Morgunblaðið - 24.11.2000, Síða 64
MORGUNBLAÐIÐ
2 64 FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2000
DAGBÓK
í dag er föstudagur 24. nóvember,
329. dagur ársins 2000. Orð dagsins:
^6á sem trúir á mig, - frá hjarta hans
munu renna lækir lifandi vatns, eins
og ritningin segír.
(Jóhannes 7,38.)
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Örf-
irisey fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Black Bird kom í gær.
Mannamot
Aflagrandi 40. Kl. 8.45
leikfími, kl. 9 vinnu-
stofa, kl. 13 bókband, kl.
14 bingó. Opið hús í á
morgun kl. 14. Upp-
skeruhátíð vegna verk-
efnisins „Kynslóðir
mætast 2000“ Reykja-
vík menningarborg,
samstarfsverkefni
barna úr Melaskóla og
eldri borgara frá félags-
miðstöðinni. Kór, söng-
ur, dans og bingó. Allir
velkomnir.
Jólahlaðborð verður
föstud. 1. des. Húsið
opnar kl. 18:15. Skrán-
ing í afgreiðslu s. 562-
^2571.
Arskógar 4. Kl. 9 perlu-
og kortasaumur, kl.
11.15 tai-chi leikfimi, kl.
13 opin smíðastofan, kl.
13.30 bingó.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8
hárgreiðsla, kl. 8.30
böðun, kl. 9-12 bók-
band, kl. 9-16 handa-
vinna og fótaaðgerð, kl.
13 vefnaður og spilað í
fsal. Kynslóðir mætast
2000, Háteigsskóli og
Bólstaðarhlíð 43, upp-
skeruhátíð laugard 25.
nóv. Húsið opnað kl. 14,
dagskrá hefst kl. 15.
Forstöðumaður setur
hátíðina, skólastjóri
flytur ávarp. Nemendur
kynna verkefnið „Líf
barna á fyrri hluta 20.
aldar“. Eldri borgarar
kynna verkefnið „Líf
barna árið 2000“. Söng-
hópur félagsmiðstöðv-
arinnar syngur. Sam-
söngur yngri og eldri.
Sýning á verkefnum og
aldamótateppi. Kaffí-
sala. Jólahlaðborðið
verður fímmtud. 7. des
kl. 18. Vönduð dagskrá.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Asgarði
Glæsibæ.
Jólavaka FEB verður 9.
desember, söngur, upp-
lestur, hugvekja og fl.
nánar auglýst síðar.
Jólaferð á Suðurnesin
16. desember. Æskilegt
að fólk skrái sig sem
fyrst. Opnunartíma
skrifstofu FEB er frá
kl. 10 til 16.588-2111.
Féiagsstarf aldraðra
Garðabæ. Kortagerð,
klippimyndir og málað-
ar myndir nýtt nám-
skeið frá 27. nóvember
til 10. desember. Skrán-
ingís. 898-8054 kl. 14-
16.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18-20. Kl. 9
hárgreiðslustofan opin,
kl. 9.45 leikfimi.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
•t (Gjábakka) kl. 20.30.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 10 hársnyrting,
kl. 10.30 guðþjónusta sr.
Helga Soffía Konráðs-
dóttir, kl. 13. „opið hús.“
spilað á spil.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.30 rammavefnaður
og málm- og silfursmíði,
kl. 13 gler- og postulíns-
málun, kl 17 slökun.
Gullsmári, Gullsmára
13. Opið kl. 9-17. Mat-
arþjónusta er á þriðju-
og föstudögum, panta
þarf fyrir kl. 10 sömu
daga.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Tréútskurður í Flens-
borg kl. 13. Myndmennt
kl. 13. Bridge kl. 13:30.
Dansleikur með Caprí
Tríó kl. 20:30.
Gerðuberg, félagsstarf.
í dag frá kl. 9 vinnustof-
ur opnar, frá hádegi
spilasalur opinn, frá kl.
