Morgunblaðið - 24.11.2000, Page 18
18 FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Alltaf erill
í Alfheimum
Heimar
EKKI virðist skipta neinu
máli hvaða árstíð er þegar Is-
búðin Álfheimum er annars
vegar, því nokkuð er sama
hvort úti er súlskin og hlýindi
eða brunagaddur, alltaf er
einhver að kaupa þar og oft-
ar en ekki er biðröð. Morgun-
blaðið leit í heimsókn þangað
í fyrradag.
„Það er ekki eins svaka-
lega mikið að gera núna, ekki
fyrr en tekur að kvölda,"
sagði Tonny Espersen, en
hann er danskur kökuskreyt-
ingameistari og rekur Isbúð-
ina Álfheimum. Eigandi er
hins vegar Pétur Bjarnason
kaupmaður á Akureyri.
„Það vinna hérna í ísbúð-
inni alls 26 stelpur, á 5 og 7
tíma vöktum. Og á sumrin er
ég auk þess með sérstakan
mann eingöngu í því að fylla
á vélarnar á bakvið,“ sagði
Espersen.
Stofnuð 1987
Isbúðin var stofnuð 12.
desember árið 1987 af hjón-
um Hilmi Sigurðssyni og
Erlu Erlendsdóttur. Starf-
semin hófst í Álfheimum 2, í
29 fermetra húsnæði, en 15.
júní 1996 fluttist hún í Álf-
heima 4, í 65 fermetra hús-
næði, og er þar enn. Isbúðin
Álfheimum hlaut sama ár
fyrst fsbúða á landinu gæða-
vottun GÁMES sem öllum
matvælaframleiðendum og
innílytjendum varð skylt að
hafa frá og með árinu 1997.
„Þegar DV gerði í fyrsta
skipti verðkönnun á fs kom í
ljós, að þessi fsbúð var lang
ódýrust. Síðan þá hefur
straumurinn legið hingað og
oftast verið biðröð,“ sagði
Espersen. „Pétur Bjarnason
keypti ísbúðina 15. aprfl sl.
og við ákváðum að gera allt
sem í okkar valdi stæði til að
viðhalda stöðu hennar í vit-
und almennings, og það varð
best gert með því að halda
áfram á sömu braut og Hilm-
ir og Erla höfðu varðað, eða
m.ö.o. að breyta ekki neinu,
hvorki útliti búðarinnar né
rekstrarháttum."
Aðspurður um hvort ísbúð-
Morgunblaðið/Ami Sæberg
Ágústa, Guðmunda og Heiðdís eru hrifnar af ísnum,
in hafi verið gerð samkvæmt
einhverri erlendri fyrir-
mynd, sagði Espersen að svo
væri ekki; þetta væri allt upp
úr þeim hjónum. „Þetta er
einfalt og gott og mjög þægi-
leg vinnuaðstaða. Og það er
eins með þrif á ísvélunum;
maður þarf ekki að dröslast
með vatnsfötur þarna upp,
heldur eru kranar ofarlega á
vegSÍunum og hægt að
sprauta beint ofan í vélarnar.
Allt er þetta hannað af Hilm-
ari og Erlu.“
En hvað skyldi valda því að
ísbúðin Álfheimum er jafn
vinsæl og raun ber vitni?
„Það hringdi í mig kona
um daginn frá bandarfska
tímaritinu National Geo-
graphic og spurði mig að því
sama,“ sagði Espersen. „Hún
rakst á frétt um fsbúðina á
Netinu. Eg svaraði því til, að
þetta væri einfaldlega orðinn
hluti af reykvískri menningu,
að skreppa í ísbúðina Álf-
heimum og fara svo á rúnt-
inn; þetta væri orðin hefð.
Eflaust kemur líka inn í
þetta, að við erum ekki að
spara fsinn; hann er vel úti-
látinn. Þú færð mikið fyrir
peninginn. Á sumrin er kom-
in biðröð straxþegar við opn-
um kl. 10 á morgnana. Það
eru mest Islendingar, en
hingað kemur líka gífurlega
mikið af útlendingum frá
tjaldsvaíðinu í Laugardaln-
um. Á vetuma er biðröðin
oftar seinni hluta dags og á
kvöldin. Á daginn er aðeins
rólegra.“
Ekki
hræddar
um línurnar
ÁGÚSTA, Guðmunda og
Heiðdís, yngismeyjar búsett-
ar í Hafnarfirði, vom nýlega
komnar í ísbúðina í Álflieim-
um, þegar blaðamann og ljós-
myndara bar að garði. Þær
voru spurðar að því hvort
þær kæmu oft til að kaupa
sér ís í höfuðborginni.
