Morgunblaðið - 24.11.2000, Page 16

Morgunblaðið - 24.11.2000, Page 16
16 FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Rakel Baldursdóttir kúabóndi í Norður-Noregi Hef efasemdir um blöndun við íslenskar kýr Gaulverjabæ. Morgunblaðið. „ÞAÐ er allt í lagi með NRF- kýrnar, þær geta mjólkað mikið, enda stórar, en persónulega er ég á móti því að blanda þeim við ís- lenska stofninn af ýmsum ástæð- um,“ sagði Rakel Baldursdóttir í símaspjalli við Morgunblaðið. Nú þegar landbúnaðarráðherra hefur komið undan feldinum og leyft tilraunainnflutning á fóstur- vísum eru norskar NRF-kýr mikið í umræðunni. Islensk kona, Rakel Baldursdóttir, ættuð frá Selfossi, hefur búið kúabúskap á bænum Mosöyen í Norður-Noregi undan- farin ár ásamt manni sínum, Stein Överaas, og þremur börnum. Bær- inn er nálægt Tynset, um 200 kíló- metra fyrir sunnan Þrándheim. Rakel kynntist vel íslenskum kúm, en hún var lengi í sveit á Blesa- stöðum á Skeiðum og átti þar á tímabili sitt annað heimili. Stein er fæddur og uppalinn á staðnum og tóku þau við búi foreldra hans 1989. Mjólkurkvótinn á bænum er 111.000 lítrar og er meðalnytin yf- irleitt nálægt 7.000 lítrum á kúna yfir árið. Þau búa eingöngu með margumræddar NRF-kýr en Rak- el sagði mörg kyn í notkun í land- inu þótt flestir væru enn með þetta sama í mjólkinni. Þar má nefna svartskjöldóttar Holsten, einnig Hereford og belgískar blá- ar, „sem mér finnst nú hálfhorm- ónalegt kjöt að sjá“, sagði Rakel. Einnig er til eitthvað af gamla norska kúakyninu en hún kvaðst ekki þekkja til þess. Algeng bú- stærð er 15 til 25 kýr í á hennar svæði. „Sumir hér kjósa bara að hafa minni gripi, halda því fram að þeir séu hraustari og nytsamari á fóður.“ Aðspurð hvernig henni litist á útflutning á fósturvísum til íslands og blöndun kvaðst hún vera á móti því og kæmi ýmislegt til. „Mér finnst okkar norsku kýr nýta gróf- fóðrið verr en þær íslensku og vera háðari miklu kjarnfóðri til að skila afurðum. Ég er nokkuð smeyk um burðarerfiðleika vegna þess hve íslenska kýrin er minni. Hér fæðast stundum mjög stórir kálfar. Einnig koma hér nánast allir kálfar hyrndir og fáum við dýralækni til að brenna hornin á þeim nokkurra vikna gömlum. Þótt flestar séu rólegar koma alltaf öðru hvoru hér kvígur sem eru erf- iðar í skapi. Stærðin veldur því að lítið ræðst við skapstirða gripi og þarf því oftast að slátra þeim. Súr- doði þekkist og aðeins ber á júgur- bólgu, sérstaklega á haustin." Breyta þarf byggingum á Islandi Einnig nefndi Rakel að það þyrfti breytingar á byggingum á Islandi, t.d. að stækka bása. Hún sagði, þótt það skipti ekki máli, að hún saknaði fjölbreytninnar í litum í íslenska kúastofninum en ríkj- andi litur hjá þeim er svartur og rauður. Rakel og Stein verka heyið mest í vothey og er það sett í gryfju. Þau láta rúlla fyrir sig þegar fullt Morgunblaðið/Anne Biehl Hansen Fjölskyldan í sleðaferð. Til vinstri Stein Överaas og Rakel Baldursdóttir hægra megin. Fyrir sleðann er spennt merin Frökk frá Klængsseli í Gaulverjabæjarhreppi. er í gryfjunum en eiga ekki tæki til þess. Einnig er aðeins tekið í þurrhey og er það gefið sem „for- réttur", kúnum til mikillar gleði. Ólíkt því sem tíðkast hérlendis er mysan nýtt sem fóður og gefin á veturna. Þykir kúnum það hið mesta sælgæti og hjálpar mysan mjög upp á prótein í mjólkinni að sögn Rakelar. Hún kvað þau líka reyna að velja naut með hátt prót- ein fyrir kýr sem gefa lakari prós- entu. Heysýni eru tekin til að kanna gæði og efnasamsetningu fóðurs líkt og hérlendis. A sumrin eru kýrnar í seli um 8 km frá bænum. Þar eru þær rúma tvo mánuði með kúm af fleiri bæj- um. Er það orðið mjög fátítt og fá þau styrk frá norska ríkinu til að viðhalda þeim gamla sið. Fá þau þá frí frá mjöltum en hús fylgir og er maður ráðinn til mjalta. Hún kvað síðasta sumar hafa verið gott „fóðurár en sumrin eru annars misjöfn til heyskapar líkt og á ísl- andi“, sagði Rakel að lokum. Rakel Baldursdóttir með dætrum sinum Aina Eydísi og Christine Asu. Varnarsamstarf Islands og Bandarrkjanna Viðræðum miðar vel áfram DANIEL Hamilton, aðstoðarvaraut- anríkisráðherra Bandaríkjanna sem sér um málefni Evrópu, segir að við- ræðum íslenskra og bandarískra embættismanna um ýmsa þætti í varnarsamstarfi þjóðanna miði vel en fyrirhugað er að viðræðunefndir landanna hittist í Washington 7. des- ember. Segist Hamilton vænta að einhverjar niðurstöður geti þá legið fyrir. „Ég held að báðir aðilar séu nokkuð ánægðir með framgang við- ræðnanna," segir hann. Viðræður um bókun við vamar- samninginn, sem gerð var árið 1996, eru þó enn ekki hafnar, eins og ný- lega kom fram í máli Halldórs As- grímssonar utanríkisráðherra á Al- þingi, en hún rennur út í apríl á næsta ári. Bókunin kveður nánar á um framkvæmd varnarsamningsins. Viðræðumar nú snúast m.a. um framkvæmd tiltekinna þátta í varn- arsamstarfi íslands og Bandaríkj- anna. Þar á meðal um aðgengi að herstöðinni á Keflavíkurflugvelli sem og um verktöku og sjóflutninga fyrir vamarliðið. Sömuleiðis er rætt um það hvernig halda beri upp á fimmtíu ára afmæli vamarsamnings ríkjanna á næsta ári á viðeigandi máta. Hamilton stýrir viðræðuhópi Bandaríkjamanna og segist ekki gera ráð fyrir róttækum breytingum á fyrirkomulagi vama hér á landi. Hann aðsegir ágreiningur um ein- stök atriði sé það lítill að vart taki að nefna hann. Aspurður kvaðst hann ennfremur ekki vilja fara nánar út í þann ágreining. Matsáætlun vegna borunar í Grændal SKIPULAGSSTOFNUN barst til- laga Sunnlenskrar orku 20. nóvem- ber sl. að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum bomnar rann- sóknarholu í Grændal. Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram at- hugasemdir. Hægt er að óska eftir eintökum af tillögunni hjá Skipulags- stofnun, Laugavegi 166 í Reykjavík. Einnig er hægt að nálgast tillögu að matsáætlun á heimasíðu Sunn- lenskrar orku: www.rarik.is/sunn- orka. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 4. desember 2000 til Skipulagsstofnun- ar, Laugavegi 166,150 Reykjavík. Skipulagsstofnun hefur leitað um- sagnar sveitarfélagsins Ölfus, Nátt- úmverndar ríkisins, Hollustuvemd- ar ríkisins og iðnaðarráðuneytisins. Ákvörðun Skipulagsstofnunar um tillögur framkvæmdaraðila að mats- áæltun mun liggja fyrir 20. desem- ber 2000. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson • • Orninn mættur á Nípunef ÖRNINN sem hefur komið í Mýr- dalinn tvö síðastliðin haust birtist á þriðjudagsmorgun á sinum gamla stað austan við Vík í Mýr- dal, þriðja árið í röð. Þegar fréttaritari Morgun- blaðsins fór að gefa fiskum í fisk- eldisstöð Fagradalsbleikju var örninn mættur á sinn gamla stað, Nípunef. Fyrir þremur árum var haldið að veiðimenn hefðu skotið örninn austur í Skaftártungu og varð það að lögreglumáli. Vélstjóra dæmdar 7,4 milljónir króna í skaðabætur ÚTGERÐARFÉLAG Akureyringa var dæmt í Héraðsdómi Reykjavíkur í á miðvikudag til að greiða skipveija 7.433.763 krónur með vöxtum frá mars 1997 vegna vinnuslyss er hann varð fyrir á bryggju í Ólafsvík svo og málskostnað hans, 750.000 krónur. Málið var höfðað til heimta skaða- bætur vegna vinnuslyss er stefnandi, sem var yfirvélstjóri á Amarnúpi ÞH 272, varð fyrir að næturlagi á Ólafs- víkurbryggju er hann, ásamt þremur öðmm, var að taka nýjan raftnótor í nótaniðurleggjara út úr bifreið á bryggjunni í Olafsvík. Atvikið varð við lok fremur slakrar loðnuvertíðar og því kappsmál að koma skipinu aftur á veiðar. Bensínverkfall setti strik í reikninginn Vegna verkfalls starfsmanna við bensínafgreiðslu og olíudreifingu á höfuðborgarsvæðinu tókst ekki að fá hentugan bíl til að flytja rafmótorinn. Því var brugðið á það ráð að fá son vélstjórans til að aka með hann í jeppa sínum norður á Ólafsvík. Þegar verið var að afferma jeppann féll raf- mótorinn á vélstjórann með þeim af- leiðingum að hann meiddist á hné. Ör- orka hans var metin 30% af örorku- nefnd sem taldi hann ekki geta stundað erfiðisvinnu framar. í lækn- isvottorði segir að sjómaðurinn muni ekki geta ekki stundað sjómennsku framar. Tekjur mannsins hafa einnig lækkað umtalsvert síðan slysið varð. Deilt var um ábyrgð vegna slyss- ins. Vélstjórinn hélt því fram að vinnuaðstæður hefðu verið óforsvar- anlegar og að útgerðin bæri ábyrgð á því, því álagi sem var á honum vegna aðstæðna, og beri húsbóndaábyrgð vegna fyi-irmæla skipstjóra og gá- leysis og til vara vegna mistaka starfsmanna sem leitt hafi til slyssins. Útgerðarfélagið taldi að um óhappa- tilvik hefði verið að ræða en ella bæri vélstjórinn sjálfur ábyrgð á slysinu þar sem verkið hefði fallið undir hans verksvið og hann hefði stjómað því. Ekki var deilt um afleiðingar slyssins né endanlega fjárkröfu stefnanda. Ekki hægt að beita vinnuvélum Héraðsdómur komst að þeirri nið- urstöðu að útgerðarfélagið bæri ábyrgð á óhappinu vegna óvenjulegra aðstæðna og fyrirmæla um að verkið skyldi unnið. Hins vegar skipti réttur- inn sök og lét vélstjórann bera þriðj- ung hennar. Þótti dómara sem hann hefði átt reynslu sinnar og þekkingar vegna að geta metið hvort það verk- lag sem hann valdi var öruggt. Réðu mennimir fjórir ekki við rafmótorinn og hefði stefnanda átt að vera ljóst að ekki var öruggt að vinna verkið með þeim hætti sem gert var og með þeim mannskap sem hann hafði til þess. Ekki var hægt að beita vinnuvélum sökum þess að afturhleri jeppans opnaðist upp og skagaði fram yfir far- angursgeymsluna. Skipið var í eigu Jökuls hf. er slysið varð. ÚA og Jökull sameinuðust hins vegar árið 1999 og því var málið höfð- að gegn ÚA. Hjördís Hákonardóttir héraðsdómari kvað upp dóminn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.