Morgunblaðið - 24.11.2000, Page 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMIS69U00, SÍMBRÉF569II81, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTII
FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2000
VERÐ í LAUSASÖLU150 KR. MEÐ VSK.
Lausaganga búfjár
bönnuð við þjóðveg 1
í Mýrdalshreppi
Vegagerð-
“in girðir 20
km kafla
VEGAGERÐIN og Mýrdalshrepp-
ur hafa gert með sér samkomulag
þar sem Vegagerðin mun sjá um að
girða um 20 km kafla beggja vegna
þjóðvegar nr. 1 og Mýrdalshreppur
mun í kjölfarið banna lausagöngu
búfjár á vegstæði þjóðvegarins.
Að sögn Steingríms Invarssonar
verkfræðings hjá Vegagerðinni
muii þetta vera í fyrsta sinn sem
slíkt samkomulag er gert en fleiri
bæjarfélög væru að þreifa fyrir sér
*með sams konar áætlanir. Einnig
væru uppi hugmyndir um að greiða
fyrir beitarhólf í stað þess að girða
meðfram vegum.
Steingrímur sagði verkið í Mýr-
dalshreppi koma til með að kosta
um 10 milljónir og væri enn eftir að
fá ívilnun frá Vegagerðinni vegna
þeirrar upphæðar þótt hann teldi
slíkt ekki eiga eftir að verða vand-
kvæðum háð.
Samkomulagið nær til tveggja
ára, ársins 2001 og 2002, og felur í
sér að auk þess að reisa girðinguna
rhuni Vegagerðin sjá um viðhald
hennar sem og annarra girðinga
meðfram þjóðvegi nr. 1 í hreppnum
og loka með ristarhliðum af-
leggjurum að Heiðardal, Reynis-
hverfi og öðrum afleggjurum sem
þörf er á.
------*-M------
Sveitarfélögin
sunnan Reykjavíkur
Ekki verð-
„ ur af sam-
-y
einingu
LJÓST virðist að ekki verði af sam-
einingu sveitarfélaganna sunnan
Reykjavíkur.
Kópavogur hefur dregið sig í hlé
frá viðræðunum. Garðbæingar ljá
ekki máls á sameiningu við Bessa-
staðahrepp og Hafnarfjörð á þessu
stigi, en hins vegar virðast þeir og
Hafnarfjörður hvor um sig tilbúnir
til viðræðna um sameiningu við
Bessastaðahrepp einan.
Það sem næst gerist í málinu
ræðst líklega af niðurstöðu sveitar-
stjórnar Bessastaðahrepps, en fyrir
TwJienni liggur að taka afstöðu til bréfs
Garðabæjar um tilnefningu í nefnd
til að ræða sameiningu sveitarfélag-
anna tveggja.
■ Bessastaðahreppi bjóðast/18
. 1SLF.ÍISKIR tj
OSTAR, ‘ v
D
Forstjóri Fjármálaeftirlitsins gagnrýnir lánastofnanir
Arleg aukning* útlána
25% síðustu tvö árin
FORSTJÓRI Fjármálaeftirlitsins,
Páll Gunnar Pálsson, gagnrýndi ör-
an vöxt útlána hjá lánastofnunum á
ársfundi stofnunarinnar í gær, og
sagði að slík útlánaaukning langt
umfram aukningu þjóðarframleiðslu
gæti ekki staðist til lengdar. Árleg
útlánaaukning frá árinu 1998 hefur
að jafnaði verið 25-30% á meðan
sambærileg aukning útlána 1996 og
1997 var um 12%. Páll Gunnar sagði
jafnframt að í ljósi aðstæðna væri
þróun á eiginfjárhlutfalli lánastofn-
ana óviðunandi. „Við þessar aðstæð-
ur er nauðsynlegt fyrir lánastofnanir
að sýna sterka eiginfjárstöðu. Vand-
inn er hins vegar sá að afleiðing
hinna auknu umsvifa er lækkun eig-
infjárhlutfalla. Lögboðið eiginfjár-
hlutfall viðskiptabanka og stærstu
sparisjóða hefur í heild lækkað úr
12,7% í 9,4% frá árslokum 1995 til
miðs árs 2000.“
Brýnt að stjórnendur taki
hættumerkin alvarlega
A ársfundinum sagði Páll Gunnar
að Fjármálaeftirlitið hefði gert at-
hugasemdir við skipulag og eftirlit
varðandi markaðsáhættu fjármála-
fyrirtækja, sem hefur vaxið mjög
hratt, en innra eftirlit hefði setið á
hakanum í ýmsum tilfellum. Sífellt
stærri hluti af eignum þessara fyrir-
tækja er bundinn í markaðsverð-
bréfum, sem gerir fyrirtækin við-
kvæmari en áður fyrir ytri áhrifum á
efnahag og rekstur. Eiginfjárstaða
þeirra þurfi því að vera nógu sterk til
að mæta óvæntum áföllum.
