Morgunblaðið - 26.11.2000, Síða 34
34 SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2000
SKOÐUN
MORGUNBLAÐIÐ
ORAUNHÆFAR AÆTLANIR
RÍKISINS UM LYFJAÚTGJÖLD
ÍSLENDINGAR nota Utíð af lyfj-
um og minnst lyfja af Norðurlanda-
þjóðunum. Þrátt fyrir það eru stöð-
ugt fréttir í fjölmiðlum um hvernig
lækka beri lyfjakostnað ríkisins tU
að hann standist fjárlög. Er það að-
>. allega gert með því að auka hlutdeild
almennings í lyfjakostnaði. Tími er
kominn til að Alþingi hækki áætlanir
sínar á lyfjaútgjöldum í fjárlögum
því þær hafa verið óraunhæfar og
aldrei staðist mörg undanfarin ár.
Þar fyrir utan er stöðug aukning á
hlutdeild almennings í lyfjakostnaði
þjóðhagslega óhagkvæm, hún
minnkar þjóðarframleiðslu og eykur
annan kostnað vegna heilbrigðis-
þjónustu, eins og nánar verður bent
á hér á eftir.
Lyfjakostnaður ríkisins
íslendingar notuðu lyf fyrir um
9,2 milljarða króna með virðisauka-
skatti á sl. ári, þar af greiddi:
• Almenningur um 3,5 milljarða,
• Tryggingastofnun ríkisins um 4,7
milljarða og
• sjúkrahúsin um milljarð.
Af þessum 9,2 milljörðum króna
er 1,8 milljarðar virðisaukaskattur,
þannig að lyfjakostnaður lands-
manna án virðisaukaskatts var 7,4
milljarðar króna á sl. ári, þar af
greiddi:
• Almenningur um 3,5 milljarða og
• ríkið um 3,9 milljarða (Trygginga-
stofnun ríkisins og sjúkrahúsin að
frádregnum virðisaukaskattin-
um).
Raunverulegur lyfjakostnaður
ríkisins var því einungis um 3,9 millj-
arðar króna á sl. ári og almennings
um 3,5 milljarðar króna.
Til samanburðar má nefna að
áætlaður kostnaður ríkisins á næsta
ári vegna sjúkrahúsa er 29,9 millj-
arðar króna, vegna heilbrigðisstofn-
ana 5,9 milljarðar, vegna heilsu-
gæslustofnana 3,2 milljarðar, vegna
annarra sjúkrastofnana 8,3 milijarð-
ar og vegna lækniskostnaðar utan
sjúkrastofnana og heilsugæslustofn-
ana 2,5 milljarðar króna. Útgjöld
heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytisins eru áætluð 78,9 milljarðar
króna á næsta ári og heildarútgjöld
r ríkisins eru áætluð 210 milljarðar.
Lítill lyfjakostnaður
Eins og sjá má af framangreindu
er lyfjakostnaður landsmanna lítill
miðað við önnur útgjöld heilbrigðis-
þjónustunnar. Lyfjakostnaður
landsmanna er reyndar ótrúlega lít-
ill þegar haft er í huga að:
• 40 þúsund manns taka hjarta- og
æðasjúkdómalyf daglega vegna
hjartabilunar, háþrýstings,
hjartaangar o.fl.,
• 7 þúsund manns taka blóðfitu-
lækkandi lyf daglega til að fyrir-
byggja hjarta- og æðasjúkdóma,
• 15 þúsund konur taka getnaðar-
vamarpillur reglulega,
• 14 þúsund konur nota hormón
vegna tíðahvarfa reglulega,
• 12 þúsund manns taka bólgueyð-
andi lyf við gigt og eftir slys o.fl.
daglega,
• þrjú þúsund manns nota bark-
stera við ýmsum bandvefs- og
gigtsjúkdómum o.fl. daglega,
• 5 þúsund manns nota sýkingalyf
daglega að meðaltali,
• 8 þúsund manns taka verkjalyf við
höfuðverk o.fl. daglega,
• fjögur þúsund manns nota sterk
verkjalyf við krabbameini o.fl.