16 leikur og syngur
vinabandi í „Hólagarði"
m.a lög af nýjum geisla-
diski. A morgun „kyn-
slóðir mætast“ samstarf
við Ölduselsskóla. Kl.
14-17 opið hús, kl. 14,
blásnar sápukúlur af
viðstöddum, kl. 14.15
gamlir leikir og dansar
umsjón Helga Þórarins-
dóttir. Boccia, opið inn í
vinnustofur verkefni
kynnt, sýning á verk-
efnum sem unnin hafa
verið á liðnum vikum,
kl. 15. Guðrún Jónsdótt-
ir býður gesti velkomna.
Sigríður Heiða Braga-
dóttir flytur ávarp.
Þúsaldarskjöldurinn af-
hentur. Kynslóðakórinn
syngur undir stjórn
Margrétar Dannheim.
Upplestur Gunnhildur
Hrólfsdóttir rithöfund-
ur. Gerðubergskórinn
syngur undir stjórn
Kára Friðrikssonar.
Bingó. Veitingar í kaffí-
húsi Gerðubergs. Allir
velkomnir.
Gott fólk - gott rölt,
Gengið frá Gullsmára
13 kl. 10.30 á laugardög-
um.
Hraunbær 105. Kl. 9-12
útskurður, kl. 9-12.30
bútasaumur, kl. 11 leik-
fimi og spurt og spjall-
að. Laugardag 25. nóv.
verður opið hús það sem
sýndur verður afrakst-
ur samvinnu ungra og
eldri borgara í verkefn-
inu kynslóðir mætast á
vegum Reykjavíkur-
menningarborgar 2000
húsið opnað kl. 14.
Jólafagnaðurinn verður
8. des. jólahlaðborð
heiðursgestur og ræðu-
menn Guðrún Péturs-
dóttir og Ólafur Hanni-
balsson og sr. Hjörtur
Magni Jóhannesson
fríkirkjuprestur. Lög-
reglukórinn syngur.
Veislustjóri Þórdís As-
geirsdóttir.
Hvassaleiti 56-58. Kl. 9
baðþjónusta og hár-
greiðsla, kl. 9-12.30
bútasaumur, kl. 11 leik-
fimi. „Kynslóðir mætast
Reykjavík menningar-
borg 2000“. Laugard.
25. nóv. frá kl. 14-17
verður sýning á sam-
vinnu ungra og aldraðra
áverkefninu kynslóðir
mætasr dagskráin hefst
kl. 15. Steinunn Ar-
mannsdóttir skólastjóri
Alftamýrarskóla flytur
ávarp. Nemendur skól-
ans lesa úr ritgerðum
og leika á hljóðfæri,
kaffiveitingar. Allir vel-
komnir.
Hæðargarður 31. Kl. 9
hárgreiðsla, kl. 9.30
gönguhópur, kl. 14
brids. Opið hús „Kyn-
slóðir mætast“ laugar-
dag kl. 14-17. Sam-
starfsverkefni
félagsmiðstöðvarinnar
og Breiðagerðisskóla
kynnt, söngur, upp-
lestur og fleira, veiting-
ar. Allir velkomnir.
Norðurbrún 1. Kl. 9
hárgreiðsla, kl. 9-12.30
útskurður, kl. 10 boccia,
kl. 14.30 verður dansað
við lagaval Halldóru.
Vesturgata 7. Kl. 9
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15 handa-
vinna, kl. 13 sungið við
flygilinn, kl. 14.30 dans-
að í kaffitímanum til kl.
16. Laugard. 25. nóv.
verður opið hús frá kl.
14-17. Þar verður á veg-
um Reykjavíkur-
menningaborgar 2000
sýndur afrakstur sam-
vinnu ungra og eldri
borgara af verkefninu
„Kynslóðir mætast".
Einnig verða á boðstól-
um sýnishorn úr starf-
semi stöðvarinnar. Fólk
sýnir ýmsa iðju sína í
verki sem boðið er upp á
í félagsmiðstöðinni.
Kaffiveitingar frá kl. 14.