Hann sagði að á kynningarfundi
FME fyrir rúmu ári hafi hann vikið
sérstaklega að þróun útlána og þró-
un framlaga í afskriftarreikning og
þróun eiginfjárhlutfalla. Hann sagði
á ársfundinum að þróunin hér hefði
ekki breyst til batnaðar. „Fjármála-
eftirlitið telur þessa stöðu óviðun-
andi og vill brýna fyrir stjórnendum
fjármálafyrirtækja að taka alvarlega
þau hættumerki sem í þessari þróun
felast," sagði Páll Gunnai’.
■ Stjórnendur/25
Tvær
bflveltur
í Húna-
þingi
TVÆR bflveltur urðu í gær í
Húnaþingi. Fyrra óhappið varð
kl. 12:20 og var ungur maður
fluttur á sjúkrahús í Reykjavík
eftir að bfll, sem hann var far-
þegi í, valt í Víðidal. Maðurinn
er ekki talinn í lífshættu en
beinbrotinn. Að sögn lögreglu
er mjög mikil hálka á veginum.
Slysið varð skammt frá bænum
Laufási.
Annar farþeganna var einnig
fluttur til Reykjavíkur en talið
er að hann sé brotinn á fótum.
Hinir tveir sluppu ómeiddir.
Síðdegis valt jeppi við
Reykjaskóla en ökumaður hans
slapp ómeiddur. Jeppinn er
einnig talinn gjörónýtur.
Logandi
himinn og
haf
ÆGIFAGURT sólsetrið gyllir speg-
ilsléttan hafflötinn og himinninn
verður eitt eldhaf í kvöldkyrrðinni.
Þessa dagana er sólin afar lágt á
lofti og hætta á að ökumenn bif-
reiða næstum blindist í síðdegis-
geislununi. Það er því rík ástæða til
að aka varlega og hafa gott bil á
milli bfla í umferðinni.
HÆTTULEGA
GÓÐUR
^MPímon
www.ostnr.is
Morgunblaðið/RAX
Stíf fundahöld í deilu MATYÍ S og Samtaka atvinnulífsins
Ki ar asamnin jmr í
burðarliðnum í nótt
SAMNINGAFUNDIR Samtaka at-
vinnulífsins og MATVÍS, Matvæla-
og veitingasambands íslands, stóðu
enn yfir í húsakynnum Ríkissátta-
semjara í nótt, þegar Morgunblaðið
fór í prentun en MATVÍS hefur boð-
að verkfall 1.200 matreiðslumanna,
framreiðslumanna, bakara og kjöt-
iðnaðarmanna kl. 19 í kvöld, hafi
samningar ekki náðst. Samkvæmt
samtölum Morgunblaðsins við aðila
beggja vegna borðs í nótt voru líkur
taldar á að skrifað yrði undir. Samn-
ingafundir höfðu þá staðið yfir
sleitulaust frá klukkan tvö í gær.
Meðal þeirra atriða sem helst hafa
verið til umræðu í samningunum, og
skiptar skoðanir verið um milli deilu-
aðila, eru launakjör nema innan
MATVÍS, en til þessa hafa laun
þeirra verið afar mismunandi eftir
faggreinum og talið flókið að sam-
ræma þau í nýjum samningi.
Ari Edwald, framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins, sagði að
reynt yrði til þrautar í nótt. Hann
sagði samningana ekki fela í sér fast-
launakerfi, líkt og samið var um í
gærkvöldi við skipstjórnendur, mat-
reiðslumenn og bryta á kaupskipum,
heldur líktust þeir meira samningum
Samiðnar.
„Þetta eru fjórir hópar innan
stórra samtaka og það er verið að
takast á um niðurstöðurnar við frek-
ar erfiðar aðstæður. Úrlausnarefnið
er viðamikið en við gerum okkur enn
vonir um að þessu ijúki með samn-
ingi,“ sagði Ari við Morgunblaðið
upp úr miðnætti í nótt.
Níels S. Olgeirsson, formaður
MATVÍS, batt vonir við að skrifað
yrði undir samning þegar rætt var
við hann. Hann sagði kjör nema
helst hafa verið rædd á endaspretti
viðræðna. Geir Gunnarsson vararík-
issáttasemjari sagði við Morgun-
blaðið í nótt að reynt yrði til þrautar í
deilu MATVIS og Samtaka atvinnu-
lífsins.
Meðal sameiginlegi'a krafna
MATVIS fyrir félagsmenn sína er að
launaflokkar verði endurskoðaðir og
færðir nær greiddu kaupi og orlof
allra verði hækkað í 13,04% sem efsti
ávinnsluréttur. Þá var gerð sú krafa
að meistarar fengju hærri laun væru
þeir að skrifa upp á námssamninga
og meistaraskólagengnir fagmenn
fengju 15% hærri laun en þeir hefðu
fengið ella.
Mikið annríki hefur verið í húsa-
kynnum ríkissáttasemjara að undan-
förnu. Auk deilu MATVÍS var fund-
ur í gær milli samninganefnda
framhaldsskólakennara og ríkisins.
Sá fúndur var stuttur og skilaði
engu, samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins.