Morgunblaðið - 23.12.2000, Side 8
8 LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
-
Tillaga þingmanna stjórnarandstöðuflokkanna,
Svona Guðni minn, ég læt þig bara baula á þetta lið, góði.
IT Í33 T7I\ nTéun a
Bi verðiðj
,'resario 5000 Series 1000Mhz
• 17" vandaður Compaq skjár
með JBL hátölurum
• 64 MB SDRM
• 20 GB harður diskur
• 8x DVD mynddiskadrif
•32 MBTNT2 meðTV-OUT
• 64 radda hljóðkort
• 56K V.90 módem
• 4x USB tengi
(tvö að framaverðu)
Windows ME
Öflugur hugbúnaðarpakki.
Fullt verð slmans án áskriftar er 27.999,-
Einniq fáanlegur með Islensku stýrikerfi
12.999 ÍTAL12og 31.999 án
áskriftar.
731. útborgun
TAL12 er 12 mánada 6SM greidsludreifmg greidd med kredit*
korti. AukTAL12 útborgunar eru greiddar 800 krónur á mánuði
(12 mánuði. Þannig eru greiddar kr. 17.599,- fyrir Nokia 6210.
lægt er velja mismunandi þjónustuleiðir þar sem greitt er mismunandi
iskriftargjald: Eintal fyrir kr. 600 á mánuði, Frítal fyrir kr. 500 á mánuði eða Tfmatal
yrir kr. 590 á mánuði. Greiddar eru krónur 1.999 fyrir sfmkort og símanúmer.
b50-4444 • Hafnarfirði - 550-4020 • Kringlunni - 550-4499
æ - 421-4040 • Akureyri - 461-5500 • Egilsstöðum - 471-3880
Lífbíllinn verður á ferð um jólin
Veitir ráðgjöf
og aðhlynningu
Guðmundur Jónsson
BYRGIÐ, kristilegt
líknarfélag, verður
með bifreið sem
kallast lifbíllinn á ferli um
hátíðamar. Að sögn Guð-
mundar Jónssonar, for-
stöðumanns Byrgisins,
verður í í þessum bíl veitt
ráðgjöf varðandi vandamál
tengd áfengi og vímuefna-
neyslu. Hann var spurður
hvers vegna þessi bíll væri
gerður út á þessum tíma?
„Pað er tvimælalaus
þörf fyrir þetta. Milli 80 og
100 einstaklingar eru á
ferli á götum Reykjavíkur
sem eiga ekki í nein hús að
venda og stór hluti þessa
hóps eru unglingar. Þetta
fólk á ekki pláss í meðferð
yfir hátíðarnar, kemst
ekki inn, það er allt fullt
alls staðar. Við ætlum að sinna
þessu fólki.“
- í hverju er aðstoð ykkar fólg-
in fyrir utan ráðgjöf?
„Við gefum þeim sem til okkai'
leita heita súpu og brauð og einn-
ig erum við með hlýjan fatnað."
-Er það svo að þetta fólk sé
útigangsfólk?
„Að stórum hluta er það svo.
Sumir hafa kannski húsaskjól en
engan mat. Vegna þessa verðum
við líka með jólahlaðborð á jóla-
dag í húsnæði okkar í Lækjargötu
32 í Hafnarfirði. Þangað geta allir
komið klukkan 16 og fengið mat
og notið tónlistarflutnings."
- Er óvenjulega margt fólk sem
er svona istatt fyrir núna?
„Já, það ber öllum saman um
það sem koma að hjálparstarfi
fyrir þessi jóla að það sé óvenju-
lega margt fólk sem á hvergi
höfði sínu að halla. Líka má geta
þess að þeir sem nóg hafa eru
gjafmildari en oft áður.“
- Eruð þið með úthlutun á fatn-
aði eða peningum fyrirjólin?
„Við vorum með úthlutun á
fatnaði og mat. Við erum ekki
með neina opinbera styrki til
slíkrar starsfemi, aðeins til upp-
byggingarinnar í Rockville.“
- Hvað fer fram þar?
„Þar er langtíma meðferðarúr-
ræði fyrir alkóhólista og vímu-
efnaneytendur.“
- Hvenær hófst ykkar starf?
