Morgunblaðið - 26.11.2000, Page 64

Morgunblaðið - 26.11.2000, Page 64
VlÐSKlf'TAHUCBÚNAÐUR ~~z*ÆBT <^x' ■ -ÓSTURIN Einn heimur -eitt dreifikerfi! MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNIl, 103 REYKJAVÍK,SÍMI 5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3M0, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRLKA UPVANGSSTRÆTI1 SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2000 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK. Flutningaskipið Villach strandaði við Grundartangahöfn MorgunDiaoio/itax Flutningaskipið Villach strandaði 100 metra frá landi við Katanes í Hvalfirði og 500 metra frá Grundartangahöfn. Losa átti skipið á flóðinu í gær. FLUTNINGASKIPIÐ Villach, sem er í eigu Nes- skipa, tók niðri við Katanes í Hvalfírði um 500 metra frá Grundartangahöfn og 100 metra frá landi þegar skipið var að leggjast að um níuleytið í gærmorgun, um þremur tímum eftir morgunflóð- ið. Skipið, sem er 7.500 tonn að stærð, er skráð á Kýpur en hét áður ms. Akranes. Það var að koma með kvarts fyrir Járnblendifélagið þegar það strandaði. Tólf Pólverjar eru í áhöfn Villach og sakaði engan þeirra. Þeir neituðu allri aðstoð og stóð til að losa Villach á kvöldflóðinu á sjöunda tímanum í gærkvöldi með aðstoð tveggja dráttar- báta frá Akranesi og Reykjavík. Stíf norðanátt var á strandstað en veður og sjólag að öðru leyti gott. Allar varúðarráðstafanir voru gerðar sem vant er þegar um skipstrand er að ræða. Að sögn Guð- mundar Ásgeirssonar, framkvæmdastjóra Nes- skipa, urðu ekki teljandi skemmdir á skipinu nema beygla á framanverðum skrokk þess. Guðmundur sagði skipstjórann vanan þessari siglingaleið, kannski of vanan, eins og hann orðaði það. Þegar rætt var við Guðmund var hann kominn um borð og sagði hann enga olíu leka frá skipinu og litla hættu talda á slíku þar sem olíutankar eru í aftan- verðu skipinu. Samkvæmt upplýsingum hafnarstarfsmanna á Grundartanga er afar óvenjulegt að skip taki niðri á þessum stað, en skipstjórinn er talinn hafa farið of norðarlega inn í höfnina og sveigt skipinu of seint. Sparkað í lögreglu- menn og einn bitinn RÁÐIST var að tveimur lög- reglumönnum í Reykjavík í fyrrinótt er þeir þurftu að hafa afskipti af ölvuðu fólki. Fyrra skiptið var við Geirs- götu þegar lögreglumenn ætl- uðu að koma manni til hjálpar, sem tilkynnt hafði verið um sem rænulausan í vegkant- inum. Þegar einn lögreglu- manna ætlaði að ýta við honum réðst sá að honum með spörk- um og látum. Þurfti lögreglu- maðurinn að fara á slysadeild til að láta gera að sárum á hægri hendi. Hinn „rænulausi“ var handtekinn og látinn gista fangageymslu lögreglunnar. í seinna skiptið var lögreglu- maður skallaður í andlitið og bitinn af 14 ára gamalli stúlku þegar hann ásamt starfsfélög- um sínum ætlaði að leysa upp samkomu unglinga í heimahúsi í Breiðholti. Kvartað hafði verið ítrekað undan hávaða frá ungl- ingunum, samkvæmt upplýs- ingum frá lögreglu. Foreldrar unglinganna voru látnir vita af hegðan bama sinna og flestir komu og sóttu þau. Þetta er í fjórða og fimmta sinn í mánuð- inum sem ráðist er að lögreglu- mönnum í skyldustörfum sín- um hér á landi. Tónleikar í leyfisleysi Lögreglan þurfti einnig að hafa afskipti af tónleikum á Granda í fyrrinótt þar sem fjöldi unglinga var saman kom- inn í óþökk nágranna sem kvörtuðu undan hávaða. I ljós kom að leyfi hafði ekki fengist fyrir tónleikunum og voru þeir stöðvaðir án tafar. Töluverður erill var hjá lög- reglunni í Reykjavík í fyrrinótt og voru 9 ökumenn teknir, grunaðir um ölvun við akstur. Rafveitur