Skírnir - 01.08.1908, Side 19
I
Trúarjátningarnar og kenningarfrelsi presta.
Ýmsa. menn hér heima heflr langað til þess, að kenn-
ingarfrelsi presta yrði tekið til umræðu meðal vor. Og
þegar fregnin um afdrif skólamáls Vestur-íslendinga á
síðasta kirkjuþingi barst hingað, urðu óskirnar um þetta
enn sterkari. Og af því að eg er einn í tölu þeirra
manna, er þessa ósk ala í brjósti, réð eg af að rita grein
um þetta mál. Og mér virðist vel eiga við að láta um-
ræður Vestur-íslendinga verða tilefnið til þess, að málinu
sé hreyft hér heima.
* Vér erum svo fáir, íslendingar, að oss er auðvelt
að sjá yfir allan hópinn, og því eðlilegt, að vér
veitum nákvæina eftirtekt öllu því, er gerist með
löndum vorum hinumegin hafsins. Líf þeirra er lif af
voru lífi. Og oss er það hið hjartfólgnasta mál, að þjóð-
erni þeirra varðveitist þar. Og hins vegar er alt af að
koma nýr og nýr vottur þess, hve rík þjóðernistilfinning-
in er með löndum vorum vestra. En báðum hlutum þess-
arar litlu þjóðar er það mikilsvert, að þessi samúð sé sem
mest og að það sé mönnum ljóst báðumegin hafsins.
Kii’kjumálin eru eigi lítill þáttur í lífi Vestur-íslendinga,
og fyrir því hefir það vakið mikla athygli bæði vestra
og hér á landi, hvernig kirkjuþingið síðasta fór með skóla-
* málið svo nefnda. En nú er það berlegt, að andróðurinn
og ímugusturinn, sem vakinn hefir verið gegn íslenzku-
kennaranum við Wesley-skólann, síra Friðriki J. Berg-
mann, á eina aðalrót sína að rekja til þess, að flokki
manna þar vestra, eða leiðtogum þeirra, stendur stuggur
af frjálslyndi hans í kristindómsmálum, og að likindum
14*