Jólafagnaður verður 7.
des. Jólahlaðborð og
skemmtikraftar. Nánar
auglýst síðar. Uppl. í
s.562-7077.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan
og hárgreiðsla, kl. 9.30
bókband og morgun-
stund, kl. 10 leikfimi og
fótaaðgerð, kl. 13.30
bingó. Kynslóðir mæt-
ast 2000. Opið hús verð-
ur laugard. 25. nóv. kl.
14. Verkefnið kynnt kl.
15. Starfsemi hússins
kynnt. Aðventu- og jóla-
kvöld verður haldið 8.
desember.
Bridsdeild FEBK Gjá-
bakka. Spilað kl. 13.15.
Allir eldri borgarar vel-
komnir.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan
verður á morgun. Lagt
af stað frá Gjábakka,
Fannborg 8, kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára
13 kl. 10 á laugardögum.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra leik-
fimi í Bláa salnum i
Laugardalshöll, kl. 10.
Félag fráskilinna og
einstæðra. Fundur og
jólahlaðborð verður
haldið að Hverfisgötu
105 Konnakoti 2. hæð
laugard. 2. des kl. 20.
Þátttaka tilkynnist í s.
691-2553 eða 861-1102.
Kiwanisklúbburinn
Geysir í Mosfellsbæ
heldur spilavist í kvöld
kl. 20.30 í félagsheimil-
inu Leirvogstungu.
Kristniboðsfélag
kvenna, Háaleitisbraut
58-60. Basarinn verður
laugard. 25. nóv. og
hefst kl. 14.
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavfk. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Augiýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
ilkérbiöð 569 1222, augjýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaidkeri 569 1115. NETFANG:
RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 1.900 kr. á mónuði innanlands. í lausasöiu 150 kr. eintakið.
VELVAKAMDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Borgarbakarí
við Grensásveg
STRÁKARNIR, sem vinna
í Borgarbakaríi við Grens-
ásveg, eru alveg einstak-
lega þjónustuhprir,
skemmtilegir og alveg ynd-
islegir. Ég bý austur í sveit
en kem þarna oft við og
þeir bregðast aldrei. Hafi
þeir bestu þakkir fyrir.
Anna.
Vottar jehóva
og tímatalið
VOTTARNIR dreifðu ný-
lega inn á heimili okkar lit-
ríkum tvíblöðungi, en þar
segir í upphafi: Tuttugasta
öldin tók enda 31. desem-
ber 1999.
Neðanmáls segir: Hér er
miðað við almenn viðhorf
Vesturlandabúa. Fræði-
lega séð hefst nýtt árþús-
und ekki fyrr en 1. jan.
2001. Sem almennur Vest-
urlandabúi fer ég vinsam-
lega fram á að Vottamir
upplýsi nánar hin nefndu
fræði. Hið kristna tímatal
miðar við fæðingu Jesú og
við sem á hann trúum vit-
um að hann - eins og önnur
mannanna böm - (hann
nefndi sig sjálfur Manns-
soninn/Guðsoninn) fæddist
ekki 1 árs og því tók 20. öld-
in enda 31. des. 1999, en
ekki í lok yfirstandandi árs,
eins og fræðingar sumir
halda fram. Lítum á metra-
málið, það upphefst á (núlli)
og sama gildir, er við mæl-
um tímann...réttilega.
H.V.Þ.
Er það rétt?
ÉG heyrði fyrir stuttu að
fertugt fólk eigi að taka
eina baraamagnyl á dag til
þess að það fái síður blóð-
tappa. Er þetta rétt?
Dýrahald
Snúlli týndur
SNULLI er persneskur
högni, golden að lit. Hann
er mjög gæfur inniköttur,
eymamerktur og gegnir
nafninu Kisi. Við búum í
Hlíðunum og höfum síma
552-2805, GSM 685-8528,
GSM 694-4943.
Snúlla er sárt saknað og
viljum við biðja fólk sem
hefur orðið vart við ferðir
hans vinsamlega að hafa
samband.
Hefur einhver orðið
var við Lóbó?
