Morgunblaðið - 26.11.2000, Page 8
8 SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Tekjur af Hvalfjarðar-
göngum drógust saman
TEKJUR Spalar ehf., eiganda og
rekstraraðna Hvalfjarðargang-
anna, drógust saman um 37 millj-
ónir á síðasta rekstrarári þrátt fyr-
ir 10,7% fjölgun á bílum sem fóru
um göngin. Þetta kom fram á aðal-
fundi félagsins sem haldinn var á
Akranesi í fyrradag.
Alls námu tekjur félagsins á
rekstrarárinu, frá 1. október 1999
til 30. september 2000, 774 milljón-
um króna. Hagnaður ársins var 25
milljónir króna en var 125 milljónir
króna árið áður. Ástæðan er sögð
vera verulega aukinn fjármagns-
kostnaður, aukin verðbólga og
gengisþróun.
Alls fóru rúmlega 1,1 milljón
ökutækja um göngin á síðasta
rekstrarári. Yfir 94% þeirra voru
venjulegir fjölskyldubílar og hlið-
stæð ökutæki styttri en sex metrar
að lengd. Meðalumferð var liðlega
þrjú þúsund bílar á sólarhring en
var 2.745 bílar á sólarhring á fyrra
rekstrarári. Þetta er tvöfalt meiri
umferð en ráð var fyrir gert í upp-
hafi. Þegar göngin voru opnuð
haustið 1998 var reiknað með að
meðalumferð yrði 1.550 bílar á sól-
arhring.
Stjóm félagsins var endurkjör-
in. Hana skipa Gísli Gíslason for-
maður, Gylfi Þórðarson, Gunnar
Gunnarsson, Stefán Ólafsson og
Jón Þór Guðmundsson.
skyndibitastaður
til sölu
18 litra og 800 watta, nettur örbylgjuofn býðst nú á góðu verði.
Fínn í upphitun, prýðilegur í samlokugerð, góður fyrir ýmsa smárétti
og pottþéttur poppari. Staðsetning er mjög miðsvaeðis og
opnunartími sveigjanlegur.
Verði þér að góðu
©42.900
B R Æ Ð U R N I R
Lágmúla 8 • Sími 530 2800
www.ormsson.is
Máli gegn
Allrahanda
vísað frá
Félagsdómi
MÁLI Bifreiðastjórafélagsins
Sleipnis gegn rútufyrirtækinu Allra-
handa hefur verið vísað frá Félags-
dómi. Óskar Stefánsson, formaður
félagsins, segir að félagið stefni að
því að afla frekari gagna í málinu og
leggja það aftur fyrir dóminn.
„Astæðan fyrir því að Félagsdóm-
ur vísaði málinu frá var sú að fram-
kvæmdastjóri Allrahanda hélt því
fram fyrir rétti að enginn bifreiða-
stjóri hjá þeim, sem var í öðru stétt-
arfélagi, hefði verið í akstri meðan á
verkfalli Bifreiðastjórafélagsins
Sleipnis stóð. Við vorum ekki með
gögn í höndunum sem sýndu fram á
annað og þess vegna var málið látið
niður falla,“ sagði Óskar.
Óskar sagði að félagið væri nú að
afla sér upplýsinga um þá bflstjóra
sem félagið grunaði um að hafa ekið
rútum meðan á verkfallinu stóð. Fé-
lagið stefndi síðan að því að leggja
málið að nýju fyrir Félagsdóm.
Sleipnir er einnig með mál á hend-
ur Reykjavíkurborg fyrir Félags-
dómi, en það varðar lögmæti um-
sókna 27 strætisvagnabílstjóra hjá
SVR um inngöngu í Sleipni. Reykja-
víkurborg krafðist þess að málinu
yrði vísað frá, en Félagsdómur hafn-
aði því. Úrskurður Félagsdóms um
frávísunarkröfuna hefur nú verið
kærður til Hæstaréttar.
Hátíðarfundur um heimaþjónustu
Nær 80% ánægð
með þjónustuna
Hátíðarfundur um
heimaþjónustuna
í Reykjavík verð-
ur haldinn í Borgarleik-
húsinu á morgun klukkan
16.00 til 18.00. „Þar verður
fólk frætt um heimaþjón-
ustuna og einnig verður
rætt um breytingu á starf-
semi hennar sem nú er að
verða,“ sagði Lára Björns-
dóttir félagsmálastjóri.
„Einnig verða á fundin-
um kynntar helstu niður-
stöður úr nýrri notenda-
könnun sem gerð var
nýlega á þróunarsviði Fé-
lagsþjónustunnar.11
-I hverju eru þessar
breytingar á heimaþjón-
ustunni fólgnar?
„Fram til þess hefur
hefur heimaþjónustuna
verið tvískipt, annars vegar fyrir
67 ára og eldri og hins vegar fyrir
yngra fólk sem er tímabundið
veikt, fatlað eða þarf af öðrum or-
sökum aðstoð við heimilishald.
Núna verður sú breyting á að
þessir hópar sameinast og munu
starfa frá félags- og þjónustumið-
stöðvum í hverfum borgarinnar."
- Er heimaþjónustan sívaxandi
starfsemi?