fá ókeypis aukaaflí desember LANDSVIRKJUN hefur ákveðið að hækka yfirafl í des- ember til þeirra rafveitna sem eru í beinum viðskiptum við fyrirtækið, þeim að kostnaðar- lausu. Aukningin nemur 20% og gefur veitunum möguleika á að afhenda viðskiptavinum sín- um meira rafmagn en ella. í frétt frá Landsvirkjun kemur fram að gripið sé til þessara ráðstafana nú, þar sem óvenju vel ári í vatnsbúskap og nægt afl sé fyrir hendi í kerfi fyrirtækisins. Sumar rafveitur hafa mætt hluta af aflþörf viðskiptavina sinna að vetrarlagi með því að keyra dísilvélar en rekstrar- kostnaður þeirra hefur hækkað vegna hærra olíuverðs. I ljósi þessa segist Landsvirlyun vilja, með ráðstöfunum sínum nú, stuðla að aukinni nýtingu innlendra orkugjafa og draga um leið úr mengun. Níu af hverjum tíu innbrot- um vegna fíkniefnaneyslu ÓMAR Smári Armannsson, aðstoð- aryfirlögregluþjónn í Reykjavík seg- ir að níu af hverjum tíu innbrotum sem lögreglan í Reykjavík upplýsir séu vegna fíkniefnaneyslu. Innbrotsþjófar beri því a.m.k. við að þeir séu að fjármagna fíkniefna- neyslu þegar þeir eru spurðir um ástæður fyrir innbrotunum. Tíðir þjófnaðir á skjávörpum og fartölvum benda til þess að hér á landi sé tals- vert stór hópur fólks sem vill kaupa þessar vörur stolnar. Þá er vitað til þess að nokkrir skjávarpanna hafa skotið upp kollinum erlendis. Skjá- varpa má m.a. nota til að varpa sjónvarpsefni og tölvuleikjum á rf. On Æ KM L-l-n-a-n ÆskulínufeóJf r Grundvöllur að góðrí framtið Æskullnubók er verðtryggður 36 mánaða reikningur með hæstu vöxtum almennra reikninga bankans. Forráðamenn barna geta þó bundið reikninginn til lengri tima, þannig að innstæðan verði laus til útborgunar við ákveðinn aldur, t.d. 16 eða 18 ára. ® BÚNAÐARBANKINN Traustur banki veggi. Ómar Smári Armannsson, að- stoðaryfirlögregluþjónn í Reykjavík, segir að svo virðist sem þessi tæki séu orðin e.k. stöðutákn. Þeir sem kaupa stolna vöru gerast brotlegir við lög Hann minnir á að þeir sem kaupa stolna vöru, jafnvel í gáleysi, gerist brotlegir við hegningarlög. Hægt er að refsa fyrir slíkt með sektum eða varðhaldi. Ef um ásetning er að ræða getur brotið varðað fangelsi allt að fjórum árum. Fólk sem kaupir stolna muni má því eiga von á refsingu, komist upp um það. Þá verður það jafnframt af varningnum. Ómar Smári bætir við að kaup á þýfi ýti undir fleiri afbrot. Því fleiri sem kaupi þýfi, því meiri líkur séu á að þeir sem séu að byrja afbrotaferil sinn haldi honum áfram. Þar sem innbrotsþjófar stundi í langflestum tilvikum iðju sína til að fjármagna fíkniefnakaup sé fólk með þessu einnig að ýta undir fíkniefnaneyslu með öllum þeim hörmulegu afleið- ingum sem fylgja. Mikil afföll við sölu Ómar Smári segir að undanfarið hafi skjávörpum verið stolið úr fyrir- lestrasölum og verslunum, sem hafa þá á boðstólum, og það þrátt fyrir að þeir hafi verið festir þar kirfilega niður. Stutt er síðan skjávarpa var stolið úr einni kennslustofu Háskól- ans í Reykjavík. Talið er að skjávarpinn hafi horfið á milli klukk- an fjögur og fimm en kennt var í stofunni fram að þeim tíma. Búast má við því að þjófurinn hafi þurft a.m.k. 20-40 mín. til að athafna sig. Nú mun vera búið að ganga tryggi- legar frá skjávörpunum í skólanum. Á fimmtudaginn handtók lög- reglan í Reykjavík mann þegar hann reyndi að koma stolnum skjávarpa í verð. Hann vildi skipta á varpanum fyrir nokkurt magn af hassi sem metið er á um 50.000 krónur. Skjávarpinn sjálfur kostaði um 400.000 krónur. Sat fast 100 metra frá landi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.