LÓBÓ er lítill beagle-hund-
ur, svartur og brúnn að lit
með smá hvítan lit. Hann
var í bíl sem valt á vegi 431
meðfram Hafravatni við
beygju í átt að Suðurlands-
vegi. Þetta óhapp átti sér
stað rétt hjá Dalalandi
mánudagskvöldið 20. nóv-
ember sl. Talið er að hann
hafi fengið sjokk. Það hefur
sést til hans þarna á svæð-
inu. Það er mjög erfitt fyrir
svona lítinn hund með lítinn
feld að halda út svona lengi,
þannig að það liggur mikið
á að reyna að ná honum
sem allra fyrst. Ef einhver
getur gefið einhverjar upp-
lýsingar um hann, vinsam-
legast hafið samband strax
í síma 891-8172.
Tapad/fundiö
Átt þú blóm sem
heitir kanna?
EF einhver á blóm, sem
heitir kanna, væri sá hinn
sami til í að gefa mér
afieggjara. Vinsamlega
hafið samband við Helga í
síma 561-7434.
Svört úlpa tapaðist
SVÖRT úlpa var tekin í
misgripum í Asbyrgi, sér-
sal í Broadway, föstudag-
inn 17. nóvember sl.
Vinsamlegast hafið sam-
band í síma 562-5141.
Postulínsbrúður
MIG langar svo að komast í
samband við konu sem
safnar postulínsbrúðum.
Konan sem hafði samband
við mig síðast, er beðin að
hringja aftur. Vinsamleg-
ast hafið samband við Ingu
Ósk í síma 551-8727.
Kvenmannsúr
í óskilum
KVENMANNSÚR fannst
á bílaplaninu hjá RÚV við
Efstaleiti fyrir stuttu. Upp-
lýsingar í síma 581-4048.
Karlmannsúr tapaðist
GYLLT karlmannsúr með
svartri leðuról, tapaðist
sunnudaginn 19. nóvember
sl. annaðhvort við gatna-
mótin Bárugata/Ægisgata
eða við verslun Nóatúns við
Hringbraut. Skilvís finn-
andi er vinsamlegast beð-
inn að hafa samband við
Huldu í síma 551-2922.
Canon-myndavél
tapaðist
GÖMUL Canon-myndavél
tapaðist sunnudagskvöldið
19. nóvember sL, sennilega
við Mávahlíð eða Kóngs-
bakka. Upplýsingar í síma
557-4581.
Krossgáta
LÁRÉTT:
1 lítt hagganlegur, 8 tíð-
indi, 9 endurgjald, 10
stórfljót, 11 lét, 13 land-
spildu,
15 vinna, 18 raki, 21
greinir, 22 fiskurinn, 23
fión, 24 afbrotamaður.
LÓÐRÉTT:
2 vanfær, 3 varkámi, 4
örugg, 5 nef, 6 eldstæðis,
7 klettanef, 12 dreitill, 14
borða, 15 vers, 16 örlög,
17 hafa upp á, 18
sveinstaula, 19 hamingju,
20 sjá eftir.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 hikar, 4 fátæk, 7 pipra, 8 rifta, 9 róm, 11 reit,
13 haki, 14 ærnar, 15 flár, 17 ágæt, 20 grá, 22 álfur, 23
rætið, 24 innan, 25 sinna.
Lóðrétt: 1 hopar, 2 kippi, 3 róar, 4 farm, 5 tafla, 6 krani,
10 ógnar, 12 tær, 13 hrá, 15 fjáði, 16 álfan, 18 gætin, 19
tuðra, 20 grín, 21 árás
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI fagnar því að búið er
að gera afsteypu úr eir af fræg-
asta hvalbeini Islandssögunnar.
Orðtakið að taka einhvem á beinið
er okkar eigin uppfinning og er upp-
runnið í Menntaskólanum á Akur-
eyri. Alkunnur skólameistari þar á
bæ var með bein, sennilega úr
steypireyði, inni á skrifstofu sinni og
þegar nemandi hafði brotið af sér og
var kallaður fyrir meistarann var
honum gert að setjast á beinið
fræga.