„Já, það er óhætt að segja að
heimaþjónustan verður æ mikil-
vægari og fær sífellt ný og aukin
viðfangsefni. Það hefur verið
breytt um starfsaðferðir þannig
að í hverju tilviki er metið hvers
viðkomandi þarf með hvað aðstoð
við heimilishald og persónulegan
stuðning snertir. Stundum þarf
minna að hjálpa við heimilisstörf-
in en meiri félagslegan stuðning.
Til dæmis hvað varðar þá ein-
staklinga sem ekki hafa neitt fjöl-
skyldu- eða vinanet í kringum
sig.“
-Hvað margir njóta þjónustu
ykkar?
,Á síðasta ári aðstoðuðu starfs-
menn heimaþjónustunnar 3.300
heimili í borginni og flest til lengri
tíma. Starfsmannafjöldi skipti
hundruðum. Við reiknum t.d. með
að á fundinn á morgun í Borgar-
leikhúsinu komi yfir 300 manns.“
- Hvað verður á dagskrá fund-
arins?
„í fyrsta lagi mun ég fjalla um
heimaþjónustu á tímamótum, not-
endakönnunin verður kynnt og
auk þess fáum við Bergþór Páls-
son til að setja menningu og gleði í
fundinn með söng sínum. Þá verða
fimm heimaþjónustustarfsmenn
sem starfað hafa yfir tuttugu ár
heiðraðir. Eg mun einnig minnast
þeirra í minna mæli sem starfað
hafa hjá okkur í tíu ár eða lengur.
Þetta eru tuttugu konur sem við
þetta hafa starfað svona lengi.
Þær hafa unnið við krefjandi að-
stæður, farið á mjög mismunandi
vinnustaðir og þurft að glíma við
margvíslegar kringumstæður í
sínu starfí. Það er of sjaldan nefnt
að þetta starf gefur mikið þótt það
sé ekki vel launað. Það á það skilið
að vera hafið til meiri vegs og virð-
ingar vegna þessa. Af því viljum
stefna, m.a. með þess-
um fundi.“
- Hvað getur þú sagt
okkur um niðurstöður
fyrrnefndrar könnun-
ar?
„Langflestir þeirra
sem svöruðu voru kon-
ur, enda eru fleiri al-
draðir konur og þær líka duglegri
að svara. Um 70% af þeim sem
svöruðu búa einir. Rúmlega 79%
svarenda eru mjög eða frekar
ánægðir með heimaþjónustuna
þegar á heildina er litið og þeir
hinir sömu segja að heimaþjón-
ustan standist þær væntingar sem
► Lára Bjömsdóttir fæddist 25.
1943 á Stöðvarfirði. Hún lauk
stúdentsprófi 1963 frá Mennta-
skólanum á Akureyri og prófi í
félagsráðgjöf frá Kaupmanna-
höfn 1968. MA-prófi í sömu grein
lauk hún frá Bradford Univers-
ity í Englandi 1986. Hún hefur
starfað sem félagsráðgjafi,
lengst af í málefnum fatlaðra.
Hún hóf störf fyrst hjá Félags-
þjónustunni í Reykjavík 1969 en
er nú félagsmálasljóri frá 1994.
Lára er gift Ingólfi Hjartarsyni
hæstaréttarlögmanni og eiga
þau þijú uppkomin börn.
þeir höfðu til þeirra. Þegar við
spurðum hvort fólk væri ánægt
með hversu mikla þjónustu það
fengi þá kom fram að margir vilja
meiri þjónustu. Flestir af þeim
vildu fá aukna aðstoð við þrif. Ein-
hver hluti vildi líka fá meiri tíma
til að tala við starfsmanneskju
heimaþjónustu. En það er athygl-
isvert að menn leggja mikla
áherslu á samskipti við heima-
þjónustustarfsmanninn, þeir sem
taka fram að starfsmaðurinn tali
við sig eru nær undantekningar-
laust ánægðir með þjónustuna."
- Ber þetta ekki vott um að fólk
sé einmana?
„Jú, ég þetta bendir til að þeir
sem fá aðstoðina og búa einir þeir
hafi þörf meiri mannleg sam-
skipti. I þessu sambandi við ég
hvetja fólk til þess að nýta sér vel
öflugt félagsstarf sem byggt hefur
verið upp í borginni á 13 félags- og
þjónustumiðstöðvum í borginni.
Þess ber að geta að frá og með
áramótum verður þetta félags-
starf opið öllum aldurshópum með
það að leiðarljósi að: „Maður er
manns gaman. Þennan möguleika
ætti félagslynt fólk á öllum aldri
að skoða.“
- Petta er greinilega margþætt
- er brugðist við því hvað undir-
búning snertir?
„Um árabil hafa verið haldin
námskeið fyrir starfsmenn í
heimaþjónustu í samvinnu stétt-
arfélags og Reykjavíkurborgar.
Þessi námskeið hafa
verið haldin í Náms-
flokkunum og hafa
bæði verið styrking í
starfi og gefið heldur
hærri laun. Nú er í far-
vatninu ný námsleið
fyrir starfsmenn, m.a. í
heimaþjónustu, innan
framhaldsskólakerfisins. Mennta-
málaráðuneytið hefur fallist á til-
lögu starfsgreinaráðs að setja á
stofn sérstaka námsbraut félags-
liða. Þetta er 4 anna 67 eininga
nám og verið er að undirbúa nám-
skrárgerð fyrir það. Við væntum
mikils af þessu framtaki.
Ný námsleið
í farvatninu
fyrir starfs-
menn heima-
þjónustu og
fleiri