Morgunblaðið - 24.11.2000, Page 63
I
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2000 63 1
] Stuðningur
náms- og
starfsráð-
gjafa við
kennara
EFTIEFARANDI yflrlýsing hefur
borist frá Félagi náms- og starfs-
ráðgjafa:
„Fundur í Félagi náms- og
starfsráðgjafa (FNS) lýsir yfir full-
um stuðningi við kjarabaráttu
kennara, námsráðgjafa og stjórn-
enda í framhaldsskólum. Jafnframt
átelur FNS samninganefnd ríkisins
j (SNR) harðlega fyrir seinagang og
úrræðaleysi við samningaborðið og
Jleggur ríka áherslu á að gengið
verði til samninga við Félag fram-
haldsskólakennara (FF) tafarlaust.
Framtíðaráformum um tuttugu
þúsund framhaldsskólanema er
stefnt í voða. Fjöldi nemenda mun
ekki koma til baka til náms á þess-
um vetri ef fram heldur sem horfir.
Brottfall nemenda, með öllum þeim
erfiðleikum sem því fylgir fyrir ein-
jj staklinga og samfélagið í heild,
mun ná hámarki.
Dræmar undirtektir SNR við
kröfugerð FF og þeirra tillögur til
lausnar deilunni lýsa algjöru metn-
aðarleysi ríkisins og bera vott um
óábyrga afstöðu gagnvart kjara-
deilunni. Öllum ber saman um að
dregið hafi verulega í sundur með
launum framhaldsskólakennara og
annarra ríkisstarfsmanna með
sambærilega menntun og ábyrgð
!hvað þá þeirra sem starfa utan rík-
isgeirans. Hækka þarf laun kenn-
ara verulega og bæta kjör þeirra til
að sporna gegn stöðugt vaxandi at-
gervisflótta úr kennarastétt og
endurreisa virðingu fyrir kenn-
arastarfinu í hugum Iandsmanna.
Fundur FNS skorar því á ráð-
herra í ríkisstjórn Islands að taka
ábyrga afstöðu og standa við yfir-
lýsingar sínar um mikilvægi góðrar
menntunar íslensks ungdóms sem
Ístandist fyllilega samanburð við
það besta sem gerist á Vesturlönd-
um.
Slíkt gerist ekki án vel mennt-
aðra kennara sem njóta virðingar
yfirvalda fyrir störf sín, virðingar
sem er sýnd í góðum launum og nú-
tíma vinnuaðstæðum. Fundur FNS
skorar á stjórnvöld að veita
samninganefnd ríkisins fullt umboð
til að koma til móts við kröfur Fé-
lags framhaldsskólakennara án taf-
!ar svo ungdómur þessa lands fái
notið þeirrar menntunar sem þeim
m skal standa til boða.“
Listaverka-
dagatal
Þroskahjálpar
komið tít
LISTAVERKADAGATAL Lands-
samtakanna Þroskahjálpar fyrir árið
2001 er komið út. Sem fyrr prýða
dagatalið myndir eftir íslenska graf-
ödistamenn.
Dagatalið er einnig happdrætti
þar sem dregið er einu sinni í mánuði
um fimm grafíkmyndir eftir þekkta
íslenska grafíklistamenn á borð við
Erró, Karólínu Lárusdóttur og fleiri.
Dagatalið kostar 1.300 kr. og
rennur allur ágóði af sölunni til
starfs samtakanna.
FRÉTTIR
Morgunblaðið/jt
Nýir bflar frá Citroen verða sýndir hjá Brimborg í Reykjavík
og á Akureyri um hclgina.
Brimborg kynnir
Citroen um helgina
BRIMBORG er að hefja innflutn-
ing á bflum frá Citroen og verða
sýndar fimm gerðir um helgina.
Bflar frá Citroen voru síðast flutt-
ir hingað til lands árið 1991 en ár-
ið 1995 tók Brimborg við umboð-
inu af Globusi. Egill Jóhannsson,
framkvæmdastjóri Brimborgar,
segir að samningar hafi náðst við
framleiðandann um hagstætt verð
og öll línan frá Citroen sé svo til
ný og áhugaverð fyrir Islendinga.
Sýndar verða fjórar gerðir
fólksbfla, Saxo, Xsara, Xsara
Picasso og Berlingo, og sendibfll
sem einnig heitir Berlingo. Brim-
borg hefur opnað nýjan 350 fer-
metra sýningarsal í húsnæði sínu
við Bfldshöfða og rúmast þar 12
til 14 bflar. Sölustjóri er Þórður
Jónsson og með honum starfar
Brynjar Smári Þorgeirsson sölu-
ráðgjafi.
Þorkell Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri Brimborgar á Ak-
ureyri, hefur undirbúið komu
Citroen og sagði hann er bílarnir
voru kynntir blaðamönnum í vik-
unni að Citroen væri framleiddur
af fyrirtækinu PSA Group sem
einnig framleiðir Peugeot. Þróun
og framleiðsla bflanna er sameig-
inleg en sölu- og markaðsdeildir
aðskildar og þar ríkti samkeppni.
