Skírnir - 01.01.1842, Blaðsíða 8
RáÖherrar vildu nú, sem sagt var, lækka toll
|>ann, er gjalda skal af sikri og trjavið, er frá út-
lönduin er komið með til landsins, og gjöra minni
mismun á, enn liingað til hefir gjört verið, hvaðan
frá aðfiutningarnir koma, og svo vildi Jön Russell
að settur væri fastur og viðværilegur tollur á
kornið, væntust þeir með {iví að géta aukið tekjur
rikisins sem þyrfti, án þess þó að leggja nýar
álögur á þjóðiua, og um leið rétt víð kaupverðsl-
un og látið Iielstu nauðsynjar manna falla i verði.
En svo ágætar uppástúngur þessar voru í sjálfu
sðr, varð þeim þó miður framgengt, enu skyldi;
mörguin þókti sem ráðherrar hefði liaft nægau
timan fyrir sfer, til að koma fram mcð þær, ef
þeim á annað borð hefði verið nokkuð annt um
það málcfui, fyrri enn uú, er þeir máttu hafa
séð af afdrifum þeim, er lagafrumvarp Morpeths
hafði, að þeir hefði fleiri af fulltrúunum móti
sér, enn með, og að þeir því vart þyrfti að hugsa
til, að fá þeim framfylgt, meðan þeir sömu væri
fulltrúar, er þá voru þaðT og Iiugsuðu því að þeir
myndi hafa gripið til þessa, til að vinna sér með
því hylli alþýðu, svo þeir gæti haldið völdum sín-
um, því þeir myndi hafa búist við, að uppástúngur
þessar yrði alþýðu svo géfcfelldar, að ef þingiuu
yrði slítið og nýir fulltrúar valdir, myndi húu
eigi velja aðra, enn þá, er sér yrði meðmæltir;
enda tóku menn nú og um allt landifc að búa sig
nndir nýtt fulltrúa val. Torimeun fylltust bræði,
er þeir heyrðu þessar uppástúugur ráðherra, þó
þókti þeim verst, að Jón Russell vildi hreifa við
kornlöguniim, væri nú vansýnna, enu fy,rr, 'hvert