Skírnir - 01.01.1833, Blaðsíða 19
19
rikisins i hendr bróður sínum Don Carlo og
drottníngu sinni í sameiningu, meðan hanu væri
sjúkr; sóttin elnaði, og konúngr lá íleiri dægr í
andarslitrunum og einusinni var hann sagðr dauðr,
og barst fregn sú útum alla Evrópu; en meðan
svo stóð á, bjuggu stjórnarherrarnir svo um,
að Carlos, þegar konúngr dæi, gjæti þegar tek-
ið við stjórninni, er þeir liöfðu fengið konúng
tii að undirskrifa gjörníng nokkurn, er ónýtti iög-
mál það, er konúngr gaf, þegar dóttur hans fædd-
ist í hitt eð fyrra, og ánafnar henni ríki á Spáni
næst eptir föður sinn, ef honum eigi yrði síðar
sonar auðið, og var þessi gjörníngr byrtur um allt
ríkið. En þegar minst varði, vaknaði konúngr
við og korast að velræðum bróður síns og stjórn-
arherranna; rak hann livörutveggju frá vöidum,
en fól drottníngu sinni einsamri að stýra ríkinu;
liún byrjaði stjórn sína með því að fyrirgefa ölluni
þeim, er dregnir liöfðu verið fyrir dóm og sakfeldir
um stjórnar- og frelsis-meiníngar, og sátu í fáng-
elsi og þrælkun, og var það mikill fjöldi. Annað
höfuð-atriðið var það, að hún bauð kenníngar skyldu
aptr fara fram við háskólana, er Ferdínand kon-
úngr hafði lagt bann við; þvínæst skipti liún nm
stjórnarherra, og setti ýmsa frá embætti í lier-
liðinu og í fylkjastjórninni, cn kjöri aptr í þeirra
stað frelsisvini, er áðr vóru reyndir að góðu og
liún vissi mundu lialda fram máli hennar með
trúlyndi. Yarð nú mörg umbót í landstjórninni,
er enginn mundi liafa geta fyrirseð á Spáni, og
mæltist sein likligt var, vel fyrir, en ýmsir héldu
drottníng færi nmbótinni fram heldr skyndiliga og
* '* (2*)