Skírnir - 01.01.1842, Blaðsíða 38
40
er þeir ætið hafa mikið af vínföngum til sölu,
en nóg ríkidæmi er í Belgíu, voru þeir þó lengi
tregir að ganga að þessu, var einkum um að kénna
egiugyrni þjóðfulltrúanna og margra annarra vald-
amanna, er þóktust hafa baga af, ef járn og stein-
kol færi að flytjast frá útlöndum; vildu þeir því
heldst, að Belgar setti niður tollinn hjá sér, en
þeir þó sjálfir mætti hafa liann eins háau fyrir
það; en að slíku vildu Belgar eigi gánga, sem
von var. Gekk því lengi í tómum ráðslögunum,
enda var ogsvo stjórnenðum Frukka nóg, ef þeir
með drætti þessum gæti aptrað því, að Belgar
gengi í toll-lag þjóðverja; því tækist ser það, myndi
þeir einhvern tíma, þó scinna væri, fá á þeim færi.
Frá viðskiptum Frakka við Spánverja og Tyrki,
skal siðar sagt verða, en hér viljum ver drepa
að eins á stríð það, er þeir heya á Algier. I fyrra
vetur, mánudaginn fyrstan í Góimánuði (22 Fe-
brúar mánaðar) kom Bugeauð hershöfðingi til
Algiersborgar; hafði hanu verið sendur — sem
gfetið er í Skírni í fyrra — í stað Vallees, er sagt
hafði verið að fara heim aptur til Frakklands; fóru
nú og til Algiers tveir synir Frakka konúngs til
að berjant þar undir herstjórn hans ámóti Arabum,
vóru það hertogarnir uf Aumale og Nemours.
Undir eins og Bugeauð var kominn lýsti hann
því yfir, að hann með her sínum vildi svo vernda
nýlendumenn fyrir árásum Araba, að þeim yrði
óhult og marga rikismenn heima á Frakklandi og
annarstaðar mætti fýsa, að flytja sig þángað bú-
ferlum, væri sér og í hug, að Játa byggja marga
smábæi; en til þessa yrði raenn að halda stríðinu