daglega,
• tvö þúsund manns taka flogaveiki-
lyf daglega,
• 6 þúsund manns taka róandi lyf
daglega,
• 14 þúsund manns taka svefnlyf
daglega,
• 16 þúsund manns taka geðdeyfð-
arlyf við þunglyndi, kvíða, fælni
o.fl. daglega,
• tvö þúsund manns taka sefandi lyf
við geðklofa o.fl. daglega,
• 8 þúsund manns taka sársjúk-
dómslyf við maga- og skeifu-
gamarsárum og bólgu í vélinda
vegna bakflæðis o.fl. daglega,
• þijú þúsund manns nota lyf við
sykursýki daglega,
• 5 þúsund manns taka lyf við
vanstarfsemi skjaldkirtils dag-
lega,
• þrjú þúsund manns nota lyf til að
hætta reykingum að jafnaði,
• 11 þúsund manns nota astmalyf
daglega,
• 5 þúsund manns nota neflyf við
nefstíflu o.fl. daglega,
• 5 þúsund manns nota ofnæmislyf
að meðaltali,
• tvö þúsund manns nota glákulyf
daglega - svo algengustu lyfin séu
nefnd.
Eftir þessa upptalningu þykir ef-
laust einhverjum margir nota lyf, en
maðurinn er víst ekki fullkominn.
Hafa ber í huga að lyfjanotkun er lít-
il hér á landi miðað við önnur lönd.
Lyf eru það sjálfsagður þáttur í
daglega lífinu að sennilega átta sig
ekki allir á því að án þeirra myndu
þúsundir landsmanna deyja og tug-
þúsundir manna verða
óstarfhæfar á skömm-
um tíma. Þrátt fyrir
þann gífurlega hag
sem er af notkun lyfja
er stanslaus áróður
gegn notkun lyfja, og
það oft frá heilbrigðis-
yfirvöldum, sem þó
síst skyldu gera það.
Lyfjakostnaður
eykst ár frá ári, aðal-
Iega vegna þess að ís-
lendingum fjölgar ár
frá ári, fólk lifir lengur
en áður og lífsgæði
aukast ár frá ári vegna
tilkomu nýrra lyfja.
Þrátt fyrir þessar
staðreyndir er oftast
eða aldrei gert ráð fyrir aukningu
lyfjaútgjalda í fjárlögum, reyndar er
oftast gert ráð fyrir niðurskurði rík-
Hætta er á, segir
Haukur Ingason, að
með vanhugsuðum
lyfjasparnaði sé verið
að spara eyrinn en
kasta krónunni.
isins á lyfjaútgjöldum. Stjómmála-
menn ætlast því til að almenningur
greiði fyrir alla þá aukningu sem
verður á lyfjakostnaði.
Ábyrgð stjórnmálamanna
Alþingismenn hafa sloppið ótrú-
lega vel frá umræðu um þá ábyrgð
sem þeir bera á stanslausri aukningu
á hlutdeild almennings í lyfjakostn-
aði. Allir bera þeir ábyrgð á gerð
fjárlaga og bera því allir ábyrgð á
aukningu á hlutdeild almennings í
lyfjakostnaði, með því að gera ekki
athugasemdir eða breytingatillögur
við viðkomandi áætlanir á lyfjaút-
gjöldum í fjárlögum.
Lyfjakostnaður sjúkratrygginga
var 4,7 milljarðar árið 1999, í fjárlög-
um fyrir árið 2000 var aðeins gert
ráð fyrir 3,9 milljörðum í lyfjakostn-
að sjúkratrygginga, sem var auðvit-
að algjörlega óraunhæf áætlun,
kostnaðurinn stefnir þó í að verða
einungis 4,6 milljarðar fyrir þetta ár,
með aukinni hlutdeild almennings í
lyfjakostnaði.
I fjárlögum fyrir
næsta ár er gert ráð
fyrir 4,6 milljörðum
króna í lyfjakostnað
sjúkratrygginga þrátt
fyrir að búist væri við
að kostnaðurinn yrði
4,9 milljarðar á þessu
ári þegar fjárlögin voru
gerð og þrátt fyrir að
lyfjamarkaðurinn auk-
íst um 10% á milli ára,
þannig að enn á að auka
hlutdeild almennings í
lyfjakostnaði.
Hvað vill al-
menningrir?
Lyfjamarkaðurinn
vex um 10% á ári og
mun gera það áfram því fólk vill fá
ný lyf við sjúkdómum sem ekki hefur
verið hægt að meðhöndla áður og
betri lyf við þeim sjúkdómum sem
nú er hægt að meðhöndla, auk þess
sem þjóðinni fjölgar og fólk lifir
lengur en áður.
