Morgunblaðið - 26.11.2000, Page 5

Morgunblaðið - 26.11.2000, Page 5
■rsrntwn Bækur sem talað er um! Uppgjör Steingríms Steingrímur Hermannsson var forsætisráðherra nánast samfleytt frá 1983-1991 og síðan seðlabankastjóri um nokkurra ára skeið. í bók þeirra Dags B. Eggertssonar, Forsætisráðherranum, fjallar Steingrímur um þessi viðburðaríku ár; greinir frá baktjaldamakki við stjórnarmyndanir, sögulegum stjórnarslitum, harðvítugum átökum við andstæðinga og samherja og opnar lesendum dyr að heimi stjórnmálanna sem hingað til hafa verið luktar. „Mjög áhugaverð saga og gaman að lesa hana. Dagur gerir þetta mjög vel... Á eftir að vekja mikla athygli og mikla umræðu." Kolbrún Bergþórsdóttir, ísland í bítid. Dagur B. Eggertsson Besta íslenska glæpasagan" Roskinn maður finnst myrtur í kjallaraíbúð í Norðurmýri í Reykjavík. Þannig hefst ný skáldsaga Arnalds Indriðasonar, Mýrín. Rannsóknarlögreglumennirnir Erlendur og Sigurður Óli, sem lesendur þekkja úr fyrri bókum Arnalds, standa ffammi fyrir óvenju flóknu verkefni sem teygir anga sína inn í myrka fortíð en tengist nútímanum einnig á áþreifanlegan hátt. „Áhugaverð og gripandi... Mýrin er saga sem kallar tesandann sjálfan til leiks. Hún vekur áhuga og heldur honum föngnum." Skafti Þ. Halldórsson, Morgunblaóinu „Besta íslenska gtæpasagan - Loksins trúverðug íslensk sakamálasaga. ***“ Kolbrún Bergþðrsdóttir, ísland í bítið „[Amaldurj er á góðri teið með að verða fremsti gtæpasagnahöfundur Islendinga." Katrín lakobsdóttir, DV íslenskt forystufólk í nýju Ijósi • Hvenær íhugaði Vigdís Finnbogadóttir að segja af sér forsetaembætti? • Hverjir eru helstu ráðgjafar Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur? • Hvers vegna bauð Davíð Oddsson sig fram til flokksformanns gegn æskufélaga sínum Þorsteini Pálssyni? • Hvaða mistök gerði Hörður Sigurgestsson á forstjórastóli? • Af hverju ákvað Kári Stefánsson að segja skilið við prófessorsstöðu við Harvard-háskóla og stofna íslenska erfðagreiningu? Hér ræða fimm þjóðkunnir forystumenn opinskátt um líf sitt og feril í meðvindi og mótbyr. í lok bókarinnar fjallar höfundurinn, Ásdís Halla Bragadóttir, um listina að vera leiðtogi og leitar meðal annars svara við spurningunum: Hvað þarf til að verða leiðtogi? Hvernig nær leiðtoginn árangri? Ásdís Halla Bragadóttir Hrífandi ættarsaga Guðrún Helgadóttir kemur lesendum skemmtilega á óvart með fyrstu skáldsögu sinni fyrir fullorðna. Oddaflug er fjölskyldusaga um Katrínu Ketilsdóttur, dætur hennar fjórar og einkasoninn sem hún missti ungan. Líf þessa fólks virðist í föstum skorðum en undir lygnu yfirborði eru ýmis óuppgerð og sársaukafull mál. Oddaflug er litrík og hrífandi frásögn um ást og söknuð, gleði og sorg, svik og vonbrigði. Guðrún Helgadóttir * VAKA- HELGAFELL

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.