Morgunblaðið - 24.11.2000, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2000 !*ró
UMRÆÐAN
E-pillufaraldur
E-PILLUNEYSLA
á íslandi er orðin svo
stórt vandamál að allir
verða að láta
sig málið varða. Það
eru þó einkum foreldr-
ar, forráðamenn barna
og fagfólk sem þurfa að
kynna sér e-pillumálið
og taka afstöðu til þess.
Neysla e-pillunnar á
Islandi hefur aldrei
verið meiri en á þessu
ári.
Það sem af er árinu
hafa komið á Sjúkra-
húsið Vog yfir 500 ein-
staklingar sem eru
yngri en 25 ára og hef-
ur meira en helmingur þeirra notað
þetta vímuefni. 15% þessara ung-
menna hafa notað efnið vikulega í Zi
ár eða meira og eru nefndir stór-
neytendur efnisins. _
E-pillan barst til Islands árið 1995
og það er engin tilviljun að síðan þá
hefur vímuefnavandi ungra Islend-
inga vaxið skarpt og þegar þetta er
skrifað síðla árs 2000 sér ekki fyrir
endann á þeim vexti enn. E-pillan er
hluti af þessum vanda og á sinn sess í
þeirri unglingamenningu sem drífur
fíkniefnaneysluna áfram.
Þúsundir ungra íslendinga hafa
prófað e-pillu og einungis lítill hluti
þeirra eru þekktir vímuefnaneytend-
ur eða ííklar. Efnið hefur verið notað
í sambandi við
skemmtanir ungs fólks
og flestir unglingar
byrja að nota efnið um
áramót, verslunar-
mannahelgi eða á sér-
stökum tónleikum.
Flestir hinna fuli-
orðnu gera sér enga
grein fyrir þeirri miklu
brej’tingu sem orðin er
og felst í því hversu
unglingamir nota oft e-
pillu og önnur ólögleg
vímuefni í stað áfengis
þegar þeir eru að
skemmta sér.
E-pilluvandinn birt-
ist okkur nú aðallega á
tvo vegu:
í fyrsta lagi er efnið eitt af mörg-
um vímuefnum sem ungir vímuefna-
neytendur nota á leið sinni til alvar-
legrar vímuefnafíknar. Meðal
vímuefnafíkla eykur neyslan hættu á
líkamlegum og geðrænum fylgikvill-
um og gerir ástandið flóknara og
hættulegra.
í öðru lagi birtist neyslan sem svo
almenn tilraunaneysla á skemmtun-
um ungs fólks að telja verður hana
hluta af unglingamenningu eða
ómenningu Vesturlanda. Þó að
neysla e-pillu sé ólöglegt athæfi má
segja að vaxandi hópur unglinga á
Vesturlöndum telji þessa neyslu eðli-
lega.
Vímuefni
Með tilkomu e-pillu á
vímuefnamarkaðinn
hér, segir Þórarinn
Tyrfíngsson, hefur
heilsufar vímuefnafikla
versnað.
Nýjabrum er enn á efninu og það
er mjög í tísku og viðhorf almenn-
ings og fræðimanna markast af því.
Neytendurnir trúa ýmsum goðsögn-
um um efnið eins og að það sé hættu-
lítið og saklaust vímuefni. Aðrir mála
skrattann á vegginn. Það mun þó
ekki líða á löngu þar til fólk sér þetta
vímuefni eins og það er, einfalt efni
sem hefur ákveðin eituráhrif um leið
og það hefur vímuáhrif. Hætturnar
eru því tvíþættar:
Annars vegar er eitrunin sem orð-
ið getur af efninu bæði bráð og
langvinn og hins vegar er hætta á að
efnið valdi fíkn eða verði hluti af
blandaðri fíkniefnaneyslu.
Vímuefnaneytendur munu eflaust
skipa efninu í flokk með LSD en aðr-
ir munu telja efnið heldur varasam-
ara en svo. Hvað sem þessu líður er
þetta efni komið til að vera á vímu-
Þórarinn
Tyrfingsson
Elnstakllngar som hafn notaO E-plllu og komu
á SjúkrahúslA Vog 1996 - 2000
i;
a
D
D
D
21/jítóOOD
úórénnn ryrfingason
o
efnamarkaði hins vestræna heims og
hefur þegar valdið miklum usla.
Með tilkomu e-pUlu á vímuefna-
markaðinn hér hefur heilsufar vímu-
efnafíkla versnað og aukið hættu-
ástand skapast hjá tilraunaneytend-
um ólöglegra vímuefna.
I fyrsta lagi hefur hætta á skyndi-
dauða og alvarlegum eitrunum af
völdum vímuefna aukist.
f öðru lagi getur efnið valdið sturl-
un hjá heilbrigðum einstaklingum og
auk þess hrint af stað alvarlegum
geðsjúkdómi hjá einstaklingum sem
hafa geðveilu fyiir.
í þriðja lagi getur efnið valdið
skyndilegu og svæsnu þunglyndi í
neyslunni og rétt eftir hana og svipar
að þessu leyti bæði til LSD og amf-
etamíns. Þetta getur verið mjög
hættulegt þegar ungir og hömlulitlir
neytendur eiga í hlut og stuðlað að
sjálfsvígum.
í fjórða lagi þykir sannað að efnið
getur valdið heilaskemmdum við til-
tölulega litla notkun. Skemmdirnar
koma þá fram sem persónuleika-
breytingar sem einkennast af varan-
legu óöryggi, þunglyndi eða kvíða.
Menn hafa einnig sýnt fram á vits-
munaskerðingu sem kemur fram
sem truflun á minni og einbeitingu.
Vísindamenn hafa líka haft af því
vaxandi áhyggjur að nýjar rann-
sóknir á amfetamíni og skyldum efn-
um - og þá um leið ecstasy - virðast
benda til þess að slík efni valdi meiri
heilaskemmdum við langvarandi
notkun en talið var áður.
Höfundur er forstöðulæknir
sjúkrastofnana SÁÁ.
Um hvað ert þú
að tala, Jón?
KATLA, samband
sunnlenskra karla-
kóra, hélt tónleika í
Laugardalshöll laug-
ardaginn 11. nóvem-
ber. Jón Ásgeirsson
segir býsna ítarlega
frá mótinu í Morgun-
blaðinu 14. nóvember.
Jón er virt tónskáld
og hefur m.a. samið
og útsett margt gott
fyrir kóra. Þess vegna
er eðlilegt að menn
taki mark á því sem
hann segir um kór-
söng. Ýmislegt af því Höskuldur
sem hann segir í um- Þráinsson
sögn sinni um mótið
er líka skarplega athugað og at-
hyglisvert, þótt menn hljóti alltaf
að greina á um mat á einstökum
atriðum. En ég rak þó augun í eitt
atriði sem ég botnaði ekkert í. Eg
var fyrst að hugsa um að hringja í
Jón og spyrja hann út í þetta,
svona upp á gamlan kunningsskap,
en svo fannst mér réttara að gefa
honum færi á að skýra þetta hér í
blaðinu af því að þetta er atriði
sem kemur fleirum við en mér.
Einn af kórunum sem tóku þátt í
þessu Kötluþingi var Karlakórinn
Stefnir og hann flutti m.a. Píla-
grímakórinn úr óperunni
Tannhauser eftir Wagner. Um
þennan flutning segir Jón [letur-
breytingar frá HÞ]: „Utfærsla
Stefnismanna á Pílagrímakórnum
var bæði stytt og umrituð fyrir
píanóið, nokkuð sem ekki á að eiga
sér stað, því ef ekki er hægt að
flytja verk í gerð höfundar á að
láta það vera að misbjóða því á
þann hátt, svo sem hér var gert við
meistaraverk Wagners." Af þessu
virðist mega ráða að það sé
ósvinna að stytta verk af þessu
tagi og umrita þau. Það er „nokkuð
sem ekki á að eiga sér stað“. En ég
átta mig samt ekki á þvi hvað Jón
á við hér og ég held það sé mikil-
vægt að hann skýri það betur.
Karlakórar eru nefnilega oft gagn-
rýndir fyrir metnaðarleysi, sbr.
eftirfarandi ummæli annars gagn-
rýnanda Morgun-
blaðsins í umsögn um
eina tónleika Stefnis:
„Hitt er auðvitað
merkilegra, að ís-
lenzkur karlakór skuli
yfirhöfuð sinna sí-
gildri fagurtónmennt,
meðan flestallir sams
konar söngklúbbar
þessa lands láta eins
og ekkert sé til í
henni veröld nema
ísland ögrum skorið
og Aftur kemur vor í
dal.“ Vegna þessa er
mikilvægt fyrir alla
sem málið varðar að
fá að vita hvað átt er
við þegar fjallað er um tilraunir
karlakóra til að sýna meiri metnað,
t.d. með því að freista þess að
flytja „meistaraverk Wagners".
Þess vegna skuldar Jón Ásgeirs-
son karlakóramönnum skýringar á
þeim ummælum sem hér voru til-
greind. Ég skal lýsa því nánar.
í fyrsta lagi segir Jón að „út-
færsla Stefnismanna" á Pílagríma-
kórnum hafi verið „stytt". Eg veit
ekki hvað hann á við með því. Ég á
t.d. disk þar sem Norman Luboff-
kórinn flytur Pílagrímakór Wagn-
ers, Nýja sinfóníuhljómsveitin í
London (New Symphony
Orchestra of London) leikur með
og Leopold Stokowski stjórnar öllu
saman. Ég get ekki heyrt að þar sé
sunginn einn einasti taktur sem
Stefnir söng ekki. Nú veit ég
reyndar ekki fyrir víst hvernig
„gerð höfundar" var í þessu tilviki
(og auðvitað væri gott ef Jón gæti
útvegað okkur hana), en það er
a.m.k. ljóst að sú gerð sem Stefnir
flutti var ekki styttri en sú sem
heimsfrægir listamenn hafa látið
frá sér fara á diskum. Reyndar var
útfærsla Stefnismanna í heild að-
eins lengri en útfærsla Norman
Luboffmanna því að Stefnisútgáf-
an hófst á stuttu forspili á píanóið
og í henni var líka stutt millispil
sem ekki er í útfærslu Stokowskis
og félaga. (Það var reyndar ekki
heldur í útfærslu sem Stefnir hef-
Gagnrýni
Jón Ásgeirsson, segír
Höskuldur Þráinsson,
skuldar karlakóramönn-
um skýringar á ummæl-
um sínum.
ur flutt áður, ef ég man rétt.)
Kannski það sé þetta sem hefur
farið í taugarnar á Jóni og honum
hafi fundist að þar væri verið að
misbjóða verkinu. Við skulum at-
huga það aðeins nánar.
Pílagrímakórinn er óperukór,
eins og áður segir, og í óperuupp-
færslum fylgir jafnan hljómsveit:
arleikur en ekki píanóleikur með. í
„útfærslu Stefnismanna" var aftur
á móti leikið á píanó. Um þessa út-
færslu segir Jón að hún hafi verið
„umrituð fyrir píanóið" og á um-
mælum hans er helst að skilja að
þessi umritun hafi verið liður í því
að „misbjóða" verkinu og gera það
ólíkara „gerð höfundarins11. Þetta
liggur þó ekki í augum uppi ef
grein Jóns er lesin til enda. Síðar í
umsögninni fjallar Jón nefnilega
um flutning sameiginlega Kötlu-
kórsins á fjórum verkum. Þar var
leikið með á blásturshljóðfæri og
píanó og í söngskrá stóð að Ólafur
Gaukur Þórhallsson hefði séð um
„útsetningu hljóðfæ_raleiks“. Jón
segir hins vegar að Ólafur Gaukur
hafi „umritað undirleikinn" og
skýrir síðan muninn á umritun og
útsetningu á þessa leið: „Umritun
og útsetning er tvennt ólíkt, því út-
setning getur verið frumgerð út-
setjara hvað varðar hljómskipan
og raddferli alls verksins. En þeg-
ar kórraddsetningin er eins og
frumgerðin og undirleikur frum-
gerðarinnar er lagður til grund-
vallar umritun fyrir önnur hljóð-
færi en tónsmíðin er hugsuð fyrir,
er ekki hægt að tala um útsetn-
ingu, heldur aðeins umritun."
Þetta virðist ljóst, en um leið verð-
ur óljósara en áður á hvern hátt
Stefnismenn voru að misbjóða
meistaraverki Wagners með því að
notast þar við umritun fýrir píanó.
En málið er þó flóknara en
þetta. Undir lok umsagnarinnar er
Jón að fjalla um flutning sameigin-
lega kórsins á lagi Karls O. Run-
ólfssonar Svörtu skipin og segir að
það sé „á köflum dramatísk tón-
sm£ð en millispilin hjá Karli slíífc'
lagið oft illa í sundur. Hér hefði
„útsetjari“ getað bætt um...“ Og nú
er ég farinn að missa þráðinn. I út-
færslu Stefnis var verið að mis-
bjóða verki Wagners með meintri
styttingu en hér virðist gefið í
skyn að útsetjari hefði jafnvel átt
að stytta verk Karls með því að
nema burt einhverja óheppilega
millikafla, þótt Jón bæti því svo
reyndar við að „varlega skuli farið
með tónverk manna" að þessu
leyti.
Ég held sem sé að þeir sem voru
á Kötluþingi, og aðrir sem kunna
að hafa lesið umsögn Jóns Ásgeirs-
sonar um sönginn þar, þurfi að fá
betri skýringar á því á hvern hátt
hann telur að Stefnismenn hafi þðr
misboðið Pílagrímakór Wagners
og hvernig sú skoðun samrýmist
öðru sem hér hefur verið rakið. Þá
geta allir lært eitthvað af þessu og
reynt að gera betur næst. Annars
ekki.
Höfundur syngur í karlakómum
Stefni og tók þátt í flutningi
Pílagrímakórsins á nýafstöðnu
Kötlumóti.
skrefi framar
oroblu@sokkar.is www.sokkar.is
Haust-/vetrarlínan
2000-2001
jKynning í Ápótekinu Mosfellsbæ
í dag frá kl. 14-18
20% afsláttur af öllum qrqbhj sokkabuxum.
Tilboð gilda einnig í Apótekinu Hafnarfjarðarapóteki
Mosfellsbæ
Hafnarfjarðarapótek
Þverholti 2,
Mosfellsbæ
Fjarðargötu 13-15,
sími 565 5550