingu. Upphaflega merkti öld
‘menn’, þ. e. ‘þeir, sem aldir em’ (af
sögninni að ala), en síðan ‘manns-
aldur’, þá ‘tímabil’ (sbr. Sturlung-
aöld) og loks ‘hundrað ára tímabil’.
Jón Árnason biskup nefnir hundrað
ára öld í Kalendarium Gregorianum
1707, Finnur Magnússon talar um
liðna öld í fyiTnefndum Aldamóts-
söng, og Magnús Stephensen birti
Eftirmæli átjándu aldar 1806. Þetta
er sama leið og farin var í latínu, þar
sem saeculum, sem í upphafi merkti
‘mannkyn, kynslóð’, fékk merking-
una ‘mannsævi’, þá ‘tímabil’ og loks
‘hundrað ára tímabil’.
Nafnorðið öld er ákaflega hagan-
legt orð í síðastnefndri merkingu,
eins og sjá má, ef borið er saman á
tólftu öld á íslenzku og i det tolvte ár-
hundrede á dönsku, sem hefði getað
cirðið á tólfta árhundraði á íslenzku.
Islendingar geta sagt stutt og laggott
í aldarlok, en Danir verða að segja
t.d. i slutningen af árhundredet. Að
ekki sé minnzt á muninn á samsettu
orðunum árhundredskifte á dönsku
og aldamót á íslenzku, setp fætt hefur
af sér orð eins og aldamótaljóð og
aldamótakynslóð. Satt að segja er
Þjóðverjum margt betur lagið en
smíð nýyrða úr efniviði þjóðtungunn-
ar, enda háir þeim - og reyndar öðr-
um germönskum þjóðum en Islend-
ingum - æfingarleysi, þar sem þær
hafa þegið aragrúa tökuorða úr róm-
önskum málum og grísku. Islending-
Nettoi^
c Babinnréttingar
Vantar þig nýtt og betra
baö fyrir jólin?
Nú er lag, því viö
bjó&um allt ab
Friform
HÁTÚNI6A (í húsn. Fönix) SÍMI: 552 4420