Sala þessara tveggja merkja er
hvergi á höndum sama fyrirtækis.
Forráðamenn Brimborgar segja
Citroen góða viðbót við þá bfla
sem fyrirtækið flytur inn, þ.e.
Volvo, Ford og Daihatsu. Gert er
ráð fyrir að fluttir verði inn
kringum 150 Citroen-bflar árlega.
Citroen-sýningin verður opin
hjá Brimborg í Reykjavík og á
Akureyri milli kl. 11 og 16 laug-
ardag og sunnudag.
Týndi áratugurinn í Japan
JAPANSKI hagfræðiprófessorinn
dr. Sahoko Kaji, flytur fyrirlestur í
Hátíðarsal Háskóla Islands sunnu-
daginn 26. nóvember kl.14 á veg-
um Japönsku menningarmiðstöðv-
arinnar (Japan Information
Center) og Islensk-japanska fé-
lagsins.
Dr. Kaji er prófessor í hagfræði
við Keio háskólann í Tokýó og er
yfirskrift fyrirlestursins „Japan’s
lost decade - Lessons for the fut-
ure. “
Fyrirlesturinn er á ensku og er
haldinn í boði viðskipta- og hag-
fræðideildar Háskóla íslands en
prófessor Kaji kemur hingað til
lands á vegum japanska utanríkis-
ráðuneytisins í fyrirlestrarferð um
nokkur Evrópulönd. Fundarstjóri
verður prófessor Þráinn Eggerts-
son sem einnig mun stjórna um-
ræðum. I fyrirlestrinum verður
fjallað um orsök þess fjárhagslega
hruns sem átti sér stað í Japan á
síðasta áratug og þær öru breyt-
ingar sem japanskt efnahagskerfi
er að ganga í gegnum. Einnig um
framtíðarhorfur og möguleika til
að styrkja efnahagslífið á nýjan
leik með enduruppbyggingu á jap-
anska hagkerfinu og endalok fjár-
hagslegrar einangrunar Japans,
segir í fréttatilkynningu.
Prófessor Kaji stundaði nám við
Keio-háskóla í Tókýó sem er einn
þekktasti hagfræðiháskóli Japans.
Hún lauk doktorsnámi í hagfræði
við Johns Hopkins-háskóla í Balti-
more, USA. Aðgangur að fyrir-
lestrinum er ókeypis og öllum
heimill.
Jólakort
Soroptimista-
kltíbbs
Grafarvogs
JÓLAKORT Soroptimistaklúbbs
Grafarvogs eru komin í sölu. Kortin
eru eftir Eirík Smith og Jón Arnar
T. Siguijónsson. Þau fást bæði með
og án texta. Verð kortanna með um-
slagi er 80 kr. stk. og eru þau seld tíu
saman í pakka en það er óbreytt verð
frá því í fyrra. Einnig eru til sölu lítil
kort en þau eru seld 8 stk. í pakka á
500 kr.
Ágóði af sölu kortanna rennur til
líknarmála. Kortin eru til sölu í
versluninni FBI í Kringlunni og
einnig er hægt að nálgast þau hjá
klúbbsystrum.
T^osa góð ve^ð!
Glös:18 kristalsglös í gjafakassa Kr. 2.990.-
Hnífapör: Kassi fyrir 6 manns kr. 4.900.-
Matarstell: 6 manna stell Kr. 3.990.-
Kaffistell: 6 manna stell Kr. 3.600.-
M
RISTALL
Kringlunni - Faxafeni
Rýmum fyrir nýjum vörum
Ekta síðir pelsar aðeins 99 þús.|
Handunnin húsgögn 20% afsl.
Opið virka daga kl. 11—18 09 lau. kl. 11—15 Fákafeni (Bláu húsin), s. 588 4545
Sigurstjama
Þar sem gæði og gott verð fara saman...
Trlboð vikunnaf
Skvrtur aöems k ■ gg0 _
polopevsur ^ Q
Flísiakkar
Flíspeysur k|490
Hakkavel kr.
Kattrvel
Hlaupahsol kr. •_____
Opið virka daga 10-18.
Laugardaga og sunnudaga 11-18.
'ONýja
markaðstorgið
I húsi Fálkans, Suðurlandsbraut 8, sími: 533 50 90
KORTONLEIKAR
í Háteigskirkju
sunnudaginn 26. nóvember kl. 20.30.
Kór Háteigskirkju
ásamt kammersveit.
Einsöngvarar:
Erla B. Einarsdóttir
Gréta Jónsdóttir
Hrönn Haflidadóttir
Skarphéðinn Þ. Hjartarson
Sigurður Haukur Gíslason
Stjómandi:
DouglasA. Brotchie.
Efhisskrá:
Franz Schubert Messa í G.
Antonio Vivaldi Gloria.
Aðgangur ókeypis.
IQQQ
ln
• V
Allt á hvolfi...
^\comin beint
y
Risa
X
%
rýmingarsala
Verslunin hættir sölu á fatnaði
Allt á að seljast! Opið ÆFINGAR - ÚnVIST - BÓMULL
ki 10.0018.00 - 19 -s- 568t1717—
www.hreysti.is