Morgunblaðið - 24.11.2000, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2000 29
ERLENT
Vatnsveður í Noregi og Svíþjóð
Hætta á flóðum
og skriðuföllum
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
VATNSYFIRBORÐ í Mið-Svíþjóð
heldur áfram að hækka. Undanfarn-
ar vikur hefur það stigið jafnt og þétt
og hlutar bæjarins Arvika, skammt
frá norsku landamærunum, hafa
Verið undir vatni svo vikum skiptir.
Þá hefur verið mikið úrhelli á svæð-
um í nágrenni Óslóar og aukin hætta
talin á flóðum og skriðuföllum.
N okkrar jarðlestastöðvar í Ósló voru
lokaðar á miðvikudag vegna flóða og
margir urðu fyrir töfum austanfjalls
vegna þess að hundruð lesta stöðv-
uðust er merkjakerfíð varð raf-
magnslaust.
Svæðið í Svíþjóð, þar sem hætta er
talin á flóðum, nær frá Sundsvall í
norðri og til Vánern í suðri, raunar
teygir það sig á kafla allt til Gauta-
borgar. Vatnsyfirborð stöðuvatnsins
Málaren er 35 cm hærra en venju-
lega og hækkar um 1-2 em á dag.
Heimamenn hafa mestar áhyggj-
ur af því hvað gerist ef vatnsflóðinu
linnir ekki áður en fer að srijóa og
frost kemur í jörðu. Óttast þeir af-
leiðingarnar í þíðunni næsta vor éf
flóðvatnið frýs.
í Noregi er nú talin mikil hætta á
skriðuföllum, einkum á svæðinu
nærri Kongberg, Eidesvoll, Ámot,
Tpnsberg og Henefoss. Eru vatna-
mælingamenn og björgunarsveitir í
viðbragðsstöðu vegna ástandsins.
Hins vegar dró nokkuð úr rigning-
unni í gær og veðurfræðingar sögð-
ust sjá merki um að ástandið myndi
skána næstu daga.
Reuters
Sprengjutilræði í Riyadh
ÞRÍR Bretar slösuðust er sprengja
sprakk í bíl þeirra í Riyadh, höfuð-
borg Sádi-Arabíu, í gær. Fyrr í vik-
unni lést breskur maður og kona
hans slasaðist í annarri bílspreng-
ingu í borginni.
Lögreglan í Riyadh telur, að ein-
hverjar persónulegar ástæður frem-
ur en pólitískar séu að baki tilræðun-
um jafnvel þótt þau hafi beinst gegn
Bretum í bæði skiptin og þrátt fyrir
vaxandi andúð á Vesturlandamönn-
um vegna átakanna milli Israela og
Palestínumanna. Tveir karlmenn og
ein kona voru í bílnum og slasaðist
ekkert þeirra alvarlega.
í Sádi-Arabíu starfa nú um 30.000
Bretar og hefur þeim verið sagt að
vera vel á verði, einkum vegna
spennunnar, sem nú er í Miðaustur-
löndum.
Kúariðutilfellunum fjölgar stöðugt í Evrópusambandslöndunum
Brezkir sérfræðingar til
eftirlits í Frakklandi
London. AP, AFP.
BREZK stjórnvöld hyggjast senda
sérfræðinga í matvælaeftirliti til
Frakklands, til að ganga úr skugga
um fullyrðingar þarlendra um heil-
brigði fransks nautakjöts. Greindi
talsmaður Tonys Blairs, forsætis-
ráðherra Bretlands, frá þessu í
gær.
Þróun kúariðumálanna í Evrópu
tók með þessu á sig óvænta mynd.
Kúariða kom fyrst upp í Bretlandi
á níunda áratugnum og vegna
meintrar smithættu lagði ESB árið
1996 bann við útflutningi brezks
nautakjöts, en það var numið úr
gildi að miklu leyti í fyrra.
Talsmaður brezku stjórnarinnar
sagði að á ríkisstjórnarfundi í gær
hefði heilbrigðisráðherrann Alan
Milburn greint frá því að hann
hefði þegið boð sérfræðinga brezka
matvælaeftirlitsins um að fara til
Frakklands og fullvissa sig um að
aðgerðir Frakka væru fullnægj-
andi.
Kúariðutilfellum hefur fjölgað
mjög í Frakklandi að undanförnu
og vísbendingar benda til að smitið
hafi upprunalega borizt úr bresku
dýrafóðri.
Fram að þessu hafa brezk stjórn-
völd ekki viljað banna innflutning
nautakjöts frá Frakklandi eins og
sum önnur ESB-ríki hafa gert, en
talsmenn brezku stjórnarandstöð-
unnar hafa kallað eftir því. Á mið-
vikudag greindi brezka matvælaeft-
irlitið frá því að það hefði gefið
frönskum yfirvöldum vikufrest til
að staðfesta með óyggjandi hætti
að kúariðusmitað franskt nautakjöt
hefði ekki og myndi ekki rata í mat-
vöruverzlanir í Bretlandi.
Þýzki landbúnaðarráðherrann
Karl-Heinz Funke lét í gær af and-
stöðu sinni við kröfur sem gerðar
hafa verið um algert bann við naut-
gripafóðri sem inniheldur dýramjöl.
Hann sagði aftur á móti að væri
notkun slíks fóðurs ekki lengur tal-
in æskileg ætti að taka það af
markaðnum með vel undirbúnum
hætti.
Svisslendingar bættust í gær í
hóp þeirra Evrópuþjóða sem bann-
að hafa innflutning nautakjöts frá
Frakklandi vegna ótta við kúarið-
usmit, sem valdið getur hinum ban-
væna heilahrörnunarsjúkdómi
Creutzfeldt-Jakob (CJD) í mönn-
um.
RIKISSTJORNIN
ÁRANGRIBRAUT
' 4 '
: vw¥*St»Sí».ij5." t í f ■ gfcs* >r
Stefna ríkisstjórnarinnar hefur leitt til vaxandi verðbólgu, hárra vaxta,
ágreinings á vinnumarkaði og verri stöðu i efnahagsmálum.
Samfytkingin hefur varað við lausatökum í efnahagsmálum og miklum
viðskiptahalla og hún vill ábyrga ríkisfjármálastefnu og sátt við launþega.
Stefna ríkisstjórnarinnar hefur leitt til þess að við höfum dregist
verulega aftur úr i menntamátum.
Samfylkingin setur menntamál i forgang þannig að menntun hértendis
verði samkeppnishæf á atþjóðmælikvarða og að laun kennara séu bætt
samhliða breytingum í skólastarfi. Framtíð unga fólksins er okkar framtíð.
Stefna ríkisstjórnarinnar hefur þrengt að kjörum aldraða og öryrkja.
Samfylkingin vitl afkomutryggingu fyrir aldraða og öryrkja sem eyðir óvissu
þeirra sem minna mega sín í samfélagi okkar.
Samfylkingin vill afnema gjafakvótakerfið og tryggja jafnan aðgang allra
að auðlindinni.
Lokafundurinn í
• •
fundaferð Ossurar og
Margrétar er í Reykjavík
Laugardaginn 25. nóvember
Kornhlöðuloftinu kl. 12.00
Allir velkomnir og hvattir til að mæta
Samfylkingin