„Það hófst opinberlega 1. des-
ember 1996. A þessum tíma hefur
neyslan orðið „harðari" og meiri
og þörfin því fyrir meðferðarúr-
ræði hefur aukist. Ég hef ekki séð
hlutina batna, heldur versna ár
frá ári.“
-Eftir hvaða kerfí hjálpið þið
fólkft
„Við störfum samkvæmt tólf
spora kerfi AA-samtakanna. Allt
prógramm hjá okkur miðast við
Orð Guðs og þann kærleiksboð-
skap sem þar er að finna - ef þú
hjálpar öðrum ert þú um leið að
hjálpa sjálfum þér. Biblían er ein
mesta mannræktarbók
sem nokkurn tíma hef-
ur verið gefm út.“
- Hvað eruð þið með
marga í meðferð?
„Núna eru hjá okkur
sjötíu manns. Karlmenn eru í ör-
litlum meirihluta. Það er allt fullt
hjá okkur og við getum ekki tekið
við fleirum fyrr en eftir áramóta,
þó munum við sinna neyðartilvik-
um og höfum auglýst sérstakan
neyðarsíma: 565-5300. Bíllinn er
liður í þessari neyðarhjálp.“
- Hvaða fólk verður á vakt í líf-
bílnum?
„Allir sem starfa í bílnum yfir
jólahátíðina eru sjálfboðaliðar og
fyrrverandi neytendur áfengis
eða vímuefna sem hafa notið með-
ferðar í Byrginu á sl. fjórum ár-
► Guðmundur Jónsson fæddist
í Hafnarfirði 19. nóvember
1958. Hann lauk gagnfræða-
prófl frá Víghólaskóla í Kópa-
vogi og einnig lauk hann próf-
um frá Iðnskólanum í
Reykjavík í múrverki og er
einnig sem kjötiðnaðarmaður.
Hann hefur starfað við múr-
verk og kjötafgreiðslu og sem
kokkur á sjó. Nú er hann for-
stöðumaður Byrgisins. Guð-
mundur er kvæntur Helgu
Haraldsdóttur húsmóður og
skrifstofumanni og eiga þau
þrjú börn.
um. Lífbíllinn og 8 aðrir bflar
voru sérmerktir Byrginu á útihá-
tíðum í sumar og þar vorum við
með viðlíka hjálparstarf sem
mæltist vel fyrir bæði hjá gestum
og mótshöldurum.“
- Hvernig gengur fóUd að að-
lagast samfélaginu eftir meðferð-
ina?
„Mjög vel. Skýrsla okkar fyrir
síðasta ár sýnir að 38% þeirra
sem hjá okkur hafa verið ná ár-
angri og fjölmargir af þeim eru
nú í atvinnu, en höfðu ekki at-
vinnu áður.“
- Eruð þið með ráðgjöf fyrir þá
sem eru að fóta sig á nýjan leik í
samfélaginu eftir að hafa ánetjast
vímuefnum alvarlega?
„Já, við erum með samkomu-
hald á hverju föstudagskvöldi þar
sem við hittumst og eigum saman
góða kvöldstund. Oft eru um 130
manns á kvöldunum hjá okkur,
bæði þeir sem innan Byrgisins
eru og þeir sem hafa verið þar.
Einnig erum við með viðtöl við
fyrrverandi Byrgisfólk og svo aft-
ur aðstandendur þess. Þá eru fjöl-
skylduviðtöl veitt.“
-Eru allir tilbúnir að koma í
meðferð þar sem trúin hefur svo
miklu hlutvcrki aðgegna?
„Öllum sem koma til meðferðar
í Byrginu er gert ljóst út á hvað
meðferðin gengur og í
sárafáum tilvikum veit
ég til að fólk hafi yf-
irgefið meðferðina
vegna þess að pró-
grammið væri trúar-
legs eðlis. Við sjáum ár frá ári að
fólk hungrar í að reyna þessa
meðferð þegar allt annað hefur
þrotið."
- Hafíð þið samstarf við aðra
meðferðaraðila?
„Já, við höfum samskipti við
Vog og áfengisdeild Landspítal-
ans og áfangaheimili Krossgatna
enda væri þetta vonlaust nema
menn störfuðu saman. Þetta er
því ekki eins og að starfa í við-
skiptum - hugsjónin verður að
vera til staðar og leiðarljós í starf-
inu.
Við munum
sinna neydar
tilvikum
,