Tími er kominn til að alþingis-
menn svari til um hvers vegna ekki
er gert ráð fyrir aukningu lyfjaút-
gjalda í fjárlögum, ætlast þeir til að
almenningur beri þennan aukna
kostnað eða ætlast þeir til að íslend-
ingar fái ekki að njóta þeirra fram-
fara sem hafa orðið og munu verða í
lyfjaiðnaði? Hefur almenningur ein-
hvern tímann verið spurður að því
hvort hann vilji að ríkið spari í lyfja-
útgjöldum? Fólk vill jú fá ný og betri
lyf-
Það er ákvörðun stjómmála-
manna hversu mikinn hlut almenn-
ingur á að bera í lyfjakostnaði, en
hafa ber í huga að öllu má nú ofgera.
Eftir því sem kostnaður almennings
í lyfjakostnaði eykst sparar almenn-
ingur þeim mun meira við sig lyfin
sem aftur leiðir til fjölgunar veik-
indadaga, minni þjóðarframleiðslu,
fjölgunar heimsókna til lækna, auk-
ins rannsóknakostnaðar vegna sjúk-
dóma og fjölgunar innlagna á sjúkra-
hús.
í upphafi skyldi því endinn skoða.
Athuga þarf hversu miklar álögur er
hægt að leggja á almenning þannig
að ríkið tapi ekki beinlínis á sparnað-
inum, ef takmarkið er að almenning-
ur taki eins mikinn þátt í lyfjakostn-
aðinum og mögulegt er, eins og
virðist vera stefna stjórnvalda.
Lítil greiðsluþátttaka
TR á lyfjum
Óraunhæfar áætlanir á lyfjaút-
gjöldum í fjárlögum undanfarinna
ára hafa auðvitað aldrei staðist og er
skuldinni þá venjulega skellt á heil-
brigðisráðherra sem síðan kennir
Tryggingastofnun ríkisins um
hvernig komið er. Tryggingastofnun
ríkisins bregst síðan við með því að
auka hlutdeild almennings í lyfja-
kostnaðinum. Bæði er það gert með
því að taka ekki þátt í greiðslu á
ákveðnum lyfjum, og með því að
auka greiðsluhlutdeild almennings í
þeim lyfjum sem Tryggingastofnun
ríkisins tekur þátt í að greiða.
Tryggingastofnun ríkisins tekur
ekki þátt í greiðslu lyfja í mörgum
tilvikum og skal hér bent á tvö dæmi
þar sem ríkið beinlínis tapar á spam-
aðinum.
Talið er að reykingar og offita séu
þeir einstöku þættir sem mest áhrif
er hægt að hafa á til að fyrirbyggja
ótímabær dauðsföll, veikindi og
notkun á h''ilbrigðisþjónustu.
Um 55 þúsund manns reykja hér á
landi að jafnaði og talið er að um 350
manns deyi árlega vegna afleiðinga
reykinga úr krabbameini, lungna-
þembu, kransæðastíflu, heilablæð-
ingu o.fl. Til samanburðar má nefna
að um 25 manns deyja árlega í um-
ferðarslysum og um 40 manns vegna
sjálfsvíga. Nokkur lyf eru hér á
markaði til að hjálpa fólki til að
hætta að reykja. Þótt ótrúlegt megi
virðast tekur Tryggingastofnun rík-
isins ekki þátt í greiðslu þessara
lyfja. Aftur á móti tekur Trygginga-
stofnun ríkisins þátt í kostnaðinum
þegar í óefni er komið, t.d. vegna
krabbameins, lungnasjúkdóma og
hjarta- og æðasjúkdóma. Að ríkið
skuli ekki taka þátt í lyfjakostnaði til
að hjálpa fólki að hætta að reykja
skýtur nokkuð skökku við, miðað við
umræðuna um að leggja þurfi aukna
áherslu á fyrirbyggjandi aðgerðir í
heUbrigðismálum. Benda má á í
þessu sambandi að ef eitthvert lyf
hefði álíka aukaverkanir og tóbak
hefur, þá væri það umsvifalaust tek-
ið af markaði!
