Morgunblaðið - 24.11.2000, Síða 20
20 FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2000
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Kristján
Unga fólkið er að komast í jólaskap enda orðið jólalegt um að líta á Akureyri. Jólasveinarnir í mið-
bænum vekja jafnan mikla athygli og hann Ómar er hér að skoða einn slíkan.
Arnald Reykdal var að setja upp jölatré
framan á verslun Pennans/Bókvals í göngu-
götunni á Akureyri.
Tryggvi Gíslason skólameistari Menntaskólans á Akureyri
Leiða leitað til að nemend-
ur geti lokið námi í vor
Jóla-
bærinn
opnaður
JÓLABÆRINN Akureyri verður
formlega opnaður á laugardag, 25.
nóvember, kl. 16, með athöfn við
kirkjutröppumar.
Ljós verða kveikt á jólatrénu við
kirkjuna og einnig niður með
tröppunum. Karlakór Akureyrar-
Geysir syngur og einnig ung og
efnileg söngkona, Ema Unnars-
dóttir. Flutt verður hugvekja og þá
hefur heyrst af ferðum nokkurra
jólasveina sem væntanlega munu
glettast við þá sem yngri eru.
Þess er vænst að börn úr 1. til 7.
bekk í grunnskólum Akureyrar
komi á staðinn með ættingjum sín-
um og taki lagið í kirkjutröppun-
um.
Verslanir og kaffihús verða opin
til kl. 18 á laugardag. Margskonar
skemmtanir verða í miðbænum um
helgar eða frá föstudegi til sunnu-
dags í desember. Meðal annars
verður jólasveinahús opið, en þar
taka sveinamir að sér að gæta
barna á meðan foreldramir versla.
Börnum á leikskólum býðst að
heimsækja jólasveinana en ræða
þarf um slíkar heimsóknir við jóla-
bæjarstjórann Aðaistein Bergdal.
TRYGGVI Gíslason, skólameistari
Menntaskólans á Akureyri, hefur í
tilefni af þeim umræðum, sem orðið
hafa um nám nemenda í framhalds-
skólum landsins vegna vinnudeilu
Félags framhaldsskólakennara og
fjármálaráðherra, sent frá sér til-
kynningu þar sem segir að MA muni
leita allra leiða til að nemendur fái
lokið námi sínu við skólann með full-
gildum hætti næsta vor.
Dragist vinnudeilan enn á langinn
er í ráði að fella niður regluleg haust-
annarpróf í janúar og kenna til vors
og prófa þá bæði í haustannar- og
vorannaráföngum á reglulegum
prófatíma skólans í maí og júní. Er
stefnt að því að brautskrá stúdenta
frá skólanum 17. júní 2001 eins og
venja er til önnur ár. Verður það að
sögn Tryggva gert í samráði við
hlutaðeiganda, ráðuneyti, kennara
og nemendur.
Grafið undan tveimur horn-
steinum lýðræðisins
„Nemendur skólans eru enn
hvattir til að halda áfram námi sínu
og stunda sjálfsnám eftir því sem
kostur er, enda er allt nám að hluta
til sjálfsnám," segir í tilkynningu
skólameistara MA. „Hins vegar
verður skólakennsla í framhaldskól-
um í skötulíki í framtíðinni ef skól-
arnir hafa ekki á að skipa ánægðum
kennurum sem njóta virðingar og
trausts nemenda, foreldra og stjórn-
valda. Með því að kasta rýrð á kenn-
ara er verið að grafa undan tveimur
hornsteinum lýðræðisins í landinu
sem er annars vegar traust menntun
og hins vegar frjáls skoðanamynd-
um,“ segir ennfremm’.
Fram kemur að stjórn skólafélags
Menntaskólans á Akureyri hafi
ákveðið að halda árshátíð skólans í
íþróttahöllinni að kvöldi fullveldis-
dagsins, 1. desember næstkomandi,
hvað sem öðru líður.
Útilífs-
sýning- í
KA-lieim-
ilinu
VETRARSPORT 2001, sem er vél-
sleða-, jeppa og útilífssýning, verð-
ur haldið í KA-heimilinu um helgi-
na. Félag vélsleðamanna í Eyja-
firði stendur fyrir sýningunni en
eyfirskir sleðamenn hafa staðið
fyrir slíkri sýningu á annan áratug.
Þetta er 14. sýningin í röðinni.