Meðferðin hefur líklega sáð fræj-
um heilbrigðs aga í huga sumra
nemenda MA, aðrir hafa orðið enn
forhertari. En Víkverji saknaði þess
að fá ekki upplýst hvort beinið væri
enn notað á sama hátt og gert var.
xxx
ÓTT Víkverji dagsins þurfi að
stunda hálfgerðar fornleifa-
rannsóknir til að rifja upp stundir
með vaxiitunum sínum rámar hann í
þá. Hann er ekki viss um að hann
hafi étið mikið af þeim en varð samt
um og ó þegar hann sá að Danir og
Norðmenn hafa nú bannað þekkt-
ustu gerðina af þessum litum sem er
frá Bretlandi. Komið hefur í ljós að í
þeim eru leifar af asbesti sem getur
verð hættulegt.
En svolítið létti Víkverja þegar
hann sá að magnið sem hafði greinst
var svo lítið að ekki væri talin nein
raunveruleg forsenda fyrir hræðslu.
Og framleiðandinn hefur þegai-
ákveðið að breyta uppskriftinni,
hætta að nota efnið talk sem sett er í
litina til að herða þá. Örlítil asbest-
mengun mun hafa fundist í talkinu.
Varúð er auðvitað sjálfsögð en
Víkverja er einn af mörgum sem ef-
ast stundum um að vísindamenn hafi
reglur um hófsemd í huga þegar þeir
vara við. Svo getur farið að við verð-
um á endanum hálfmeðvitundarlaus
gagnvart öllum þessum straumi af
fátkenndum tilkynningum frá „virt-
um vísindamönnum" sem benda á að
hættulegt geti verið að gera hitt og
þetta. Til dæmis að éta 14 kíló af
vaxlitum á dag. Þarf ekki að fara að
gera alþjóðlega samninga um nýja
tegund af varúð í þessum efnum,
reyna að tryggja að gerður sé munur
á örlítilli hættu og bráðum lífsháska?
XXX
ISLENSKT þjóðernisstolt hefur
verið fóðrað óspart á árinu: Við
erum eina þjóðin sem gat siglt á vík-
ingaskipi klakklaust til Ameríku í til-
efni þúsaldarmótanna, nú er búið að
sýna fram á að Wagner notaði aðal-
lega íslensk rit þegar hann samdi
Niflungahringinn - og við skjótum
upp fleiri flugeldum um áramót en
nokkur önnur þjóð sé miðað við
nefjafjölda. En Víkverja dagsins
finnst reyndar svolítið varasamt að
oftúlka vitneskjuna um að Wagner
hafi gluggað í fornu ritin okkar. Er
verið að reyna að koma því inn hjá
okkur að Niflungahringurinn sé þá
íslenskt verk?
Hvaðan fengu höfundarnir okkar
hugmyndirnar? Víkverji veit ekki
betur en að fræðimenn séu yfirleitt
sammála um að hvers kyns stef og
minni hafi verið á ferðalögum milli
þjóða í mörg þúsund ár og sömu sög-
umar stingi upp kollinum í skáld-
skap allra evrópskra þjóða og stund-
um víðar. Grimmsævintýri til dæmis
eru full af slíkum minnum. Lista-
menn finna sjaldan nokkuð upp, þeir
endurnýta, hver með sínum hætti og
em ekki verri fyrir það
Víkverja finnst athyglisvert að sjá
að Danir era farnir að nota einfalda
reglu um bókmenntir. Þær era
danskar ef þær eru á dönsku! Hvers
vegna ekki að horfast í augu við að
þegar búið er að þýða skáldskap yfir
á aðra tungu er hann orðinn ríkis-
borgari í nýjum menningarheimi
sem einkennist fyrst og fremst af
sérstakri tungu? Ævintýri H. C.
Andersens urðu íslensk þegar
Steingrímur Thorsteinsson var
búinn að þýða þau og á sama hátt er
Niflungahringurinn auðvitað þýskt
verk.