„Nei, ekkert svo mjög,“
sagði Heiðdfs. „Við geram
okkur enga sérstaka ferð úr
Hafnarfirði til að fá okkur ís,
en ef við emm í Reykjavík á
annað borð og langar f fs þá
komum við alltaf hingað. Úr-
valið er svo mikið, svo ógeðs-
lega margt hægt að fá. Og ís-
arnir ódýrir og góðir og
stórir." Ágústa var með ís í
brauði en sagðist vanalega
kaupa hristing. Guðmunda
var með hræring, öðm nafni
bragðaref, og sagðist yfirleitt
fá sér einn slíkan. Heiðdfs var
að snæða jarðarberjaís með
lakkrísdýfu og Snickersgulli,
og sagði þetta vera langbest.
Aðspurðar hvort þær væm
ekki hræddar um línumar
svömðu þær því til að svo
væri ekki. Og flissuðu. Að
sjálfsögðu.
Kópavogur batt enda á viðræður um sameiningu fjögurra sveitarfélaga sunnan Reykjavíkur í fyrradag
Bessastaðahreppi
bjóðast tveir kostir
Ovíst er um sameiningu sveitarfélaga sunnan Reykjavíkur eftir að Kópa-
vogur hefur dregið sig í hlé. I umf]öllun Péturs Gunnarssonar segir að
bæði Garðabær og Hafnarfjörður vilji sameinast Bessastaðahreppi.
Höfuðborgarsvæðið
LJÓST virðist að ekki verði af
sameiningu allra sveitarfélag-
anna sunnan Reykjavíkur á
næstunni. Kópavogur hefur
dregið sig í hlé úr viðræðum og
hvarf fulltrúi bæjarins af
fundi, sem boðað hafði verið til
um málið í Bessastaðahreppi í
fyrradag. Garðbæingar ljá
ekki máls á sameiningu við
Hafnarfjörð og Bessastaða-
hrepp á þessu stígi. Hins vegar
virðast bæði Garðabær og
Hafnarfjörður tilbúnir til við-
ræðna um sameiningu við
Bessastaðahrepps einan.
Næsta skref í málinu ræðst
væntanlega af niðurstöðu
sveitarstjómar Bessastaða-
hrepps. Fyrir henni liggur að
taka afstöðu til bréfs Garða-
bæjar um tilnefningu í nefnd
til að ræða sameiningu sveitar-
félaganna tveggja.
Síðdegis á miðvikudag hitt-
ust í Bessastaðahreppi full-
trúar sveitarstjóma Kópa-
vogs, Garðabæjar, Bessa-
staðahrepps og Hafnarfjarðar.
Þetta var annar fundurinn,
sem haldinn var til að ræða um
hugsanlega sameiningu sveit-
arfélaganna, en áður hafði ver-
ið haldinn stuttur kynningar-
fundur síðla sumars.
Málið kom fyrst til umræðu í
lok júní fyrir frumkvæði
Bessastaðahrepps. Þá lá fyrir
hreppsnefndinni bréf frá bæj-
arstjóm Garðabæjar þar sem
óskað var eftir tilnefningu í
samvinnunefnd til að vinna að
athugun á sameiningu sveitar-
félaganna tveggja. Sveitar-
stjómin kaus að taka ekki af-
stöðu til erindisins fyrr en látið
hefði verið reyna á viðræður
um sameiningu allra sveitarfé-
laga frá Kópavogi til Hafnar-
fjarðar. Óskaði hreppsráðið
eftir því að Garðabær, Hafnar-
fjörður og Kópavogur skipuðu
fulltrúa í viðræðunefnd um
sameiningu sveitarfélaganna
fjögurra.
Viðbrögð forystumanna
Kópavogs, Garðabæjar og
Hafnarfjarðar við þessari
beiðni vora á þann veg að Sig-
urður Geirdal, bæjarstjóri í
Kópavogi, lýsti í samtali við
Morgunblaðið hinn 6. júlí mikl-
um efasemdum um að hægt
væri að finna einhvem sem
hefði áhuga á sameiningu allra
þessara sveitarfélaga þótt
bærinn myndi að sjálfsögðu
taka þátt í viðræðunum. Það
gerði hann og tilnefndi fyrir
sína hönd til viðræðnanna
embættismann, Ólaf Briem,
bæjarritara.
Ingimundur Sigurpálsson,
þáverandi bæjarstjóri Garða-
bæjar, sagði í sama blaði að
alltaf væri skemmtilegt að tala
við viðræðugott fólk um
áhugaverð efni en eins og stað-
an væri sæi hann ekki að af
þessu yrði neinn hagur fyrir
Garðabæ. Hins vegar hefði
lengi verið rætt um samein-
ingu Bessastaðahrepps og
Garðabæjar og sú vinna væri
komin mun lengra á veg en
umræðan um hugsanlega sam-
einingu sveitarfélagana fjög-
urra.
Ósk um almennt spjall
„Ég lít á þessa beiðni Bessa-
staðahrepps sem ósk um al-
mennt spjall um málið enda
þarf að ræða almennt um þessi
mál áður en farið er út í ítar-
legri athugun," segir Ingi-
mundur. Hann var sjálfur í for-
svari fyrir Garðbæinga í við-
ræðunefndinni og sat fundinn
á miðvikudag ásamt minni-
hlutamanninum Einari Svein-
björnssyni, bæjarfulltrúa
framsóknarmanna.
Valgerður Sigurðardóttir,
forseti bæjarstjómar í Hafn-
arfirði, varð fyrir svörum í um-
fjöllun Morgunblaðsins um
málið í júh' og sagði að Hafnar-
fjörður teldi stofnun slíkrar
viðræðunefndar eðlilegt fram-
hald af þeirri umræðu sem
þegar hefði átt sér stað og
bærinn væri opinn fyrir að
skoða málið en sagði Ijóst að
mjög skiptar skoðanir væra
um það meðal sveitarfélag-
anna hvort sameining þeirra
væri æskilegur kostur. „Hvort
það gangi eftir núna að sam-
eining verði skal ég ekki segja
en hún verður öragglega ein-
hvem tímann í framtíðinni.
Þessi sveitarfélög eru öll orðin
svo samtengd að það hlýtur að
koma að því,“ sagði Valgerður.
Hafnfirðingar tilnefndu til
sameiningarviðræðnanna
Magnús Gunnarsson, bæjar-
stjóra og oddvita sjálfstæðis-
manna, og Þorstein Njálsson,
formann bæjarráðs og oddvita
framsóknarmanna, sem
mynda meirihlutann með sjálf-
stæðismönnum.
Gestgjafamir í Bessastaða-
hreppi stilltu hins vegar upp
breiðfylkingu, sem skipuð var
Guðmundi G. Gunnarssyni,
oddvita hreppsnefndar, Gunn-
ari Val Gíslasyni, sveitarstjóra
og oddvitum minnihlutaflokk-
anna tveggja, Braga Sigur-
vinssyni og Guðrúnu Þ. Hann-
esardóttur.
Þessir aðilar hittust á stutt-
um fundi í lok sumars en héldu
viðræðum áfram á miðviku-
dag. Við upphaf þess fundar
skýrði Ólafur Briem frá því að
Kópavogur drægi sig út úr við-
ræðunum og hvarf af fundi.
Ólafur sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að um
brotthvarf Kópavogs úr við-
ræðunum væri lítið annað að
segja en það hafi verið í sam-
ræmi við þá umræðu sem verið
hafi í bæjarstjóm og manna á
milli. „Málið var á því stigi að
það var ekki talin ástæða til að
halda úti fulltrúa í þessari
nefnd og það var samþykkt að
ég, og þar með bærinn, mundi
draga mig úr viðræðunum,“
sagði Ólafur.
Morgunblaðið náði ekki tali
af Ingimundi Sigurpálssyni,
sem fer fyrir Garðbæingum í
viðræðunum, en Einar Svein-
bjömsson, hinn fulltrúi bæjar-
ins, birti grein á heimasíðu
sinni um málið í gær undir fyr-
irsögninni: Sameiningu sveit-
arfélaga sturtað niður. Þar
segir að viðræður um samein-
ingu sveitarfélaganna íjögurra
hafi nú farið út um þúfur. Á
fundinum á miðvikudag hafi
menn þvargað fram og aftur
um það hvaða kostir væra í
stöðunni og hvort raunvera-
legur vilji væri fyrir samein-
ingu af einhveiju tagi.
Þrjú sveitarfélög í eitt?
„í skemmstu máli virðist
staðan vera þessi. Hafnar-
fjörður vill ólmur sjá samein-
ingu við Garðabæ og Bessa-
staðahrepp. Slíkan kost geta
Garðbæingar ekki hugsað sér
og Bessastaðamenn era
beggja blands. Garðbæingar
era hins vegar meira en opnir
fyrir sameiningu við Bessa-
staðahrepp einan, en það geta
fulltrúar Bessastaðahrepps
ekki hugsað sér. Eftir er þá
kostur að Hafnarfjörður og
Bessastaðhreppur þreifi fyrir
sér með sameiningu, jafnvel þó
lögsaga þeirra liggi ekki sam-
an. Niðurstaðan var engu að
síður sú að þessum þreifingum
yrði ekki fram haldið. Ur því
að Kópavogur datt úr skaftinu
græt ég þau málalok ekkert
sérstaklega. Hins vegar kom
það mér á óvart hve mikill
ágreiningur virðist vera um
þessi mál í hreppsnefnd Bessa-
staðahrepps, einkum ef litið er
til þess að það vora þeir sem
óskuðu eftir þessum viðræð-
um. í þessu máli er líka grein-
legt að andstæðu pólamir era
þeir flokksfélagamir Magnús
Gunnarsson í Hafnarfirði og
Ingimundur Sigurpálsson odd-
viti Sjálfstæðisflokksins hér í
bæ. Hann tekur málaleitan
Magnúsar og reyndar einnig
Þorsteins Njálssonar, Fram-
sóknarflokki, afar fálega.
Reyndar kom berlega í ljós að
Ingimundur á sér afar góða
bandamenn í Hagsmunasam-
tökum Bessastaðahrepps, en
þau era sama sinnis þrátt fyrir
sinn vinstri sinnaða blæ,“ segir
í pistli Einars.
Gunnar Valur Gíslason,
sveitarstjóri í Bessastaða-
hreppi, vildi í samtali við
Morgunblaðið ekki taka undir
þá niðurstöðu Einars að sam-
einingarhugmyndir væra fam-
ar í vaskinn. „Menn skiptust á
skoðunum og áttu vora góðar
viðræður eins og að var
stefnt,“ sagði Gunnar Valur.
„Mér virðist að það liggi fyrii’
vilji beggja stóra sveitarfélag-
anna, Garðabæjar og Hafnar-
fjarðar, að sameinast Bessa-
staðahreppi hvor með sínu
sniði.“
Gunnar Valur sagði að
næsta skref væri að taka málið
fyrir í hreppsnefnd Bessa-
staðahrepps og fjalla aftur um
bréf Garðabæjar frá því í apríl
og taka til afgreiðslu ósk Garð-
bæinga um skipun nefndar til
að fjalla um sameiningu sveit-
arfélaganna tveggja. „Bein
niðurstaða var engin, enda
kannski ekki til þess ætlað, en
þeir fara væntanlega hvor til
síns heima og vinna áfram að
málinu,“ sagði Gunnai’Valur.
Magnús Gunnarsson bæjar-
stjóri Hafnarfjarðar sagði í
samtali við Morgunblaðið að
staða málsins væri í sínum
huga nokkuð Ijós. Kópavogur
vilji ekld um þetta hugsa í bili.
Garðabær telji að sameining
þurfi lengri aðdraganda og
sameining Garðabæjar og
Bessastaðahrepps sé eðlilegt
fyrsta skref enda sé ekki vilji
til að ganga lengra hjá sveitar-
stjórnarmönnum þar á þessu
stigi. Bessastaðahreppsbúar
hafi verið að kanna vilja sveit-
arfélaganna en eigi það sam-
eiginlegt með Hafnfirðingum
að fram hafi farið töluverðar
umræður um málið og viljayf-
irlýsingar komið fram í fjöl-
miðlum.
Magnús sagði að engin
breyting hefði orðið á sinni af-
stöðu á fundinum. „Ég hef allt-
af verið þeirrar skoðunar að
það væri skynsamlegt að sam-
eina Hafnarfjörð, Garðabæ og
Bessastaðahrepp enda væri
skynsemi í því að þétta byggð
og hafa eina stjómsýslu á
svæðinu á þessu svæði sem er
ekki stærra en svo að það telur
liðlega 30 þúsund manns. Hins
vegar verð ég að búa við það ef
það er ekki vilji til slíkrar sam-
einingar annars staðar," sagði
Magnús og sagði að Hafnfirð-
ingar legðu á meðan áherslu á
eigin uppbyggingu og litu ekki
á þessa niðurstöðu sem neitt
bakslag að einu eða neinu leyti.
Líta Hafnfirðingar
til Suðurnesja?
Magnús sagðist hafa kastað
því fram að Hafnarfjörður
gæti alveg eins og Garðabær
hugsað sér það sem fyrsta
skref að sameinast Bessa-
staðahreppi. „Ég er ekki viss
um að Bessastaðahreppsbúar
séu einhuga í því að vilja sam-
einast Garðabæ frekar en
Hafnarfirði. Þeir hafa ekki lýst
þeirri skoðun sinni,“ sagði
Magnús.
„Annað sem getur komið út
úr þessu og maður hlýtur að
velta fyrir sér er það að við höf-
um verið í virðræðum um sam-
einingu Hitaveitu Suðumesja
og Rafveitu Hafnarfjarðar og
við eigum ýmiss konar sam-
starf við sveitarfélög á Suður-
nesjum. Hver veit nema þetta
verði til þess að við beinum
sjónum frekar í suðurátt,“
sagði hann.
Er þá næsta skref í málinu
að stjómendur Bessastaða-
hrepps geri upp við sig við
hvort þeir vilji frekar stíga
sameiningardansinn við Hafn-
firðinga eða Garðabæinga?
„Þeir mega a.m.k. bjóða mér
upp í dans,“ sagði Magnús
Gunnarsson.