Um þrjátíu sýnendur taka þátt í
Vetrarsporti nú í ár þar sem þeir
kynna vöru sína og þjónustu, en
þess er vænst að um 3000 gestir
sæki sýninguna.
Metnaður hefur verið lagður í að
hafa sýningarnar sem fjölbreyti-
legastar og er markmiðið að á ein-
um stað verði hægt að sjá flest það
sem viðkemur útivist að vetrarlagi.
Er þetta ein fárra fagsýninga sem
einbeita sér að því að efla áhuga á
útivist að vetrarlagi og þá miklu
möguleika sem felast í útvist á Isl-
andi að vetrarlagi.
Meðal þess sem sýnt verður eru
vélsleðar, fjallajeppar, útivistar-
fatnaður, öryggis- og fjar-
skiptabúnaður auk þess sem ýmis-
legt sem viðkemur skotveiði verður
einnig til sýnis. Akureyrarbær
kynnir aðstöðu til vetraríþrótta í
bænum, tryggingafélag kynnir
starfsemi sína og ferðaþjónustu-
fólk, sem býður upp á vetrarferðir
verður einnig á staðnum. Norður-
pólsfararnir, Haraldur Örn Ólafs-
son og Ingþór Bjarnason verður á
svæðinu en þeir verða með mynda-
sýningu í Nýja Bíói á sunnudag.
Sýningin er opin frá kl. 10 til 18
á laugardag og frá kl. 13 til 18 á
sunnudag.
Framhaldsskólakennarar á Akureyri
Ríkisstjórnin horfíst
í augn við ábyrgð sína
„VIÐ höfnum tillögum viðsemjenda
okkar um að starfskjör kennai’a
verði skert eins og nú hefur verið
farið fram á,“ segir í ályktun fram-
haldsskólakennara á Akureyri.
Einnig kemur þar fram að kenn-
arar krefjast þess að ríkisstjórnin
horfist í augu við ábyrgð sína og
hækki framlög til framhaldsskóla
landsins. „Það er ekki nóg að setja
ný lög um starf framhaldsskóla og
semja nýjar námskrár ef ekki fylgir
þeim breytingum aukið fé til
greiðslu launa og annars kostnaðar.
Því er beint til alþingismanna að
taka til skoðunar það umboð sem
ráðherrum hefui’ verið veitt til þess
að fara með málefni þjóðarinnar."
„Getur Alþingi sætt sig við að
starf framhaldsskóla skuli aflagt og
að óvíst sé um framhald þess?“ seg-
ir einnig í ályktun framhaldsskóla-
kennara á Akureyri og þar er lýst
fullum stuðningi við samninganefnd
Félags framhaldsskólakennara og
skorað á hana að sýna festu í samn-
ingaviðræðum.
Kynningar í LYFJU Lágmúla og LYFJU Laugarvegi
I dag, föstudaginn 24. nóvember ki. 14-17 '
Sameining þriggja lífeyrissjóða
á Norðurlandi
Heildareignir
sjóðsins 25 mill-
jarðar króna
STJÓRNIR Lífeyrissjóðs Norður-
lands og Lífeyrissjóðs KEA hafa
undirritað samning um samruna
sjóðanna frá og með næstu áramót-
um. Á sama tíma tekur gildi samruni
Lífeyrissjóðs Norðurlands og Líf-
eyrissjóðs verkalýðsfélaga á Norð-
urlandi vestra. Sjóðirnir em samein-
aðir undir nafni Lífeyrissjóðs
Norðurlands. Samrunasamningarn-
ir eru undirritaðir með fyrirvara um
samþykki aukaársfunda hjá sjóðun-
um sem haldnir verða um næstu
mánaðamót.
Markmiðið með sameiningu sjóð-
anna er að gera rekstur þeirra hag-
kvæmari, auka áhættudreifingu og
bæta ávöxtun eigna og hámarka
þannig þau lífeyrisréttindi sem sam-
einaður sjóður getur veitt sjóðfélög-
um sínum.
í árslok 1999 námu eignir Lífeyr-
issjóðs Norðurlands 18,7 milljörðum
króna, eignir Lífeyrissjóðs KEA
voru tæplega 3 milljarðar króna og
eignir Lífeyrissjóðs verkalýðsfélaga
á Norðurlandi vestra ríflega 3 millj-
arðar króna. Heildareignir Lífeyris-
sjóðs Norðurlands verða því tæplega
25 milljarðar króna og félagssvæði
sjóðsins mun ná til allra byggða-
kjarna á Norðurlandi.