Um 25 þúsund manns þjást af of-
fitu hér á landi og áætla má að um
180 manns deyi á ári vegna fylgi-
kvilla offitu úr hjartaáfalli, heilablóð-
falli o.fl. Mörg þúsund manns þjást
auk þess daglega vegna afleiðinga
offitunnar, t.d. vegna sykursýki,
kæfisvefns, mæði, slitgigtar eða
þvagsýrugigtar. Tryggingastofnun
ríkisins tekur ekki þátt í greiðslu
lyfja við offitu fyrr en viðkomandi er
orðinn u.þ.b. 30 kg yfir kjörþyngd og
er kominn með fylgikvilla offitunnar,
t. d. sykursýki, mikla blóðfitu, kæfi-
svefn, mæði, gallsteina, kransæða-
sjúkdóm, háþrýsting eða slitgigt,
þrátt fyrir að lyfjanefnd mæli með
notkun lyfja hjá þessu fólki ef það er
orðið u.þ.b. 10 kg yfir kjörþyngd og
þrátt fyrir að Tryggingastofnun rík-
isins taki þátt í greiðslu annarra
lyfja við þessum fylgikvillum. Trygg-
ingastofnun ríkisins tekur einnig
þátt í greiðslu þessara lyfja ef við-
komandi eru án fylgikvilla, en þá
þurfa viðkomandi að vera orðnir
a.m.k. 40 kg yfir kjörþyngd, þó svo
að lyfjanefnd mæli með notkun lyfs-
ins hjá þessu fólki ef það er orðið
u. þ.b. 15 kg yfir kjörþyngd. Trygg-
ingastofnun ríkisins tekur því ekki
þátt í greiðslu lyfja við offitu fyrr en í
óefni er komið, þó svo að hægt sé að
grípa mun fyrr inn í vandamálið, og
þrátt fyrir að mikið sé talað um að
leggja þurfi aukna áherslu á fyrir-
byggjandi aðgerðir í heilbrigðismál-
um.
Reykingar og offita eru stærstu
vandamálin sem heilbrigðiskerfið
stendur frammi fyrir á næstu árum
og athyglisvert verður að sjá hvem-
ig yfirvöld ætla að taka á þeim. Und-
irritaður vonar þó að það verði gert
með skynsamlegri hætti en gert er
varðandi greiðsluþátttöku ríkisins á
lyfjum við þessum vandamálum.
Að spara eyrinn en
kasta krónunni
Það hefur verið einkenni á lyfja-
markaðinum hér á landi að íslend-
ingar hafa verið fljótir að tileinka sér
nýjungar og nýta sér þannig þær
framfarir sem orðið hafa í lyfjaiðnað-
inum. Afleiðingarnar hafa ekki látið
á sér standa, Islendingar eru meðal
langlífustu þjóða í heimi. íslendingai-
nota einnig lítið af lyfjum miðað við
aðrar þjóðir, því eftir því sem notuð
eru betri lyf þarf að nota minna af
þeim.
Þennan árangur má trúlega þakka
að hluta til því að kostnaður almenn-
ings við lyf og heilbrigðisþjónustu
hefur verið tiltölulega lítill hér á
landi miðað við mörg önnur lönd. Sí-
felldur niðurskurður yfirvalda á
hlutdeild sinni í kostnaði vegna lyfja
kann þó að breyta þessu, því auknar
álögur á almenning í lyfjakostnaði
leiða til verri lyfjameðferðar en vera
þyrfti og ónógrar lyfjameðferðar í
mörgum tilvikum, sem aftur leiðir til
verri meðhöndlunar á sjúkdómum
en þyrfti að vera.
Lyfjakostnaður er það lítill hluti
af kostnaði við heilbrigðisþjónustuna
að fara þarf með mikilli gát í lyfja-
sparnaði til þess að aukning á út-
gjöldum vegna annarra þátta heil-
brigðisþjónustunnar verði ekki mun
meiri en sem sparnaðinum nemur.
Hætta er á að með vanhugsuðum
lyfjasparnaði sé verið að spara eyr-
inn en kasta krónunni.
Höfundur er lyfíafræðinjpir og
nmrkadssíjóri Roche á Islandi.
Karíus og Baktus
fara ekki í jólafrí!
TAHNVfRNDARRAú
Foreldrar 09 börn athugið
að tennurnar eru jafn-
viðkvæmar í desember
og aðra mánuði.
Byrjum ekki daginn á
neyslu súkkulaðis eða
annarra sætinda
- bað er slæmur siður
á öllum árstímum!